Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 430. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1048 — 430. mál.
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Hjálmars Árnasonar um verðmæti umfjöllunar um vetnisáform.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða verðmæti má ætla að séu fólgin í þeirri umfjöllun sem vetnisáform Íslendinga hafa fengið á alþjóðavettvangi?
Stuðst var við gögn frá fyrirtækinu Íslensk nýorka, sbr. fylgiskjal I, og utanríkisráðuneyti, sbr. fylgiskjal III, við gerð þessa svars.
1. Mat á verðmæti alþjóðlegrar umfjöllunar um vetnisáform Íslendinga.
Forsendur fullnægjandi svars við fyrirspurninni hljóta að vera þær að
– til sé sem næst tæmandi yfirlit um umfjöllun í fjölmiðlum heimsins um vetnisáform Íslendinga,
– beitt sé sambærilegri aðferð við að meta áhrif umfjöllunarinnar í mismunandi fjölmiðlum um allan heim,
– fyrir liggi haldbærar upplýsingar um kostnað við auglýsingabirtingar í sömu fjölmiðlum (ef þá eru birtar þar auglýsingar á annað borð), til að hafa til hliðsjónar við mat á verðmæti eða áhrifum umfjöllunarinnar.
Umtalsverð vinna hefur verið lögð í að afla upplýsinga hérlendis og erlendis til að svara fyrirspurninni. Fljótlega kom í ljós að ógerlegt er í reynd að taka saman tæmandi skrá yfir alla umfjöllun málsins í veröldinni og það er heldur ekki vinnandi vegur að draga saman upplýsingar um heildarverðmæti þessarar umfjöllunar, á mælikvarða kostnaðar við auglýsingabirtingar í viðkomandi fjölmiðlum. Hins vegar má nálgast svar við fyrirspurninni með því að sýna umfang málsins og nefna dæmi úr fjölmiðlum til að unnt sé að glöggva sig á heildarmyndinni.
Mörg hundruð blaðagreinar og sjónvarpsfréttir.
Upplýsingar sem aflað var staðfesta að mun meira og víðar hefur verið fjallað um vetnisáformin en flestir Íslendingar geta gert sér grein fyrir. Vetnið á Íslandi hefur fengið rými í alls konar miðlum um víða veröld, hvort sem í hlut eiga alþjóðlegar sjónvarpsstöðvar eða lítil héraðsfréttablöð í fjarlægum heimshornum. Þetta er þannig heimsfrétt á sinn hátt.
– Alþjóðlegar sjónvarpsstöðvar hafa framleitt og sýnt þætti um vetnisverkefnið, 20–40 mínútna langa. Þættir af þessu tagi hafa birst í BBC, Discovery Channel, finnska ríkissjónvarpinu YLE, Television Suisse Romande, PBS og Canal Plus.
– Frásagnir og myndir í tengslum við vetnismálið hafa birst í fréttatímum sjónvarpsstöðva víðs vegar um heim svo hundruðum skiptir. Þar má nefna BBC í Bretlandi, bandarísku sjónvarpsstöðvarnar ABC, NBC, CNN, sjónvarpsstöðvar í öllum norrænu ríkjunum og Frakklandi, Euro-News og fleiri.
– Í heildina tekið hefur verið fjallað um íslenska vetnisverkefnið í yfir 500 blaðagreinum, sjónvarpsþáttum og tímaritsgreinum um allan heim frá því árið 1999. Fréttir og frásagnir um opnun vetnisstöðvar við Vesturlandsveg í Reykjavík 24. apríl 2003 birtust í fjölmiðlum í Ástralíu, Bandaríkjunum, Brasilíu, Japan, Kanada, Kína, Kóreu, Tælandi og í öllum Evrópuríkjum að því best er vitað.
Í þessari samantekt er athyglinni einkum beint að venjulegri dægurmálaumfjöllun um vetnisverkefnið í fjölmiðlum (sjá fskj. I). Einnig skal nefnd umfjöllun í sérhæfðum fagritum annars vegar og hins vegar umfjöllun á ráðstefnum og sýningum, en engin tilraun er gerð hér til að leggja mat á verðgildi þessara síðastnefndu tveggja þátta.
Þá er ónefndur sjálfur veraldarvefurinn, upplýsingamiðill nútímans. Þegar að er gáð má finna upplýsingar af ýmsu tagi um vetnismálið ótrúlega víða á vefnum. Ef ensku orðin Iceland og hydrogen eru slegin inn í helstu leitarvélar fást eftirfarandi svör:
. Google: 15.200 síður tengdar þessum orðum.
. Yahoo: 22.800 síður.
. Lycos: 66.000 síður.
Vandkvæðum bundið að meta áhrif og verðmæti.
Fyrirtæki í markaðsmálum og almannatengslum beita mörgum mismunandi aðferðum við að mæla fjölmiðlaumfjöllun og gildi hennar. Reynt er að meta hve mikils virði tiltekin umfjöllun er, hvort hún teljist jákvæð eða neikvæð og hvort skilaboðin séu í samræmi við markmið sendandans.
Dæmi um mælikvarða af þessu tagi er svokölluð auglýsingajafnvirðisaðferð (Advertising Value Equivalent). Þar er horft til þess rýmis í mínútum eða dálksentimetrum, sem ákveðin umfjöllun tekur í fjölmiðli og það metið til fjár með því að bera saman við kostnað við að kaupa jafnstóra auglýsingu á sama stað í sama blaði eða jafnlanga auglýsingu í ljósvakamiðli. Auglýsingakostnaðurinn er síðan oftast margfaldaður í samræmi við huglægt mat hverju sinni á þeirri forsendu að umfjöllun blaðamanna og fréttamanna sé trúverðugri í augum almennings en keypt auglýsing um sama efni. Umfjöllunin sé því mun verðmætari en auglýsingin. Margföldunarstuðullinn getur verið breytilegur, fjórfaldur, fimmfaldur, jafnvel tífaldur eða hærri, allt eftir því hvaða fjölmiðlar eiga í hlut, lengd fréttar, fjöldi lesenda/áhorfenda o.s.frv.
Almannatengslafyrirtækið Bracken Public Relations telur óvarlegt að nota almennt hærri margföldunarstuðul en 3,5 fyrir vetnisumfjöllunina, þar sem efnið hafi ekki mjög almenna skírskotun, en mat erlendra samstarfsfyrirtækja Íslenskrar nýorku (DaimlerChrysler, Shell Hydrogen og Norsk Hydro) er að margfalda megi hina jákvæðu umfjöllun sem verkefnið hefur fengið með stuðlinum 10–20 til að fá fram raunverðmæti. Eflaust væri hægt með enn ítarlegri gagnaöflun og fyrirspurnum um auglýsingaverð að nálgast einhverja raunhæfa tölu en vinnan og kostnaðurinn við það væri slíkur að ekki var talið álitlegt að fara þá leið. Í staðinn er brugðið upp nokkrum dæmum sem eiga að geta gefið allgóða innsýn í það hvert verðmæti umfjöllunarinnar geti verið.
Eftirfarandi eru dæmi um fréttir í fjölmiðlum og kostnaður við samsvarandi auglýsingarými í sömu miðlum. Auðvitað hlýtur að vera erfitt og umdeilanlegt hvernig beri að áætla verðmæti slíkrar umfjöllunar fyrir vetnisverkefnið og fyrir Íslendinga. Samanburður við auglýsingakostnað gefur hins vegar vísbendingu í krónum talið en fullvíst er að raunverulegt verðmæti er margfalt meira, samkvæmt auglýsingajafnvirðisaðferðinni sem fyrr er nefnd.
– Breska dagblaðið The Guardian (1,3 milljónir lesenda að jafnaði daglega) fjallaði ítarlega um íslenska vetnisverkefnið og opnun vetnisstöðvarinnar við Vesturlandsveg. Álíka stór auglýsing í blaðinu mundi kosta um 2,7 millj. kr.
– Breska dagblaðið Daily Telegraph (2,4 milljónir lesenda að jafnaði daglega) fjallaði líka á áberandi hátt um vetnismálið. Auglýsing af sömu stærð í blaðinu mundi kosta a.m.k. 4 millj. kr.
– Þýska vikuritið Stern (yfir 7 milljónir lesenda að jafnaði í hverri viku) fjallaði um vetnisáform Íslendinga á fjórum síðum í nóvember 1999. Álíka stórar auglýsingar í Stern mundu kosta á bilinu 12–14 millj. kr., allt eftir því hvort þær birtast í lit eða svarthvítu.
– Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN International birti viðtal við forseta Íslands 14. nóvember 2003 í tilefni af fyrirlestri hans í Kólumbíuháskóla í New York. Forsetinn talaði m.a. um vetnisáform Íslendinga og tilheyrandi verkefni. Viðtalið var 5–7 mínútna langt og var sent út nokkrum sinnum allan daginn. Eftir því sem næst verður komist kostar birting 30 sekúndna auglýsingar í CNN á þessum tíma dags tæplega 400 þús. kr. Varlega áætlað hefðu auglýsingar í CNN, álíka langar og viðtalið tók, kostað 20–30 millj. kr. Útsendingar CNN ná til 163 milljóna heimila í yfir 200 löndum um allan heim og áhrif slíkrar umfjöllunar hljóta að vera í samræmi við það.
– Þýska vefritið Spiegel online (www.spiegel.de, 30 milljón heimsóknir á mánuði) birti fjögurra síðna grein í apríl 2003 þar sem m.a. var fjallað um vetnismálið. Ætla má að sambærilegt auglýsingarými hefði kostað þar um 5 millj. kr.
Jákvæð áhrif á ímynd Íslands.
Fulltrúar Ferðamálaráðs, fulltrúar viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins, markaðsskrifstofa Icelandair í Bandaríkjunum og Evrópu og fleiri, sem rætt var við, eru yfirleitt á einu máli um að vetnisáformin hafi vakið mikla athygli víða um heim og að þau hafi jákvæð áhrif á ímynd Íslands.
Á það er líka bent í svari Íslenskrar nýorku að alþjóðleg fyrirtæki sem verkefninu tengjast, t.d. Shell Hydrogen og DaimlerChrysler, hafi fengið sérstaka umfjöllun sem nái til milljóna manna, í ljósvakamiðlum, prentmiðlum og netmiðlum. Má þar nefna miðla á borð við CBS News, MSNBC, Dnet, Popular Science og Hydrogen Magazine. Þá má og geta þess að starfsmenn sendiráðanna urðu einnig varir við neikvæða umræðu, m.a. í olíuframleiðsluríkjum þar sem umræða um vetni sem orkubera er ekki talin tímabær.
Aðferðafræðin, sem reifuð var hér að framan og varðar samanburð við auglýsingakostnað, svarar auðvitað ekki öllum þeim spurningum sem máli skipta. Markaðs- og almannatengslafyrirtæki nota líka ýmsar aðrar aðferðir til að mæla og meta hvort fjölmiðlaumfjöllun hafi náð tilgangi sínum. Þannig er til aðferð sem ætlað er að leiða í ljós hvort tiltekin fjölmiðlaumfjöllun sé jákvæð, neikvæð eða hlutlaus. Aðferð þessi kallast Influence Tracking á enskri tungu. Með henni er einnig reynt að meta hvaða boðskap fyrirsagnir frétta hafa og hverjir helst eru nefndir til sögu í fréttum eða greinum. Enn má nefna aðferð sem notuð er til að mæla hvort fjölmiðlaumfjöllun hafi komið tilteknum skilaboðum á framfæri á áhrifaríkan hátt, svokölluð Message Delivery Effectiveness.
