Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 656. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1155 — 656. mál.
dóms- og kirkjumálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, Helga Hjörvars og Valdimars L. Friðrikssonar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig hefur dóms- og kirkjumálaráðuneytið hrundið í framkvæmd aðgerðum til að ná fram jafnrétti kynjanna, sbr. 2. tölul. III. kafla þingsályktunar um framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 1998? Óskað er eftir að gerð verði grein fyrir hverju verkefni fyrir sig og hve miklu fé hefur verið varið til aðgerðanna.
Verkefnum þeim sem getið er í III. kafla þingsályktunartillögu þeirrar er fyrirspyrjendur vísa til voru ítarlega gerð skil í skýrslu félagsmálaráðherra um stöðu framkvæmdaáætlunar ríkisstjórnarinnar til að ná fram jafnrétti kynjanna sem lögð var fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002, þskj. 1290, 732. mál. Hér á eftir munu því helstu atriði í kafla dóms- og kirkjumálaráðuneytisins í þeirri framkvæmdaáætlun tekin upp og kostnaður tilgreindur á eftir hverju verkefni. Ef viðbótarupplýsingar liggja fyrir verður þeirra sérstaklega getið. Þess má geta að nýjum verkefnum var bætt í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar til að ná fram jafnrétti kynjanna sem lögð var fyrir á 127. löggjafarþingi og féllu önnur niður. Vísast til hennar til nánari skoðunar. Þá er einnig vakin athygli á að á vordögum mun félagsmálaráðherra leggja fram nýja framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum og með henni mun fylgja skýrsla um stöðu verkefna úr endurskoðaðri áætlun vegna áranna 2002–2004.
2.1. Hvatning til kvenna sem og karla að sækja um störf.
Ráðuneytið hefur sett sér að fylgja þeirri stefnu að orða starfsauglýsingar þannig að fram komi hvatning um að konur jafnt sem karlar sæki um viðkomandi störf.
Ráðuneytið hefur fylgt þeirri stefnu með fáum undantekningum að orða starfsauglýsingar þannig að fram komi hvatning um að konur jafnt sem karlar sæki um viðkomandi störf.
Í ráðuneytinu og í undirstofnunum þess er nú föst starfsregla að setja staðlaðan texta inn í allar atvinnuauglýsingar sem hljóðar svo: „Sú regla gildir hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess að hafa skal í heiðri jafnrétti kynjanna við stöðuveitingar.“ Þá má geta þess að samkvæmt drögum að nýrri jafnréttisáætlun dómsmálaráðuneytisins skal orða auglýsingar varðandi símenntun þannig að hvatning komi fram um að jafnt karlar sem konur sæki sér slíka menntun.
Kostnaður vegna aðgerða óverulegur.
2.2. Hlutur kvenna í nefndum og ráðum á vegum ráðuneytisins.
Stefnt verður að því að auka enn hlut kvenna í nefndum og ráðum á vegum ráðuneytisins og óskað eftir að tilnefningum verði hagað svo að því markmiði verði náð.
Ráðuneytið hefur unnið að því að auka hlut kvenna í nefndum og ráðum á vegum ráðuneytisins og óskað eftir að tilnefningum verði hagað svo að því markmiði verði náð. Á tímabilinu hefur fjöldi kvenna í nefndum og ráðum á vegum ráðuneytisins aukist úr 19,3% í 26,3%.
Á árinu 2002 var hlutur kvenna í nefndum, stjórnum og ráðum á vegum dómsmálaráðuneytisins 26,2%. Þar sem ekki er um mikla aukningu að ræða frá fyrra ári hefur ráðuneytið nú brugðist við og gert að reglu þegar óskað er eftir tilnefningum þriðja aðila í nefndir að óska eftir tveimur tilnefningum, konu og karli.
Kostnaður vegna aðgerða enginn.
2.3. Fjölgun kvenna í lögreglu og meðal fangavarða.
Markvisst verður stefnt að því að ráða fleiri konur í störf lögreglumanna og fangavarða. Í því skyni verða konur hvattar til að sækja um störf sem auglýst eru.
