Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 885. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1343  —  885. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um nýrnaveiki í seiðaeldi.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.



     1.      Hvenær og hvernig var upplýsingum um að nýrnaveiki hefði verið uppgötvuð í íslenskri seiðaeldisstöð í ágústmánuði 2003 dreift til annarra eldisstöðva og hagsmunaaðila hérlendis?
     2.      Hvenær var nýrnaveikin tilkynnt formlega til grannlanda sem íslenskar seiðastöðvar flytja afurðir til, svo sem Skotlands og Írlands, og hvernig var staðið að þeim tilkynningum?
     3.      Hvaða ráðstafanir hefur ráðuneytið gert til að komast fyrir þessa sýkingu og hindra að veikin breiðist út?


Skriflegt svar óskast.





















Prentað upp.