Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 659. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1159 — 659. mál.
ráðherra Hagstofu Íslands við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, Helga Hjörvars og Valdimars L. Friðrikssonar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig hefur Hagstofa Íslands hrundið í framkvæmd aðgerðum til að ná fram jafnrétti kynjanna, sbr. 5. tölul. III. kafla þingsályktunar um framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 1998? Óskað er eftir að gerð verði grein fyrir hverju verkefni fyrir sig og hve miklu fé hefur verið varið til aðgerðanna.
Vísað er til skýrslu félagsmálaráðherra um stöðu framkvæmdaáætlunar ríkisstjórnarinnar til að ná fram jafnrétti kynjanna, sem lögð var fram á 127. löggjafarþingi, þskj. 1290, 732. mál, en þar er m.a. gerð grein fyrir framgangi þeirra verkefna sem sneru að Hagstofu Íslands í áætluninni (sbr. 5. tölul. í kafla um skýrslur ráðuneytanna).
Þessu til viðbótar má gefa upplýsingar um þau verkefni sem Hagstofa Íslands hefur haft með höndum í framhaldi af framangreindri áætlun. Fyrir þessu verður enn fremur gerð grein í væntanlegri skýrslu félagsmálaráðherra um framkvæmdaáætlun fyrir árin 2002–2004. Hér er um eftirtalin verkefni að ræða:
Öll tölfræði kyngreind.
Hagstofan leitast við að fylgjast með og leiðbeina um það sem betur mætti fara við öflun, greiningu og birtingu tölfræðilegs efnis um einstaklinga eftir kyni. Á það bæði við um efni sem verður til af hálfu Hagstofu og eins það efni sem aflað er frá öðrum aðilum.
Vinnutími – hluti af reglubundinni upplýsingasöfnun er varðar laun.
Hagstofan gerir reglubundnar vinnumarkaðsrannsóknir til að fá áreiðanlegar upplýsingar um stöðu fólks á vinnumarkaði, störf, starfsstétt, vinnutíma, atvinnuleit, menntun, búsetu o.fl. Vinnumarkaðsrannsóknin er nú samfelld, nær til allra vikna ársins, niðurstöður eru birtar ársfjórðungslega og eru þær greindar eftir kyni. Vinnumarkaðsrannsóknin byggist á alþjóðlegum stöðlum og fyrirmyndum úr sambærilegum könnunum innan Evrópusambandsins.
Undanfarin ár hefur verið unnið að umfangsmiklu samstarfsverkefni kjararannsóknarnefndar, kjararannsóknarnefndar opinberra starfsmanna og Hagstofunnar um gagngerar breytingar á launakönnunum og launaskýrslum. Hagstofan og kjararannsóknarnefnd afla nú í sameiningu gagna frá fyrirtækjum og eru þau nýtt af báðum aðilum til hagskýrslugerðar.
Undanfarin missiri hefur Hagstofan unnið að úrvinnslu á gögnum frá ríkisskattstjóra um staðgreiðsluskyld laun. Nýlega hafa verið birtar tölur um fjölda starfandi eftir ársfjórðungum og atvinnutekjur fyrir árin 1998–2002. Í þessum gögnum kemur meðal annars fram aðgreining eftir kyni, atvinnugrein og búsetu.
Tölfræðihandbók um stöðu kvenna og karla.
Ekki náðist að gefa út nýtt rit um konur og karla á árinu 2002 en ráðgert er að gefa þetta efni út sem hefti í ritröð Hagtíðinda. Mun það koma út í vor bæði í prentuðu formi og sem netútgáfa.
Jafn hlutur kynja í nefndum og ráðum.
Sem fyrr er aðeins ein nefnd starfandi á vegum Hagstofu Íslands. Sem stendur skipa hana tveir karlar, en eftir er að skipa þriðja nefndarmanninn.
Jafnréttisfulltrúi og jafnréttisnefnd ráðuneytisins.
Jafnréttisfulltrúi Hagstofu fæst m.a. við að fylgja því eftir að tölfræðilegar upplýsingar sem varða einstaklinga séu greindar eftir kyni við öflun, úrvinnslu og birtingu upplýsinga. Með nýjum hagtöluvef Hagstofunnar hafa opnast leiðir til að bæta aðgengi að upplýsingum, t.d. efni sem varðar konur og karla. Er markvisst unnið að því að auka við það efni sem fyrir er.
Jafnréttisfulltrúinn hefur sótt fundi og námskeið sem honum eru ætluð. Jafnréttisnefnd hefur ekki verið skipuð enn sem komið er. Jafnréttisfulltrúi Hagstofunnar vann ásamt jafnréttisfulltrúum annarra ráðuneyta að undirbúningi könnunar um jafnréttismál og innra starfsumhverfi meðal starfsmanna stjórnarráðsins, sem fram fór í desember 2003.
Kostnaður við aðgerðir/verkefni Hagstofu Íslands.
Verkefni Hagstofu Íslands í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir tímabilið 1998– 2001 og þau sem héldu áfram í framkvæmdaáætlun tímabilið 2002–2004 hafa verið löguð að reglubundinni starfsemi Hagstofunnar. Kostnaður vegna þeirra er því ekki sérgreindur. Hins vegar má nefna að einn starfsmaður fer sérstaklega með málefni sem varða kyngreinda tölfræði og ver að jafnaði sem nemur einum þriðja til hálfu stöðugildi til þess verkefnis.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1159 — 659. mál.
Svar