Ráðuneytið hefur unnið að því að fjölga konum í störfum lögreglumanna og fangavarða. Á árinu 1996 var hlutfall kvenna í lögreglustörfum 4,3% en hefur síðan aukist jafnt og þétt og er nú 9,11%. Til þess að skoða þróunina betur má líta á tölur um útskriftarnema í Lögregluskóla ríkisins. Á árinu 1997 var hlutfall kvenna sem útskrifuðust úr lögregluskólanum 7,14% en á sl. vori var þetta hlutfall 16,13%. Af þeim hópi sem útskrifaðist í desember árið 2000 var hlutfall kvenna 19,35%. Lögreglunemar í grunnnámi eru nú 48, 36 karlar og 12 konur, þ.e. konur eru 33,3% þeirra. Á árinu 1996 var hlutfall kvenna í störfum fangavarða 7,7% en er nú 15,6%. Starfa nú 15 konur við fangavörslu.
Áfram hefur verið unnið markvisst að því að fjölga konum í lögreglu. Í öllum starfsauglýsingum eru konur jafnt sem karlar hvattar til að sækja um. Á árinu 2002 sóttu 127 karlar og 36 konur um inngöngu í Lögregluskóla ríkisins. 86 karlar og 27 konur þreyttu inntökupróf. Af þeim stóðust 64 karlar (75% karlkyns umsækjenda) og 21 kona (78% kvenkyns umsækjenda) prófið. Þetta þýðir að af þeim sem stóðust prófið voru 75% karlar og 25% konur. Af þeim 40 umsækjendum sem valdir voru inn í skólann voru svo 27 karlar (67,5%) og 13 konur (32,5%). Af þessum tölum má sjá að hlutfall þeirra kvenna sem sóttu um skólavist og fengu var hærra en karla, eða 13 konur af 21 (61%), en 27 karlar af 64 fengu skólavist (42%).
Hlutfall starfandi kvenna innan lögreglunnar í febrúar 2003 var 9,34%. Í febrúar 2002 var það 9,11%.
Kostnaður vegna aðgerða óverulegur.
2.4. Staða kvenna innan lögreglunnar.
Lögreglan er fjölmennust þeirra starfsstétta sem heyra undir ráðuneyti dómsmála. Með nýrri skipan á vali nemenda í lögregluskólanum hefur konum þegar fjölgað í hópi nemenda og mun það að öllum líkindum verða til þess að auka hlut kvenna í lögreglunni þegar fram í sækir. Jafnframt því að stuðla að fjölgun kvenna innan lögreglunnar mun dómsmálaráðuneytið huga sérstaklega að stöðu þeirra kvenna sem starfa í lögreglunni.
Ráðuneytið hefur hugað sérstaklega að stöðu þeirra kvenna sem starfa innan lögreglunnar. Frá árinu 1999 hafa fjórar konur verið skipaðar lögreglustjórar og eru þær nú fimm alls. Á sama tíma hefur dómsmálaráðherra skipað þrjá karla í stöður lögreglustjóra. Árið 1996 voru konur 1,49% af þeim sem eru í helstu yfirmannastöðum innan lögreglunnar en voru á sl. sumri 2,36%. Þótt hér sé ekki um margar stöður að ræða skal þess getið að árið 1996 var engin kona í starfi yfirlögregluþjóns, aðstoðaryfirlögregluþjóns eða aðalvarðstjóra en ein kona var í stöðu lögreglufulltrúa. Nú er ein kona aðstoðaryfirlögregluþjónn, ein kona aðalvarðstjóri og þrjár konur lögreglufulltrúar. Rétt er að taka fram að þrátt fyrir hvatningu til kvenna um að sækja um lausar stöður yfirmanna er fátítt að þær sæki um. Þannig voru árið 2000 auglýstar lausar til umsóknar 77 yfirmannastöður í lögreglunni, þ.e. staða aðstoðarvarðstjóra og hærra settra. Um þær sóttu níu konur og 230 karlar. Af þeim sem hlutu stöðurnar voru fimm konur og 72 karlmenn. Þannig fengu 55,6% kvenna þær stöður sem þær sóttu um en 31,3% karla fengu þær stöður sem þeir sóttu um.
