Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 786. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1197  —  786. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 92 24. maí 1994, um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 130. löggjafarþingi 2003–2004.)



1. gr.

    4. og 6. gr. laganna falla brott.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. september 2004.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Breytingar þær sem hér eru lagðar til eiga rætur að rekja til þess að á árinu 2002 samþykkti Alþingi breytingu á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, sem felur í sér að frá og með 1. september 2004 verður lagt sérstakt veiðigjald á eigendur skipa fyrir úthlutaðar veiðiheimildir eða landaðan afla þegar ekki er um úthlutun að ræða. Jafnframt var þess getið í greinargerð með frumvarpinu að þegar til greiðslu veiðigjalds kæmi væri við það miðað að niður féllu gjöld sem útgerðin greiddi og voru áætluð samkvæmt fjárlögum ársins 2002 um 850 millj. kr., þ.e. veiðieftirlitsgjald (226,5 millj. kr.) og þróunarsjóðsgjald (621 millj. kr.). Með frumvarpi þessu er lagt til að gjöld sem eigendur skipa hafa greitt í Þróunarsjóð sjávarútvegsins skv. 4. og 6. gr. laganna verði felld niður frá 1. september nk. Samkvæmt áætluðum efnahags- og rekstursreikningi Þróunarsjóðs fyrir árið 2003 var hrein eign sjóðsins um 318 millj. kr. í árslok 2003 og var það í fyrsta skipti frá sjóðsstofnun sem sjóðurinn sýnir jákvæðan höfuðstól. Gangi áætlanir Þróunarsjóðs fyrir árin 2003–2009 eftir má gera ráð fyrir að hrein eign sjóðsins verði um 370 millj. kr. í árslok 2009 er starfstíma hans lýkur samkvæmt lögunum.


Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 92/1994,
um Þróunarsjóð sjávarútvegsins, með síðari breytingum.

    Með frumvarpi þessu er lagt til að gjöldin sem eigendur skipa hafa greitt í Þróunarsjóð sjávarútvegsins skv. 4. og 6. gr. gildandi laga verði felld niður frá 1. september nk.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum má gera ráð fyrir að innheimta á þróunarsjóðsgjaldi á aflamark lækki um 510 m.kr. frá áætlun fjárlaga sem gerði ráð fyrir 650 m.kr. innheimtu fyrir árið 2004. Einnig er gert ráð fyrir að tekjur sjóðsins vegna þróunarsjóðsgjalds á skip lækki um 2 m.kr. frá áætlun fjárlaga sem gerði ráð fyrir 92 m.kr. innheimtu. Gert er ráð fyrir að þessi gjöld falli niður árið 2005. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri var hrein eign Þróunarsjóðs 318 m.kr. í árslok 2003. Gangi áætlun Þróunarsjóðs eftir má gera ráð fyrir að hrein eign sjóðsins verði um 370 m.kr. í árslok 2009 er starfstíma hans lýkur samkvæmt lögum um Þróunarsjóð.