Hvað svo sem aðferðin heitir sem beitt er við mat á áhrifum vetnisumfjöllunarinnar um heim allan bendir flest til þess að Ísland og Íslendingar hafi fengið mikla og jákvæða kynningu út á við fyrir þátttöku sína í þessu verkefni. Skilaboðin eru skýr og þau eru Íslandi tvímælalaust til framdráttar og sóma. Alls staðar er vísað til Íslands sem vetnissamfélags og bent á vistvæna orkugjafa og vistvæna orkuvinnslu hérlendis. Erlendir þátttakendur í verkefninu kalla það gjarnan ,,íslenska verkefnið“ þegar þeir vísa til þess, sem treystir enn frekar tengsl Íslands við málið.
Vetnisumfjöllunin hefur styrkt í sessi ímynd Íslands sem hreins og umhverfisvæns lands. Slíkt er auðvitað afar verðmætt og verður í reynd ekki metið til fjár. Það er jafnan fjallað um Ísland sem fyrirmynd í alþjóðasamfélaginu á sviði orkumála og orkunýtingar. Víst er að vetnismálið hefur vakið áhuga margra á landi og þjóð og aukið áhuga sem þegar var fyrir hendi hjá öðrum.
2. Þróun verkefna á sviði vetnis.
Árið 1998 mörkuðu íslensk stjórnvöld stefnu sem miðar að sjálfbæru vetnissamfélagi hér á landi í framtíðinni. Var lögð áhersla á að skapa hér skilyrði svo landið gæti orðið vettvangur alþjóðlegra rannsókna á því sviði með því að fá hingað aukinn hluta af þeim alþjóðlegu rannsóknarverkefnum sem unnið er að og flýta um leið fyrir þeirri þróun að vetni komi í stað olíu sem eldsneyti í samgöngum. Hefur þessi stefnumörkun tekist vel í ECTOS-verkefninu, sem miðar að rannsóknum og þróun á notkun vetnis í almenningssamgöngum með rekstri vetnisvagna hér á landi. Nýlega var einnig undirrituð viljayfirlýsing á milli Íslands og Kanada á sviði vetnis og stjórnvöld í Bandaríkjunum buðu Íslandi ásamt nokkrum öðrum þjóðum, sem framarlega eru á sviði vetnisrannsókna, að gerast stofnaðili að alþjóðlegum samstarfsvettvangi 14 landa (IPHE) um rannsóknir og þróun er miðar að aukinni nýtingu vetnis sem orkubera. Sjá einnig fylgiskjal II.
Efnahagslegt umfang á sviði vetnismála .
Eykur samstarfið vonandi möguleika íslenskra fyrirtækja og einstaklinga á sviði vetnisrannsókna en um 25 manns vinna nú orðið beint og óbeint í tengslum við ýmis verkefni á þessu sviði. Er áætlað samkvæmt upplýsingum Íslenskrar nýorku að á næstu fjórum árum verði velta í vetnistengdum rannsóknum hér á landi um 1,5 milljarðar króna og komi stærstur hluti þess fjármagns frá erlendum aðilum. Rétt er að benda á að stór hluti rannsóknanna fer fram erlendis, t.d. smíði vetnisvagna, en gera má ráð fyrir að u.þ.b. 40% þeirra fari fram innan lands. Styrkir Evrópusambandsins til vetnisverkefna undir forustu Íslenskrar nýorku nema nú í heild u.þ.b. 350 millj. kr. Nýlega fékk Íslensk nýorka 30 millj. kr. styrk frá ESB til að sinna forkönnun er varðar vetnisvæðingu fiskiskipaflotans.
Heimsóknum til íslenskra fyrirtækja sem tengjast vetni fer stöðugt fjölgandi og er nú svo komið að þau eiga erfitt með að anna eftirspurn. Áætla talsmenn Íslenskrar nýorku að á vegum fyrirtækisins hafi komið rúmlega 1.000 gestir til landsins á liðnu ári en 200–400 gestir að meðaltali á umliðnum árum. Um er að ræða ferðamenn sem að flestir koma utan hefðbundins ferðatíma og skilja að jafnaði eftir umtalsverð verðmæti (high paying tourism). Á næstu árum, á meðan tilraunir með strætisvagnana standa yfir, má gera ráð fyrir enn meiri fjölda erlendra gesta.
Landkynning erlendis.
Í máli sendiherra og annarra hefur komið fram að vetnisumfjöllun í erlendum fjölmiðlum hafi haft mikið kynningargildi, sem líklegt er að skili sér beint og óbeint á margan hátt fyrir íslenska hagsmuni, m.a. ferðaþjónustuna. Kemur fram í umsögn utanríkisráðuneytisins, sbr. fskj. III, að í sendiráðum erlendis hafi starfsmenn orðið varir við vaxandi velvilja í garð Íslands og áhuga fyrir vistvænni nálgun íslenskra stjórnvalda. Það skili sér aftur með ýmsum hætti og auðveldi t.d. „kynningu á hvalveiðum í vísindaskyni og afstöðu Íslendinga til hvalveiða“. Áhugi á vetnismálunum hefur einnig leitt til þess að athygli erlendra aðila hefur beinst að tengdum sviðum, t.d. jarðvarma.
3. Verðmæti sem ekki verða mæld beint í krónum og aurum.
Engin leið er að meta í krónum og aurum alla þá umfjöllun sem vetnisáform Íslendinga hafa fengið. Umræðan spannar höf og heimsálfur og hefur náð til tuga ef ekki hundruða milljóna manna. Í hnotskurn snúast þessi „verðmæti“ um eftirfarandi meginþætti:
. Umfjöllun fjölmiðla (sjónvarp, útvarp, dagblöð, heimasíður/vefsíður, fagblöð).
. Ráðstefnur og fundi um vetni (umfjöllun um Ísland).
. Fundir innan alþjóðastofnana (ESB, Sameinuðu þjóðanna o.fl.).
. Umfjöllun í háskólum, rannsóknarstofnunum, fjármálastofnunum o.fl.
. Umfjöllun alþjóðlegra stórfyrirtækja (Shell, DaimlerChrysler, Norsk Hydro o.fl.).
. Kynningarstarf alþjóðlegra fyrirtækja, svo sem Shell Hydrogen, þar sem vetnisstöðin á Ártúnshöfða er notuð sem ímynd fyrirtækisins, jafnframt því að í kynningarefni frá Shell sem er markvisst dreift er vetnisverkefnið á Íslandi sem og Ísland kynnt.
. Verðmæti annarrar umfjöllunar og áhrif á aðra þætti, svo sem ferðamennsku o.fl.
. Áhrif á ímynd Íslands og tengda málaflokka, svo sem umhverfismál og loftslagsmál.
. Áhrif innan alþjóðlegra verkefna og stofnana á tengda málaflokka.
. Gildi aukinnar auglýsingar fyrir aðra málaflokka.
Ekki er nokkur leið að slá fram einhverri tölu út frá fyrirliggjandi gögnum um verðmæti þessa og þeirrar umfjöllunar sem verið hefur um vetnisáform Íslendinga en um leið er jafnauðvelt að álykta út frá sömu gögnum að ef kaupa hefði átt auglýsingar til jafns við allt þetta efni hefði kostnaður við slíkt eflaust hlaupið á upphæðum sem telja þyrfti í hundruðum milljóna króna ef ekki milljörðum.
Fylgiskjal I.
Íslensk nýorka:
Fylgiskjal II.
Iðnaðarráðuneyti:
I. Þróun umfjöllunar og verkefna á sviði vetnis.
Árið 1998 mörkuðu íslensk stjórnvöld stefnu sem miðar að sjálfbæru vetnissamfélagi hér á landi í framtíðinni. Sú stefna var einnig í samræmi við stefnu stjórnvalda um nýtingu endurnýjanlegra orkulinda og markmið í umhverfis- og loftslagsmálum. Þessi stefna miðar að því að skapa hagstæð skilyrði hér á landi, þannig að Ísland geti verið vettvangur alþjóðlegra vetnisrannsókna. Þetta verði gert með áherslu á alþjóðlegt samstarf, þróun þekkingar og tækni á sviði vetnisnýtingar, menntun og þjálfun, framleiðslu vetnis, notkun efnarafala í samgöngum með tengsl við stefnu Íslands í loftslags- og umhverfismálum.
Kjarni þessarar stefnu er að efla þróunarstarf og verðmætasköpun með því að fá hingað til lands aukinn hluta af þeim alþjóðlegu rannsóknarverkefnum sem unnið er að á þessu sviði og flýta um leið þeirri þróun að vetni komi í stað olíu sem eldsneytis í samgöngum, þegar slíkt verður hagfellt tæknilega og efnahagslega. Hér á Íslandi hefur tekist að byggja upp ýmsa atvinnustarfsemi sem byggist á framúrskarandi þekkingu, rannsóknum og frumkvæði einstaklinga og við höfum alla burði til að sækja fram á nýjum sviðum. Alþjóðleg samkeppni er hins vegar óvægin og tækifærin koma ekki og banka á dyrnar. Við verðum að hafa fyrir því að afla verkefna á þessu sviði sem öðrum.
Áðurnefnd stefnumörkun stjórnvalda virðist hafa tekist afar vel í ECTOS-verkefninu, sem er samstarfsverkefni nokkurra innlendra aðila innan Vistorku (fyrirtæki innlendra aðila vegna þessa samstarfs) og erlendu stórfyrirtækjanna, DaimlerChrysler, Shell og Norsk Hydro, auk Evrópusambandsins, en stjórnvöld studdu einnig verkefnið. Verkefnið miðar að rannsóknum og þróun á notkun vetnis í almenningssamgöngum með rekstri þriggja vetnisvagna hér á landi. Verkefnið hefur gengið vel og var það jafnframt fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Hefur það vakið það mikla athygli í Evrópu að nú hafa níu aðrar borgir í sjö löndum tekið upp svipað tilraunaverkefni.
