Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 700. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1038  —  700. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um verðtryggingu lána.

Frá Jóni Gunnarssyni.



     1.      Telur ráðherra verðtryggingu lána enn eiga rétt á sér miðað við stöðuna í efnahagsmálum landsins?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir afnámi verðtryggingar lána til einstaklinga og fyrirtækja?
     3.      Er í gangi á vegum ráðuneytisins einhver skoðun á kostum og göllum núverandi verðtryggingar? Ef svo er, hvenær má vænta niðurstöðu úr henni? Ef svo er ekki, mun ráðherra beita sér fyrir slíkri skoðun á næstunni?