Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 774. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1344  —  774. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möllers um tillögur Byggðastofnunar um lækkun flutningskostnaðar.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hverjar voru tillögur Byggðastofnunar um lækkun flutningskostnaðar? Óskað er eftir að tillögurnar verði birtar í heild sinni.

    Tillögur Byggðastofnunar voru unnar að beiðni ríkisstjórnarinnar til kynningar á vettvangi hennar. Tillögurnar eru þannig undanþegnar upplýsingarétti skv. 1. tölul. 4. gr. upplýsingalaga, nr. 50/1996. Iðnaðarráðherra hefur ákveðið að verða ekki við ósk fyrirspyrjanda um birtingu tillagnanna í heild sinni.