Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 348. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1190 — 348. mál.
umhverfisráðherra við fyrirspurn Guðmundi Árna Stefánssyni um fráveituframkvæmdir sveitarfélaga.
1. Hversu miklum fjármunum hafa sveitarfélög varið til fráveituframkvæmda frá árinu 1995, sundurliðað eftir árum?
Ráðuneytið hefur í fórum sínum einungis traustar upplýsingar um kostnað við styrkhæfar framkvæmdir sveitarfélaganna samkvæmt lögum nr. 53/1995, um stuðning við fráveituframkvæmdir sveitarfélaga. Í samræmi við lögin er heimilt að veita styrk til framkvæmda við sniðræsi frá safnkerfum fráveitna, rotþrær, hreinsi- og dælustöðvar og útrásir. Enn fremur er heimilt að styrkja úr ríkissjóði önnur skyld mannvirki, svo og framkvæmdir sem snúa að tvöföldun lagna í safnkerfum eldri fráveitna, enda sé sýnt að slíkar framkvæmdir lækki stofnkostnað við styrkhæfar framkvæmdir. Tiltekinn kostnaður, svo sem vegna undirbúnings, rannsókna og hönnunar, er ekki styrkhæfur. Kostnaður sveitarfélaga við styrkhæfar framkvæmda á umræddum árum er eftirfarandi:
Kostnaður við framkvæmdir.
Á tímabilinu 1. maí 1995 til 31. desember 2003 hafa sveitarfélögin varið um 6,8 milljörðum kr. í styrkhæfar fráveituframkvæmdir. Ráðuneytið leitaði til sveitarfélaganna til að fá upplýsingar um annan kostnað við fráveituframkvæmdir en litlar upplýsingar fengust. Gróflega áætlað telur ráðuneytið líklegt að óstyrkhæfar framkvæmdir gætu á þessu tímabili hafa numið um 1–1,5 milljarði kr. en þá er ekki talinn með kostnaður sveitarfélaga við undirbúning, hönnun og rannsóknir.
2. Hversu miklar virðisaukaskattstekjur hefur ríkissjóður haft af fráveituframkvæmdum sveitarfélaga frá því að hann hóf að styrkja framkvæmdirnar með árlegum framlögum? Óskað er sundurliðunar eftir árum.
Fram að árinu 1995 stóðu sveitarfélög óstudd að fráveituframkvæmdum, þannig að ríkissjóður hafði af þeim óskiptar tekjur í formi virðisaukaskatts af efni og vinnu. Að mati Sambands íslenskra sveitarfélaga námu fráveituframkvæmdir á vegum sveitarfélaga fram að 1995 um 4 milljörðum kr.
Virðisaukaskattstekjur af framkvæmdum frá 1. maí 1995 eru sem hér segir:
Virðisaukaskattstekjur af framkvæmdum.
3. Hversu há eru framlög úr ríkissjóði til fráveituframkvæmda sveitarfélaga á sama tímabili?
Framlög ríkissjóðs vegna framkvæmda á tímabilinu 1. maí 1995 til 31. desember 2002 námu 1.154.644.189 kr. sem hér segir eftir árum:
Framlög ríkissjóðs vegna framkvæmda.
4. Hversu miklum framkvæmdum er ólokið af hálfu sveitarfélaga í fráveitumálum miðað við viðurkenndar kröfur í þeim efnum?
Þegar lögin um fjárhagslegan stuðning við fráveituframkvæmdir sveitarfélaga voru sett árið 1995 var kostnaður við fyrirhugaðar styrkhæfar framkvæmdir sveitarfélaganna áætlaðar um 10 milljarðar kr., sem er á núverandi verðlagi um það bil 14 milljarðar. Í samræmi við þá áætlun var gert ráð fyrir því að árlegur stuðningur við fráveituframkvæmdirnar næmi 200 millj. kr. á ári næstu tíu ár og að styrkurinn gæti numið um 20% af kostnaði við styrkhæfar framkvæmdir. Á hinn bóginn kemur fram í skýrslu fráveitunefndar umhverfisráðuneytisins frá febrúar 2003 „Úttekt á stöðu fráveitumála á Íslandi – fjárþörf til framkvæmda“ að árið 1995 hefðu sveitarfélögin í raun staðið frammi fyrir 17 milljarða kr. fjárþörf til styrkhæfra framkvæmda. Komið hefur í ljós að umfang þessa verkefnis hefur aukist frá því sem áætlað var 1995. Í ársbyrjun 2004 er því áætlað að kostnaður við að ljúka styrkhæfum framkvæmdum sveitarfélaga á fráveitumálum nemi um 10 milljörðum kr.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1190 — 348. mál.
Svar

| 1995 | 375 millj. kr. |
| 1996 | 380 millj. kr. |
| 1997 | 815 millj. kr. |
| 1998 | 540 millj. kr. |
| 1999 | 515 millj. kr. |
| 2000 | 590 millj. kr. |
| 2001 | 1300 millj. kr. |
| 2002 | 1300 millj. kr. |
| 2003 | Áætlaður um einn milljarður króna. |
Á tímabilinu 1. maí 1995 til 31. desember 2003 hafa sveitarfélögin varið um 6,8 milljörðum kr. í styrkhæfar fráveituframkvæmdir. Ráðuneytið leitaði til sveitarfélaganna til að fá upplýsingar um annan kostnað við fráveituframkvæmdir en litlar upplýsingar fengust. Gróflega áætlað telur ráðuneytið líklegt að óstyrkhæfar framkvæmdir gætu á þessu tímabili hafa numið um 1–1,5 milljarði kr. en þá er ekki talinn með kostnaður sveitarfélaga við undirbúning, hönnun og rannsóknir.
2. Hversu miklar virðisaukaskattstekjur hefur ríkissjóður haft af fráveituframkvæmdum sveitarfélaga frá því að hann hóf að styrkja framkvæmdirnar með árlegum framlögum? Óskað er sundurliðunar eftir árum.
Fram að árinu 1995 stóðu sveitarfélög óstudd að fráveituframkvæmdum, þannig að ríkissjóður hafði af þeim óskiptar tekjur í formi virðisaukaskatts af efni og vinnu. Að mati Sambands íslenskra sveitarfélaga námu fráveituframkvæmdir á vegum sveitarfélaga fram að 1995 um 4 milljörðum kr.
Virðisaukaskattstekjur af framkvæmdum frá 1. maí 1995 eru sem hér segir:
Virðisaukaskattstekjur af framkvæmdum.
| 1995 | 73,8 millj. kr. |
| 1996 | 74,7 millj. kr. |
| 1997 | 160,4 millj. kr. |
| 1998 | 106,3 millj. kr. |
| 1999 | 101,4 millj. kr. |
| 2000 | 116,1 millj. kr. |
| 2001 | 255,8 millj. kr. |
| 2002 | 255,8 millj. kr. |
| 2003 | 196,8 millj. kr. (áætlun). |
3. Hversu há eru framlög úr ríkissjóði til fráveituframkvæmda sveitarfélaga á sama tímabili?
Framlög ríkissjóðs vegna framkvæmda á tímabilinu 1. maí 1995 til 31. desember 2002 námu 1.154.644.189 kr. sem hér segir eftir árum:
Framlög ríkissjóðs vegna framkvæmda.
| 1996 | 74.909.849 kr. |
| 1997 | 76.114.092 kr. |
| 1998 | 162.884.236 kr. |
| 1999 | 108.415.374 kr. |
| 2000 | 102.642.764 kr. |
| 2001 | 118.070.753 kr. |
| 2002 | 259.203.224 kr. |
| 2003 | 252.403.897 kr. |