Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 693. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1361 — 693. mál.
félagsmálaráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um fjölskylduráð og opinbera fjölskyldustefnu.
1. Hvenær var opinbert fjölskylduráð stofnað, sbr. III. kafla þingsályktunar um mótun opinberrar fjölskyldustefnu og aðgerðir til að styrkja stöðu fjölskyldunnar frá 13. maí 1997 og hvernig hefur það verið skipað?
Opinbert fjölskylduráð var stofnað árið 1998 og 21. janúar sama ár voru eftirtalin skipuð í ráðið: Herdís Sæmundardóttir formaður, tilnefnd af félagsmálaráðherra, Dögg Pálsdóttir, tilnefnd af Alþingi, Þráinn Hallgrímsson, tilnefndur af Alþingi, Sigrún Júlíusdóttir, tilnefnd af Háskóla Íslands, og Ólafur H. Sverrisson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefndi Steinunni Valdísi Óskarsdóttur sem varamann. Ekki hafa verið tilnefndir aðrir varamenn.
Skipunartími ráðsins var ótímabundinn. Ráðið hélt tvo fundi í mars 1998, en í ágúst sama ár lét Herdís af störfum sem formaður en við tók Drífa Sigfúsdóttir. Ólafur H. Sverrisson lét af störfum árið 2000 en við tók Hrannar B. Arnarsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Árið 2002 lét Dögg Pálsdóttir af störfum og Soffía Gísladóttir, sem tilnefnd var af Alþingi, hóf störf í ráðinu 1. janúar 2003.
Endurskipað var í fjölskylduráð 24. júlí árið 2002 til 1. ágúst 2004. Ráðið er þannig skipað: Drífa Sigfúsdóttir, formaður, Sigrún Júlíusdóttir, Soffía Gísladóttir, Þráinn Hallgrímsson og Hrannar B. Arnarsson.
2. Hafa stjórnvöld leitað eftir ráðgjöf frá fjölskylduráði vegna áforma um stjórnvaldsaðgerðir til að bæta stöðu fjölskyldunnar í samfélaginu og í hvaða tilfellum og hvernig hafa stjórnvöld brugðist við ábendingum fjölskylduráðs um úrbætur í fjölskyldumálum?
Stjórnvöld hafa einkum leitað eftir ráðgjöf frá fjölskylduráði vegna þingmála og þátttöku í fundum og ráðstefnum. Að öðru leyti hefur lítið verið leitað til ráðsins nema af hálfu félagsmálaráðuneytis en nokkrar umræður um verkefni hafa farið fram í samtölum milli ráðherra, starfsmanna ráðuneytisins og formanns og starfsmanns fjölskylduráðs.
Þingmál.
Þingmál verið send fjölskylduráði til umsagnar, bæði frá stjórn og stjórnarandstöðu en ekki liggur fyrir í hvaða tilfellum tekið var tillit til sjónarmiða ráðsins við vinnslu þingmála. Ber helst að geta eftirfarandi:
130. löggjafarþing.
. Tillaga til þingsályktunar um samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga um gjaldfrjálsan leikskóla, þskj. 4 — 4. mál.
. Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlanir til að ná fram launajafnrétti kynjanna, þskj. 15 — 15. mál.
. Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, þskj. 1121 — 750. mál.
. Tillaga til þingsályktunar um sérstakan skattaafslátt vegna barna, þskj. 23 — 23. mál.
. Tillaga til þingsályktunar um stöðu hjóna og sambúðarfólks, þskj. 47 — 47. mál.
. Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og eignarskatt, þskj. 88 — 88. mál.
. Frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum nr. 75/1998, þskj. 165 — 163. mál.
. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 96/1995, um gjald af áfengi og tóbaki, með síðari breytingum, þskj. 166 — 164. mál.
127. löggjafarþing.
. Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, þskj. 114 — 114. mál.
. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak, nr. 63/1969, með síðari breytingum, þskj. 135 — 135. mál.