Í febrúar 2003 var engin kona starfandi yfirlögregluþjónn en 24 karlar gegndu slíkri stöðu. Ein kona gegndi starfi aðstoðaryfirlögregluþjóns en 28 karlar. Í starfi aðalvarðstjóra voru 7 konur og 87 karlar. Af 237 varðstjórastöðum voru konur í 15 þeirra. Í stöðu aðstoðarvarðstjóra voru 38 karlar og engin kona. Af 237 stöðum lögreglumanna voru 203 karlar og 34 konur.
Kostnaður vegna aðgerða enginn.
2.5. Meðferð heimilisofbeldismála.
Nefnd, sem dómsmálaráðherra skipaði til að kanna orsakir, umfang og afleiðingar heimilisofbeldis, svo og annars ofbeldis gegn konum og börnum, skilaði skýrslu um niðurstöður sínar. Í ljósi niðurstaðna nefndarinnar skipaði dómsmálaráðherra þrjár nefndir til að huga að meðferð þessara mála. Einni nefndinni er ætlað að huga að nauðsynlegum breytingum á löggjöf til að sporna við heimilisofbeldi, huga að því með hvaða hætti unnt sé að efla starf félagasamtaka sem sinna forvarnamálum og hjálparúrræðum á þessu sviði og gera tillögur um forvarnaaðgerðir og hjálparúrræði fyrir brotaþola og gerendur. Hinum nefndunum tveimur er falið að huga að meðferð þeirra mála sem hér um ræðir, annars vegar á rannsóknarstigi en hins vegar í dómskerfinu, og leggja fyrir dómsmálaráðherra tillögur um nauðsynlegar úrbætur í því efni, þar á meðal um breytingar á refsi- og réttarfarslöggjöf, ef því er að skipta.
Nefndirnar skiluðu allar skýrslum sem dómsmálaráðherra lagði fram á 121. og 122. löggjafarþingi Alþingis.
Kostnaður vegna þeirra nefnda sem skipaðar voru var eftirfarandi samkvæmt ákvörðun þóknananefndar:
1. Nefnd vegna tillagna um forvarnir og hjálparúrræði fyrir þolendur var skipuð fjórum nefndarmönnum. Formaður hlaut 63 einingar og aðrir nefndarmenn 42 einingar hver.
2. Nefnd vegna meðferðar heimilisofbeldismála fyrir lögreglu á rannsóknarstigi var skipuð þremur nefndarmönnum. Formaður hlaut 30 einingar og aðrir nefndarmenn 20 einingar hvor.
3. Nefnd vegna meðferðar heimilisofbeldismála í dómskerfinu var skipuð þremur nefndarmönnum. Formaður hlaut 54 einingar og aðrir nefndarmenn 36 einingar hvor.
Ekki liggur fyrir hvað einingin kostaði á þeim tíma er nefndirnar luku störfum en í dag jafngildir ein eining 1.258,53 kr.
2.6. Staða þolenda afbrota.
Nefnd, sem dómsmálaráðherra skipaði til að athuga hvort taka ætti upp það fyrirkomulag að ríkissjóður ábyrgðist greiðslur dæmdra bóta vegna kynferðisbrota eða annarra grófra ofbeldisbrota, samdi frumvarp sem varð að lögum um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota. Nefndinni var einnig falið að athuga hvort setja ætti í lög reglur um nálgunarbann og hvort þolendur gætu átt betri aðgang að rannsóknarferlinu. Meðal þeirra úrræða sem nefndin hefur fjallað um er réttur brotaþola til lögmannsaðstoðar þeim að kostnaðarlausu. Nefndin vinnur nú að tillögum um breytingar á refsi- og réttarfarslöggjöf er miða að bættri stöðu brotaþola að þessu leyti.
Lögum um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota, nr. 69/1995, hefur verið breytt þannig að víkja má frá ákvæðum laganna um tímafresti til að koma fram kröfu um bætur þegar veigamikil rök mæla með því.
