Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 500. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1060 — 500. mál.
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um ofbeldi í fíkniefnaheiminum.
1. Munu lögregluyfirvöld grípa til sérstakra aðgerða vegna síendurtekinna árása handrukkara?
Lögreglan grípur til aðgerða í samræmi við aðstæður hverju sinni og lögum samkvæmt. Ekkert sérstakt er á döfinni í þeim efnum sem fellur einkum undir aðgerðir gegn handrukkurum, eins og spurt er, umfram það sem fram kemur í svari við þriðju spurningu hér á eftir um auknar aðgerðir í fíkniefnamálum og öryggi alls almennings. Það er mat lögregluyfirvalda að ekki skorti á löggjöf eða önnur fyrirmæli og úrræði til að takast á við mál sem tengjast fíkniefnabrotum ef málin eru á annað borð lögð fyrir lögregluna til úrlausnar.
2. Telja lögregluyfirvöld sig nægjanlega vel í stakk búin að takast á við sívaxandi ofbeldi í fíkniefnaheiminum? Ef svo er ekki, hvað telja þau vænlegast til úrbóta?
Það er ekki vafi að lögreglan er í stakk búin til að takast á við þessi mál með sama hætti og önnur sem lögreglan tekst sífellt á við og leysir. Með breytingum á skipulagi sérsveitar lögreglunnar og enn frekari eflingu hennar á næstu árum hefur lögreglunni verið gert betur kleift en áður að takast á við vaxandi ofbeldi í fíkniefnaheiminum. Sérsveitin hefur frá og með 1. mars 2004 stöðu stoðdeildar undir forsjá ríkislögreglustjóra, einmitt með það að markmiði að tryggja sem best hreyfanleika hennar um land allt. Þetta er m.a. hugsað til þess að styrkja og efla öryggi lögreglumanna vegna vaxandi hörku í afbrotum. Efling sérsveitarinnar byggist á ákvörðunum í dómsmálaráðuneytinu í náinni samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra, lögreglustjórans í Reykjavík og sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli, auk samráðs við forustumenn Landssambands lögreglumanna og Lögreglufélags Reykjavíkur. Þessir aðilar eru allir sammála um að nýskipan sérsveitarinnar dugi best til að efla viðbúnað lögreglu vegna vaxandi hörku í afbrotum. Því má segja að því hafi þegar verið hrundið í framkvæmd sem lögregluyfirvöld telja vænlegast til úrbóta á þessu sviði.
Eftir sem áður þarf að hafa það í huga þegar rætt er um ofbeldi í fíkniefnaheiminum og handrukkun að lögreglan þarf að fá vitneskju um málin og upplýsingar um að meint brot hafi verið framið eða manni hótað og hótunin sé til þess fallin að vekja ótta um líf, heilbrigði eða velferð. Við slíkri háttsemi eru viðurlög samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga (233. gr. laga nr. 19/1940). Fái lögreglan ekki upplýsingar eða vitneskju sem hægt er að byggja á við rannsókn máls verður lögum ekki komið yfir þá menn sem sagðir eru hafa í hótunum.
Ef lögreglan fær vitneskju eða hefur grun um að refsivert brot hafi verið framið skal hún hefja rannsókn, hvort sem henni hefur borist kæra eða ekki, og getur ríkissaksóknari gefið fyrirmæli í þeim efnum, sbr. 66. gr. laga um meðferð opinberra mála, nr.19/1991. Markmið rannsóknar er að afla allra nauðsynlegra gagna til þess að ákæranda sé fært að ákveða að henni lokinni hvort sækja skuli mann til sakar, svo og að afla gagna til undirbúnings málsmeðferð, sbr. 67. gr. sömu laga. Í 68. gr. laganna segir að rannsaka skuli og afla allra tiltækra gagna um verknað þann sem um er að ræða, svo sem stað og stund og öll nánari atvik sem ætla má að skipt geti máli. Af þessu leiðir að menn verða að beina málum til lögreglunnar til þess að hún beiti valdi sínu til þess að stöðva þá sem valda ótta með háttsemi sem varðar við lög.
3. Báðu lögregluyfirvöld um fé á fjárlögum fyrir þetta ár og það síðasta til að auka mannafla, til tækjakaupa, rannsókna eða annars til að stemma stigu við ofbeldi sem tengist handrukkurum og fíkniefnaheiminum? Ef svo er, hve mikið fé vantar til að verða við óskunum og hverjar voru þær?
Lögregluyfirvöld báðu ekki sérstaklega um fé á fjárlögum þessa árs eða síðasta til að auka mannafla, til tækjakaupa, rannsókna eða annars sérstaklega til þess að stemma stigu við ofbeldi sem tengist handrukkurum og fíkniefnaheiminum. Umtalsverðum fjármunum er engu að síður ráðstafað á hverju ári sérstaklega vegna rannsókna fíkniefnamála og hafa fjárheimildir til þess aukist verulega á liðnum árum. Þannig má nefna að lögreglumönnum sem sérstaklega sinna fíkniefnamálum hefur fjölgað bæði á höfuðborgarsvæðinu og hjá öðrum embættum eins og ítarlega er rakið í skýrslu dómsmálaráðherra um stöðu og þróun löggæslu sem lögð var fram á Alþingi árið 2002. Nefna má einnig að leitarhundum, sem eru sérstaklega þjálfaðir, hefur verið komið fyrir hjá mörgum lögregluembættum, tækjabúnaður hefur verið endurnýjaður og bættur og nýlega var keypt tæki til að finna fíkniefni, sem meðal annars er notað í fangelsum. Í tengslum við kaup á því tæki var jafnframt sett upp skipulegt fíkniefnaeftirlit á Litla Hrauni með fíkniefnahundum sem þegar hefur gefið góða raun. Ríkislögreglustjórinn hefur í samvinnu við Námsgagnastofnun tekið saman kennsluefni sem lögreglan notar við forvarnarfræðslu og í samvinnu við Nýsköpunarsjóð námsmanna fól ríkislögreglustjórinn sálfræðingi að gera rannsókn þar sem komið er inn á persónuleikaeinkenni brotamanna, ofbeldi af hálfu þeirra sem nota fíkniefni, falskar játningar og fleira. Allt er þetta liður í því að sporna við notkun fíkniefna og fleira mætti nefna í þessu samhengi.
Síðast en ekki síst má nefna að sú efling sérsveitarinnar sem þegar hefur verið boðuð og stefna næstu ára hefur verið mörkuð um kemur til með að styrkja verulega almenna löggæslu á öllum sviðum og gera lögreglunni enn betur en áður kleift að takast á við vaxandi hörku í afbrotum.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1060 — 500. mál.
Svar