Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 499. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1282  —  499. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um aðstæður heimilislausra.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvaða upplýsingar liggja fyrir um vanda og aðstæður heimilislausra, skipt eftir kyni og aldri? Með heimilislausum er átt við fólk sem hefur engan fastan samastað.
     2.      Hve margir í þessum hópi eru á biðlista eftir félagslegum leiguíbúðum og hve margir þiggja félags- eða fjárhagsaðstoð hjá sveitarfélögunum og í hvaða formi?
     3.      Hvaða úrræði og hve mörg pláss eða gistirými getur hið opinbera boðið fólki sem er heimilislaust?
     4.      Hve margir heimilislausra stríða við vímuefna- eða fíkniefnavanda og hve margir stríða við geðræn vandamál?
     5.      Hve margir þeirra sem nú eru heimilislausir eru álitnir hættulegir umhverfi sínu?
     6.      Hver eru áform ríkisstjórnarinnar um að taka á vandamálum heimilislausra, annars vegar félagslegum og hins vegar heilsufarslegum?


Inngangur.
    Félagsmálaráðuneytið leitaði til félagsþjónustu sveitarfélaga eftir upplýsingum um þá sem teljast heimilislausir. Var það álit ráðuneytisins að félagsþjónustan hlyti að búa yfir upplýsingum umfram aðrar opinberar stofnanir í ljósi þess að hún veitir fólki margþætta félagsþjónustu, m.a. félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð og úrlausn í húsnæðismálum samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
    Ákveðið var að leita upplýsinga hjá sveitarfélögum með fleiri en 3.000 íbúa. Reyndust það vera alls 14 sveitarfélög: Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Akranes, Reykjanesbær, Akureyri, Árborg, Seltjarnarnes, Vestmannaeyjar, Ísafjarðarbær, Skagafjörður og Fjarðabyggð. Óskað var upplýsinga miðað við 1. desember 2004. Enn fremur var haft samband við lögregluna í Reykjavík og Hagstofu Íslands.
    Rétt er í upphafi að gera grein fyrir því að þess er vænst að svör félagsþjónustunnar séu sambærileg og að allir hafi lagt sömu merkingu í skilgreininguna „heimilislaus/sá sem ekki hefur fastan samastað“. Ef upp kom grunur um að félagsþjónustan hefði lagt annan skilning í fyrirspurnina var haft samband og nánari upplýsinga aflað.
    Með heimilislausum er hér átt við fólk sem er algjörlega „á götunni“, sem fær inni á gistiskýlum til bráðabirgða skamman tíma í senn eða býr í neyðartilvikum inni á ættingjum eða vinum, þ.e. þeir sem eiga sér ekki fastan samastað.





Prentað upp.

1. Fjöldi heimilslausra, kyn og aldur.
    Félagsþjónusturnar í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og á Akureyri svöruðu því játandi að heimilislaust fólk dveldi í sveitarfélaginu. Önnur sveitarfélög svöruðu spurningunni neitandi, en nefndu þó að þar dveldi fólk sem byggi við mjög mikið óöryggi í húsnæðismálum þó að það ætti sér samastað. Samtals eru 102 fullorðnir einstaklingar taldir heimilislausir. Karlar eru 74 en konurnar 28. Meðal fólksins eru taldar þrjár einstæðar mæður sem búa á gistiheimilum, með eitt barn hver á framfæri.
    Meginþorri þessa hóps dvelur í Reykjavík eða alls 85 einstaklingar, níu eru í Kópavogi, sex eru í Hafnarfirði og tveir eru á Akureyri. Að frátöldum börnunum eru heimilislausir á aldrinum 20 ára til sjötugs.

2. Biðlistar eftir húsnæði og þjónusta sem fólkið hefur fengið.
    Sveitarfélögin voru beðin um að tilgreina hve margir hinna heimilislausu væru á biðlista eftir húsnæði, hve margir hefðu fengið fjárhagsaðstoð og hve margir hefðu fengið aðra félagslega aðstoð.

Biðlisti Fjárhagsaðstoð Önnur aðstoð
Reykjavík 47 14 50
Kópavogur 5 9 9
Hafnarfjörður 6 4 6
Akureyri 1 1

    Samtals eru 58 manns á biðlista eftir húsnæði eða 57% hópsins, 28 hafa fengið fjárhagsaðstoð, eða 27% hópsins, og 66, eða 65%, hafa fengið aðra aðstoð. Með annarri aðstoð er m.a. átt við félagslega ráðgjöf, aðstoð við að komast til læknis, aðstoð við að komast inn á gistiskýli og samstarf við svæðisskrifstofur málefna fatlaðra. Í aðstoðinni flest m.a. ýmiss konar endurhæfing og má t.d. nefna tvö samstarfsverkefni Félagsþjónustunnar í Reykjavík og Tryggingastofnunar ríkisins, „Grettistak“ sem er fyrir karla sem takast á við fíkniefnavanda og „Kvennasmiðjuna“ sem er endurhæfing fyrir konur.