. Tillaga til þingsályktunar um persónuafslátt barna, þskj. 151 — 151. mál.
. Frumvarp til laga um breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum, þskj. 391 — 315. mál.
. Frumvarp til laga um framkvæmd meðlagsgreiðslna umfram lögboðið lágmarksmeðlag og skattalega meðferð þeirra, þskj. 647 — 391. mál.
126. löggjafarþing.
. Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, þskj. 207 — 197. mál.
. Frumvarp til laga um breyting á barnalögum nr. 20/1992, þskj. 377 — 314. mál.
125. löggjafarþing.
. Frumvarp til laga um bann við uppsögnum vegna fjölskylduábyrgðar starfsmanna, þskj. 293 — 241. mál.
Auk framangreindra mála veitti fjölskylduráð umsögn, árið 2000, um erindi frá Íslandsdeild Norðurlandaráðs, tillögu A 1208/nord „angående børns retstilling og ret til begge forældre“ sem lögð var fram í ráðinu.
Fæðingarorlof, bréf 27. nóvember 2001.
Fjölskylduráð sendi félagsmálaráðherra bréf þar sem m.a. kemur fram: ,,Fjölskylduráð telur mikilvægt að fylgjast grannt með þróun þessara mála og beinir því til félagsmálaráðherra að kannað sér hvort ástæða sé til, fyrr en seinna, að endurskoða lögin með það fyrir augum að ákveða hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi.“ Ráðið fékk svar frá ráðuneytinu um að efni bréfsins verði haft til hliðsjónar við endurskoðun laganna.
Vefsíða um málefni fjölskyldunnar.
Leitað var til fjölskylduráðs um þátttöku í vinnuhópi um gerð fjölskylduvefs á vegum félagsmálaráðuneytisins árið 2001. Formaður tók þátt í vinnunni og ráðið kom einnig á framfæri ábendingum. Vefnum er ætlað að vera handhægt hjálpartæki fyrir foreldra enda hefur mjög stór hluti þeirra aðgang að netinu. Stefnt er að því að vefurinn verði opnaður á degi fjölskyldunnar þann 15. maí nk.
Dagur fjölskyldunnar 15. maí.
Ráðherra hefur haldið blaðamannafund í samráði við fjölskylduráð í hvert sinn sem ráðið hefur óskað eftir því á degi fjölskyldunnar.
Annað.
Fjölskylduráð hefur meðal annars leitað liðsinnis félagsmálaráðherra til að virkja ráðuneytin til þátttöku í samráðshópi með því að tilnefna tengilið um fjölskyldumál frá ráðuneytunum. Illa gekk að fá sum ráðuneytin til að skipa fulltrúa, þrátt fyrir bréf og ítrekun en fulltrúum í samráðshópnum fjölgaði eftir að þáverandi félagsmálaráðherra, Páll Pétursson, tók málið upp í ríkisstjórn.
Hinn 29. nóvember 1998 sendi fjölskylduráð félagsmálaráðherra kynningarbréf um hlutverk ráðsins og forgangsröðun ráðsins fyrir árið 1999. En á þeim tíma var ráðið m.a. að kynna verksvið sitt og fjárhagsáætlanir. Ráðið hefur unnið fjárhagsáætlanir og kynnt þær en, eins og flestir sem sækja um fjármuni hjá ríkisvaldinu, yfirleitt fengið lægri upphæð en lagt var til af hálfu ráðsins hveru sinni. Ráðuneytið hefur frá síðasta ári ekki gjaldfært á ráðið kostnað vegna verkefna sem unnin hafa verið í ráðuneytinu fyrir það.
Bréf til fjármálaráðherra.
Bréf sent til fjármálaráðherra um sérstakt tillit til barnafjölskyldna til að jafna kjör þeirra við aðrar fjölskyldur árið 2000. Fjölskylduráð telur mikilvægt að litið verði á barnabætur sem greiðslur til barna í stað foreldra. Ráðið lagði til að a.m.k. hluti barnabóta verði hvorki tekju- né eignatengdur. Auk þess sem lagt var til að jaðarskattaáhrif barnafjölskyldna verði skoðuð sérstaklega hjá þeim sem tilheyra tekjulágum fjölskyldum, fjölskyldum með miðlungstekjur og fjölskyldum sem eru með ríflega miðlungstekjur.
