Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 658. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1179 — 658. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, Helga Hjörvars og Valdimars L. Friðrikssonar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig hefur fjármálaráðuneytið hrundið í framkvæmd aðgerðum til að ná fram jafnrétti kynjanna, sbr. 4. tölul. III. kafla þingsályktunar um framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 1998? Óskað er eftir að gerð verði grein fyrir hverju verkefni fyrir sig og hve miklu fé hefur verið varið til aðgerðanna.
Á 127. löggjafarþingi lagði félagsmálaráðherra fram skýrslu um stöðu framkvæmdaáætlunar ríkisstjórnarinnar 1998–2001 til að ná fram jafnrétti kynjanna (þskj. 1290 í 732. máli). Fyrir þá skýrslu tók fjármálaráðuneytið saman hver staða verkefna ráðuneytisins væri í mars 2002. Hér getur að líta kaflann í skýrslunni frá árinu 2002 um fjármálaráðuneytið, merkt a. Að auki er greinargerð um það hversu miklu fé hafi verið varið til aðgerðanna, merkt b.
a. Umfjöllun í skýrslu félagsmálaráðherra.
„ 4.1. Feðraorlof.
Hinn 1. janúar 1998 tóku gildi reglur fjármálaráðherra um sjálfstætt fæðingarorlof feðra í þjónustu ríkisins. Í reglunum er feðrum í þjónustu ríkisins tryggður réttur til launa í tvær vikur vegna fæðingar barns. Í byrjun árs 1999 verður reynslan af þessari nýbreytni skoðuð með viðtölum og spurningum til þeirra sem þessa orlofs nutu.
Ný lög um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, voru samþykkt 22. maí árið 2000 en hlutinn um fæðingarorlof kom til framkvæmda 1. janúar 2001. Með nýjum lögum var réttur feðra til töku fæðingarorlofs rýmkaður þannig að feður öðluðust í byrjun árs 2001 sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs í einn mánuð en gátu skipt þremur mánuðum til viðbótar með móður. Samkvæmt 1. og 2. mgr. 13. gr. laganna öðlast foreldri rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og nemur mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns 80% af meðaltali heildarlauna.
Samkvæmt upplýsingum úr launakerfi ríkisins tóku alls 479 ríkisstarfsmenn fæðingarorlof árið 2001. Skipting milli kynja var þannig að alls tók 331 kona fæðingarorlof og 148 karlar. Hlutfall karla hefur aukist um nærri helming milli áranna 2000 og 2001. Þess ber að geta að ekki liggja fyrir upplýsingar um ríkisstarfsmenn á sjúkrahúsum utan Reykjavíkur og frá Landspítala – háskólasjúkrahúsi í Fossvogi. Starfsmönnum fjármálaráðuneytisins sem nýttu sér réttindi um feðraorlof ber saman um að reynsla af því hafi verið góð og höfðu nokkrir feður á orði að með þessu væri stigið skref í þá átt að gera vinnustaðinn fjölskylduvænni.“
b. Kostnaður.
Ekki hefur verið lagt mat á hversu miklu fé var varið til þess að greiða kostnað við feðraorlof á tímabilinu 1. janúar 1998 til 1. janúar 2001 þegar ný lög um fæðingar- og foreldraorlof tóku gildi. Hægt er að afla upplýsinga um laun þeirra starfsmanna sem nýttu sér feðraorlof á tímabilinu en erfitt er að afla upplýsinga um í hvaða tilvikum ráðið var afleysingafólk meðan feðraorlof hlutaðeigandi starfsmanna stóð.

„ 4.2. Úttekt á áhrifum nýs launakerfis á launamun karla og kvenna.
Með meiri hluta kjarasamninga, sem fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs gerði við stéttarfélög innan BSRB og BHM og gilda eiga til ársins 2000, fylgdi yfirlýsing þar sem áréttuð er stefna ríkisins að jafna þann launamun karla og kvenna sem ekki er hægt að útskýra nema á grundvelli kyns og bent á að með nýju launakerfi gefist tækifæri til þess. Til þess að meta áhrif nýs launakerfis á launamun karla og kvenna skuldbatt fjármálaráðuneytið sig til þess að gera sérstaka úttekt á þeim áhrifum á samningstímabilinu. Stefnt er að gerð slíkrar úttektar á árinu 1999.
