Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 435. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1200  —  435. mál.




Breytingartillaga



við frv. til l. um erfðafjárskatt.

Frá Össuri Skarphéðinssyni, Jóhönnu Sigurðardóttur og Ögmundi Jónassyni.



    Við bætist ný grein er verði 3. gr. og orðist svo:
    Af arfi sem fellur til kirkna, opinberra sjóða, líknar- og menningarstofnana eða félaga skal engan erfðafjárskatt greiða. Sama gildir um handrit, bókasöfn, listaverk og minjagripi séu hlutir þessir ánafnaðir eða gefnir opinberum söfnum landsins eða alþjóðlegum stofnunum.