Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 585. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1186 — 585. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Katrínar Júlíusdóttur og Björgvins G. Sigurðssonar um leiklistarnám.
1. Hvað stunda margir íslenskir námsmenn leiklistarnám erlendis, sundurgreint eftir löndum?
Í eftirfarandi töflu koma fram upplýsingar frá Hagstofu Íslands, unnar upp úr skrám frá Lánasjóði íslenskra námsmanna, þar er tekinn saman fjöldi nemenda í leiklist og leikstjórn sem skráðir eru í nemendaskrá Hagstofu Íslands frá 1975 hér á landi við Leiklistarskóla Íslands og síðan Listaháskóla Íslands (frá 2000) sem og erlendis. Hér er að sjálfsögðu aðeins um að ræða nemendur sem sótt hafa um námslán. Ekki eru til upplýsingar um fjölda útskrifaðra.
2.
Hvað hafa margir útskrifast úr leiklistarnámi hérlendis frá árinu 1973, sundurgreint eftir árum?
Bent skal á að Leiklistarskóli Íslands var stofnaður með lögum nr. 37/1975.
Í töflu Hagstofunnar kemur fram að árin 1975–78 voru nemendur 42, 31 og 28 og er hér um að ræða nemendur sem höfðu hafið nám við Leiklistarskóla leikfélaganna sem starfaði áður en Leiklistarskóli Íslands var stofnaður. Ekki liggja fyrir upplýsingar um fjölda leiklistarnema tímabilið 1973–75, áður en Leiklistarskóli Íslands tók til starfa.
Samkvæmt þeim nemendatölum sem hægt hefur verið að nálgast í ráðuneytinu og á Hagstofu Íslands hafa nemendur flest ár frá 1978 verið á bilinu 20–26 og má af því ráða að oftast hafi verið teknir inn átta nýnemar á þeim árum sem teknir hafa verið inn nýir nemendur og um átta hafi útskrifast. Kemur þetta heim og saman við upplýsingar Hagstofu Íslands um fjölda brautskráðra leiklistarnema frá Leiklistarskóla Íslands og Listaháskóla Íslands á tímabilinu 1996–2002. Fram kemur í upplýsingum frá Hagstofunni að það var ekki fyrr en 1995 sem Hagstofan hóf að safna upplýsingum um brautskráningar.
3. Hvað hafa margir sótt um leiklistarnám hérlendis frá árinu 1973, sundurgreint eftir árum?
Ráðuneytið hefur ekki tiltækar upplýsingar um árlegan fjölda umsækjenda tilgreint tímabil. Þó hefur ráðuneytið fengið þær upplýsingar frá Listaháskóla Íslands að á síðasta ári hafi umsækjendur um leiklistarnám í Listaháskóla Íslands verið 131, árið þar á undan 100. Engir nýnemar verða teknir inn á skólaárinu 2004–2005.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1186 — 585. mál.
Svar
menntamálaráðherra við fyrirspurn Katrínar Júlíusdóttur og Björgvins G. Sigurðssonar um leiklistarnám.
1. Hvað stunda margir íslenskir námsmenn leiklistarnám erlendis, sundurgreint eftir löndum?
Í eftirfarandi töflu koma fram upplýsingar frá Hagstofu Íslands, unnar upp úr skrám frá Lánasjóði íslenskra námsmanna, þar er tekinn saman fjöldi nemenda í leiklist og leikstjórn sem skráðir eru í nemendaskrá Hagstofu Íslands frá 1975 hér á landi við Leiklistarskóla Íslands og síðan Listaháskóla Íslands (frá 2000) sem og erlendis. Hér er að sjálfsögðu aðeins um að ræða nemendur sem sótt hafa um námslán. Ekki eru til upplýsingar um fjölda útskrifaðra.
Nemendur í leiklist og leikstjórn skráðir í nemendaskrá Hagstofu Íslands frá upphafi.