Samráðsfundir.
Á samráðsfundi með fulltrúum ráðuneytanna vöknuðu spurningar um skatta og tolla og á barnavörur. Ráðinu barst greiðlega minnisblað með upplýsingum um stöðu mála frá fjármálaráðuneyti.
Núverandi félagsmálaráðherra hefur átt tvo fundi með formanni ráðsins um verkefni þess. Á seinni fundinum voru tímasett nokkur mál sem eru í vinnslu hjá ráðuneytinu og fjölskylduráði.
3. Hefur fjölskylduráð lagt fram tillögur um framkvæmdaáætlanir í málefnum fjölskyldunnar og hafa stjórnvöld brugðist við þeim tillögum?
Ráðið hefur ekki lagt fram heilstæða stefnu um framkvæmdaáætlanir í málum fjölskyldunnar en kynnt fjölmargar hugmyndir. Ráðið hefur hins vegar sinnt nauðsynlegum undirbúningi til að fara megi í slíka vinnu. Talsvert vantar á að til séu nægilegar upplýsingar um lífsskilyrði fólks, lífsaðstæður og fleiri þætti sem tengjast velferð. Því hafa verið teknar saman upplýsingar um fjölskylduna, haldnir hafa verið fundir og ráðstefnur, gerð könnun o.fl. Fjölskylduráð telur að bæði löggjafarvaldið og framkvæmdarvaldið skorti upplýsingar og almenna vitneskju um hvaða áhrif ýmsar aðgerðir hafa á hag almennings. Fjölskylduráð telur eðlilegt að byrja á að búa til grunn sem sýnir lífsgæði fjölskyldunnar og fá þannig fram stöðuna. Því var lagt í þá miklu vinnu að búa til mælitæki sem mæla á lífsgæði fjölskyldunnar, Fjölskylduvogina. Þegar hún er tilbúin er talið að eðlilegt sé að hefjast handa við aðgerðir til að bæta stöðu fjölskyldunnar og nota Fjölskylduvogina til að mæla hvort þær bæti raunverulega velferð fjölskyldunnar. Ráðherra hefur stutt verkefnið og hefur ráðið fengið fjármuni til að vinna að gerð Fjölskylduvogar auk þess sem starfsmenn ráðuneytisins hafa lagt fram vinnu.
Framkvæmdaáætlanir, hugmyndir.
Árið 2000 setti fjölskylduráð fram eftirfarandi hugmyndir um framkvæmdaáætlanir á sviði fjölskyldumála sem meðal annars voru ræddar á samráðsfundum ráðuneytanna:
I. Almennur hluti – félagsmálaráðuneytið.
Markmið er að hefja til vegs og virðingar uppeldi foreldra á börnum sínum.
Verkefni 1. Fræðsla fyrir foreldra.
Afhenda nýbökuðum foreldrum bækling þar sem áhersla er lögð á skyldur og réttindi foreldra gagnvart börnum sínum.
Verkefni 2. Samverustundir fjölskyldunnar.
Rannsóknir styðja mikilvægi samverustunda, svo sem varðandi skólagöngu barna.
Verkefni 3. Tengsl atvinnulífs og fjölskyldulífs.
Að skapa skilyrði til að ná jafnvægi milli fjölskyldu- og atvinnulífs.
Jafnrétti á heimili og á vinnustöðum.
Taka saman efni um erlendar sem innlendar rannsóknir og kynna þær fyrir foreldrum og aðilum vinnumarkaðarins.
Láta vinna rannsókn á högum barnafjölskylda, tengsl atvinnulífs og fjölskyldulífs.
Fjölskyldustefna á vinnustöðum.
Sveigjanleiki í lengd vinnutíma fyrir foreldra ungra barna.