3. Aðgangur félagsþjónustunnar að gistiskýlum.
    Félagsþjónustan í Reykjavík hefur aðgang að gistiskýlinu við Þingholtsstræti, þar eru 15 pláss. Fólki er einnig vísað á Hjálpræðisherinn og önnur gistiheimili. Í Kópavogi, Hafnarfirði, Akureyri og Seltjarnarnesbæ er fólki vísað á gistiheimili í sveitarfélaginu eða á gistiheimili Hjálpræðishersins og í Garðabæ er vísað á gistiheimili í grennd við sveitarfélagið. Akurnesingar hafa leitað til gistiskýlisins í Reykjavík og í Reykjanesbæ er greiður aðgangur að gistirýmum.

4. Heimilislausir sem eiga við fíkniefnavanda að etja eða eru geðfatlaðir.
    Samtals eiga 37 hinna heimilislausu við fíkniefnavanda að etja, eða 36%. Alls eru 32 taldir geðfatlaðir, eða 22%.

5. Heimilislausir sem eru álitnir hættulegir umhverfi sínu.
    Alls telur félagsþjónustan að 11 einstaklingar séu hættulegir umhverfi sínu, þar af eru níu í Reykjavík. Í skýrslu nefndar um málefni alvarlega geðsjúkra, sem var á forræði heilbrigðisráðherra og skilað var í apríl 2003, kemur fram að af þeim 20 einstaklingum sem ítrekað kæmu við sögu lögreglunnar væru fjórir taldir hættulegir, það er líklegir til að skaða aðra.

6. Aðrar upplýsingar um vanda og aðstæður heimilislausra.
    Samkvæmt upplýsingum Félagsþjónustunnar í Reykjavík eiga framangreindir einstaklingar við margþættan vanda að etja. Ekki er auðvelt að greina hver sé meginorsök erfiðleikanna, en ljóst að geðrænir erfiðleikar og fíkniefnaneysla hefur veruleg áhrif, eins og þegar er fram komið. Hjá því verður hins vegar ekki litið að 33 hinna heimilislausu eru hvorki taldir fíklar né geðfatlaðir.
    Fólkið hefur m.a. dvalið á áfangastöðum sem eru í tengslum við meðferðarstofnanir, á gistiskýlum og verið inni á ættingjum eða vinum. Sumir eru tíðir gestir í fangageymslum lögreglunnar. Félagsþjónustan á Akranesi nefnir að vitað sé að fólk sem eigi við mikinn fíkniefnavanda að etja hafi flust til Reykjavíkur.
    Leitað var til lögreglustjórans í Reykjavík til að afla nánari upplýsinga um umfang þessa vanda á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn lögreglunnar virðist um 20 manna hópur vera heimilislaus á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim eigi 15 manns við veruleg geðræn vandamál að stríða. Þessir einstaklingar fari inn og út af ýmsum stofnunum og stöðum. Margir þeirra eigi athvarf í gistiskýlinu við Þingholtsstræti. Önnur úrræði á vegum borgarinnar nýtist þessu fólki oft, enda vilji lögreglan komast hjá því að heimilislaust fólk gisti í fangageymslum næturlangt. Það sé hins vegar lækna að meta og skilgreina sjúkdóma og oft telji lögreglan að um geðræn vandamál sé að ræða þó að menn væru ekki sammála um það. Það sé slæmt að ekki sé til staðar lokuð geðdeild í reynd.
    Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands er ekki unnt að taka mið af skilgreiningunni „óstaðsettur í hús“ hjá Hagstofunni þegar leitast er við að komast að fjölda heimilislausra á hverjum tíma. Fjöldi óstaðsettra í hús gefi ekki rétta mynd af ástandinu, þar sem fólk sé oft í tryggu húsnæði þrátt fyrir að viðkomandi sé enn skráður á þann hátt hjá Hagstofunni. Sama sjónarmið kom fram hjá Félagsþjónustunni.

7. Áform ríkisstjórnarinnar um að taka á vandamálum heimilislausra.
    Félagsmálaráðherra hefur fullan hug á að kanna stöðu þessara mála frekar. Ljóst er að slík könnun þarf að fara fram í samráði við sveitarfélögin, enda bera þau ábyrgð á því að heimilislausir fái úrlausn í húsnæðismálum sbr. lög um félagsþjónustu sveitarfélaga. Enn fremur yrði haft samráð við heilbrigðisyfirvöld og lögreglustjórann í Reykjavík og sérstakt samráð við Félagsþjónustuna í Reykjavík í ljósi þess hve margir af framangreindum hópi eru þar.
    Að lokum er rétt að benda á að félagsmálaráðherra og heilbrigðisráðherra hafa ákveðið að setja af stað samráðshóp sem fær það verkefni að greina þörf geðfatlaðra fyrir húsnæði og koma með tillögur til úrbóta.