Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 863. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1321  —  863. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um skattgreiðslur vegna virkjunarframkvæmda við Kárahnjúka.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Telur ráðherra að útsvars- og tekjuskattsgreiðslur erlendra starfsmanna við Kárahnjúkavirkjun hafi verið eðlilegar og skili sér, og hafi skilað sér, að fullu til réttra aðila?
     2.      Er ráðherra enn þeirrar skoðunar að engin sérstök vandamál séu uppi, né líkleg til að koma upp, hvað varðar skattskyldu, tilhögun skattgreiðslna og skattskil vegna virkjunarframkvæmdanna við Kárahnjúka?