Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 676. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1360 — 676. mál.
fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóns Gunnarssonar um gjaldþrotabeiðnir.
1. Í hve mörgum tilfellum hefur ríkissjóður sett fram beiðni um gjaldþrot á hendur einstaklingum á árunum 1993–2003, hve oft hefur málið endað með gjaldþroti viðkomandi, hve háar voru skuldirnar sem leiddu til gjaldþrotabeiðni og hver var útlagður kostnaður ríkisins vegna þessara gjaldþrotabeiðna? Hversu háar fjárhæðir fékk ríkissjóður greiddar út úr þeim þrotabúum sem um ræðir? Svar óskast sundurliðað eftir árum og innheimtuembættum ríkissjóðs.
Fjármálaráðherra óskaði eftir framangreindum upplýsingum frá Fjársýslu ríkisins. Í svari Fjársýslunnar kemur fram að tekjubókhaldskerfi ríkisins, TBR, núverandi almennt innheimtukerfi ríkisins, tók við af eldra innheimtukerfi, TBI, í ársbyrjun 2000 og eru því umbeðnar upplýsingar ekki aðgengilegar lengra aftur í tímann. Í nýja kerfinu er unnt að sjá hvað innheimtumenn ríkissjóðs, sýslumenn og tollstjórinn í Reykjavík, hafa sent margar gjaldþrotabeiðnir ár hvert og hvað kröfur að baki beiðnanna hafa verið háar í lok viðkomandi árs, skipt á einstaklinga og lögaðila, sbr. eftirfarandi yfirlit. Fram kemur í yfirlitinu fjöldi mála sem lauk með skiptum á árunum 2000–2003 vegna beiðna sem innheimtumenn ríkissjóðs höfðu sent á fyrri árum, skipt á einstaklinga og lögaðila.
Eins og fram kemur í yfirlitinu voru sendar samtals 722 beiðnir um gjaldþrot einstaklinga á árunum 2000–2003. Staða krafna í árslok samkvæmt sendum beiðnum voru 3.115 millj. kr., sem skiptist í höfuðstól samtals 2.255 millj. kr., vexti 1.156 millj. kr., kostnað 62 millj. kr. og greiðslur samtals 358 millj. kr. Jafnframt var um að ræða 720 skiptalok samkvæmt beiðnum frá fyrri árum.
Ekki var unnt að fá frekari sundurliðun en að framan greinir, svo sem sundurliðun eftir innheimtuembættum ríkissjóðs.
Jafnframt má benda á að í verklagsreglum tollstjórans í Reykjavík frá desember 2000 er sú leiðbeiningarregla fyrir innheimtumenn að almennt skuli ekki krefjast gjaldþrotaskipta á búum einstaklinga og skiptir í því sambandi ekki máli hvort viðkomandi hafi starfað sem launamaður eða hafi haft með höndum sjálfstæða starfsemi. Þó skal krefjast gjaldþrotaskipta á búum einstaklinga án tillits til fjárhæða skulda þegar ástæða er til að ætla að með því kunni að verða unnt að draga undir skiptin eignir sem ekki hafa verið innheimtumanni aðgengilegar við fjárnámsgerðina. Jafnframt er unnt að krefjast gjaldþrotaskipta á búum einstaklinga ef um er að ræða mikla skuld á vörslusköttum.
2. Í hve mörgum tilfellum hefur ríkissjóður sett fram beiðni um gjaldþrot á hendur fyrirtækjum á árunum 1993–2003, hve oft hefur málið endað með gjaldþroti viðkomandi, hve háar voru skuldirnar sem leiddu til gjaldþrotabeiðni og hver var útlagður kostnaður ríkisins vegna þessara gjaldþrotabeiðna? Hversu háar fjárhæðir fékk ríkissjóður greiddar út úr þeim þrotabúum sem um ræðir? Svar óskast sundurliðað eftir árum og innheimtuembættum ríkissjóðs.
Eins og áður sagði tók núverandi tekjubókhaldskerfi ríkisins við af eldra kerfi á ársbyrjun 2000 og umbeðnar upplýsingar eru ekki aðgengilegar lengra aftur í tímann.
Eins og sést í yfirlitinu voru sendar samtals 2.355 beiðnir um gjaldþrot lögaðila á árunum 2000–2003. Staða krafna í árslok samkæmt sendum beiðnum voru 10.613 millj. kr., sem skiptist í höfuðstól samtals 8.925 millj. kr., vexti 3.143 millj. kr., kostnað 62 millj. kr. og greiðslur samtals 1.518 millj. kr. Jafnframt var um að ræða 1.156 skiptalok samkvæmt beiðnum frá fyrri árum.
Í verklagsreglum tollstjórans í Reykjavík, frá desember 2000, kemur fram sú almenna regla að krefjast skuli gjaldþrotaskipta á búum lögaðila ef samanlagður höfuðstóll allra skulda hjá innheimtumönnum nemi hærri fjárhæð en einni milljón króna.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1360 — 676. mál.
Svar

Gjaldþrotabeiðinir sendar frá innheimtumönnum ríkissjóðs
(sýslumenn utan Reykjavíkur og tollstjórinn í Reykjavík.)
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.