Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 678. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1157 — 678. mál.
utanríkisráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar, Lúðvíks Bergvinssonar og Bryndísar Hlöðversdóttur um fríverslunarsamninga EFTA.
1. Við hvaða ríki eru fríverslunarsamningar á vegum EFTA í gildi? Hvenær voru þeir staðfestir?
Fríverslunarsamningar við EFTA eru nú 20 talsins, þar af hafa 19 tekið gildi. Í fylgiskjali er listi yfir fríverslunarsamningana (sem birtur er á heimasíðu utanríkisráðuneytisins) og kemur þar fram gildistökudagur þeirra. Fríverslunarsamningur við Chile hefur ekki enn tekið gildi, en hann er nú í meðförum Alþingis (þskj. 1091, 735. mál) og áætluð gildistaka er í byrjun sumars 2004. Átta samninganna falla hins vegar úr gildi við inngöngu nýrra ríkja í ESB 1. maí nk.
2. Við hvaða ríki eru formlegar samningaviðræður um fríverslun í gangi? Hvenær hófust þær og á hvaða stigi eru þær? Hvenær er gert ráð fyrir að þeim ljúki?
Formlegar samningaviðræður eru í gangi við Kanada, Egyptaland, Túnis og Suður-afríska tollabandalagið (Suður-Afríka, Botsvana, Lesoto, Namibía og Svasíland). Viðræður við Kanada, Egyptaland og Túnis hófust 1998, en viðræður við Suður-afríska tollabandalagið árið 2000. Vonir standa til að ljúka samningum við Túnis á þessu ári og hugsanlega Egyptaland og Suður-Afríku síðar á árinu, en óvíst er hvenær samningum við Kanada verður lokið. Nýlokið er samningaviðræðum við Líbanon, sem hófust í apríl 2003, og verður samningurinn undirritaður í júní nk. á ráðherrafundi EFTA í Sviss, en gildistaka er áætluð 1. janúar 2005.
3. Hvaða stefnu hefur EFTA um samninga gagnvart öðrum ríkjum sem þykja vænlegir kostir til að efla fríverslun við? Hefur EFTA formlegan eða óformlegan forgangslista um í hvaða röð er áformað að hefja viðræður við umrædd ríki? Hvort og þá hvenær er áformað að hefja formlegar viðræður við viðkomandi ríki?
Stefnumörkun EFTA hefur verið sú annars vegar að skapa viðskiptaaðilum innan EFTA svipuð skilyrði og bjóðast fyrirtækjum innan ESB, með því að styrkja net fríverslunarsamninga við ríki sem ESB hefur samið við eða á í samningaviðræðum við. Dæmi um slíka samninga eru samningar við ríki við Miðjarðarhafið, þar sem eru e.t.v. ekki mikil viðskipti EFTA-ríkjanna nú. Hins vegar hefur EFTA horft til sérstakra viðskiptahagsmuna EFTA- ríkjanna sem slíkra og opnunar nýrra markaða fyrir viðskipti. Dæmi um slíka stefnu eru samningarnir við Singapúr, Chile, Mexíkó og viðræðurnar við Kanada sem er mikilvægt viðskiptaland. EFTA hefur einnig horft til Asíu varðandi frekari samninga í framhaldi af Singapúrsamningnum og skoðar nú möguleika á viðræðum við Suður-Kóreu, en ekki hefur verið ákveðið hvenær formlegar viðræður hefjast. Auk þess eru reglulega metnir hagsmunir af frekara samstarfi og mögulegum fríverslunarviðræðum við ríki sem EFTA-ríkin eru með samstarfsyfirlýsingar við, sbr. 4. lið fyrirspurnarinnar.
4. Við hvaða ríki hafa verið gerðir samstarfssamningar sem ganga skemur en fríverslunarsamningar?
EFTA hefur nú gengið frá samstarfsyfirlýsingum við níu ríki eða ríkjasambönd, en samstarfsyfirlýsingar eru almennt undanfari fríverslunarsamningaviðræðna. Þau eru MERCOSUR-ríkin (Argentína, Brasilía, Paragvæ og Úrúgvæ), Flóaráðið (GCC) sem er ráð arabaríkja við Persaflóa, Albanía, Alsír, Úkraína og Serbía og Svartfjallaland.