Umburðarlyndi gagnvart fjarveru vegna veikinda barna eða annarra í fjölskyldu.
Verkefni 4. Jafnræði barnafjölskyldna á við aðrar fjölskyldur.
Hærri barnabætur.
Fjölskyldulíf og atvinna.
II. Sérhæfður hluti, á sviði fatlaðra.
Þverfagleg aðstoð við foreldra fatlaðra og/eða langveikra barna, þróa stuðningskerfi til handa foreldrum er börn þeirra greinast langveik eða fötluð. Markmiðið yrði að leiðbeina foreldrum og fræða um stöðu þeirra og barnsins. Mikilvægt að foreldrar fái eitthvað skriflegt í hendurnar samfara leiðsögn.
III. Á sviði jafnréttis, könnun á skilyrðum fjölskyldna.
Skoða möguleika á að flytja verkefni úr framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum í fjölskylduáætlun. Könnun á áhrifum aðgerða opinberra aðila til styrktar fjölskyldunni. Sérstaklega verði skoðað hvort og þá hvernig skilyrði fjölskyldunnar í samfélaginu hafi breyst við slíkar aðgerðir.
VI. Á sviði útlendinga, tilraunaverkefni um stuðningsfjölskyldur.
Stuðningsfjölskylda aðstoðar eina erlenda fjölskyldu sem flytur hingað til lands í eitt ár frá komu þeirra til landsins. Hlutverk stuðningsfjölskyldna væri að kynna fjölskyldunni ýmsa þjónustu, t.d. varðandi skólamál, heilsugæslu, tryggingar o.fl. Fjármögnuð yrðu námskeið fyrir stuðningsfjölskyldur sem þær mundu sækja a.m.k. í upphafi. Mikilvægt er að markmið slíks verkefnis séu skýr og jafnframt að við lok verkefnisins fari fram mat á árangri af því.
Foreldraskólinn.
Á fundi með tengiliðum ráðuneytanna í október 2001 kom fram hugmynd um fjölskyldu- eða uppeldisskóla. Mögulegt væri að senda foreldrum póst með upplýsingum við hæfi eftir aldri barna. Þetta mætti gera með sama sniði og gert er hjá umferðafræðslu, jafnframt því sem netið og ljósvakamiðlar væru notaðir. Fjölskylduráð fór fram á fjárveitingu til að þróa verkefnið og fara rólega af stað. En þar sem fjárveitingar voru takmarkaðar ákvað ráðið að setja Fjölskylduvogina í forgang.
Fjölskylduráð mun endurskoða starfsáætlun og forgangsröðun verkefna nú í apríl.
4. Hefur fjölskylduráð átt frumkvæði að opinberri umræðu um málefni fjölskyldunnar og veitt leiðbeinandi upplýsingar til fjölskyldna um viðbrögð við nýjum og breyttum aðstæðum og hvernig hafa stjórnvöld stutt fjölskylduráð í þessum efnum?
Fjölskylduráð hefur átt frumkvæði að opinberri umræðu um málefni fjölskyldunnar síðustu árin. Ráðið hefur einnig veitt leiðbeinandi upplýsingar til fjölskyldna og stjórnvöld hafa stutt ráðið með ýmsum hætti.
Málþing um fjölskylduna í nútímasamfélagi, 28. janúar 1999.
Haldið var málþing með fulltrúum frá ráðuneytum, stofnunum, sveitarfélögum, félagasamtökum, fulltrúum stéttarfélaga og vinnuveitenda. Fimm framsögumenn fluttu erindi og síðan var rætt var um hvaða mál væri brýnast að taka á gagnvart fjölskyldum, bæði hjá hinu opinbera og á almennum vinnumarkaði.
Fjölskyldan: Hornsteinn eða hornreka, opin ráðstefna 8. apríl 1999.
