Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 501. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1111 — 501. mál.
landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um verðmyndun á grænmeti.
1. Hvernig skiptist verðmyndun árlega á helstu tegundum grænmetis árin 2001–2003, annars vegar innlends og hins vegar innflutts, sundurliðað milli eftirfarandi þátta, bæði hlutfallslega og í krónum:
a. framleiðenda,
b. heildsöluálagningar,
c. smásöluálagningar,
d. opinberra gjalda?
Umbeðnar upplýsingar liggja ekki fyrir.
2. Ef framangreindar upplýsingar liggja ekki fyrir, hyggst ráðherra þá beita sér fyrir slíkri sundurgreiningu?
Samkvæmt 6. gr. aðlögunarsamnings um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða milli ríkisstjórnar Íslands og Bændasamtaka Íslands/Sambands garðyrkjubænda starfar hópur með fulltrúum vinnumarkaðarins, bænda og stjórnvalda að því að afla slíkra upplýsinga eins og unnt er en bent er á að verðlagning í heildsölu og smásölu er frjáls og oft eru óljós skil á milli heildsölu og smásölu.
3. Hver hefur verið árlegur heildarinnflutningur á grænmeti frá árinu 1999?
Eftirfarandi tafla sýnir árlegan heildarinnflutning á fersku grænmeti, í kg, frá árinu 1999, eftir grænmetistegundum.
4. Hve miklar hafa árlegar tekjur ríkissjóðs af innfluttu grænmeti verið árin 1999–2003?
Árlegar tekjur ríkissjóðs af innfluttu fersku grænmeti árin 1999–2003 eru sem hér segir eftir grænmetistegundum:
1999: 246,7 millj. kr. þar af vsk. 89,0 millj. kr.
2000: 250,9 millj. kr. þar af vsk. 95,3 millj. kr.
2001: 262,8 millj. kr. þar af vsk. 114,6 millj. kr.
2002: 163,9 millj. kr. þar af vsk. 116,1 millj. kr.
2003: 154,0 millj. kr. þar af vsk 123,2 millj. kr.
5. Er ráðherra reiðubúinn að beita sér fyrir frekari lækkun á tollum af grænmeti?
Í kjölfar tillagna sem hin svokallaða „grænmetisnefnd“ skilaði af sér í ársbyrjun 2002 komu til framkvæmda niðurfellingar tolla á grænmeti. Það ár voru verðtollur og magntollur felldir niður á gúrkum, tómötum og papriku ásamt því að verðtollur var felldur niður á útiræktuðu grænmeti, sveppum og kartöflum. Hins vegar varð nefndin sammála um að viðhalda magntollum á útiræktuðu grænmeti til að tryggja markaðsstöðu innlendra afurða, þegar framboð þeirra væri nægjanlegt að magni og gæðum. Ekki eru frekari breytingar fyrirhugaðar.
6. Er ástæða til sérstakra aðgerða að mati ráðherra til að tryggja hag neytenda á grænmetis- og ávaxtamarkaði, m.a. vegna fákeppni í heildsöludreifingu?
Fákeppni bæði í smásölu og heildsölu er áhyggjuefni og á það einnig við um grænmeti og ávexti. Í þessu sambandi skal það upplýst að ráðherra hefur nýverið óskað eftir að Samkeppnisstofnun skoði ofan í kjölinn hver sé skýringin á hækkuninni sem fram kemur í nýlegri könnun stofnunarinnar þar sem verð á mörgum grænmetistegundum hefur hækkað um 14–51%. Minnt er á að stjórnvöld felldu niður tolla á um 30 tollskrárnúmerum grænmetis í ársbyrjun 2002 og veldur umrædd hækkun á grænmetisverði ráðherra því verulegum áhyggjum.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1111 — 501. mál.