Verkefnið, sem og stefna íslenskra stjórnvalda, hefur vakið verulega eftirtekt víða erlendis og hefur sú athygli farið vaxandi. Þetta kemur m.a. fram í aukinni erlendri umfjöllun, athygli og fyrirspurnum erlendis, sem og heimsóknum erlendra aðila, svo sem rannsóknaraðila, opinberra aðila, fjölmiðla, áhugaaðila o.fl., til Íslands, sem áætlað er að hafi verið um 1.000 talsins á sl. 12 mánuðum. Nýlega var einnig undirrituð viljayfirlýsing á milli Manitóba í Kanada og Íslands á sviði vetnis. Um 25 manns vinna núorðið beint og óbeint í tengslum við ýmis verkefni á sviði vetnis og á fjögurra ára tímabili (2000–2004) er gert ráð fyrir að velta í vetnistengdum rannsóknum hér á landi sé um 1,5 milljarðar kr., samkvæmt upplýsingum Nýorku, þar sem stærstur hluti þess fjármagns kemur frá erlendum aðilum.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum buðu Íslandi ásamt nokkrum öðrum þjóðum, sem framarlega eru á sviði vetnisrannsókna, að gerast stofnaðili að alþjóðlegum samstarfsvettvangi (IPHE) 14 landa um rannsóknir og þróun er miða að aukinni nýtingu vetnis sem orkubera. Þessi samstarfssamningur var undirritaður í Washington í nóvember sl. Þetta verður að telja viðurkenningu fyrir starf okkar á þessu sviði hér á landi og hefur ríkisstjórnin samþykkt að Ísland gerist aðili að þessu samstarfi – enda fellur það vel að áðurnefndri stefnumörkun stjórnvalda. Þetta samstarf eykur vonandi möguleika íslenskra fyrirtækja og einstaklinga til frekari sóknar á hinum alþjóðlegu vetnismörkuðum. Á þessu sviði vetnisrannsókna er fjöldi tækifæra framundan, sem íslenskir aðilar geta vonandi nýtt.
II. Staða, umfang og verkefni á sviði vetnismála á Íslandi.
Á umliðnum missirum og mánuðum hefur umfang og athygli á vetnismálum og þróun þeirra á Íslandi vaxið afar hratt. Á þetta ekki síst við um verulega aukna athygli, fyrirspurnir og heimsóknir erlendra aðila til Íslands á seinustu mánuðum. Meðfylgjandi er lausleg samantekt er varðar efnahagslegt umfang vetnismála hér á landi.
Efnahagslegt umfang á sviði vetnismála.
Velta: Á árunum 2000–2004 má gera ráð fyrir því að heildarvelta í tengslum við vetnisrannsóknir Íslendinga sé u.þ.b. 1,5 milljarðar kr. samkvæmt upplýsingum Nýorku. Rétt er að benda á að stór hluti fer fram erlendis, t.d. smíði vetnisvagna o.s.frv. Gera má ráð fyrir að u.þ.b. 40% fari fram innan lands. Styrkir Evrópusambandsins til verkefna undir forystu Íslenskrar nýorku nema í heild u.þ.b. 350 millj. kr.
Starfsmenn: Erfitt er að gera sér grein fyrir hversu margir vinna beint að vetnisverkefnum. Það má þó áætla að í rannsóknum og öðru séu unnin um 25 ársverk (samkvæmt Nýorku) og hefur þeim fjölgað jafnt og þétt. Þá er ekki tekið tillit til jaðaráhrifa (ferðaþjónusta o.s.frv.).
Heimsóknir til orkufyrirtækja: Heimsóknum til fyrirtækja tengdum vetni (Nýorka, HÍ, ÍTÍ o.fl.) er ekki hægt að hafa tölu á lengur. Til Íslenskrar nýorku koma aðilar í hverri viku. Sem dæmi má nefna að með tilkomu flugs beint til Tókýó komu um 50 ferðamenn í tengslum við þessi mál. Önnur orkufyrirtæki hafa einnig fengið mikið af heimsóknum. Fjöldi áhugasamra gesta er það mikill að erfitt hefur reynst að anna eftirspurn. Á næstu árum má gera ráð fyrir fjölda gesta enda strætisvagnar komnir í umferð og meira að sjá og sýna. Stór hluti af þeim erlendu gestum sem hafa komið til Íslands til að skoða vetnisverkefni og áherslur, hafa einnig farið í heimsóknir til annarra orkufyrirtækja, svo sem Landsvirkjunar, Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur.
Fjöldi erlendra gesta til Íslands – tekjur af ferðamönnum.
Nýorka áætlar að á vegum fyrirtækisins hafi komið rúmlega 1.000 gestir til landsins á árinu 2003 – en á umliðnum árum hefur þessi tala verið um 200–400. Um er að ræða ferðamenn sem að mestu koma utan hefðbundins ferðatíma og ferðamenn sem skilja eftir mikil verðmæti (high paying tourism).
Umfang og virði fjölmiðlaumfjöllunar erlendis. Vetnisverkefnið og stefnumörkun stjórnvalda á því sviði hefur vakið mikla athygli erlendis og miklu mun meiri en flestir áttu von á. Á undanförnum árum hefur varla verið haldin ráðstefna um þessi mál erlendis nema að starfsmönnum Nýorku sé boðið. Að meðaltali hafa um 50 blaða- og fréttamenn komið á ári til fyrirtækisins en Nýorka gerir ráð fyrir því að um 150 fjölmiðlamenn hafi komið til landsins á árinu 2003. Að mati fyrirtækisins eru blaðagreinar, sjónvarpsþættir (allt að 1 klst. að lengd) og tímaritsgreinar nú sennilega komnar yfir 500 síðan 1999 og ekkert lát virðist vera á þessum áhuga. Sem dæmi má nefna að fréttaskeyti voru birt í sjónvarpsfréttum í Kína, Japan, Kóreu, Ástralíu, Tælandi, Bandaríkjunum, Brasilíu, kanada og nánast öllum ríkjum Evrópu þegar vetnisstöðin var vígð í apríl síðastliðnum.
Samstarf yfirvalda, rannsóknargeirans og einkageirans: Það samstarf sem myndast hefur vegna vetnisverkefna er mjög sérstakt og hefur verið tekið eftir því út um allan heim. Hér er um mjög náið samstarf einkageirans, stjórnvalda og rannsóknarstofnanna að ræða. Ekki er algengt að vel takist til þegar um slíkt samstarf er að ræða en erlendir aðilar hafa dáðst að árangri og eru flestir þeirrar skoðunar að það sé vegna þess farsæla samstarfs. HÍ og Iðntæknistofnun hafa komið mjög náið að verkefninu og ljóst að með þeirra fulltingi er verið að byggja upp þekkingu á þessu sviði til framtíðar og leggur það grunn að enn frekari verkefnum. Ljóst er að þetta samstarf verður ekki til eilífðar en er mikilvægt á fyrstu árum þekkingaröflunar.
Önnur tengd mál.
1. „Goodwill“ innan ESB – 30 millj. kr. styrkur til Nýorku vegna skipaverkefnis. Nýlega hefur Íslensk nýorka fengið 30 milljóna kr. styrk frá ESB til að sinna forkönnun er varðar vetnisvæðingu fiskiskipaflotans. Þessi styrkur var einn af afar fáum sem veittur var á sviði orkumála innan rammaáætlunar ESB að þessu sinni og sýnir á sama tíma mat ESB á þeim vetnisathugunum sem verið er að vinna að hér á landi.
2. Kynningarefni. Íslensk nýorka er um þessar mundir að senda almennt kynningarefni um vetnisverkefni og vetnisframleiðslu í alla framhalds- og gagnfræðaskóla landsins. Efnið var samvinnuverkefni meðal annars styrkt af ESB og verður sýnt í Nýjasta tækni og vísindi. Öll vinna við verkefnið fór fram hérlendis. Diskurinn hefur vakið athygli innan framkvæmdastjórnar ESB á sviði vetnis.
3. Vetnismál – mikil landkynning erlendis. Í máli sendiherra og annarra hefur komið fram að vetnisumfjöllun í erlendum fjölmiðlum hafi haft mikið kynningargildi - sem líklegt er að skili sér beint og óbeint á margan hátt fyrir íslenska hagsmuni, m.a. í ferðamennsku. Þess má geta að hingað til lands hafa á umliðnum vikum og mánuðum komið um 1–3 hópar um vetnismál í viku hverri til Nýorku og HÍ.
4. Tengsl vetnismála við aðra málaflokka – loftslagsmál, umhverfismál, orkumál og kynningarmál. Í umfjöllun í Bandaríkjunum hefur komið fram að verkefni á vetnissviðinu eru m.a. hluti af áherslum Bandaríkjunum í loftslags- og umhverfismálum, þar sem ráðuneyti orkumála fer einnig með umhverfismál. Víða erlendis er umfjöllun um vetnismál hluti af umfjöllun um umhverfis- og loftslagsmál. Umfjöllun um vetnismál tengist því beint og óbeint öðrum málaflokkum.
5. Vetni – sóknarfæri á sviði rannsókna. Með þeim vetnisverkefnum sem þegar er unnið að hér á landi hefur þegar myndast grunnur að frekari sóknarfærum á því sviði ekki síst rannsóknum, sem og tengdum verkefnum. Aukin athygli erlendis á verkefnum á Íslandi er mikilvægt atriði í frekari verkefnum á þessu sviði hér á landi í samstarfi við erlenda aðila. Í sumar hélt t.d. HÍ sérstakt nokkurra daga alþjóðlegt seminar um vetnismál, þar sem mættu fjöldi erlendra sérfræðinga á þessu sviði.
6. Vetnismál – hafa auglýst önnur svið, svo sem jarðvarma. Athygli á sviði vetnis hefur einnig leitt til þess að athygli erlendra aðila hefur beinst að tengdum sviðum eins og jarðvarma. Bent hefur verið á að Ísland sé í fararbroddi á sviði jarðvarma í heiminum og mikil markaðstækifæri séu að myndast í A-Evrópu – enda séu mestu endurnýjanlegu orkulindir innan ESB í jarðvarma þeirra landa. ESB mun á næstunni leggja aukna áherslu á þetta svið. Þetta kom skýrt í ljós í viðtölum við Buscan, framkvæmdastjóra vísinda og tæknimála innan ESB, sem var á ferð hér fyrir skömmu.
III. Verðmætamat á erlendri umfjöllun.
Þegar reynt er að leggja mat á verðmæti umfjöllunar um vetnismál erlendis, er slíkt afar erfitt og mörg álitaefni og aðferðafræði koma upp í hugann. Þannig getur umfjöllun erlendis (eða innan lands) verið með ýmsum hætti – hvort sem sú umfjöllun er í fjölmiðlum eða á öðrum stöðum – sem síðar kann að skipta miklu máli fyrir viðkomandi málaflokk, einstaklinga, fyrirtæki eða þjóð. Sem dæmi má taka að fjallað hefur verið um vetnismál innan margra alþjóðastofnana, svo sem ESB, IEA, Sameinuðu þjóðanna o.fl., sem síðar hefur bein og óbein áhrif á ýmsan hátt. Þetta getur verið verðmæt umfjöllun þó hún verði tæpast mæld í fjármunum. Rakin skulu nú einungis nokkur af mörgum atriðum er þetta varðar.
Tegund umfjöllunar.
. Fjölmiðlar, sjónvarp, útvarp, dagblöð, fagblöð.
. Ráðstefnur og fundir almennt um viðfangsefnið vetnið þar sem m.a. er fjallað um Ísland.
. Fundir innan alþjóðastofnana, svo sem innan alþjóðastofnana ESB, SÞ o.fl.
. Umfjöllun í háskólum, rannsóknarstofnunum, fjármálastofnunum, o.fl.
. Umfjöllun alþjóðlegra stórfyrirtækja, Shell, DaimlerChrysler, o.fl.
. Umfjöllun alþjóðlegra fjölmiðla á heimasíðum, ráðstefnum, í tímaritum o.fl.