Samkvæmt samkomulagi fjármálaráðherra og samtaka opinberra starfsmanna er starfandi kjararannsóknarnefnd opinberra starfsmanna. Eðlilegast er að sú nefnd leggi á ráðin um hvernig kynbundnum upplýsingum um laun og launaþróun verður best aflað og úr þeim unnið. Í fréttabréfi kjararannsóknarnefndar eru birtar launaupplýsingar eftir kyni. Fréttabréfið er gefið út tvisvar á ári. Til stóð að kjararannsóknarnefnd gerði ítarlegri úttekt á launum karla og kvenna en nú tíðkast, vegna nýs launakerfis, en ekki hefur orðið af því. Þó ber að nefna að fyrir liggja tillögur um breytt fyrirkomulag á greiningu og meðferð launaupplýsinga hjá kjararannsóknarnefnd þar sem auðveldara verður að greina launaupplýsingar og aðrar tölfræðilegar upplýsingar. Vonir standa til að hið nýja fyrirkomulag stuðli að því að þessi greining verði markvissari. Auk þess hafa Reykjavíkurborg og fulltrúar fjármálaráðuneytis unnið saman að úttekt á launabili kynjanna með hliðsjón af nýju launakerfi og hafa leitað til Félagsvísindastofnunar um framkvæmd hennar.“
b. Kostnaður.
Kostnaður við verkefnið var eingöngu launakostnaður sem greiddur var af hlutaðeigandi aðilum.

„4.3. Reglur um starfslýsingar.
Í bæklingi fjármálaráðherra um jafnréttismál frá febrúar 1996 er hvatning til vinnuveitenda um að „starfslýsingar séu skilmerkilegar og frammistöðumat sé lagt til grundvallar starfsframa“. Einnig segir í 2. mgr. 8. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, að setja skuli starfsmanni erindisbréf ef hann óskar þess. Með tilliti til þess og nýrra kjarasamninga mun fjármálaráðuneytið minna á þetta ákvæði þar sem því verður við komið.
Við gerð kjarasamninga ríkisstarfsmanna á árunum 2000 og 2001 var áhersla lögð á starfsþróunarmál í stað niðurnjörvaðra starfslýsinga. Með hverjum samningi er að finna bókun þess efnis. Með starfsþróun er áhersla lögð á ábyrgð, hæfni og tækifæri starfsmanns til þess að auka þekkingu sína og hæfni í starfi eða til annarra starfa. Fulltrúar stéttarfélaga, trúnaðarmenn og fulltrúar vinnuveitenda eru að undirbúa fundi og fræðslu fyrir starfsfólk og vinnuveitendur um nauðsyn starfsþróunar og kosti hennar. Í tilteknum stofnanasamningum sem stofnanir hafa gert við stéttarfélög er að finna ákvæði um frammistöðumat og starfslýsingar.“

„4.4. Fræðsla til yfirmanna stofnana ráðuneytisins.
Fjármálaráðuneytið mun skipuleggja fræðslu um jafnréttismál fyrir yfirmenn stofnana þess í anda þeirra hugmynda sem komu fram í jafnréttisriti ráðuneytisins frá febrúar 1996 og í samræmi við niðurstöðu jafnréttiskönnunar sem gerð var í janúar 1998 á vegum starfshóps fjármálaráðuneytisins um jafnréttismál.
Árlega heldur fjármálaráðuneytið fundi með forstöðumönnum stofnana fjármálaráðuneytisins. Þar er aðaláherslan lögð á fjárhagsáætlanir og fjárlagagerð. Auk þess eru þó ávallt önnur mál til umræðu. Sem dæmi má nefna að á árinu fór fram umfjöllun um nýtt fyrirkomulag fæðingar- og foreldraorlofs. Fjármálaráðuneytið hefur það að markmiði að á þessum fundum séu ætíð málefni til umfjöllunar sem varða jafnréttismál á einhvern hátt.
Auk þess ber að nefna að fréttabréf forstöðumanna er gefið út u.þ.b. þrisvar sinnum á ári. Fréttabréfið er hugsað sem vettvangur upplýsinga til forstöðumanna um ýmis stjórnunarleg mál, þar á meðal jafnréttismál.
Fjármálaráðuneytið er að skipuleggja fundaherferð fyrir forstöðumenn ríkisstofnana í samvinnu við hlutaðeigandi ráðuneyti þar sem fræðsla um jafnréttismál verður á meðal annarra mála.“
b. Kostnaður.
Kostnaður við fundaherferðir með forstöðumönnum og útgáfu fréttabréfs var greiddur af ráðuneytinu og rúmaðist innan fjárhagsramma þess án sérstakra fjárveitinga á fjárlögum.

„4.5. Hlutur kvenna í starfi ráðuneytisins aukinn.