Dómsmálaráðherra beitti sér fyrir breytingu á lögum um meðferð opinberra mála og almennum hegningarlögum, þar sem mælt er fyrir um nálgunarbann. Samkvæmt því er unnt að banna manni með dómsúrskurði að koma á tiltekinn stað eða svæði, veita eftirför, heimsækja eða setja sig með öðru móti í samband við annan mann, ef rökstudd ástæða er til að ætla að hann mundi fremja afbrot eða raska friði þess manns sem á í hlut. Brot á nálgunarbanni varðar eins árs fangelsi og tveggja ára fangelsi ef brot er ítrekað eða stórfellt. Með lögum nr. 36/1999 voru ýmsar breytingar gerðar á ákvæðum laga um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991, í því skyni að bæta stöðu þolenda kynferðisbrota. Eftir breytingarnar eiga brotaþolar í kynferðisbrotamálum rétt á því að þeim verði á kostnað ríkissjóðs skipaður löglærður talsmaður, réttargæslumaður, er gæti hagsmuna þeirra í sambandi við rannsókn og málsmeðferð sakamálsins og veiti brotaþola aðra aðstoð sem eðlileg er í sambandi við málið.
Aðgerðir vegna þessa verkefnis voru unnar af starfsmönnum dómsmálaráðuneytisins og leiddu ekki til aukins kostnaðar fyrir ráðuneytið. Lagabreytingarnar kölluðu hins vegar á aukinn kostnað fyrir ríkissjóð.
2.7. Staða kvenna innan þjóðkirkjunnar.
Dóms- og kirkjumálaráðherra mun beina þeim tilmælum til biskupsstofu að sérstaklega verði hugað að stöðu kvenna innan þjóðkirkjunnar. Stefnt verði að því að aukin verði þátttaka kvenna í ráðum og nefndum á vegum þjóðkirkjunnar og að jafnað verði hlutfall karla og kvenna í trúnaðarstörfum innan hennar. Í því skyni verði tekið mið af niðurstöðum nefndar sem biskup hefur skipað til að skoða jafnréttismál í þjóðkirkjunni. Nefndinni er í fyrsta lagi ætlað að gera sér grein fyrir stöðu mála hvað varðar jafnrétti kynja í kirkjunni, í öðru lagi að kynna sér stöðu þessara eða svipaðra mála meðal nágrannakirkna á Norðurlöndum og í Alkirkjuráðinu og Lúterska heimssambandinu og kynna stefnu þessara fjölþjóðasamtaka sem íslenska kirkjan tilheyrir og í þriðja lagi að gera tillögur um úrbætur sjái nefndin möguleika á því að koma slíku fram.
Á kirkjuþingi árið 1998 var samþykkt jafnréttisáætlun kirkjunnar sem tók gildi 1. janúar 1999. Í samræmi við ákvæði jafnréttisáætlunar var sett á stofn jafnréttisnefnd sem tók til starfa um leið og jafnréttisáætlun tók gildi.
Jafnréttisáætlun kirkjunnar leggur megináherslu á eftirfarandi málefni:
– Að rétta hlut kvenna innan kirkjunnar.
– Að jafna aðild kynjanna að nefndum og ráðum og yfirstjórn kirkjunnar.
– Að stuðla að jöfnun launa og aðstöðu kvenna og karla innan kirkjunnar.
– Að vinna að fræðslu um jafnrétti.
– Að vinna að endurskoðun málfars í kirkjulegri boðun og starfi.
Ekki liggja í ráðuneytinu nýjar upplýsingar frá jafnréttisnefnd kirkjunnar um stöðu jafnréttismála innan kirkjunnar.
Samkvæmt upplýsingum frá Biskupsstofu var kostnaður hennar vegna jafnréttisnefndar kirkjunnar á árinu 2003 379.378 kr.
2.8. Forsjár- og umgengnismál.
Dómsmálaráðherra skipaði á árinu 1997 nefnd til að kanna stöðu forsjár- og umgengnismála. Nefndinni var m.a. falið að kanna reynslu þá er fengist hefur af sameiginlegri forsjá hér á landi og annars staðar á Norðurlöndum, hvaða úrræði eru líkleg til að draga úr fjölda brota vegna umgengnisréttar og -skyldu, hvaða upplýsingar og fræðsla standa foreldrum til boða í tengslum við skilnaðar-, forsjár- og umgengnismál, hvernig auka megi þá fræðslu ef þess er talin þörf og hverjar eru raunverulega samvistir barna við það foreldri sem þau búa ekki hjá.
