Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 527. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1161  —  527. mál.




Svar



sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Ásgeirs Friðgeirssonar um fjárveitingar til rannsóknastofnana.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu mikið fé var veitt úr opinberum sjóðum á vegum sjávarútvegsráðuneytis til vísinda, rannsókna og þróunarstarfs Hafrannsóknastofnunarinnar og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins árin 2001, 2002 og 2003 og úr hvaða sjóðum rann féð, hver ákvað fjárveitingarnar og á hvaða forsendum?

    Sjávarútvegsráðherra veitti eftirfarandi fjárhæðum úr Gjaldtökusjóði ólögmæts sjávarafla (fjárlaganúmer 05-207) og Gengismunasjóði (fjárlaganúmer 05-215) til Hafrannsóknastofnunarinnar og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins á framangreindum árum:

Ár AVS-verkefni Millj. kr. Sjóður
2003 Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Aukin verðmæti í saltfisksvinnslu 3,0 Gengismunasjóður
Upptaka ólífrænna snefilefna í lífverum við NV-land 2,5 Gengismunasjóður
Spálíkan fyrir þorskvinnslu 3,0 Gengismunasjóður
Lífvirk efni í íslensku sjávarfangi 1,0 Gengismunasjóður
Vannýtt prótein í frárennslisvatni frá fiskvinnslum 1,5 Gengismunasjóður
Framl. formaðra fiskbita úr gelblokk úr afskurði og marningi 3,0 Gengismunasjóður
Loðnulýsi til manneldis 1,5 Gengismunasjóður
Aukið öryggi í sildarvinnslum m.t.t. listeríumengunar 1,9 Gengismunasjóður
Fiskprótein sem fæðubótarefni 10,0 Gengismunasjóður
Fræðsluátak fyrir sjómenn um bætta meðh. 2,7 Gengismunasjóður
Ný vinnslulína í flakavinnslu 2,0 Gengismunasjóður
Stefnumótun og verkefnastjórn AVS-rannsóknasjóðs 4,0 Gengismunasjóður
Hafrannsóknastofnunin
Faghópur um fiskeldi 4,0 Gengismunasjóður
2002 Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Styrkur vegna WEFTA-ráðstefnu 3,0 Gengismunasjóður
Hafrannsóknastofnunin
Laun starfsmanns aflareglunefndar 2,0 Gjaldtökusjóður
Rannsóknir á þorskklaki 20,0 Gjaldtökusjóður
Ritun sögu sjávarútvegs 5,1 Gjaldtökusjóður
2001 Hafrannsóknastofnunin
Rannsóknir á þorskklaki 20,0 Gjaldtökusjóður
Ritun sögu sjávarútvegs 4,2 Gjaldtökusjóður
    
    Ákvarðanir um styrkveitingar úr AVS-rannsóknasjóði (Rannsóknasjóður til að auka verðmæti sjávarfangs) eru teknar af sjávarútvegsráðherra að fengnum tillögum stjórnar sjóðsins sem byggir tillögur sínar á mati faghóps á viðkomandi umsóknum. Ákvarðanir um aðrar fjárveitingar úr framangreindum sjóðum eru teknar af sjávarútvegsráðherra á grundvelli umsókna, en ráðherra leitar umsagnar sérfræðinga eftir því sem tilefni eru til.