Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 801. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1216  —  801. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um starfsstöð sýslumannsembættisins í Reykjavík í Mosfellsbæ.

Frá Gunnari Birgissyni.



     1.      Hvað mundi kosta að sýslumannsembættið í Reykjavík hefði starfsstöð í Mosfellsbæ með einum starfsmanni
             a.    allan daginn,
             b.    hálfan daginn?
     2.      Hvers vegna heyrir Mosfellsbær ekki undir sýslumannsembætti í Suðvesturkjördæmi eins og áður og væri mikið mál að breyta núverandi skipan?


Skriflegt svar óskast.