Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 706. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1047  —  706. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um afslátt af endurgreiðslu námslána.

Frá Kristjáni L. Möller.



    Hvað líður framkvæmd hugmynda um að bjóða ungu háskólamenntuðu fólki tímabundinn afslátt af endurgreiðslu námslána setjist það að á svæðum þar sem skortur er á háskólamenntuðu fólki, sbr. markmið í byggðaáætlun?