Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 761. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1142  —  761. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um hundaræktarbúið í Dalsmynni.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.



     1.      Á hvaða lagagrundvelli byggjast kröfur um úrbætur í átta liðum og frestur til að uppfylla þær fyrir hundaræktarbúið í Dalsmynni?
     2.      Hefur verið farið að ákvæðum stjórnsýslulaga við meðferð málsins?

Greinargerð.


    Fyrirspurn þessi er borin fram vegna efasemda um réttmæti þeirrar stjórnsýslu sem birtist í bréfi, dags. 19. febrúar sl. frá héraðsdýralækni Gullbringu- og Kjósarumdæmis, starfsmanni yfirdýralæknis.


Skriflegt svar óskast.