Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 853. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1310 — 853. mál.
um ívilnun til skipa sem veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum innan íslensku lögsögunnar.
Rannveig Guðmundsdóttir, Kristján L. Möller, Þórunn Sveinbjarnardóttir,
Jón Gunnarsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir aðgerðum sem aukið geta veiðar Íslendinga úr norsk-íslenska síldarstofninum innan efnahagslögsögunnar.
Í því skyni skal ríkisstjórnin meðal annars ívilna skipum með auknum síldveiðiheimildum í hlutfalli við afla þeirra innan efnahagslögsögunnar á undangengnu fiskveiðiári.
Jafnframt skal Hafrannsóknastofnuninni tryggt fjármagn til að vakta sérstaklega göngur stofnsins inn fyrir mörk íslensku lögsögunnar og fylgjast með dreifingu hans meðan á þeim stendur til að auðvelda veiðar Íslendinga innan lögsögunnar.
Veiðar Íslendinga úr norsk-íslenska síldarstofninum eru mikilvæg stoð undir sjávarútvegi landsmanna. Vonir standa til að með skynsamlegri nýtingu stofnsins takist að byggja hann upp á nýjan leik í þeim mæli að hann taki aftur upp fyrra göngumynstur og dvelji 6–8 mánuði á íslenskum hafsvæðum. Íslenskir langtímahagsmunir liggja augljóslega í því að sem mest af aflaheimildum Íslendinga séu nýttar innan íslensku lögsögunnar. Það styrkir í senn kröfur okkar til stærri skerfs úr stofninum og treystir varnir okkar gegn vaxandi ásælni Norðmanna. En á síðustu árum hafa þeir gert harðar kröfur um aukinn hlut á kostnað Íslendinga og þær hafa leitt til þess að ekki hefur tekist að semja um skiptingu stofnsins á þessu ári. Þess vegna er mikilvægt að Íslendingar reyni að veiða sem mest af afla sínum úr stofninum innan marka íslensku lögsögunnar. Þetta er ekki síst brýnt í ljósi þess að Norðmenn hafa á síðustu árum ýtt undir að Íslendingar veiði hluta af sínum heimildum innan norskrar lögsögu. Engum dylst að með því stefna Norðmenn að því að veikja stöðu Íslendinga í samningum til framtíðar en samningsstaða okkar veikist eftir því sem við verðum háðari veiðum á hafsvæðum þeirra.
Tillagan felur því íslenskum stjórnvöldum að grípa til ráðstafana sem eru líklegar til að auka veiðar íslenskra skipa í íslenskri lögsögu. Tvenns konar ráðstafanir eru nefndar sérstaklega í tillögunni:
Í fyrsta lagi að ívilna síldveiðiskipum í hlutfalli við þann afla sem þau veiða innan lögsögunnar. Einfaldast er að gera það með því að nota aflahlutfall liðins fiskveiðiárs til viðmiðunar þar sem þá liggur fyrir áður en kvóta nýs fiskveiðiárs er úthlutað hversu mikið magn stjórnvöld þurfa að taka frá heildarkvóta Íslendinga í þessu skyni. Sterkur efnahagslegur hvati væri þá fyrir hendi til að örva íslenskar útgerðir til að nýta sem mest af veiðiheimildum sínum innan lögsögunnar.
Í öðru lagi að efla Hafrannsóknastofnunina til að fylgjast nákvæmlega með því þegar síldin gengur inn fyrir mörk íslensku lögsögunnar og vakta jafnframt dreifingu síldarinnar meðan hún dvelur innan hennar. Síðustu árin hefur stofninn aðeins gengið í takmörkuðum mæli inn fyrir mörk lögsögunnar. Flest íslensku síldveiðiskipanna hafa þá gjarnan verið að veiðum annars staðar. Það, ásamt takmörkuðum upplýsingum um dvöl stofnsins og ferðir innan lögsögunnar, hefur leitt til þess að íslenski flotinn hefur ekki getað nýtt sér sem skyldi möguleika til að veiða úr stofninum meðan hann er á íslensku hafsvæði. Nákvæm vöktun á ferðum síldarinnar meðan svo er auðveldar augljóslega veiðar innan lögsögunnar.
Íslendingar hafa á síðustu árum staðið andspænis vaxandi ásælni Norðmanna gagnvart norsk-íslenska síldarstofninum. Norðmenn hafa leynt og ljóst vefengt réttmæti þess hlutar sem fallið hefur Íslendingum í skaut. Á grundvelli samningsins, sem gerður var 1996, hafa Íslendingar þó einungis fengið 15,54% leyfilegs heildarafla. Það er langt undir því sem hægt er að réttlæta með sögulegri veiðireynslu Íslendinga og er þá ótalin sú staðreynd að stærsta sökin á hruni stofnsins liggur hjá Norðmönnum. Um það efni vísa flutningsmenn til röksemda sem settar eru fram í þskj. 1202. Því er brýnt að styrkja samningsstöðu Íslendinga eins og kostur er varðandi skiptingu veiða úr stofninum. Það er tilgangur þessarar tillögu.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1310 — 853. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um ívilnun til skipa sem veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum innan íslensku lögsögunnar.
Flm.: Össur Skarphéðinsson, Jóhann Ársælsson, Guðmundur Árni Stefánsson,
Rannveig Guðmundsdóttir, Kristján L. Möller, Þórunn Sveinbjarnardóttir,
Jón Gunnarsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir aðgerðum sem aukið geta veiðar Íslendinga úr norsk-íslenska síldarstofninum innan efnahagslögsögunnar.
Í því skyni skal ríkisstjórnin meðal annars ívilna skipum með auknum síldveiðiheimildum í hlutfalli við afla þeirra innan efnahagslögsögunnar á undangengnu fiskveiðiári.
Jafnframt skal Hafrannsóknastofnuninni tryggt fjármagn til að vakta sérstaklega göngur stofnsins inn fyrir mörk íslensku lögsögunnar og fylgjast með dreifingu hans meðan á þeim stendur til að auðvelda veiðar Íslendinga innan lögsögunnar.
Greinargerð.