Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 812. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1230  —  812. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um meðlagsgreiðslur forsjárlausra feðra.

Frá Gunnari Örlygssyni.



     1.      Hversu margir forsjárlausir feður greiða meðlag með börnum sínum á Íslandi?
     2.      Hversu margir forsjárlausir feður greiða meðlag með:
                  a.      einu barni,
                  b.      tveimur börnum,
                  c.      þremur börnum?
     3.      Hversu margir forsjárlausir feður hafa orðið að semja sérstaklega um innheimtu meðlagsgreiðslna vegna fjárhagserfiðleika á síðustu þremur árum?
     4.      Hversu margir forsjárlausir feður sem greiða meðlag með börnum sínum hafa í árstekjur:
                  a.      minna en 1,7 millj. kr.,
                  b.      1,7–2,3 millj. kr.,
                  c.      2,3–3,5 millj. kr.,
                  d.      3,5–5,0 millj. kr.,
                  e.      meira en 5,0 millj. kr.?


Skriflegt svar óskast.