Forsjárnefnd skilaði dómsmálaráðherra áfangaskýrslu í júní 1999 og lagði fram eftirfarandi tillögu til úrbóta:
1. Þegar á árinu 1999 var ráðist í tilraunaverkefni við a.m.k. eitt sýslumannsembætti um þverfaglega ráðgjöf fyrir foreldra við skilnað þeirra eða slit á óvígðri sambúð. Tilraunin stæði yfir í tólf mánuði og árangur yrði metinn að tilraunatíma loknum. Árið 2000 var síðan hleypt af stokkunum tilraunaverkefni hjá embætti sýslumannsins í Reykjavík sem laut að sáttaumleitunum í umgengnis- og forsjármálum, bæði í skilnaðarmálum og málum sem ekki tengjast þeim. Árangurinn reyndist mjög góður og var barnalögum breytt með lögum nr. 18/2001 þar sem gert er ráð fyrir að slíka sáttaþjónustu sé unnt að fá hjá öllum sýslumannsembættum.
2. Sameiginleg forsjá foreldra verði meginregla.
3. Lagabreytingar til að bæta réttarstöðu forsjárlauss foreldris.
Með breytingu sem gerð var á barnalögum, nr. 20/1992, með lögum nr. 18/2001 var sáttaþjónusta þessi lögfest. Slík sáttaþjónusta hélst óbreytt við setningu nýrra barnalaga, nr. 76/2003.
Lögfesting sáttaþjónustu fyrir sýslumanni hefur leitt til viðvarandi útgjalda fyrir ríkissjóð og á árinu 2003 nam sá kostnaður 6.193.000 kr. Samkvæmt nánari sundurliðun:
Nefndin sem stofnuð var árið 1997, forsjárnefnd, hefur enn ekki lokið störfum og hefur fullnaðargreiðsla vegna starfa hennar því ekki farið fram. Áfallinn kostnaður vegna nefndarinnar er 185.525 kr.
2.9. Jafnrétti – mannréttindi.
Á vegum dómsmálaráðuneytis verði skipulögð námskeið fyrir opinbera embættismenn um mannréttindamál, m.a. um mannréttindi kvenna sérstaklega.
Ráðuneytið hefur lagt áherslu á fræðslu um mannréttindi og hafa starfsmenn þess haldið fræðsluerindi og staðið fyrir námskeiðum fyrir ýmsa starfshópa, svo sem ákærendur, lögreglumenn o.fl. Í lögregluskólanum eru mannréttindi meðal námsgreina.
Aðgerðir vegna þessa verkefnis voru unnar af starfsmönnum dómsmálaráðuneytisins og leiddu ekki til annars kostnaðar fyrir ráðuneytið.
Mannréttindakennsla er sérstakur hluti námskrár Lögregluskóla ríkisins. Sérstök námsgrein sem ber heitið „Mannréttindi/stjórnarskrá“ er kennd á síðari hluta fyrsta árs. Þar er umfjöllun um alla helstu alþjóðlegu mannréttindasamningana og hefur nú CEDAW verið bætt í þann hóp.
Í sérstöku námi fyrir stjórnendur innan lögreglunnar sem Lögregluskóli ríkisins og Endurmenntunarstofnun HÍ standa að er fjórum kennslustundum sérstaklega varið til umfjöllunar um jafnrétti.
Átak gegn verslun með konur sem betur eru gerð skil undir öðrum verkefnum hér á eftir fól í sér sérstaka áherslu á að verslun með konur væri brot á mannréttindum.
2.10. Jafnréttisnefnd ráðuneytisins og stofnana þess.
Kanna skal stöðu jafnréttismála í ráðuneytinu og stofnunum þess og gera áætlun um hvernig rétta skuli hlut kynjanna. Verði það m.a. gert með markvissri fræðslu yfirmanna og annarra starfsmanna.
