Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 837. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1278  —  837. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um aldurstengda örorkuuppbót.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hvaða rök eru fyrir því að hætta að greiða aldurstengda örorkuuppbót við 67 ára aldur?
     2.      Hvað má ætla að mikil útgjöld mundu fylgja því á ári að þeir sem fá greidda aldurstengda örorkuuppbót héldu þeim réttindum eftir að 67 ára aldri er náð?
     3.      Hve margir fá nú aldurstengda örorkuuppbót og hver hafa útgjöld vegna hennar orðið frá gildistöku laga nr. 130/2003, 1. janúar 2004?
     4.      Er ráðherra tilbúinn að beita sér fyrir því að öryrkjar haldi örorkutengdum réttindum eftir að 67 ára aldri er náð?