Fylgiskjal.
* Bráðabirgðagildistaka 01.09.1992
** Bráðabirgðagildistaka 15.11.1993.
*** Eldri samningurinn, svokallaður Stokkhólmssamningur, er frá 1960, sjá tilvísanir í sviga.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1157 — 678. mál.
Svar

Fríverslunarsamningar Íslands.
| Lönd | Dags. | Nr. | Gildist. | Heiti |
| Austurríki | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Belgía | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Bretland | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Búlgaría | 29.03.1993 | 02/1995 | 01.06.1994 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Búlgaríu |
| Danmörk | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin, Færeyjar og Grænland |
| EES-ríkin | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | EES-samningurinn (nær til eftirfarandi 17 ríkja: Austurríkis, Belgíu, Bretlands, Danmerkur, Finnlands, Frakklands, Grikklands, Hollands, Írlands, Ítalíu, Liechtenstein, Lúxemborgar, Noregs, Portúgals, Spánar, Svíþjóðar, Þýskalands) |
| Eistland | 07.12.1995 | óbirtur | 01.10.1997 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Eistlands |
| ESB-ríkin | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Finnland | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Frakkland | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Færeyjar | 06.08.1992 | 12/1993 | 01.07.1993* | Samningur við Færeyjar um fríverslun, staðfestur 2. júní 1993 |
| Grikkland | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Grænland | 31.01.1985 | 01/1985 | 01.02.1985 | Samningur um viðskipti Íslands og Grænlands |
| Holland | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Írland | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Ísrael | 17.09.1992 | 10/1993 | 01.08.1993 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Ísrael |
| Ítalía | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Jórdanía | 21.06.2001 | óbirtur | 01.09.2002 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Jórdaníu |
| Króatía | 21.06.2001 | óbirtur | 01.08.2002 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Króatíu |
| Lettland | 07.12.1995 | óbirtur | 01.06.1996 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Lettlands |
| Liechtenstein | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Litháen | 07.12.1995 | óbirtur | 01.01.1997 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Litháen |
| Lúxemborg | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Makedónía | 19.06.2000 | óbirtur | 01.08.2002 | Samningur milli Fríverslunarsamtaka Evrópu og Makedóníu |
| Marokkó | 19.06.1997 | óbirtur | 01.12.1999 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Marokkó |
| Mexíkó | 27.11.2000 | óbirtur | 01.10.2001 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Mexíkó |
| Noregur | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| PLO | 30.11.1998 | óbirtur | 01.07.1999 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og sjálfsstjórnarsvæðis Palestínumanna |
| Portúgal | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Pólland | 10.12.1992 | 08/1993 | 01.09.1994** | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Póllands |
| Rúmenía | 10.12.1992 | 03/1995 | 01.06.1994 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Rúmeníu |
| Singapúr | 27.06.2002 | óbirtur | 01.01.2003 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Singapúr |
| Slóvakía | 20.03.1992 | 22/1992 | 01.01.1993 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Tékkneska og Slóvakíska sambandslýðveldisins |
| Slóvenía | 13.06.1995 | óbirtur | 01.09.1998 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Slóveníu |
| Spánn | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Sviss | (04.01.1960) 21.06.2001 | (07/1970) óbirtur | (01.03.1970) 01.06.2002 | Stofnsamningur Fríverslunarsamtaka Evrópu – EFTA (Vaduz-samningurinn sem nær til Liechtenstein, Noregs og Sviss)*** |
| Svíþjóð | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
| Tékkland | 20.03.1992 | 22/1992 | 01.01.1993 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Tékkneska og Slóvakíska sambandslýðveldisins |
| Tyrkland | 10.12.1991 | 15/1992 | 13.07.1992 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Lýðveldisins Tyrklands |
| Ungverjaland | 29.03.1993 | 01/1995 | 01.06.1994 | Samningur milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Ungverjalands |
| Þýskaland | 02.05.1992 | 31/1993 | 01.01.1994 | Sjá EES-ríkin |
* Bráðabirgðagildistaka 01.09.1992
** Bráðabirgðagildistaka 15.11.1993.
*** Eldri samningurinn, svokallaður Stokkhólmssamningur, er frá 1960, sjá tilvísanir í sviga.