Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 825. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1258  —  825. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um hlunnindi af sel.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hver er nýting þeirra bænda á sel sem hafa hlunnindi af selveiðum á jörðum sínum?
     2.      Hversu margir bændur veiða sel á jörðum sínum og hvað er gert við veiðina?
     3.      Hversu marga seli hafa bændur veitt árlega?
     4.      Hverjar eru tekjur þeirra af:
                  a.      skinnum,
                  b.      kjöti,
                  c.      öðru?
    Svarið óskast sundurliðað eftir því hvort um útsel eða landsel er að ræða og eftir árum undanfarin tíu ár.


Skriflegt svar óskast.