Fjöldi kvenna í nefndum á vegum fjármálaráðuneytisins hefur aukist á undanförnum árum í samræmi við stefnu ráðherra þar að lútandi. Áfram verður unnið að fjölgun kvenna í nefndum og ráðum á vegum ráðuneytisins. Þá verður lögð áhersla á að gæta í hvívetna jafnræðis karla og kvenna í starfsmannahaldi ráðuneytisins og hugað sérstaklega að kynjaskiptingu við val á yfirmönnum.
Reynt hefur verið eftir bestu getu að gæta jafnræðis karla og kvenna í starfsmannahaldi ráðuneytisins og á það einnig við um kynjaskiptingu við val á yfirmönnum. Ekki hefur verið skipað eða ráðið í stöðu yfirmanns hjá ráðuneytinu á síðasta ári. Hvað öðrum starfsmannaráðningum ráðuneytisins líður hafa fleiri konur verið ráðnar í stöður sérfræðinga undanfarin ár en áður.
Þótt fjöldi kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum ráðuneytisins hafi aukist nokkuð á undanförnum árum má enn gera betur. Eins og eftirfarandi tölur sýna glögglega vantar talsvert upp á að kvenkyns starfsmenn ráðuneytisins gegni nefndarstörfum í sama mæli og þeir sem karlkyns eru. Hlutfall kynja í nefndum á vegum fjármálaráðuneytisins er þannig að um 77% eru karlmenn og 23% konur og hefur fjöldi kvenna þannig aukist örlítið frá árinu 2000, en þá hafði hlutfall karla í nefndum aukist frá árinu 1998. Hins vegar er ekki um að ræða launamun milli karla og kvenna í nefndum þar sem þóknananefnd metur fjölda þóknanaeininga óháð menntun, reynslu eða kyni.“
b. Kostnaður.
Verkefnið var ekki þess eðlis að sérstaka fjárveitingu þyrfti til að sinna því.

„4.6. Endurskoðun á eyðublöðum.
Fjármálaráðuneytið mun sjá til þess að öll eyðublöð frá stofnunum sem heyra undir fjármálaráðuneytið og þar sem einstaklingar þurfa að gefa upplýsingar um tekjur og eignir verði endurskoðuð og metin út frá jafnréttissjónarmiðum.
Samkvæmt svari fjármálaráðuneytisins sama efnis á árinu 2001 var breyting gerð á eyðublöðum framtala árið 1998. Fjármálaráðuneyti hefur ekki farið í frekari endurskoðun á eyðublöðum. Flest eyðublöð fjármálaráðuneytisins snúa að einstaklingum og reynir því síður á jafnréttisjónarmiðið. Ráðuneytið hefur ekki fengið ábendingar eða kvartanir vegna þessa en kemur til með að bregðast við ef svo fer.“
Vegna breytinga á skattalögum, skattmati og skattframkvæmd verða árlega einhverjar breytingar á eyðublöðum framtala.
b. Kostnaður.
Kostnaður við fyrrgreindar breytingar var óverulegur og var greiddur af embætti ríkisskattstjóra. Gert var ráð fyrir minniháttar breytingum á eyðublöðum framtala í fjárhagsramma embættisins.

„4.7. Jafnréttisnefnd ráðuneytisins og stofnana þess.
Kanna skal stöðu jafnréttismála í ráðuneytinu og stofnunum þess og gera áætlun um hvernig rétta skuli hlut kynjanna. Verði það m.a. gert með markvissri fræðslu yfirmanna og annarra starfsmanna.
Í starfsmannahandbók Stjórnarráðsins sem kom út í mars 2002 er að finna jafnréttisáætlun fyrir stjórnendur og starfsmenn ráðuneytanna. Ráðuneytið mun styðjast við þessa jafnréttisáætlun í starfi sínu. Til stendur að skipa þriggja manna jafnréttisnefnd innan fjármálaráðuneytisins þar sem jafnréttisfulltrúi ráðuneytisins verður meðal fulltrúa.
Árlega boðar ráðuneytið starfsfólk á fund til þess að ræða verkefni ársins og starfsmannamál. Ráðuneytið ráðgerir að upplýsa starfsfólk um jafnréttismál á slíkum fundum eftir því sem við verður komið.“
b. Kostnaður.
Kostnaður var óverulegur og rúmaðist innan fjarhagsramma ráðuneytisins.

„ Önnur verkefni.