Ráðstefna var haldin með tíu framsöguerindum og pallborðsumræðum og skiptist dagskráin í fjóra þætti: Stuðning við foreldra, undirbúning og stuðning fyrir foreldrahlutverkið, foreldra á vinnumarkaði og kynningu stjórnmálaflokkanna á áherslum í fjölskyldumálum.
Fjölskyldustefna sveitarfélaga.
Fjölskylduráð sendi öllum sveitarfélögum bréf 20. ágúst 1999 og vakti athygli þeirra á þingsályktun um mótun opinberrar fjölskyldustefnu og aðgerðir til að styrkja stöðu fjölskyldunnar. Jafnframt var óskað eftir ábendingum um hvað sveitarfélögin teldu vera brýnustu aðgerðir í málefnum fjölskyldunnar.
Slysalaus dagur 24. ágúst 2000, fréttatilkynning.
Yfirlýsing var send frá ráðinu þar sem fjölskyldur voru hvattar til að taka upp umræðu um aðgát í umferðinni og foreldrar hvattir til að sýna gott fordæmi. Bæði blöð og ljósvakamiðlar tóku málið upp.
Alþjóðlegur dagur fjölskyldunnar, 15. maí.
Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað 15. maí fjölskyldunni. Á þeim degi hefur fjölskylduráð haldið blaðamannafundi og morgunverðarfundi og vakið athygli á deginum, hvatt sveitarstjórnir til að vinna með þema dagsins og hefur einnig sent frá sér hvatningu (skjáauglýsingar) til fjölskyldna og bent á gildi samverustunda fjölskyldunnar.
Dreifibréf, 8. nóvember 2001.
Kynning á ráðinu, hlutverki þess og verkefnum var sent út til fjölmiðla og hugsanlegra samstarfsaðila.
Verslunarmannahelgi 2001.
Í samstarfi við vímulausa æsku voru birtar auglýsingar með varnaðarorðum til foreldra um helgina.
Útgáfumál — fræðsla og kynning.
Í maí 2001 komu út á vegum fjölskylduráðs tvö rit í ritröð félagsmálaráðuneytisins. Þessi rit voru kynnt á blaðamannafundi á degi fjölskyldunnar 15. maí 2001. „Könnun fjölskylduráðs á viðhorfum íslenskra sveitarfélaga til málefna fjölskyldunnar“ er um niðurstöður könnunar sem vinna hófst við veturinn eftir að fjölskylduráð var skipað. „Samantekt um málefni fjölskyldunnar“ var liður í að marka opinbera fjölskyldustefnu. Þar voru áætlanir ráðuneytanna á sviði fjölskyldumála teknar saman í eitt rit í fyrsta sinn. Þar má finna heildarsýn yfir þau málefni ráðuneytanna er lúta að fjölskyldunni og þau verkefni sem stjórnvöld unnu að. Bæði ritin má finna á vefsíðu félagsmálaráðuneytisins.
Þá hafa fulltrúar í ráðinu komið fram í ljósvakamiðlunum og skrifað í blöð um málefni fjölskyldunnar. Á næstunni verður t.d. sýndur þáttur í ríkissjónvarpinu um fjölskyldumál en þar er m.a. rætt við formann ráðsins.
Kynningarstarf.
Fjölskylduráð taldi mikilvægt að kynna hlutverk ráðsins fyrir hagsmunaaðilum og var það m.a. gert með eftirfarandi hætti:
Bréf til fjárlaganefndar.
Sent var bréf til fjárlaganefndar 1998 til að kynna ráðið og verkefni þess.
Kynningarbréf til ráðuneyta árið 1999.
Fjölskylduráði var frá upphafi ljóst að þingsályktunin sem það starfar eftir er opin og býður upp á fjölbreytta og mismunandi túlkun. Því hefur frá upphafi verið lögð mikil áhersla á umræðu um vinnulag og hlutverk ráðsins og forgangsröðun verkefna. Einnig fór fram umfangsmikil upplýsinga- og gagnaöflun og rætt var við ýmsa sem vinna að skyldum málefnum. Fyrsta árið var gert átak í að kynna fjölskylduráð.