. Kynningarstarf alþjóðlegra fyrirtækja. svo sem Shell, þar sem íslenska vetnisstöðin er notuð sem „ímynd“ (brand building) fyrir fyrirtækið, fjöldi funda og blaðaviðtala, sbr. heimasíðu fyrirtækisins. Kynningarefni frá fyrirtækinu Shell er markvisst dreift og þar er vetnisverkefnið á Íslandi kynnt, sem og Ísland.
Verðmæti umfjöllunar.
. Umfjöllun fjölmiðla, o.fl.
> Peningalegt gildi fjölmiðlaauglýsinga, frétta, kynninga hjá erlendum stórfyrirtækjum o.fl.
> Verðmæti mælt í beinum og óbeinum áhrifum og verðmæti mælt á annan hátt.
Áhrif.
. Verðmæti annarrar umfjöllunar, svo sem áhrif á ferðamennsku,
. Áhrif á ímynd Íslands og málaflokka, svo sem umhverfismál og loftslagsmál.
. Gildi aukinnar auglýsingar fyrir aðra málaflokka.
. Áhrif innan alþjóðlegra verkefna og stofnana á tengda málaflokka.
Hér eru einungis rakin fá atriði er þetta varðar sem þó sýna að verðmætamat á umfjöllun um þessi mál er afar flókið viðfangsefni og alfarið háð þeim forsendum sem lagðar eru til grundvallar.
IV. Nokkrir atburðir á sviði vetnismála sem iðnaðar- og viðskiptaráðurneytið hefur komið að.
Eftirfarandi er listi yfir viðburði sem snerta kynningu vetnisverkefna á hér á landi og á erlendri grund – beint og óbeint í tengslum við ráðuneytið. Blaðagreinar, fréttaviðtöl, fundir og ráðstefnur er varða vetni. Ekki er um tæmandi upptalningu að ræða, einungis rakin helstu atriði frá árinu 2003.
Fylgiskjal III.
Utanríkisráðuneyti:
verðmæti umfjöllunar um vetnisáform.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1048 — 430. mál.
Svar

Erlend umfjöllun um Íslenska nýorku og vetni á Íslandi.
| Dags. | Höfundur – fyrirsögn – heimild | |
| 1. | 24.4.2004 | Marit Palén. Vätgas är inte fremtid utan nutid i Reykjavík. Utbildningsradion, P1, Gautaborg, Svíþjóð. Viðtal við Maríu Maack. |
| 2. | 11.–12.2. 2004 |
Bragi Árnason og Þorsteinn I. Sigfússon. Application of Geothermal Energy to Hydrogen Production and Storage. Proc. The international German Hydrogen Energy Congress, Essen, Þýskalandi. |
| 3. | 1.2.2004 | Vilhjálmur Guðmundsson, Verslunarráði Íslands. Small Country Huge Potential. Viðtal við Israel Scandinavia Business. A magazine of news with an international readership. |
| 4. | 10.1.2004 | Ivar Grydenland, norska ríkisútvarpið. Factaredaktionen. Viðtal við Maríu Maack. |
| 5. | 1.1.2004 | Bragi Árnason. The Road from Fossil to Sustainable Energy Economy. – The Strategy in Iceland. OPTIMIST – “Green Cross International. 1. hefti 1. árgangur 2004, gefið út á átta tungumálum. Einnig greinar eftir Michail Gorbachov og Kofi Annan. |
| 6. | 24.12.2003 | Thomas N. Das Freie Radio, Þýskalandi. Wasserstoff auf die Fisherboote, und Weihnachtsfeiern in Island . |
| 7. | 10.12.2003 | María Maack. Breaking the Ice. Our Planet, the Journal of the United Nations' Environmental Program Special issue on Energy. |
| 8. | 6.12.2003 | Petter Haugenland; Hydrogenlandet Island. Cicerone, tidskrift for klimaforskning. Årgang 12 (www.cicerone.uio.no). Viðtal við Jón Bj. Skúlason. |
| 9. | 3.12.2003 | Christian Wölk. H2 Report. 15 nations sign hydrogen agreement. Birt á freesen-partner.de ([email protected]). Fréttatilkynning frá ráðstefnu í Bandaríkjunum um stofnun alþjóðasamtaka vetnissamfélaga (IPHE). |
| 10. | 1.12.2003 | Svend Geitman. Island bald das erste vollständig aug wasserstoff umgestelle Land. Tag und nacht, Magazin der Stadtwerke Wedel / www.stadtwerke-wedel.de. |
| 11. | 24.11.2003 | Hydrogen buses on the streets of Reykjavik. Fréttabréf Fjárfestingarstofunnar, Invest in Iceland Agency. |
| 12. | 10.11.2003 | Japönsk sjónvarpsstöð í Osaka. Umfjöllun um vetni, viðtal við Jón Bj. Skúlason. |
| 13. | 1.11.2003 | Brent Hurd. 30 minutes on Hydrogen. Voice of America. Útvarpsviðtal við Jón Bj. Skúlason. |
| 14. | 15.10.2003 | Fuel Cell Today. Hydrogen buses in Europe (Internet newsletter). |
| 15. | 15.10.2003 | Haraldur Sigurðsson og María Maack. European mobility week. Á vegum ACCESS (Eurocities), verkefnis sem Reykjavíkurborg tekur þátt í. Journal for a New Mobility Culture. |
| 16. | 15.10.2003 | Canal + (Frakklandi) et partiners. Interview avec María Maack, et Gunnar Þór. Viðtal á frönsku og ensku. Sjónvarpsmenn sem komu hingað í tenglsum við Iceland airwaves. |
| 17. | 14.10.2003 | Stærsta útvarpsstöð í Tókýó – kvöldþáttur. Viðtal við íslenskan bílstjóra á vetnisstrætó. |
| 18. | 3.10.2003 | Nobuo Fukuda. Fréttaskýring japansks fréttaritara í London. |
| 19. | 1.10.2003 | Petter Haugeland, blaðamaður á vegum Center for International Climate and Environmental Research – Ósló. Viðtal við Jón Björn Skúlason fyrir IPPC-nefndina, á ensku. |
| 20. | 18.9.2003 | Eckhard, þýsk útvarpsstöð. Viðtal við Jón Björn Skúlason á ensku. |
| 21. | 10.9.2003 | CEA, Centre de l' Energie Atomique. Stutt grein í fréttabréf stofnunarinnar frá Maríu Maack. |
| 22. | 10.9.2003 | Ragnhild Krogvig Karlssen. Ren energi. Norsk radio (NRK-tv), heimildarmynd. Viðtöl við Jón Bj. Skúlason, Maríu Maack, Þorstein I. Sigfússon, Braga Árnason ofl. |
| 23. | 8.8.2003 | Süddeutche Rundfunk. Wasserstoff. Fréttaskýringarþáttur við sjónvarpsfréttir. Stuttgart, München. |
| 24. | 28.7.2003 | Television de Catalunia, Spáni . Hidrogen energia del future. Heimildarmynd. Viðtöl við Jón Björn Skúlason, Þorstein I. Sigfússon o.fl. |
| 25. | 5.– 7.7. 2003 |
Maria Maack viðstödd opnun 5th Interantional Clean air conference. Lissabon. Fjallað var um hreint eldsneyti. Greinarútdráttur birtur sem Abstract: Hydrogen applications and research. Ráðstefnugögn. |
| 26. | 17.6.2003 | Aðalfréttatími France 1, Frakklandi , fréttaskýring. Einnig gefið út á netinu. Actualites; Petrole, mai/juin no. 82. Hydrogene: Premiere station-service d'hydrogene Shell. |
| 27. | 15.6.2003 | Arne Spångberg. Sjörapporten, no. 2 2003. Gröna vågen i Island. Viðtal við Maríu Maack og Hálfdán Guðmundsson. Viðtalið birtist einnig í eistnesku tímariti. |
| 28. | 10.6.2003 | Bragi Árnason. Infrastructure of the modern hydrogen society. NorFA Phd summer school, Reykjavík. Iceland Energy Sources and Conversion – General Overview. Iceland a Pilot Country to Demonstrate the Road to Hydrogen Economy. |
| 29. | 7.6.2003 | Lydia Murphy, researcher – with David McWilliams. Newstalk 106. Morgunútvarp írskrar útvarpsstöðvar, 5 mín. viðtal við Maríu Maack. |
| 30. | 6.6.2003 | Next TV, Kanada. Hydrogen the future fuel – fréttatengd útvarps og sjónvarpsviðtöl. Viðtal við Jón Björn Skúlason og Maríu Maack. |
| 31. | 5.6.2003 | Carole Venuat / Annie Lassibliere. Europe / Nature – Environnement, Journal de 20 H avec Patrick Poivre D'arvor, L-Hydrogen sert de carburant de substitution. Declaration Margrét Guðmundsdóttir, declaration Helgi Bjarnason. |
| 32. | 2.6.2003 | Anne Bauer. Les Echos L'hydrogene, reve du XX1e ciecle L'energie proper qui séduite les politiques. Viðtal við Maríu Maack – útvarpsviðtal og grein í útvarpsfréttabréfinu. |
| 33. | 1.6.2003 | Sciences et Avenir. Ecologie La plein d'hydrogen. |
| 34. | 28.5.2003 | Automotive News, Crain communications INC, Bandaríkjunum. Icelandic public hydrogen fuel filling station that generates hydrogen without making pollution. |
| 35. | 28.5.2003 | Paul Erik BAK. H2 carsBIZ First Shell branded hydrogen station openend. www. h2cars.biz/artman/publish/printer_148.shtml. |
| 36. | 27.5.2003 | Umræðuþáttur, Radio 24 horas, Róm, Ítalíu. Útvarpsstöð um fjármál og stjórnmál. María Maack tók þátt í klukkustundarlöngum umræðuþætti í beinni útsendingu þar sem hlustendur gátu hringt og borið fram spurningar. |
| 37. | 23.5.2003 | Uhera Mashai, fréttaritari Japanese Financial Times (England og Japan). Viðtal við Maríu Maack (á ensku). |
| 38. | 23.5.2003 | World Business, veffréttir. New story in Iceland. Frétt um opnun vetnisstöðvarinnar. |
| 39. | 20.5.2003 | Ríkissjónvarp Suður-Kóreu – viðtal við Jón Björn Skúlason. |
| 40. | 17.5.2003 | Einstein a la plata Canal 39 b. Tv, Barcelona á Spáni. Spekingarnir spjalla, Þorsteinn I. Sigfússon tók þátt í umræðum í sjónvarpssal. |
| 41. | 15.5.2003 | Dietmar Lamparter. Die Zeit, National weekly. Wikinger auf sauberem Kurs. |
| 42. | 15.5.2003 | Hydrogen and Fuel cell letter. Worlds first commercial Hydrogen Station opens in Iceland. Viðtal við Valgerði Sverrisdóttur. Www.hfcletter.com/letter/May03/features.html. |
| 43. | 13.5.2003 | Dan Roberts. Financial Times. Energy Hydrogen. Clean, safer than in the past and popular with politicians. |
| 44. | 13.5.2003 | Finacial Times, Early edition. Reykjavik's bus take a lead, bls. 21 og 25. |
| 45. | 12.5.2003 | De Agostini-Rizzoli. Happyweb, ítalskt tímarit um veraldarvefinn og nýja tækni. Viðtal við Maríu Maack og birting hluta úr hreyfimynd um vetnisframleiðslu og notkun. |
| 46. | 12.5.2003 | Sylvie Briet. Envoyée speciale, L'Islande se reve en blanc. Liberation, Le Weekend. Viðtal við Braga Árnason, Hjálmar Árnason, Dietmar Beck, Maríu Maack, Eric Pointieu, Paul Luchesse, Benjamin Dessus. |