| 1975 | 1976 | 1977 | 1978 | 1979 | 1980 | 1981 | 1982 | 1983 | 1984 | 1985 | 1986 | 1987 | 1988 | 1989 | 1990 | 1991 | 1992 | 1993 | 1994 | 1995 | 1996 | 1997 | 1998 | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | ||
| Leiklistarskóli Íslands | |||||||||||||||||||||||||||||
| Leiklist | 42 | 31 | 28 | 17 | 23 | 23 | 23 | 24 | 24 | 22 | 23 | 26 | 25 | 25 | 26 | 24 | 20 | 20 | 21 | 22 | 24 | 24 | 24 | 24 | 24 | ||||
| Listaháskóli Íslands | |||||||||||||||||||||||||||||
| Leiklist | 24 | 26 | 27 | ||||||||||||||||||||||||||
| Ítalía | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 2 | ||||||||||||||||||||||
| Leikstjórn | 1 | 1 | 1 | 1 | |||||||||||||||||||||||||
| Leiklist | 1 | 1 | 1 | 1 | |||||||||||||||||||||||||
| Spánn | 1 | 2 | 1 | 1 | 1 | 2 | 1 | 1 | 1 | ||||||||||||||||||||
| Leiklist | 1 | 2 | 1 | 1 | 1 | 2 | 1 | 1 | 1 | ||||||||||||||||||||
| Bandaríkin | 1 | 1 | 1 | 3 | 6 | 10 | 9 | 8 | 8 | 6 | 6 | 5 | 10 | 9 | 8 | 5 | 5 | 6 | 2 | 1 | 3 | 4 | 3 | 3 | |||||
| Leikstjórn | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | ||||||||||||||||||||||
| Leiklist | 1 | 3 | 6 | 10 | 9 | 7 | 7 | 5 | 5 | 4 | 10 | 9 | 8 | 5 | 5 | 6 | 2 | 1 | 3 | 4 | 3 | 3 | |||||||
| Danmörk | 1 | 1 | 1 | 1 | 2 | 2 | |||||||||||||||||||||||
| Leiklist | 1 | 1 | 1 | 2 | 1 | ||||||||||||||||||||||||
| Leikstjórn | 1 | 1 | |||||||||||||||||||||||||||
| England | 7 | 3 | 1 | 2 | 4 | 7 | 7 | 10 | 9 | 11 | 12 | 9 | 9 | 6 | 7 | 6 | 8 | 17 | 20 | 17 | 15 | 14 | 16 | 14 | |||||
| Leikstjórn | 1 | 1 | 1 | 2 | 1 | 1 | 1 | 3 | 3 | 3 | 2 | 2 | |||||||||||||||||
| Leiklist | 6 | 3 | 1 | 2 | 4 | 7 | 7 | 10 | 8 | 10 | 10 | 9 | 9 | 6 | 6 | 5 | 7 | 14 | 17 | 14 | 13 | 14 | 14 | 14 | |||||
| Finnlandi | 1 | 1 | 1 | ||||||||||||||||||||||||||
| Leiklist | 1 | 1 | 1 | ||||||||||||||||||||||||||
| Frakkland | 1 | 2 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 2 | 1 | |||||||||||||||||||
| Leiklist | 2 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 2 | 1 | ||||||||||||||||||||
| Leikstjórn | 1 | ||||||||||||||||||||||||||||
| Holland | 1 | 1 | 1 | 1 | |||||||||||||||||||||||||
| Leikstjórn | 1 | 1 | |||||||||||||||||||||||||||
| Leiklist | 1 | 1 | |||||||||||||||||||||||||||
| Kanada | 2 | 1 | 1 | 1 | 1 | ||||||||||||||||||||||||
| Leikstjórn | 1 | ||||||||||||||||||||||||||||
| Leiklist | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | ||||||||||||||||||||||||
| Noregur | 1 | 1 | 1 | 1 | |||||||||||||||||||||||||
| Leiklist | 1 | 1 | 1 | 1 | |||||||||||||||||||||||||
| Skotland | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | ||||||||||||||||||||||
| Leiklist | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | ||||||||||||||||||||||
| Sovétríkin | 1 | ||||||||||||||||||||||||||||
| Leikstjórn | 1 | ||||||||||||||||||||||||||||
| Svíþjóð | 1 | 1 | 1 | 1 | |||||||||||||||||||||||||
| Leikstjórn | 1 | ||||||||||||||||||||||||||||
| Leiklist | 1 | 1 | 1 | ||||||||||||||||||||||||||
| Tékkland | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | |||||||||||||||||||||
| Leiklist | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | |||||||||||||||||||||
| Þýskaland | 1 | 2 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | ||||||||||||||||
| Leiklist | 1 | 2 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | |||||||||||||||||||||
| Leikstjórn | 1 | 1 | 1 | 1 | 1 | ||||||||||||||||||||||||
| Samtals | 42 | 31 | 28 | 17 | 32 | 30 | 27 | 34 | 41 | 43 | 45 | 46 | 45 | 44 | 47 | 44 | 42 | 38 | 39 | 37 | 42 | 51 | 50 | 48 | 46 | 47 | 48 | 46 | |
Bent skal á að Leiklistarskóli Íslands var stofnaður með lögum nr. 37/1975.
Í töflu Hagstofunnar kemur fram að árin 1975–78 voru nemendur 42, 31 og 28 og er hér um að ræða nemendur sem höfðu hafið nám við Leiklistarskóla leikfélaganna sem starfaði áður en Leiklistarskóli Íslands var stofnaður. Ekki liggja fyrir upplýsingar um fjölda leiklistarnema tímabilið 1973–75, áður en Leiklistarskóli Íslands tók til starfa.
Samkvæmt þeim nemendatölum sem hægt hefur verið að nálgast í ráðuneytinu og á Hagstofu Íslands hafa nemendur flest ár frá 1978 verið á bilinu 20–26 og má af því ráða að oftast hafi verið teknir inn átta nýnemar á þeim árum sem teknir hafa verið inn nýir nemendur og um átta hafi útskrifast. Kemur þetta heim og saman við upplýsingar Hagstofu Íslands um fjölda brautskráðra leiklistarnema frá Leiklistarskóla Íslands og Listaháskóla Íslands á tímabilinu 1996–2002. Fram kemur í upplýsingum frá Hagstofunni að það var ekki fyrr en 1995 sem Hagstofan hóf að safna upplýsingum um brautskráningar.
Nemendur brautskráðir úr leiklistarnámi á Íslandi
frá skólaárinu 1996–97 til skólaársins 2001–02.
| Skólaárin | ||||||
| Skóli | Auðkenni | 1996–97 | 1997–98 | 1998–99 | 2000–01 | 2001–02 |
| Leiklistarskóli Íslands | LEIK | 8 | 8 | 8 | ||
| Listaháskóli Íslands | LEIKBA | 8 | 8 | |||
| Heimild: Hagstofa Íslands 2004. | ||||||