Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 898. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1366  —  898. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um tekjur sérskóla af skólagjöldum.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



     1.      Hverjar voru tekjur einstakra skóla af skólagjöldum vegna náms á sérskólastigi á síðasta skólaári og hvernig sundurliðast tekjurnar eftir námsleiðum í hverjum skóla?
     2.      Hve margir nemendur greiddu skólagjöldin og hvernig sundurliðast fjöldinn eftir námsleiðum í hverjum skóla?
     3.      Hver voru útgjöld skólanna vegna náms þar sem skólagjöld voru innheimt á síðasta skólaári og hvert var hlutfall skólagjaldanna af útgjöldunum, sundurliðað eftir skólum og námsleiðum?
     4.      Hver var fjárhæð skólagjaldanna á síðasta skólaári vegna náms á sérskólastigi sem hver nemandi þurfti að greiða og hvað var lagt til grundvallar ákvörðun um fjárhæðina, sundurliðað eftir námsleiðum og skólum?


Skriflegt svar óskast.