| 47. | 12.5.2003 | LexisNexis, vol. 17, no. 19, newsweb fret. Iceland opens world first hydrogen filling station. |
| 48. | 9.5.2003 | Anne Bauer. Deutshce Welle, Radio. Frétt í útvarpinu endurtekin fimm sinnum í lok árs. |
| 49. | 7.5.2003 | LexisNexis, vol. 31, no. 86. Iceland opens world first hydrogen filling station, continued. |
| 50. | 7.5.2003 | Rijswijk Economisch kort /ANP516 3ECO 83 Rijswijk-economie-kort. In Ijsland het erste pompstation. |
| 51. | 7.5.2003 | Kerstin Viering, Berliner Zeitung. Wasserstoff fürt die Wikingerinsel. Viðtal við JBS og lýsing á atburðum. |
| 52. | 7.5.2003 | María Maack. IIEE, IN IIEE, grein fyrir Journal of Professional engineering, Englandi. Kicking the oil habit. |
| 53. | 7.5.2003 | Lexis Nexis. Paul Eisnenstein. Agence france Presse. Iceland: hydrogen power pioneer? |
| 54. | 7.5.2003 | Roland Knauer. Die Isländische Unhabhänginkeitserklärung. Viðtal við JBS, Michael Betz, Christian Grüber, Tore Torvund o.fl. Süddeutsche Zeitung. |
| 55. | 4.5.2003 | Jesper Tornbjerg. Politiken på søndag. Lang vej for oliens afløser. |
| 56. | 2.5.2003 | Sanne Wittrup. Ingeniøren. Islandsk brint project åbner vide perspektiver. |
| 57. | 2.5.2003 | Western Morning News. Plymouth power of hydrogen takes off in Iceland. |
| 58. | 1.5.2003 | LexisNexis. Design week CDG brands Shell hydrogen station. |
| 59. | 28.4.2003 | Henrik Munksgaard. Berlinske tiderne, Noregi. Brintens fremtid i bilisters hænder. |
| 60. | 28.4.2003 | Richard Middleton. Associated Press (AP fréttastofan). Environmental News Network. Information on the inauguration, cost and efficiency. Viðtal við Braga Árnason. World's first hydrogen service station opens in Iceland. |
| 61. | 28.4.2003 | The Nation, Tælandi. Iceland opens hydrogen service station. |
| 62. . | 28.4.2003 | Amsterdam. Fréttablað. Graaicultuur topmanagers lijkt geen einde te kennen. |
| 63. | 28.4.2003 | Frankfurter Allgemeine. Frétt um opnun vetnisstöðvarinnar. Sauber aber Teuer.Viðtöl við m.a. Eric Pointieu, Braga Árnason, Herbert Kohler o.fl. |
| 64. | 28.4.2003 | The Herald, Glasgow. Iceland looks for alternatives. |
| 65. | 28.4.2003 | Richard Truett. Reuters news pages picked up from others: Automotive news website story: Iceland opens hydrogen refuelling station, www.autonews.com/news.cms? newsId= 5142 |
| 66. | 27.4.2003 | www.spiegel.de./spiegel/0.1518,246331,00.html. |
| 67. | 26.4.2003 | Iris Ludeker. Volkskrant, Hollandi. Vorutblik: Waterstofstatui gaat Ijsland bodnschoon maken. |
| 68. | 26.4.2003 | Norbert Lossau. Die Welt am Sontag. Island ist Vorreiter der Wasserstoff-Wirtschafts. |
| 69. | 25.4.2003 | Maurice Wilbrink. Leeuwarder courant, Hollandi. Op Ijsland begint de opmars van de waterstofauto. |
| 70. | 25.4.2003 | Carl Mortished. The Times, early edition. Icelanders to fill up on hydrogen thanks to Shell. |
| 71. | 25.4.2003 | Malcolm Moore. Daily Telegraph, early. Iceland first to put hydrogen on the road. |
| 72. | 25.4.2003 | Terry McAlister. The Guardian. Iceland turns greener. |
| 73. | 25.4.2003 | The Guardian. Dow Jones International News Service. A filling station for hydrogen- powered vehicles opened Thursday in Iceland. |
| 74. | 25.4.2003 | Shell Mediakontacten. Telegraf. Shell zet symbolishce stap met waterstof aan de pomp. |
| 75. | 25.4.2003 | Miðill á netinu. VK, Hollandi. Waterstof wordt benalgrijke pijler Shell. |
| 76. | 25.4.2003 | Neuer Zürcher Zeitung. Erste Wasserstoff-tankstelle der Welt in Island eröffnet. |
| 77. | 25.4.2003 | Richard Milldeton. The Chicago Sun – Times Iceland opens hydrogen filling station. |
| 78. | 24.4.2003 | Zie Verder. Í hollenskum miðli. Door Nike Schenk. Dag uitlaatgas! |
| 79. | 24.4.2003 | Lexis Nexis. Energy intelligence Group Inc. International Oil daily, Europe. Iceland opens hydrogen outlet. |
| 80. | 24.4.2003 | Richard Middleton. The New York Times and the Associated Press. Iceland opens hydrogen filling station. |
| 81. | 24.4.2003 | Zie Verder. Í ónefndum hollenskum miðli. Broer Scholtens. Ijsland zweer bij shone stroom. |
| 82. | 24.4.2003 | Dow Jones Newswires. Viðtal við Valgerði Sverrisdóttur, Jerome van der Veer o.fl. |
| 83. | 24.4.2003 | Sjónvarpsefni, textað, hollenska, enska. Shell hydrogen. From the inauguration of the fuel station. |
| 84. | 23.4.2003 | Europas första vätgas mack öppnar i Reykjavik. Arne Bengtsson. Viðtal við MHM. |
| 85. | 7.4.2003 | Rennaissance times, Detriot, Mitchigan, vol. 70, no. 13. Iceland Opts for Hydrogen. James M Amend. |
| 86. | 2.4.2003 | Susanne Fishcer. Die ganze Welt hängt am Öltropf von Arabien. Brigitte no. 8. |
| 87. | 1.4.2003 | Bragi Árnason og Þorsteinn I. Sigfússon. Hydrogen Powering the Future – Bold Steps to Reality. Ráðstefnugögn fyrir Regional Innovation Forum Roundtable VIII, National Research Council, Kanada. |
| 88. | 21.3.2003 | Claus Leick. Berlinske tiderne. Island vil erstatte benzin med brint. |
| 89. | 6.3.2003 | Fréttaritari Reuters í Ósló. Iceland opens first public hydrogen filling station. On the export of the hydrogen station modules from Noway to Reykjavik with ship. |
| 90. | 2.3.2003 | Susan Giffins. CBC TV, Kanada. Viðtöl við Braga Árnason, Þorstein I. Sigfússon, Jón Björn Skúlason o.fl. |
| 91. | 2.3.2003 | Suddeutcher Rundfunk. Hydrogen news from ECTOS, Kick off. |
| 92. | 26.2.2003 | Finnskir sjónvarpsmenn komu vegna finnskrar heimildarmyndar sem sýnd var í ríkissjónvarpinu í október 2003 um orku á Íslandi. Viðtöl við JBS, Orkuveituna, o.fl. |
| 93. | 5.2.2003 | Molly Thomas. Scottish BBC. Viðtal við Maríu Maack. |
| 94. | 1.2.2003 | María Maack, Jón Björn Skúlason. Hot Rocks and hydrogen, Iceland is beginning a national experiment to develop a hydrogen system.The IEE, Power engineer, vol. 17, issue 1. Tímarit breska verkfræðingafélagsins. |
| 95. | 1.2.2003 | María Maack. Iceland opens Hydrogen Economy in April 2003. H2 Cars Biz magazine, ZEES journal. Viborg, Danmörku (á ensku). |
| 96. | 24.1.2003 | Making hydrogen available to the public. An announcement for the international conference held in Reykjavík in connection with the inauguration of the hydrogen station. Icelandtravel conference and incentives department. |
| 97. | 15.1.2003 | Emmanuel Taignard, Jón Björgvinsson. Television Suisse Romande. La serie Territories 21 no. 3. Demain l'hydrogen. 2 mínútur. |
| 98. | 1.1.2003 | Emmanuel Taignard, Jón Björgvinsson. Heimildarmyndaþáttur styrktur af Sameinuðu þjóðunum. Alerte blue, á frönsku og ensku, 35 mínútur. |
| 99. | 31.10.– 1.11. 2002 |
Bragi Árnason og Þorsteinn I. Sigfússon. Creating Non-Fossil Energy Economy In Iceland. Proceedings for The Zero Emissions Symposium 2002. Clean Energy and Zero Emissions, Towards a Sustainable Future with Hydrogen Energy. United Nations University, Tókýó, Japan. 45 bls. |
| 100. | 11.10.2002 | World of energy, Modern Times. |
| 101. | 15.9.2002 | Arne Spånberg. Fiskaren, Svíþjóð. Vätgas på den islandske fiskeflottan. |
| 102. | 27.8.2002 | Alyssa Worsham, María Maack. Audubon Magazine, Bandaríkjunum. Short news. |
| 103. | 2.7.2002 | Peter Hoffman. Hydrogen Fuel Cell letter, Inauguration of the Hydrogen fuel station in Reykjavik |
| 104. | 10.6.2002 | Bragi Árnason og Þorsteinn I. Sigfússon. Island: eine zukunftige Wasserstoffwirtschaft. New Energy Journal. |
| 105. | 4.6.2002 | María Maack. New Solutioins for Sustainable Cities. The ECTOS, Reykjavík Partnership for sustainable cities; www.partnerships.stockholm.se. |
| 106. | 23.4.2002 | Sigfússon. Hydrogen as an alternative fuel. Fyrirlestur fyrir Phoenix Rotary Club. |
| 107. | 3.–4.4. 2002 |
Bragi Árnason og Þorsteinn I. Sigfússon. Non-fossil Energy Economy In Iceland. Proc. The 2002 Hydrogen Investment Forum, Washington DC. |
| 108. | 1.1.2002 | Pernilla Strid. Island går over till vätgas. Enviro, tímarit sænsku náttúruverndarsamtakanna. |
| 109. | 31.12.2001 | Matthew Hanson. X-mas program on environment. Viðtal við Jón Björn Skúlason og Maríu Maack fyrir Next TV, City radio Channel, Kanada.. |
| 110. | 27.12.2001 | Anne Hoffman. Deutsche Welle, Project Zukunft. |
| 111. | 24.12.2001 | Tim Hirsch. Reflexions For The New Year. BBC, world service and radio channel II. |
| 112. | 1.12.2001 | European Energy foundation. A thorough description of a visit to Iceland in Oct. 2001. The Energy situation and hydrogen economy. Report from a visit to Iceland. www.f-e- e.org |
| 113. | 2.11.2001 | Suddeutsche Zeitung.Viðtal við Oliver Weiman. Suddeutsche.de/index.php?url=/ wissen shcaft/umwelt/29051. Ehrgeiziges Island; Brennstoffzellensollen die Insel aus Feuer und Eis in absehbarer Zeit in der Energieversorgung autark machen. |
| 114. | 9–14.9. 2001 |
Bragi Árnason og Þorsteinn I. Sigfússon. Sustainable Energy – Sustainable Society. Proc. of symposium HYPOTHESIS IV Hydrogen Power – Theoretical and Engineering Solutions. International Symposium, Stralsund, Þýskalandi. |
| 115. | 13.8.2001 | Geoffrey Holland. World Watch Magazine. Iceland takes a first move towards hydrogen. World Watch Special. |
