Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 859. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1317  —  859. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um mörk borgaralegra og hernaðarlegra þátta í starfi Íslensku friðargæslunnar.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Hvernig er aðskilnaði borgaralegra og hernaðarlegra þátta í starfi Íslensku friðargæslunnar háttað?
     2.      Hvaða munur er á þjálfun, starfskjörum og tryggingum starfsmanna sem bera, eða hafa heimildir til að bera, vopn við störf sín og starfsmanna sem ekki hafa slíkar heimildir?
     3.      Hvert eru fyrirmyndir að starfsheitum af hernaðarlegum toga, eða „tign“, starfsmanna friðargæslunnar sóttar?
     4.      Hvaða reglur gilda, eða munu gilda, um heimildir starfsmanna friðargæslunnar til að beita vopnum sínum, þ.e. í sjálfsvörn, til að verja aðra o.s.frv.?