Auk þessa hefur ráðuneytið tilnefnt fulltrúa í tilraunaverkefni sem snýst um að gefin sé umsögn um lagafrumvörp með hliðsjón af því hvaða áhrif lög hafa á jafnrétti kynjanna. Þetta er samstarfsverkefni þriggja ráðuneyta (sjá verkefnalið 3.1 hjá félagsmálaráðuneyti).“
b. Kostnaður.
Kostnaður við þátttöku ráðuneytisins í verkefninu var óverulegur og rúmaðist innan fjárhagsramma.
Með áðurnefndri skýrslu félagsmálaráðherra var fylgiskjal sem bar yfirskriftina: Framkvæmdaáætlun um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna 2002–2004. Endurskoðun framkvæmdaáætlunar áranna 1998–2001. Fjármálaráðuneytið ákvað að vinna áfram að nokkrum verkefnum frá 1998. Verður hér á eftir gerð grein fyrir þeim verkefnum sem fjallað var um í endurskoðaðri áætlun og stöðu þeirra ásamt því að gera grein fyrir hversu miklu fé hefur verið varið til aðgerðanna.
1. Úttekt á áhrifum nýs launakerfis á launamun karla og kvenna.
„Fjármálaráðuneytið og Reykjavíkurborg hafa í sameiningu leitað til Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og farið þess á leit að hún geri úttekt á launamun karla og kvenna sem ekki er unnt að útskýra nema á grundvelli kyns.“
Í framhaldi af upptöku nýs launakerfis leitaði ráðuneytið til Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og fór fram á það að stofnunin ynni úttekt á áhrifum nýs launakerfis á launamun kynjanna. Við undirbúning verksins kom í ljós að í núverandi launakerfi voru ekki fyrir hendi þær upplýsingar sem stofnunin taldi nauðsynlegar til að vinna úttektina. Af hálfu ráðuneytisins hefur að undanförnu verið unnið markvisst að því að launagögn í nýjum upplýsingakerfum sem ríkið er að innleiða standist þær kröfur sem gera verður til þess að unnt sé að meta kynbundinn launamun. Gengur sú vinna hægar en áætlanir gerðu ráð fyrir en ætla má að henni ljúki á þessu ári og er stefnt að því að úttekt á launamun karla og kvenna sem ekki er unnt að útskýra nema á grundvelli kyns verði unnin í beinu framhaldi af því. Í kjölfarið er lag að fylgjast reglulega með þróun kynbundins launamunar.
Nú er ráðuneytið að kanna hvernig laun karla og kvenna eru samsett og hvort einhverjar breytingar hafa átt sér stað frá árinu 1997. Fyrst í stað er rannsakaður sá hópur ríkisstarfsmanna sem semur um laun sín og heyrir undir lög nr. 94/1986.
Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði árið 2002 samanburð á launum karla og kvenna hjá Reykjavíkurborg 2001, en Reykjavíkurborg tók upp nýtt launavinnslukerfi í ársbyrjun 2003 og hafði lokið starfaflokkun þegar rannsóknin fór fram.
Kostnaður við verkefnið hefur eingöngu verið launakostnaður sem greiddur var af hlutaðeigandi aðilum.
2. Fræðsla til yfirmanna stofnana ráðuneytisins.
„Á hverju ári heldur fjármálaráðuneytið fundi með forstöðumönnum stofnana fjármálaráðuneytisins. Stefnt er að því að vera að jafnaði með fræðslu eða erindi um jafnréttismál á þessum fundum. Ef gerðar hafa verið kynjakannanir á vegum fjármálaráðuneytisins þá verður umfjöllun um niðurstöður þeirra á þessum fundum.“
Á fundi ráðuneytisins með forstöðumönnum stofnana þess sem haldinn var í desember 2003 var fræðsla um jafnréttismál á dagskrá ásamt öðrum málefnum.
Kostnaður vegna þessa hefur rúmast innan fjárhagsramma ráðuneytisins án sérstakra fjárveitinga á fjárlögum.
3. Hlutur kvenna í starfi ráðuneytisins aukinn.
„Fjöldi kvenna í nefndum á vegum fjármálaráðuneytisins hefur aukist á undanförnum árum. Þegar skipað er í ráð og nefndir á vegum ráðuneytisins verður leitast við að taka mið af jafnréttissjónarmiðum, sbr. 20. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 96/2000. Stefnt er að því að í lok áætlunarinnar verði hlutur kvenna í nefndum og ráðum á vegum ráðuneytisins orðinn a.m.k. 30%. Þá verður lögð áhersla á að gæta í hvívetna jafnræðis karla og kvenna í starfsmannahaldi ráðuneytisins.“
Það er orðin regla að þegar auglýst er laust starf til umsóknar í ráðuneytinu er tekið fram að konur jafnt sem karlar séu hvattar til að sækja um. Þetta hefur mælst vel fyrir. Í mars 2002 var hlutfall kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum ráðuneytisins 23% en karla 77%. Nefndarmenn voru þá alls 280 í 58 nefndum.