| 116. | 01.08.2001 | Seth Dunn. Hydrogen futures, Towards a Sustainable Energy System. World Watch paper, no. 157, The Worldwatch Institute. |
| 117. | 18.7.2001 | Sigrún Davíðsdóttir. The Guardian (London). Pure and simple solution: Meanwhile, Iceland moves naturally to a hydrogen economy. |
| 118. | 1.7.2001 | Jost Phillipe og Ari Trausti Guðmundsson. Jonas, World Magazine. Numero special premiere été du troisieme millénaire. Dossier réchauffement: En devenant le premier pays du monde en place une économie entierement fondée sur l'hydrogène, l'Islande a décidé d'en finir avec l'ãge du pétrolium. Hydrogène now. |
| 119. | 24.–28.6. 2001 |
Bragi Árnason. CD-ROM diskur með „plenum“-fyrirlestrinum Sustainable Energy – Sustainable Society: The Icelandic Road from Fossil Fuel to Clean Renewable Energy. World Parking Symposium III, St. Andrews, Skotlandi. |
| 120. | 24.–28.6. 2001 |
Bragi Árnason og Thorsteinn I. Sigfússon. Sustainable Energy – Sustainable Society: The Icelandic Road from Fossil Fuel to Clean Renewable Energy. Abstract for a presentation at World Parking Symposium III, St. Andrews, Skotlandi. |
| 121. | 8.6.2001 | Elizabeth Oriel. The Harvard Post, Opinions, Globalization: The New World Model Ice, Fire and Innovation in Iceland. |
| 122. | 15.5.2001 | Guilo Volpi. Background on the Iceland hydrogen Project. WWF Press Office, European Policy Office. |
| 123. | 23.4.2001 | Helen Gibson and Thomas Sancton. A climate of despair. Special report; Global warming. Time, Europe. Global warming, Reykjavik. |
| 124. | 4.4.2001 | Time.com. Iceland May Eliminate Use of Fossil Fuels. Vefútgáfa Time, http: //time.com/ time/magazine/ |
| 125. | 1.4.2001 | Finnur Sveinsson, Nomik Gautaborg. Transition to a Hydrogen Economy. A strategy for sustainable development in Iceland, skýrsla unnin fyrir WWF European Policy Office. WWF special report, [email protected]. |
| 126. | 1.3.2001 | Árnason, Sigfússon, Skúlason. Creating a non fossil energy economy in Iceland. Raunvísindastofnun Háskólans, sérprent vegna upphafs ECTOS. Sent öllum sendiráðum. |
| 127. | 4.–5.12. 2000 |
Bragi Árnason og Þorsteinn I. Sigfússon. Sustainable energy – sustainable society. The Icelandic road from fossil fuel to clean renewable energy. Proc. of 4th Nordic Symposium on hydrogen and fuel cells for energy storage, Helsinki, Finnlandi. |
| 128. | 21.11.2000 | Gunnar S. Gunnarsson sendiherra. Fréttatilkynning á ensku. New Energy Day. Invitation to the EFTA building, Introduction to a whole day on renewable energy. Invited speakers from Iceland. |
| 129. | 28.9.2000 | Ian Wylie og Baldur Bragason. Whoosh! Iceland's Got a Hot Idea. Fastcompany.com/ online/39/Iceland.html. |
| 130. | 24.9.2000 | Jesper Tornbjerg. Et rent land med beskidte hensikter. Island er et rigt land og et av verdens reneste. Næsten al landets el og fjernvarme kommer fra grønne energikilder. Politiken. |
| 131. | 10.9.2000 | Daniel Howes. Iceland warms up to hydrogen fuel. Vehicle tests could have global impact. The Detroit News. |
| 132. | 1.7.2000 | Niall McKay. Can Iceland run on hydrogen: Why everyone is watching the worlds first major effort to replace fossil fuels with fuel cells. Red Herring, the business of technology. [email protected]. |
| 133. | 1.7.2000 | Bragi Árnason og Þorsteinn I. Sigfússon. Iceland: A future Hydrogen Economy (invited article). REFOCUS, vol. 1, no. 1. Elsevier Science Ltd. |
| 134. | 1.5.2000 | Bragi Árnason og Þorsteinn I. Sigfússon. Iceland A Future Hydrogen Economy. International Journal of Hydrogen Energy, vol. 25, no. 5. |
| 135. | 1.1.2000 | Våra vägar, våra bilar. Macfie, Douglas og Magnús Kristinsson. Här skrattar ingen åt vätgasen. |
| 136. | 27.12.1999 | Der Spiegel, www.spiegel.de/spiegel/0.1518.57591.00.html. Energie: Der motor fur die Zukunft. Beginnt im kommenden Jahrhundert ein Weltweiter Kampf ums Öl. Spiegel online. |
| 137. | 16.12.1999 | Rythmus Beibehalten. Die isländische Wirtschaft wächst rasant dank High Tech und Fischfang. |
| 138. | 1.12.1999 | Douglas Macfie og Magnús Kristinsson. Det Naturliga Steget. Den blå lagunens hemlighet: Att våga ta steget ut i det okända. Eldsjälens initiativ, Oljejättarnas nya image. Vätgasens väg. |
| 139. | 11.11.1999 | Peter Thomsen. Der Anfang von Ende der Ölzeit. Island will als erster Staat der Erde völlig Frei weg vom Erdöl. Stern. |
| 140. | 16.10.1999 | Olof Tegström. Presstopp! Island på väg mot fossilfrihet. Hydrogen Organization. |
| 141. | 16.10.1999 | Ballard, Vancouver. Ballard Affiliate Dbb Rolls Out Next Generation Fuel Cell Bus. Fréttabréf Ballard í Kanada. |
| 142. | 1.10.1999 | Salomonsen. Island tager hul på en renere fremtid. På Island er det snart slut med osende biler. Illustreret Videnskab. |
| 143. | 25.9.1999 | Douglas Macfie. Dagens Nyheter, Vetenskap. Island kan bli det första landet i världen som gör sig av med oljeberoendet. Bussar och båtar skall i stället drivas av energi som bubblar upp ur marken omvandlat till vätgas. Island slopar oljan. Lørdag–søndag. |
| 144. | 26.7.1999 | Vijay Vaitheeswaran. Fuel cells meet big business. A device that has been a technological curiosity a century and a half has suddenly become the centre of attention. The Economist. |
| 145. | 16.–18.6. 1999 |
Bragi Árnason og Þorsteinn I. Sigfússon. Iceland – a Future Hydrogen Society. Proc. of symposium “Hydrogen-Electrochemistry and Energetics“, Þrándheimi, Noregi. |
| 146. | 01.05.99 | Bragi Árnason og Sigfússon Torsteinn I. Converting CO2 Emissions and Hydrogen into Methanol Vehicle Fuel. JOM (A publication of The Minerals, Metals & Materials Society), vol. 51, no. 5. |
| 147. | 1.1.1999 | Bragi Árnason og Þorsteinn I. Sigfússon. A New Kyoto Scenario for Iceland. Combined CO2 emissions and hydrogen transformed into fuels. Raunvísindastofnun Háskóla Íslands. |
| 148. | 27.10.1998 | To whom it may concern; Using domestic energy sources to produce alternative fuel for the transportation sector. Yfirlýsing forsætisráðherra, iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra á ensku til að senda með umsóknum um verkefnastyrk til Brussel. |
| 149. | 1.10.1998 | Bragi Árnason, Ingim. Sigfússon, sendiherra Íslands í Þýskalandi. Skýrsla um erindi til Daimler Benz: Iceland – A Forum for Gradual Introduction of Hydrogen as Fuel. |
| 150. | María Maack, Jón Björn Skúlason (ed. Richard Knox). Practical implementation of hydrogen as a fuel. Sustainable Development International, Strategies and Technologies for the Agenda 21 Implementation 2002. | |
| 151. | Svend Geitman. Island bald das erste vollständig aug wasserstoff umgestelle Land? Tag und nacht, Magazin der Stadtwerke Eckernförde, www.stadtwerke-eckenfoerde.de. Greinin er birt í tveimur tímaritum héraðslestarfyrirtækja. |
Iðnaðarráðuneyti:
Samantekt um umfjöllun, kynningar, viðtöl o.fl.
um vetninsverkefni við erlenda aðila.
I. Þróun umfjöllunar og verkefna á sviði vetnis.
Árið 1998 mörkuðu íslensk stjórnvöld stefnu sem miðar að sjálfbæru vetnissamfélagi hér á landi í framtíðinni. Sú stefna var einnig í samræmi við stefnu stjórnvalda um nýtingu endurnýjanlegra orkulinda og markmið í umhverfis- og loftslagsmálum. Þessi stefna miðar að því að skapa hagstæð skilyrði hér á landi, þannig að Ísland geti verið vettvangur alþjóðlegra vetnisrannsókna. Þetta verði gert með áherslu á alþjóðlegt samstarf, þróun þekkingar og tækni á sviði vetnisnýtingar, menntun og þjálfun, framleiðslu vetnis, notkun efnarafala í samgöngum með tengsl við stefnu Íslands í loftslags- og umhverfismálum.
Kjarni þessarar stefnu er að efla þróunarstarf og verðmætasköpun með því að fá hingað til lands aukinn hluta af þeim alþjóðlegu rannsóknarverkefnum sem unnið er að á þessu sviði og flýta um leið þeirri þróun að vetni komi í stað olíu sem eldsneytis í samgöngum, þegar slíkt verður hagfellt tæknilega og efnahagslega. Hér á Íslandi hefur tekist að byggja upp ýmsa atvinnustarfsemi sem byggist á framúrskarandi þekkingu, rannsóknum og frumkvæði einstaklinga og við höfum alla burði til að sækja fram á nýjum sviðum. Alþjóðleg samkeppni er hins vegar óvægin og tækifærin koma ekki og banka á dyrnar. Við verðum að hafa fyrir því að afla verkefna á þessu sviði sem öðrum.
Áðurnefnd stefnumörkun stjórnvalda virðist hafa tekist afar vel í ECTOS-verkefninu, sem er samstarfsverkefni nokkurra innlendra aðila innan Vistorku (fyrirtæki innlendra aðila vegna þessa samstarfs) og erlendu stórfyrirtækjanna, DaimlerChrysler, Shell og Norsk Hydro, auk Evrópusambandsins, en stjórnvöld studdu einnig verkefnið. Verkefnið miðar að rannsóknum og þróun á notkun vetnis í almenningssamgöngum með rekstri þriggja vetnisvagna hér á landi. Verkefnið hefur gengið vel og var það jafnframt fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Hefur það vakið það mikla athygli í Evrópu að nú hafa níu aðrar borgir í sjö löndum tekið upp svipað tilraunaverkefni.