Í nóvember 2001 var gefin út í ráðuneytinu jafnréttisyfirlýsing þess. Í henni er kveðið á um launajafnrétti, stöðuveitingar og skipanir í embætti, jafnræði á vinnustað, jafnan rétt til fjölskyldu og atvinnulífs, jafnan rétt karla og kvenna til starfsþjálfunar og endurmenntunar, þátttöku í nefndum og ráðum o.fl. Yfirlýsingin hefur verið send öllum undirstofnunum ráðuneytisins. Í bréfi sem fylgdi yfirlýsingunni var þess farið sérstaklega á leit að yfirmenn stofnana kynntu öllum starfsmönnum yfirlýsinguna, hver væri jafnréttisfulltrúi ráðuneytisins og að starfsmenn gætu snúið sér með umkvartanir sínar til fulltrúans.
Jafnréttisáætlun var sett í ráðuneytinu í febrúar 2004 og með henni féll jafnréttisyfirlýsingin úr gildi. Þá var jafnréttisnefnd skipuð í ráðuneytinu í maí 2003. Jafnréttisfulltrúi ráðuneytisins hélt fyrirlestur um störf jafnréttisfulltrúa og jafnréttisstarf í ráðuneytinu fyrir alla starfsmenn ráðuneytisins í maí 2003. Enginn kostnaður varð vegna þessa.
Þá stóðu öll ráðuneytin sameiginlega að könnun á stöðu jafnréttismála í hverju ráðuneyti fyrir sig í lok ársins 2003. Gallup framkvæmdi könnunina og var kostnaður ráðuneytisins í könnuninni 82.109 kr.
Önnur verkefni.
– Ráðuneytið hefur einnig unnið að verkefni tengdu vændi á Íslandi. Ríkisstjórnin samþykkti sérstaka fjárveitingu til að gerð yrði rannsókn á vændi á Íslandi. Sumarið 2000 fól dómsmálaráðuneytið sérfræðingum að gera úttekt á umfangi vændis hér á landi. Rannsóknin var einkum byggð á viðtölum við ungar stúlkur sem ánetjast hafa fíkniefnaneyslu, svo og við nektardansmeyjar og aðra sem tengjast starfsemi nektardansstaða. Áfangaskýrsla liggur nú fyrir og hafa niðurstöður hennar verið kynntar. Jafnframt hefur verið lögð fram af dómsmálaráðherra skýrsla um samanburð á lagaumhverfi á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndum varðandi löggjöf og eftirlit með klámi, vændi o.fl. en skýrsla þessi er svar við beiðni nokkurra þingmanna.
– Dómsmálaráðherra hefur styrkt svokallaðan V-dag, sem vænta má að verði árlegur viðburður.
– Dómsmálaráðherra hefur skipað nefnd um útihátíðir, sem m.a. er ætlað að fjalla um þann vanda sem birst hefur í ofbeldi, þ.m.t. kynferðislegu ofbeldi gagnvart ungum stúlkum á útihátíðum.
– Dómsmálaráðherra hefur á erlendum og innlendum vettvangi lagt áherslu á baráttuna gegn svokallaðri „hvítri þrælasölu“, en slík verslun með fólk er víðtæk um heim allan og viðfangsefni skipulagðra glæpahringja. Á fundum norrænna og baltneskra dómsmálaráðherra hefur þetta efni verið á dagskrá og er unnið að því að samstilla aðgerðir lögregluyfirvalda á þessu sviði.
Kostnaður vegna skýrslunnar „Vændi á Íslandi og félagslegt umhverfi þess“, sem unnin var fyrir dómsmálaráðuneytið af Rannsóknum og greiningu og kom út árið 2001, var 1.584.885 kr.
Í kjölfar skýrslunnar um vændi á Íslandi og félagslegt umhverfi þess skipaði dómsmálaráðherra nefnd til að bregðast við niðurstöðum skýrslunnar. Nefndin var skipuð sjö nefndarmönnum auk ritara. Nefndin skilaði skýrslu í apríl 2002. Kostnaður vegna nefndarinnar var 543.419 kr.
