Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 745. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1239 — 745. mál.
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Valdimars L. Friðrikssonar um stuðning Byggðastofnunar við fiskeldisstöðvar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða fiskeldisstöðvar fengu stuðning, styrki eða lán frá Byggðastofnun árin 1999–2003, sundurliðað eftir landshlutum? Hversu mikill var stuðningurinn í hverju tilviki?
Með vísan til 1. mgr. 58. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, er Byggðastofnun óheimilt að upplýsa um lánveitingar til einstakra viðskiptamanna. Þó skal upplýst að heildarlánveitingar til fiskeldis á tímabilinu nema alls 322.062.000 kr. sem skiptast þannig á milli landshluta:
Alls nutu 11 fiskeldisstöðvar þessarar fyrirgreiðslu. Engar fiskeldisstöðvar hafa á téðu tímabili fengið styrki frá Byggðastofnun, né heldur hefur stofnunin keypt hluti í slíkum fyrirtækjum.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1239 — 745. mál.
Svar

| Vestfirðir | 95.594.000 kr. |
| Norðurland eystra | 68.702.000 kr. |
| Austurland | 90.000.000 kr. |
| Suðurland | 7.069.000 kr. |
| Reykjanes | 60.697.000 kr. |
| Samtals | 322.062.000 kr. |