Verkefnið, sem og stefna íslenskra stjórnvalda, hefur vakið verulega eftirtekt víða erlendis og hefur sú athygli farið vaxandi. Þetta kemur m.a. fram í aukinni erlendri umfjöllun, athygli og fyrirspurnum erlendis, sem og heimsóknum erlendra aðila, svo sem rannsóknaraðila, opinberra aðila, fjölmiðla, áhugaaðila o.fl., til Íslands, sem áætlað er að hafi verið um 1.000 talsins á sl. 12 mánuðum. Nýlega var einnig undirrituð viljayfirlýsing á milli Manitóba í Kanada og Íslands á sviði vetnis. Um 25 manns vinna núorðið beint og óbeint í tengslum við ýmis verkefni á sviði vetnis og á fjögurra ára tímabili (2000–2004) er gert ráð fyrir að velta í vetnistengdum rannsóknum hér á landi sé um 1,5 milljarðar kr., samkvæmt upplýsingum Nýorku, þar sem stærstur hluti þess fjármagns kemur frá erlendum aðilum.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum buðu Íslandi ásamt nokkrum öðrum þjóðum, sem framarlega eru á sviði vetnisrannsókna, að gerast stofnaðili að alþjóðlegum samstarfsvettvangi (IPHE) 14 landa um rannsóknir og þróun er miða að aukinni nýtingu vetnis sem orkubera. Þessi samstarfssamningur var undirritaður í Washington í nóvember sl. Þetta verður að telja viðurkenningu fyrir starf okkar á þessu sviði hér á landi og hefur ríkisstjórnin samþykkt að Ísland gerist aðili að þessu samstarfi – enda fellur það vel að áðurnefndri stefnumörkun stjórnvalda. Þetta samstarf eykur vonandi möguleika íslenskra fyrirtækja og einstaklinga til frekari sóknar á hinum alþjóðlegu vetnismörkuðum. Á þessu sviði vetnisrannsókna er fjöldi tækifæra framundan, sem íslenskir aðilar geta vonandi nýtt.
II. Staða, umfang og verkefni á sviði vetnismála á Íslandi.
Á umliðnum missirum og mánuðum hefur umfang og athygli á vetnismálum og þróun þeirra á Íslandi vaxið afar hratt. Á þetta ekki síst við um verulega aukna athygli, fyrirspurnir og heimsóknir erlendra aðila til Íslands á seinustu mánuðum. Meðfylgjandi er lausleg samantekt er varðar efnahagslegt umfang vetnismála hér á landi.
Efnahagslegt umfang á sviði vetnismála.
Velta: Á árunum 2000–2004 má gera ráð fyrir því að heildarvelta í tengslum við vetnisrannsóknir Íslendinga sé u.þ.b. 1,5 milljarðar kr. samkvæmt upplýsingum Nýorku. Rétt er að benda á að stór hluti fer fram erlendis, t.d. smíði vetnisvagna o.s.frv. Gera má ráð fyrir að u.þ.b. 40% fari fram innan lands. Styrkir Evrópusambandsins til verkefna undir forystu Íslenskrar nýorku nema í heild u.þ.b. 350 millj. kr.
Starfsmenn: Erfitt er að gera sér grein fyrir hversu margir vinna beint að vetnisverkefnum. Það má þó áætla að í rannsóknum og öðru séu unnin um 25 ársverk (samkvæmt Nýorku) og hefur þeim fjölgað jafnt og þétt. Þá er ekki tekið tillit til jaðaráhrifa (ferðaþjónusta o.s.frv.).
Heimsóknir til orkufyrirtækja: Heimsóknum til fyrirtækja tengdum vetni (Nýorka, HÍ, ÍTÍ o.fl.) er ekki hægt að hafa tölu á lengur. Til Íslenskrar nýorku koma aðilar í hverri viku. Sem dæmi má nefna að með tilkomu flugs beint til Tókýó komu um 50 ferðamenn í tengslum við þessi mál. Önnur orkufyrirtæki hafa einnig fengið mikið af heimsóknum. Fjöldi áhugasamra gesta er það mikill að erfitt hefur reynst að anna eftirspurn. Á næstu árum má gera ráð fyrir fjölda gesta enda strætisvagnar komnir í umferð og meira að sjá og sýna. Stór hluti af þeim erlendu gestum sem hafa komið til Íslands til að skoða vetnisverkefni og áherslur, hafa einnig farið í heimsóknir til annarra orkufyrirtækja, svo sem Landsvirkjunar, Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur.
Fjöldi erlendra gesta til Íslands – tekjur af ferðamönnum.
Nýorka áætlar að á vegum fyrirtækisins hafi komið rúmlega 1.000 gestir til landsins á árinu 2003 – en á umliðnum árum hefur þessi tala verið um 200–400. Um er að ræða ferðamenn sem að mestu koma utan hefðbundins ferðatíma og ferðamenn sem skilja eftir mikil verðmæti (high paying tourism).
Umfang og virði fjölmiðlaumfjöllunar erlendis. Vetnisverkefnið og stefnumörkun stjórnvalda á því sviði hefur vakið mikla athygli erlendis og miklu mun meiri en flestir áttu von á. Á undanförnum árum hefur varla verið haldin ráðstefna um þessi mál erlendis nema að starfsmönnum Nýorku sé boðið. Að meðaltali hafa um 50 blaða- og fréttamenn komið á ári til fyrirtækisins en Nýorka gerir ráð fyrir því að um 150 fjölmiðlamenn hafi komið til landsins á árinu 2003. Að mati fyrirtækisins eru blaðagreinar, sjónvarpsþættir (allt að 1 klst. að lengd) og tímaritsgreinar nú sennilega komnar yfir 500 síðan 1999 og ekkert lát virðist vera á þessum áhuga. Sem dæmi má nefna að fréttaskeyti voru birt í sjónvarpsfréttum í Kína, Japan, Kóreu, Ástralíu, Tælandi, Bandaríkjunum, Brasilíu, kanada og nánast öllum ríkjum Evrópu þegar vetnisstöðin var vígð í apríl síðastliðnum.
Samstarf yfirvalda, rannsóknargeirans og einkageirans: Það samstarf sem myndast hefur vegna vetnisverkefna er mjög sérstakt og hefur verið tekið eftir því út um allan heim. Hér er um mjög náið samstarf einkageirans, stjórnvalda og rannsóknarstofnanna að ræða. Ekki er algengt að vel takist til þegar um slíkt samstarf er að ræða en erlendir aðilar hafa dáðst að árangri og eru flestir þeirrar skoðunar að það sé vegna þess farsæla samstarfs. HÍ og Iðntæknistofnun hafa komið mjög náið að verkefninu og ljóst að með þeirra fulltingi er verið að byggja upp þekkingu á þessu sviði til framtíðar og leggur það grunn að enn frekari verkefnum. Ljóst er að þetta samstarf verður ekki til eilífðar en er mikilvægt á fyrstu árum þekkingaröflunar.
Önnur tengd mál.
1. „Goodwill“ innan ESB – 30 millj. kr. styrkur til Nýorku vegna skipaverkefnis. Nýlega hefur Íslensk nýorka fengið 30 milljóna kr. styrk frá ESB til að sinna forkönnun er varðar vetnisvæðingu fiskiskipaflotans. Þessi styrkur var einn af afar fáum sem veittur var á sviði orkumála innan rammaáætlunar ESB að þessu sinni og sýnir á sama tíma mat ESB á þeim vetnisathugunum sem verið er að vinna að hér á landi.
2. Kynningarefni. Íslensk nýorka er um þessar mundir að senda almennt kynningarefni um vetnisverkefni og vetnisframleiðslu í alla framhalds- og gagnfræðaskóla landsins. Efnið var samvinnuverkefni meðal annars styrkt af ESB og verður sýnt í Nýjasta tækni og vísindi. Öll vinna við verkefnið fór fram hérlendis. Diskurinn hefur vakið athygli innan framkvæmdastjórnar ESB á sviði vetnis.
3. Vetnismál – mikil landkynning erlendis. Í máli sendiherra og annarra hefur komið fram að vetnisumfjöllun í erlendum fjölmiðlum hafi haft mikið kynningargildi - sem líklegt er að skili sér beint og óbeint á margan hátt fyrir íslenska hagsmuni, m.a. í ferðamennsku. Þess má geta að hingað til lands hafa á umliðnum vikum og mánuðum komið um 1–3 hópar um vetnismál í viku hverri til Nýorku og HÍ.
4. Tengsl vetnismála við aðra málaflokka – loftslagsmál, umhverfismál, orkumál og kynningarmál. Í umfjöllun í Bandaríkjunum hefur komið fram að verkefni á vetnissviðinu eru m.a. hluti af áherslum Bandaríkjunum í loftslags- og umhverfismálum, þar sem ráðuneyti orkumála fer einnig með umhverfismál. Víða erlendis er umfjöllun um vetnismál hluti af umfjöllun um umhverfis- og loftslagsmál. Umfjöllun um vetnismál tengist því beint og óbeint öðrum málaflokkum.
5. Vetni – sóknarfæri á sviði rannsókna. Með þeim vetnisverkefnum sem þegar er unnið að hér á landi hefur þegar myndast grunnur að frekari sóknarfærum á því sviði ekki síst rannsóknum, sem og tengdum verkefnum. Aukin athygli erlendis á verkefnum á Íslandi er mikilvægt atriði í frekari verkefnum á þessu sviði hér á landi í samstarfi við erlenda aðila. Í sumar hélt t.d. HÍ sérstakt nokkurra daga alþjóðlegt seminar um vetnismál, þar sem mættu fjöldi erlendra sérfræðinga á þessu sviði.
6. Vetnismál – hafa auglýst önnur svið, svo sem jarðvarma. Athygli á sviði vetnis hefur einnig leitt til þess að athygli erlendra aðila hefur beinst að tengdum sviðum eins og jarðvarma. Bent hefur verið á að Ísland sé í fararbroddi á sviði jarðvarma í heiminum og mikil markaðstækifæri séu að myndast í A-Evrópu – enda séu mestu endurnýjanlegu orkulindir innan ESB í jarðvarma þeirra landa. ESB mun á næstunni leggja aukna áherslu á þetta svið. Þetta kom skýrt í ljós í viðtölum við Buscan, framkvæmdastjóra vísinda og tæknimála innan ESB, sem var á ferð hér fyrir skömmu.
III. Verðmætamat á erlendri umfjöllun.
Þegar reynt er að leggja mat á verðmæti umfjöllunar um vetnismál erlendis, er slíkt afar erfitt og mörg álitaefni og aðferðafræði koma upp í hugann. Þannig getur umfjöllun erlendis (eða innan lands) verið með ýmsum hætti – hvort sem sú umfjöllun er í fjölmiðlum eða á öðrum stöðum – sem síðar kann að skipta miklu máli fyrir viðkomandi málaflokk, einstaklinga, fyrirtæki eða þjóð. Sem dæmi má taka að fjallað hefur verið um vetnismál innan margra alþjóðastofnana, svo sem ESB, IEA, Sameinuðu þjóðanna o.fl., sem síðar hefur bein og óbein áhrif á ýmsan hátt. Þetta getur verið verðmæt umfjöllun þó hún verði tæpast mæld í fjármunum. Rakin skulu nú einungis nokkur af mörgum atriðum er þetta varðar.
