Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 708. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1050  —  708. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu.

Frá Dagnýju Jónsdóttur.



     1.      Við hve marga hefur heilbrigðisráðuneytið eða stofnanir ráðuneytisins gert samninga, sem nú eru í gildi, um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu á sviði:
                  a.      hjúkrunar,
                  b.      öldrunarþjónustu,
                  c.      heilsugæslu,
                  d.      endurhæfingar?
     2.      Um hvaða þjónustu hefur verið samið með hverjum samningi og til hve langs tíma?
     3.      Við hverja hafa slíkir samningar verið gerðir? Óskað er eftir sundurliðuðu svari.
     4.      Hverjar eru skuldbindingar ríkissjóðs vegna samninganna? Óskað er eftir sundurliðuðu svari þar sem fram komi upphaf og lok samningstíma, árleg greiðsla úr ríkissjóði vegna hvers samnings og heildargreiðsla ríkissjóðs vegna hvers samnings.


Skriflegt svar óskast.