Hlutfall kvenna var 30% í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum ráðuneytis 14. mars 2004 en karla 70%. Nefndarmenn voru alls 295 í 57 nefndum. Kynjaskipting á meðal sérfræðinga hefur breyst og hlutur kvenna hefur aukist. Þegar ráðherra skipar í nefndir er leitað til hlutaðeigandi sérfræðings innan ráðuneytisins á hverju sviði. Fyrir vikið hefur konum fjölgað í nefndum á vegum þess. Þegar ráðherra hins vegar óskar eftir tilnefningu í nefnd frá hagsmunaaðilum er það ekki á hans valdi að hafa áhrif á hvort karl eða kona tekur sæti í nefndinni.
Ekki hefur þurft til sérstaka fjárveitingu til þess að sinna verkefninu.
4. Jafnréttisfulltrúi og jafnréttisnefnd ráðuneytisins.
„Jafnréttisfulltrúi ráðuneytisins er skipaður skv. 11. gr. jafnréttislaga. Hlutverk hans er að fjalla um og hafa eftirlit með jafnréttisstarfi á vegum ráðuneytisins og stofnana þess. Jafnréttisfulltrúi er tengiliður ráðuneytisins við Jafnréttisstofu og hefur umsjón með framkvæmdaáætlun þessari í samráði við ráðuneytisstjóra. Í því sambandi verður skipuð sérstök jafnréttisnefnd fulltrúanum til halds og trausts. Gert er ráð fyrir að fulltrúinn og nefndin muni standa fyrir könnun á stöðu jafnréttismála í ráðuneytinu og stofnunum þess og miðla niðurstöðum þeirra og öðru fræðsluefni um jafnréttismál til yfirmanna og annarra starfsmanna eftir því sem tilefni gefst til.“
Jafnréttisfulltrúinn hefur sinnt starfi sínu sem tengiliður við Jafnréttisstofu og hefur sótt námskeið og svarað fyrirspurnum frá Jafnréttisstofu. Í apríl 2003 var sett á fót tímabundin jafnréttisnefnd í ráðuneytinu. Í nefndinni sitja fjórir fulltrúar sem allir eru sérfræðingar í ráðuneytinu. Í nefndinni eru tvær konur, önnur er jafnréttisfulltrúinn, og tveir karlar. Nefndinni var gefið vítt verkefnasvið en helsta verkefni hennar er að gera drög að uppbyggingu jafnréttisstarfs fyrir ráðuneytið. Nefndin hefur í störfum sínum haft það að markmiði að gera drög að jafnréttisáætlun. Þá skoðar nefndin mun á starfskjörum kynjanna í ráðuneytinu, hvort það eigi að setja sér fjölskyldustefnu, stefnu um sveigjanleika í starfi og hlutastörf, hvert hlutverk jafnréttisfulltrúa eigi að vera o.s.frv. Niðurstöður vinnu nefndarinnar verður síðan lögð fyrir ráðuneytisstjóra. Það er síðan í höndum yfirstjórnar ráðuneytisins að taka ákvörðun um framhaldið.
Jafnréttisfulltrúinn hefur ekki komið á tengingum við undirstofnanir og hefur því ekki sinnt eftirliti með undirstofnunum ráðuneytisins eins og honum ber að gera skv. 11. gr. jafnréttislaga. Helgast það af því að jafnréttisfulltrúinn hefur aðallega lagt áherslu á jafnréttisnefndina sem skipuð hefur verið í ráðuneytinu. Þá hefur það verið mat jafnréttisfulltrúans að fyrst ætti að marka stefnu ráðuneytisins í jafnréttismálum og síðan væri hægt að fara að ganga á eftir undirstofnunum.
Hvað varðar könnun á stöðu jafnréttismála í ráðuneytinu þá stóðu öll ráðuneytin í sameiningu að viðhorfskönnun í jafnréttismálum í desember 2003.
Kostnaður hefur verið óverulegur og rúmast innan fjarhagsramma ráðuneytisins. Viðhorfskönnunin sem ráðuneytin stóðu sameiginlega að kostaði rúmar 1,3 millj. kr.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1179 — 658. mál.
Svar