Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 667. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1128  —  667. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, Helga Hjörvars og Valdimars L. Friðrikssonar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig hefur utanríkisráðuneytið hrundið í framkvæmd aðgerðum til að ná fram jafnrétti kynjanna, sbr. 13. tölul. III. kafla þingsályktunar um framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 1998? Óskað er eftir að gerð verði grein fyrir hverju verkefni fyrir sig og hve miklu fé hefur verið varið til aðgerðanna.

    Á 127. löggjafarþingi 2001–2002 var lögð fram skýrsla félagsmálaráðherra um stöðu framkvæmdaáætlunar ríkisstjórnarinnar til að ná fram jafnrétti kynjanna. Í þeirri skýrslu er farið yfir stöðu allra verkefna sem tilgreind eru í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna í jafnréttismálum 1998–2001 sem samþykkt var með þingsályktuninni frá 28. maí 1998. Í fyrrgreindri skýrslu félagsmálaráðherra er því sérstaklega fjallað um verkefni utanríkisráðuneytisins vegna framkvæmdaáætlunarinnar fyrir árin 1998–2001, sbr. 13. tölul. skýrslunnar, sem er samsvarandi 13. tölul. III. kafla í þingsályktuninni. (Sjá 127. löggjafarþing 2001–2002, þskj. 1290, 732. mál.)
    Um það hvernig utanríkisráðuneytið hefur hrundið í framkvæmd aðgerðum til að ná fram jafnrétti kynjanna, sbr. þingsályktunina, vísast því til áðurnefndrar skýrslu félagsmálaráðherra þar sem gerð er grein fyrir hverju verkefni fyrir sig. Þó er rétt að geta þess að í upphafi þessa árs var skipað í samráðsnefndina sem um getur í lið 13.1. Í nefndinni eiga sæti fulltrúi frá utanríkisráðuneyti og fulltrúi frá félagsmálaráðuneyti og hefur nefndin þegar hafist handa við að vinna að þeirri aðgerðaáætlun sem um getur í lið 13.1.
    Að því er varðar það sem fram kemur í fyrirspurninni um hversu miklu fé hefur verið varið til aðgerðanna er því til að svara að viðkomandi verkefni hafa verið unnin af starfsmönnum ráðuneytisins. Þar af leiðandi hefur enginn kostnaður verið tilgreindur sérstaklega við að hrinda þeim í framkvæmd.
    Auk áðurnefndrar skýrslu félagsmálaráðherra um stöðu framkvæmdaáætlunar ríkisstjórnarinnar til að ná fram jafnrétti kynjanna sem lögð var fram á 127. löggjafarþingi er vakin athygli á að á vordögum mun félagsmálaráðherra leggja fram nýja framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum og með henni fylgir skýrsla fyrir hvert ráðuneyti um stöðu verkefna úr endurskoðaðri áætlun fyrir árin 2002–2004.