Svar

| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | |
| 07011000, Kartöfluútsæði | 79.820 | 123.740 | 192.850 | 82.760 | 125.759 |
| 07019000, Nýjar kartöflur | 411.391 | 908.420 | 644.956 | 511.002 | 1.570.438 |
| 07020001, Nýir tómatar, innfluttir 1 nóv. – 15 mars | 325.848 | 337.751 | 400.518 | 389.201 | 293.151 |
| 07020002, Nýir tómatar, innfluttir 16 mars – 31. okt. | 107.631 | 105.640 | 145.391 | 252.324 | 305.701 |
| 07031001, Nýr laukur | 1.150.474 | 1.129.680 | 1.246.468 | 1.310.292 | 1.129.890 |
| 07031009, Nýr skalottlaukur | 10.082 | 8.402 | 9.863 | 10.679 | 10.083 |
| 07032000, Nýr hvítlaukur | 32.785 | 36.577 | 37.558 | 47.120 | 45.190 |
| 07039001, Nýr blaðlaukur | 130.529 | 142.188 | 155.031 | 170.724 | 166.454 |
| 07039009, Annar nýr laukur | 10.668 | 11.312 | 12.905 | 14.988 | 14.352 |
| 07041000, Nýtt blómkál og hnappað spergilkál | 226.867 | 204.789 | 195.988 | 202.140 | 202.558 |
| 07042000, Nýtt rósakál | 8.233 | 8.741 | 6.031 | 8.151 | 4.440 |
| 07049001, Nýtt hvítkál | 414.117 | 445.682 | 377.650 | 332.690 | 317.691 |
| 07049002, Nýtt rauðkál | 25.361 | 29.986 | 15.829 | 25.365 | 11.642 |
| 07049003, Nýtt kínakál | 218.459 | 226.158 | 216.815 | 204.308 | 190.122 |
| 07049004, Nýtt spergilkál | 108.117 | 106.819 | 110.979 | 124.288 | 138.271 |
| 07049009, Annað nýtt kál | 2.812 | 5.076 | 1.289 | 1.840 | 10.035 |
| 07051111, Jöklasalat innflutt 1 nóv. – 15. mars | 232.237 | 257.121 | 262.922 | 300.054 | 227.094 |
| 07051112, Jöklasalat innflutt 16. mars – 31. okt. | 547.971 | 553.742 | 533.442 | 545.017 | 577.746 |
| 07051191, Annað nýtt salat innflutt 1 nóv. – 15. mars | 13.141 | 29.846 | 47.934 | 66.993 | 56.121 |
| 07051199, Annað nýtt salat innflutt 16. mars – 31. okt | 42.973 | 31.593 | 111.283 | 145.857 | 166.666 |
| 07051900, Annað nýtt salat | 8.442 | 43.125 | 2.223 | 28 | |
| 07052100, Ný kaffifífilsblöð (jólasalat) | 5.133 | 2.231 | 1.512 | 3.428 | 5.360 |
| 07052900, Önnur ný síkoría | 885 | 2.679 | 2.572 | 3.328 | 6.106 |
| 07061000, Nýjar gulrætur og næpur | 200.097 | 309.221 | 338.435 | 264.515 | 271.310 |
| 07069000, Óþekkt tollskrárnúmer | 7.435 | ||||
| 07069001, Nýjar gulrófur | 2.318 | 58.903 | 14.868 | 92.191 | 16.758 |
| 07069002, Nýjar rauðrófur | 4.463 | 7.286 | 4.327 | ||
| 07069009, Aðrir nýir rótarávextir | 35.026 | 47.756 | 34.533 | 30.898 | 28.895 |
| 07070011, Gúrkur, innfluttar 1 nóv. – 15. mars | 140.315 | 126.935 | 81.010 | 142.938 | 104.730 |
| 07070012, Reitagúrkur, innfluttar 1. nóv – 15. mars | 31 | ||||
| 07070021, Gúrkur, innfluttar 16. mars – 31. okt. | 24.935 | 1.613 | 100 | 50.145 | 70.873 |
| 07081000, Nýjar ertur | 7.205 | 5.787 | 3.186 | 3.545 | 5.689 |
| 07082000, Ný belgaldin | 2.460 | 3.054 | 7.091 | 7.346 | 4.797 |
| 07089000, Aðrir nýir belgávextir | 2.155 | 1.807 | 2.487 | 3.182 | 2.351 |
| 07091000, Ferskur ætiþistill (artichoke) | 2.158 | 1.947 | 1.707 | 1.748 | 2.285 |
| 07092000, Nýr spergill | 2.918 | 4.405 | 4.287 | 4.431 | 5.341 |
| 07093000, Ný eggaldin | 17.492 | 21.686 | 24.524 | 28.616 | 32.485 |
| 07094000, Ný selja, þó ekki seljurót | 57.047 | 57.374 | 60.964 | 57.857 | 56.396 |
| 07095100, Nýir sveppir | 96.711 | 57.186 | 51.851 | 54.051 | 53.441 |
| 07095200, Nýjar tröfflur | 207 | 7 | 10 | ||
| 07096001, Ný allrahanda (pimento) | 95 | 364 | 219 | 1.798 | 225 |
| 07096002, Ný paprika, innflutt 1. nóv – 15. mars | 222.716 | 232.559 | 276.836 | 285.221 | 255.244 |
| 07096003, Ný græn paprika, innflutt 16. mars – 31. okt. | 181.707 | 201.178 | 38.783 | 53.916 | 115.815 |
| 07096004, Önnur ný paprika, innflutt 16. mars – 31. okt. | 177.985 | 301.721 | 366.044 | ||
| 07096009, Önnur ný piparaldin (af capsicum- eða pimentaætt) | 2.384 |
3.906 |
4.102 |
4.865 |
4.656 |
| 07097000, Nýtt spínat | 3.588 | 4.714 | 9.573 | 19.969 | 23.485 |
| 07099001, Nýr sykurmaís | 10.495 | 62.419 | 34.500 | 12.436 | 8.625 |
| 07099002, Nýr kúrbítur (courgettes) | 42.919 | 47.583 | 53.421 | 69.072 | 82.422 |
| 07099003, Nýjar ólívur | 6 | 22 | 298 | ||
| 07099004, Ný steinselja | 32 | 67 | 42 | 231 | 461 |
| 07099009, Aðrar nýjar matjurtir | 10.342 | 17.370 | 16.177 | 23.071 | 22.690 |
| Samtals | 5.186.532 | 6.019.361 | 5.973.160 | 6.273.657 | 7.114.523 |