Tegund umfjöllunar.
. Fjölmiðlar, sjónvarp, útvarp, dagblöð, fagblöð.
. Ráðstefnur og fundir almennt um viðfangsefnið vetnið þar sem m.a. er fjallað um Ísland.
. Fundir innan alþjóðastofnana, svo sem innan alþjóðastofnana ESB, SÞ o.fl.
. Umfjöllun í háskólum, rannsóknarstofnunum, fjármálastofnunum, o.fl.
. Umfjöllun alþjóðlegra stórfyrirtækja, Shell, DaimlerChrysler, o.fl.
. Umfjöllun alþjóðlegra fjölmiðla á heimasíðum, ráðstefnum, í tímaritum o.fl.
. Kynningarstarf alþjóðlegra fyrirtækja. svo sem Shell, þar sem íslenska vetnisstöðin er notuð sem „ímynd“ (brand building) fyrir fyrirtækið, fjöldi funda og blaðaviðtala, sbr. heimasíðu fyrirtækisins. Kynningarefni frá fyrirtækinu Shell er markvisst dreift og þar er vetnisverkefnið á Íslandi kynnt, sem og Ísland.
Verðmæti umfjöllunar.
. Umfjöllun fjölmiðla, o.fl.
> Peningalegt gildi fjölmiðlaauglýsinga, frétta, kynninga hjá erlendum stórfyrirtækjum o.fl.
> Verðmæti mælt í beinum og óbeinum áhrifum og verðmæti mælt á annan hátt.
Áhrif.
. Verðmæti annarrar umfjöllunar, svo sem áhrif á ferðamennsku,
. Áhrif á ímynd Íslands og málaflokka, svo sem umhverfismál og loftslagsmál.
. Gildi aukinnar auglýsingar fyrir aðra málaflokka.
. Áhrif innan alþjóðlegra verkefna og stofnana á tengda málaflokka.
Hér eru einungis rakin fá atriði er þetta varðar sem þó sýna að verðmætamat á umfjöllun um þessi mál er afar flókið viðfangsefni og alfarið háð þeim forsendum sem lagðar eru til grundvallar.
IV. Nokkrir atburðir á sviði vetnismála sem iðnaðar- og viðskiptaráðurneytið hefur komið að.
Eftirfarandi er listi yfir viðburði sem snerta kynningu vetnisverkefna á hér á landi og á erlendri grund – beint og óbeint í tengslum við ráðuneytið. Blaðagreinar, fréttaviðtöl, fundir og ráðstefnur er varða vetni. Ekki er um tæmandi upptalningu að ræða, einungis rakin helstu atriði frá árinu 2003.
| Nr. | Dags. | Viðfangsefni – aðilar | Fjölmðill |
| 1. | Apríl 2004 |
Opnun Vetnisstöðvarinnar. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, ávarp ráðherra, háttsettir erlendir aðilar frá Shell, DaimlerChrysler, Norsk Hydro, innlendir aðilar o.fl. |
Um 70 fjölmiðlamenn frá ýmsum löndum. |
| 2. | Apríl 2004 |
Ráðstefna um þróun vetnissamfélags. Ráðherra ávarpaði ráðstefnuna – aðilar frá Shell, DaimlerChrysler, Norsk Hydro, innlendir aðilar ofl. |
Fjölmiðlamenn frá ýmsum löndum. |
| 3. | Október 2003 | Koma vetnisvagna. Kynningarfundur á vegum þeirra sem að verkefninu standa, m.a. hinna erlendu aðila. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti – ráðherra – tók þátt í kynningu og opnun. |
Innlendir fjölmiðlar, einnig kynnt erlendis af erlendum samstarfsaðilum verkefnisins. |
| 4. | 19.–21 nóv. 2004 |
Þátttaka Íslands í IPHE (International Partnership for the Hydrogen Economy). Ísland gerist aðili að IPHE sem er samstarf 14 ríkja á sviði vetnis. Það er mat bandarískra stjórnvalda að þessi ríki séu í fararbroddi í rannsóknum og verkefnum sem tengjast vetnisvæðingu. Með samstarfinu er miðað að því að efla og auka samstarf um verkefni er lúta að vetnisrannsóknum m.a. á sviði framleiðslu, geymslu og dreifingu vetnis, þróun vetnisrafala, o.fl. Ísland kjörið í formennsku í framkvæmdanefnd – sem er önnur af tveim aðalnefndum samstarfsins. Starfið mun halda áfram. | Á fundinum voru fjölmiðlar ýmissa landa, sem kynntu efni samstarfsins. Ráðherra átti viðtöl við sjónvarpsstöðvar, Wall Street Journal o.fl. fjölmiðla. |
| 5. | 19.–22. sept. 2003 | Heimsókn háttsettra aðila frá Kanada og Bandaríkjunum um vetnismál 19.–22. september. Hingað til lands komu um 25 háttsettir aðilar frá orkufyrirtækjum, stofnunum og samtökum sem og þingmenn frá þessum löndum og ráðherra frá Kanada. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti var með kynningu um vetnismál – orkufyrirtæki m.a. heimsótt. | |
| 6. | 22 sept. 2003 |
Undirritun á MOU (Memorandum of Understanding), Kanada – Ísland. Samhliða heimsókn frá Kanada og Bandaríkjunum var undirritaður MOU á milli Íslands og Manitoba um orkumál (vetnismál o.fl.) sem unnið hefur verið að. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti var með kynningu fyrir aðila. | Samningurinn kynntur í fjölmiðlum í Manitoba – sem og stofnunum, svo sem háskólum. |
| 7. | Nóv. 2003 | Joetsu-borg í Japan. Til landsins komu í heimsókn menn frá Joetsu- borg til að kynna sér stefnu og störf er varða vetnisvæðingu hér á landi og hugsanlega samstarfsmöguleika á því sviði. Borgaryfirvöld þar hafa verið í samskiptum við Reykjavíkurborg og óska eftir formlegu samstarfi. Þeir hyggja á stofnun Japan, eða Joetsu, New Energy að fyrirmynd Íslenskrar nýorku. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti var með kynningu. | |
| 8. | Okt. 2003 | Canal+. Til landsins komu í heimsókn aðilar frá frönsku sjónvarpsstöðinni Canal+. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti var með kynningu, sem og viðtal. | Canal+ og Network. |
| 9. | Nóv. 2003 | Institute of Energy Economics Japan – IEEJ. Til landsins komu aðilar frá IEEJ í Japan til að kynna sér stefnu og störf er varða vetnisvæðingu hér á landi. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti var með kynningu. | |
| 10. | 2003 | International Energy Agency – IEA. Fulltrúar iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis sóttu fundi stofnunarinnar á sviði vetnismála. Ráðuneytið var með kynningu á fundum – efnið m.a. nýtt og kynnt af fjölmiðlum. | |
| 11. | 2002 | Sendiherra Costa Rica. Sendiherra Costa Rica kom í heimsókn til landsins til að kynna sér stefnu og störf er varða vetnisvæðingu hér á landi og hugsanlega samstarfsmöguleika á því sviði. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti var með kynningu. | |
| 12. | Nóv. 2003 | Singapore Economic Development Board. Til landsins komu í heimsókn aðilar frá efnahagsráði Singapore til að kynna sér stefnu og störf er varða vetnisvæðingu hér á landi. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti var með kynningu. | |
| 13. | Nóv. 2003 | Norrænt vetnisseminar – ráðherra ávarpar fundinn. Haldið var fjölmennt vetnisseminar af hálfu ITÍ o.fl. aðila, þar sem fjölmargir erlendir aðilar voru viðstaddir. | Gerð grein fyrir þessu erlendis. |
| 14. | Sept. 2003 | Orkumálaráðuneyti Japans o.fl. Aðilar frá japanska orkumálaráðuneytinu komu í heimsókn – en menn frá orkumálaráðuneytinu komu skömmu áður til að undirbúa þessa heimsókn og verkefni. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti var með kynningu. | |
| 15. | Nóv. 2003 | Merrill Lynch's Visit to Iceland 4. nóv. Aðilar frá alþjóðlega fjárfestingafyrirtækinu Merrill Lynch komu í heimsókn til að kynna sér fjárfestingartækifæri á sviði vetnisrannsókna. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti var með kynningu. | |
| 16. | Júní 2003 | Statement of Common Understanding between the Global Environment and Technology Foundation (GETF), USA and the Icelandic Ministries of Industry and Commerce and the Ministry for the Environment. Samstarf iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis og umhverfisráðuneytis við GTEF, er í frekari vinnslu og hefur þegar tekist að afla nokkurs fjár til þess í Bandaríkjunum. Nokkrir aðilar aðrir í Bandaríkjunum eiga einnig aðild að þessu samstarfi, m.a. frá Harvard-háskóla. Búast má við frekari skrefum í þessu máli á næstunni. | Kynnt í viðeigandi stofnunum og háskólum í Bandaríkjunum á þessu sviði. |
| 17. | Okt. 2003 | Landstjóri Kanada í heimsókn. Þann 6. október kom hingað landstjóri Kanada í opinbera heimsókn. Vetnismál voru sérstaklega rædd í þeirri heimsókn. Heimsóknin var á vegum forsetaembættisins. | Kynnt í fjölmiðlum í Kanada. |
| 18. | Okt. 2003 | Vetniskynningar erlendis – ráðstefna ræðismanna í Bandaríkjunum, Washington. Ráðherra flutti erindi um vetni á Consular Conference í Washington 2. okt. |
Ræðismenn kynntu í framhaldi starfsemina fyrir aðilum á viðkomandi svæði eftir tilefni og aðstæðum. |
| 19. | Jan. 2004 | Nýtt verkefni ESB á sviði vetnis „Hydrogen and Fuel Cell Technology Platform“. Nýlega hratt framkvæmdastjórn ESB af stað sérstöku verkefni til að móta stefnu og verkefni á sviði vetnis. Ísland er aðili að verkefninu. | Verkefnið kynnt í Brussel í janúar. Vetnisverkefni á Íslandi fá m.a. umfjöllun. |
| 20. | Kynning í sendiráðum erlendis – fjöldi fyrirspurna. Fjöldi kynningarfunda og upplýsingamiðlun fyrir hópa og fjölmiðla haldin erlendis á vegum sendiráða Íslands, fjölmörgum fyrirspurnum svarað, upplýsingum og kynningarefni dreift. Þessir fundir verða ekki taldir upp hér. | ||
| 21. | Ýmsar aðrar heimsóknir / atburðir er varða vetnisáform Íslands hafa einnig farið fram þó að þeirra sé ekki getið hér. |
Fylgiskjal III.
Utanríkisráðuneyti:
Umsögn í tilefni af fyrirspurn til iðnaðarráðuneytis varðandi
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
verðmæti umfjöllunar um vetnisáform.