Kostnaður vegna skýrslu um samanburð á lagaumhverfi á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndum varðandi löggjöf og eftirlit með klámi, vændi o.fl. skv. beiðni, sem var lögð fram á 126. löggjafarþingi 2000–2001, var 690.000 kr. Sérstök fjárveiting fékkst fyrir 500.000 kr. en ráðuneytið stóð straum af mismuninum, 190.000 kr.
Að frumkvæði dómsmálaráðherra veitti ríkisstjórnin 500.000 kr. styrk til V-dagssamtakanna árið 2002, 1.000.000 kr. árið 2003 og 500.000 kr. árið 2004. V-dagurinn, sem er alþjóðlegur dagur gegn ofbeldi gegn konum, var haldinn í fyrsta sinn á Íslandi árið 2002.
Kostnaður vegna sjö manna nefndar um útihátíðir, sem skilaði skýrslu í júlí 2002, var 663.030 kr.
Þá var einnig skipaður starfshópur um meðferð nauðgunarmála hjá lögreglu og ákæruvaldi. Starfshópurinn sem skipaður var fjórum nefndarmönnum skilaði skýrslu í apríl 2002. Kostnaður vegna starfshópsins var 220.000 kr.
Ráðuneytið tók, ásamt félagsmálaráðuneytinu, þátt í upplýsingaátaki Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna gegn verslun með konur. Átakið sem hleypt var af stokkunum í Tallinn 29. maí 2002 fól í sér annars vegar sameiginlegt átak allra ríkjanna til að sporna við starfsemi af þessu tagi auk þess sem hvert ríki efndi til átaks í sínu landi, sem var sérstaklega sniðið að staðbundnum aðstæðum. Hið íslenska átak fólst í ráðstefnu sem haldin var í febrúar 2003 ásamt útgáfu blaðs sem dreift var með Morgunblaðinu um svipað leyti. Um átakið og árangur þess má lesa í skýrslu sem Norræna ráðherranefndin mun gefa út innan skamms. Kostnaður vegna átaksins var áætlaður 2.000.000 kr. Kostnaður dómsmálaráðuneytisins vegna þess var 607.398 kr. Ríkisstjórnin styrkti átakið um 1.000.000 kr. og tók félagsmálaráðuneytið einnig þátt í kostnaði vegna þess.
Ráðuneytið styrkti einnig rannsókn á vændi meðal ungs fólks og útgáfu skýrslu Rannsókna og greiningar „Vændi meðal ungs fólks á Íslandi og félagslegt umhverfi þess“ sem kom út 2003. Kostnaður vegna þessa var 844.501 kr.
Að frumkvæði dómsmálaráðherra veitti ríkisstjórnin 200.000 kr. styrk til rannsóknarverkefnisins „Kynlífsmarkaður í mótun“ en skýrsla var gefin út 2003.
Þá ber einnig að geta þess að nokkrar breytingar á almennum hegningarlögum hafa verið gerðar sem stuðla að því að sporna gegn vændi, mansali og kynferðislegri misnotkun. Í fyrsta lagi var nýju ákvæði bætt við 202. gr. laganna með lögum nr. 14/2002, sem kveður á um að refsivert sé að kaupa kynlífsþjónustu af ungmenni yngra en 18 ára. Í öðru lagi voru með breytingalögum nr. 40/2003 gerðar ákveðnar breytingar á ákvæðum laganna sem miðuðu að því annars vegar að veita þolendum kynferðisafbrota ríkari vernd en áður og hins vegar að lögfesta sérstakt ákvæði sem kvæði á um að mansal, eða verslun með fólk, yrði refsivert brot. Verkefni þessi voru unnin af starfsmönnum ráðuneytisins og því er enginn kostnaður tilgreindur.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1155 — 656. mál.
Svar

| Sýslumaðurinn í Reykjavík | 5.883.000 kr. |
| Sýslumaðurinn á Ísafirði | 73.000 kr. |
| Sýslumaðurinn á Akureyri | 100.000 kr. |
| Sýslumaðurinn á Eskifirði | 137.000 kr. |