Merki fjölskylduráðs.
Síðla árs 1998 var boðað til samkeppni um hönnun á merki ráðsins. Alls bárust ellefu tillögur og varð hugmynd Garðars Péturssonar fyrir valinu. Merkið var tekið í notkun árið 1999.
Samstarf og samráð og leiðbeinandi upplýsingar.
Fjölskylduráð hefur leitast við að kynna fjölskyldumálefni, einkum meðal hagsmunaaðila.
Haldnir hafa verið nokkrir samráðsfundir með fulltrúum ráðuneyta en þau ráðuneyti sem tilnefnt hafa fulltrúa eru menntamálaráðuneyti, sjávarútvegsráðuneyti, landbúnaðarráðuneyti, fjármálaráðuneyti, félagsmálaráðuneyti, umhverfisráðuneyti, dóms- og kirkjumálaráðuneyti og utanríkisráðuneyti. Fyrsti samráðsfundurinn með fulltrúum ráðuneytanna var haldinn 14. mars 2001, þar sem fram kom mikill áhugi á fjölskyldumálum og gagnlegar umræður fóru fram. Á fundi 31. október 2001 var meðal annars rætt um forgangsröðun verkefna. Sameiginleg niðurstaða fundarins var að verkefni sem tengdust barnafjölskyldum ættu að hafa forgang í stefnumótun ríkisvaldsins gagnvart fjölskyldum (svo sem lengingu fæðingarorlofs, leikskólatilboð og heildstæður skóladagur) auk fræðslu og ráðgjafar.
Foreldraskóli — Samstarfssamningur við Miðstöð heilsuverndar barna.
Hinn 19. júní 2003 var skrifað undir samstarfssamning fjölskylduráðs og Miðstöðvar heilsuverndar barna um verkefnið Agi, uppeldi og hegðun. Samningurinn kveður á um að Miðstöð heilsuverndar barna annist gerð námskeiðsgagna, prentun og dreifingu á hefti um aga, uppeldi og hegðun, ásamt því að halda námskeið um efnið. Upphæð samningsins er 800.000 kr. og skal upphæðin greidd í tveimur áföngum eftir nánara samkomulagi um framvindu verkefnisins. Gefinn hefur verið út bæklingur. Fyrsta foreldranámskeiðið verður 20. apríl til 11. maí (fjögur skipti, einu sinni í viku) og fyrsta leiðbeinendanámskeiðið verður haldið 18. og 25. maí. 2004.
Stjórnvöld hafa einkum stutt fjölskylduráð með vinnuframlagi, vinnuaðstöðu og fundarboðun, undirbúning funda og ráðstefna, hafa póstlagt bréf, sent ítrekanir og haft samband við ýmsa aðila fyrir ráðið og unnið með þeim eftir atvikum o.s.frv. Á tímabili var starfsmaður í hálfu starfi fyrir fjölskylduráð en eftir stofnun fjölskylduskrifstofu hefur starfsemi ráðsins aftur færst til ráðuneytisins.
5. Hefur fjölskylduráð stuðlað að rannsóknum á högum og aðstæðum íslenskra fjölskyldna og hvernig hafa stjórnvöld stutt fjölskylduráð í þessum efnum?
Fjölskylduráð hefur stuðlað að rannsóknum á högum og aðstæðum íslenskra fjölskyldna eins og fram hefur komið hér að framan. Auk þess vinnur ráðið þessa dagana að einu stærsta rannsóknarverkefni á þessu sviði sem unnið hefur verið á Íslandi.
Könnun fjölskylduráðs á viðhorfum íslenskra sveitarfélaga til málefna fjölskyldunnar.
Fjölskylduráð vann að könnun á viðhorfi sveitarfélaga til fjölskyldunnar árið 2000. Könnuninni var ætlað að vekja sveitarstjórnir til umhugsunar um málefni fjölskyldunnar og fá fram viðhorf þeirra. Fjallað hefur verið um könnunina hér á undan.
