Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 847. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1302  —  847. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um lúðuveiðar Færeyinga við Ísland.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.



     1.      Hve miklum lúðukvóta hefur ráðherra úthlutað Færeyingum árlega sl. fimm ár í krafti tvíhliða samnings þjóðanna frá 1976?
     2.      Hve mikill hefur árlegur lúðuafli Færeyinga verið á þeim tíma?
     3.      Hver hefur ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar til ráðherra verið á þessu tímabili varðandi
                  a.      ástand lúðustofnsins,
                  b.      beinar veiðar á lúðu?
     4.      Hefur ráðherra haft hliðsjón af þessari ráðgjöf við úthlutun á lúðukvóta til Færeyinga?


Skriflegt svar óskast.