Fjölskylduráð hefur sótt um fjárveitingar til að stunda rannsóknir en þar til á síðasta ári hafði ráðið ekki fjármuni til að greiða slíka vinnu. Fjölskylduráð kannaði hins vegar möguleika á að kaupa spurningar í spurningavagni Gallups og Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands í febrúar 2001. Á síðasta ári bauð fjölskylduráð í samstarfi við Sigrúnu Júlíusdóttur prófessor meistaranemendum í félagsvísindum styrki ef þeir ynnu lokaverkefni um fjölskylduna. Því miður gat engin nemandi nýtt sér þennan möguleika í það sinn.
Fjölskylduvog.
Fjölskylduráð er vinnur að gerð víðtæks mælitækis sem veita mun miklar upplýsingar um stöðu fjölskyldunnar.
Á haustmánuðum 2001 var byrjað að móta hugmynd um Fjölskylduvogina, safn lykiltalna og upplýsinga um stöðu fjölskyldunnar í íslensku samfélagi, þar sem sjá mætti breytingar yfir tíma en einnig milli landshluta. Fjölskylduvogin var hugsuð þannig að notaðir yrðu mæliþættir sem í fyrsta lagi væru mældir reglulega, svo að sjá mætti tilhneigingar yfir tíma, í öðru lagi skráðir eftir landsvæðum, svo að fram kæmi mismunur milli þeirra, og í þriðja lagi væru almennir svo að þeir endurspegluðu alla þjóðina. Þessir þættir eiga að gefa greinargóðar upplýsingar, t.d. um fjárhagslega afkomu fjölskyldna, húsnæðismál, menntun, heilsu og vinnutíma, sem og fjölskyldutíma, lífsstíl og félagslega getu. Þá er æskilegt að með fylgi upplýsingar um þróun, svo sem á stærð fjölskyldna, sambúðarformi, og fjölmenningarlegri samsetningu, og um tilhneigingar. Gert er ráð fyrir að aðilar með fjölbreytta sérþekkingu komi að gerð mælitækisins. Fjölskylduvoginni er ætlað að vera eins konar vísitala á málefni fjölskyldunnar með einni tölulegri útkomu hverju sinni.
Formaður og starfsmaður fjölskylduráðs hafa átt fundi með starfsmönnum Hagstofu Íslands um skráningu gagna sem snúa að fjölskyldunni. Það er mikilvægt að gögn séu í upphafi skráð þannig að þau nýtist sem best við rannsóknir sem snúa að fjölskyldunni. Á fundunum var rætt um óskir ráðsins um bætta skráningu gagna og möguleika til úrbóta. Starfsmenn Hagstofu fóru yfir málið og kváðust tilbúnir til að skoða svigrúm til breytinga ef tök væru á því.
Eftir að málið hafði verið rætt við fjölmarga var ljóst að verulegur áhugi var fyrir verkefninu. Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri var fengin til að vinna við gerð Fjölskylduvogarinnar fyrir ráðið. Þessa dagana er fjölskylduráð að lesa yfir lokadrög að Fjölskylduvoginni. Þetta er bæði mjög flókið og tímafrekt verkefni en gert er ráð fyrir að því verði lokið í síðasta lagi næsta vor.
Með gerð Fjölskylduvogar verður farið út í víðtæka söfnun á tiltækum upplýsingum um fjölskylduna en jafnframt verður bætt við rannsóknum til að bæta mælitækið. Þessi vinna hefur eðlilega tekið nokkurn tíma en gert er ráð fyrir gerð vogarinnar ljúki á næsta ári.
Ferlinu við gerð Fjölskylduvogar er skipt í þrjá megináfanga: Hönnunaráfanga sem skiptist í forhönnun og lokahönnun, tilraunaáfanga og framkvæmdaráfanga. Þessa dagana er unnið að lokagerð hönnunaráfangans. Stefnt er að því að halda samráðsfundi áður en hafist verður handa við tilraunaáfangann.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1361 — 693. mál.
Svar