130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1377 — 909. mál.
Skýrsla
Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál.
(Lögð fyrir Alþingi á 130. löggjafarþingi 2003–2004.)
1. INNGANGUR
Þegar síðasta skýrsla utanríkisráðherra um alþjóðamál var lögð fyrir Alþingi í mars 2002 var ákveðið að skýrsla með svipuðu sniði skyldi lögð fram á tveggja ára fresti í tengslum við umræður um utanríkismál á vorþingi.
Utanríkisráðherra leggur í ræðu sinni á Alþingi 6. apríl 2004 áherslu á helstu stefnumál ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum og viðfangsefni utanríkisþjónustunnar. Í skýrslu þessari er leitast við að veita enn frekari upplýsingar um störf og starfssvið utanríkisþjónustunnar og stöðu mála á alþjóðavettvangi. Af skýrslunni má vera ljóst að umsvif Íslands á alþjóðavettvangi og verkefni á sviði utanríkismála hafa aukist jafnt og þétt á undanförnum árum og áratugum og að sjálfsögðu er skýrslan ekki tæmandi.
Skýrslunni er skipt í þrettán kafla og eru kaflarnir um öryggis- og varnarmál, Evrópumál og málefni Sameinuðu þjóðanna viðamestir, sem endurspeglar á rökréttan hátt áherslur Íslands í utanríkismálum. Í viðaukum, sem eru sex talsins, er að finna upplýsingar um þróunarsamvinnu, starfsmenn utanríkisþjónustunnar, stjórnmálasamband og ræðissamband við erlend ríki, fyrirsvar Íslands gagnvart erlendum ríkjum og fyrirsvar erlendra ríkja gagnvart Íslandi, staðsetningu kjörræðismanna Íslands eftir heimsálfum og loks yfirlit yfir hagnýta veftengla.
2. UTANRÍKISÞJÓNUSTAN
2.1. Sendiskrifstofur.
Almennt má segja að stofnun tvíhliða sendiráða hafi setið á hakanum í þau 40 ár sem liðu frá því að sendiráðið í Bonn var stofnað árið 1955 og þar til sendiráðið í Kína var opnað árið 1995. Þær sendiskrifstofur sem voru stofnaðar á þessu 40 ára tímabili eru allar tilkomnar vegna þátttöku Íslands í störfum alþjóðastofnana og tengsla við þær. Var orðið mjög brýnt að bæta úr þessu og stofna sendiráð í ríkjum þar sem Ísland hefur mikilvægra hagsmuna að gæta.
Stofnun sendiskrifstofa frá 1995 til 2002.
Á tímabilinu frá 1995 til ársins 2000 voru stofnaðar fimm sendiskrifstofur: sendiráð í Peking 1995 og Helsinki 1997, fastanefnd hjá Evrópuráðinu 1997, aðalræðisskrifstofa í Winnipeg 1999 og fastanefnd hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) í Vín 1999. Fastanefndin í Vín er jafnframt fastanefnd hjá stofnunum Sameinuðu þjóðanna þar í borg og sendiráð í Austurríki. Árið 2000 hafði Ísland 17 sendiskrifstofur starfandi í 14 löndum. Á árunum 2000 til 2002 voru þrjú ný sendiráð opnuð, í Tókýó, Mapútó í Mósambík og í Ottawa. Nánari umfjöllun um stofnun sendiskrifstofa á þessu tímabili má finna í yfirlitsskýrslu utanríkisráðherra árið 2002.
Fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og aðalræðisskrifstofa Íslands í New York hafa í áratugi verið reknar sem ein skrifstofa. Vegna fjölgunar starfsmanna og skipulagsbreytinga hjá fastanefndinni í byrjun þessa árs, í kjölfar ákvörðunar um framboð til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, var ákveðið að skilja skrifstofurnar að færa aðalræðisskrifstofuna undan fastanefndinni og gera hana að sjálfstæðri skrifstofu. Í hagkvæmnisskyni eru skrifstofurnar þó báðar enn í sama húsnæði, samnýta aðstöðu og að hluta til starfsmenn.
Sendiskrifstofur.
Alls hefur Ísland nú 20 sendiskrifstofur erlendis. Þar af eru 14 sendiráð í jafnmörgum löndum, en þrjú þeirra, sendiráðin í Brussel, París og Vínarborg gegna jafnframt mjög umfangsmiklum hlutverkum gagnvart alþjóðastofnunum. Þrjár sendiskrifstofur sem eru fyrst og fremst fastanefndir hjá alþjóðastofnunum (fastanefndirnar í New York, Genf og Strassborg) eru einnig sendiráð gagnvart einu eða fleiri ríkjum. Með því að sendiskrifstofur séu bæði tvíhliða sendiráð og fastanefndir hjá alþjóðastofnunum, þar sem því verður við komið, er verið að hagræða og spara í utanríkisþjónustunni.
Þess er gætt að sendiskrifstofur séu ekki stærri en nauðsyn krefur í hverju tilviki og ávallt er reynt að halda kostnaði við sendiskrifstofur í lágmarki, bæði með tilliti til reksturs og starfsmannahalds. Í sendiskrifstofunum í Mapútó og Winnipeg er aðeins einn útsendur starfsmaður, aðrir starfsmenn eru staðarráðnir. Í sendiskrifstofunum í Ottawa, Helsinki og Strassborg eru aðeins tveir útsendir starfsmenn, en þær eru einnig mannaðar með staðarráðnum starfsmönnum og í fastanefndinni í Strassborg er jafnan einn starfsnemi.
2.2. Aðalskrifstofa utanríkisráðuneytisins.
Samhliða fjölgun sendiráða er nauðsynlegt að efla utanríkisráðuneytið. Þegar skýrsla um alþjóðamál kom út árið 2000 voru starfsmenn ráðuneytisins alls 80 talsins. Þörfinni fyrir fleiri starfsmenn á aðalskrifstofu hefur verið mætt með hagræðingu eftir því sem hægt er og voru starfsmenn ráðuneytisins álíka margir árið 2002 og árið 2000. Á tímabilinu frá 2002 til 2004 fjölgar starfsmönnum hins vegar um þrettán og vegur þar þyngst ráðning fjögurra nýrra starfsmanna í tengslum við setu fulltrúa Íslands í stjórn Alþjóðabankans frá 2003 til 2006. Ísland gegnir nú formennsku í Norðurskautsráðinu, sem lýkur á komandi hausti, og hefur það verkefni kallað á ráðningu tveggja starfsmanna. Fjórir starfsmenn hafa verið ráðnir í þýðingamiðstöð ráðuneytisins, einn í tölvudeild, einn í vefumsjón og einn í skjalasafn.
2.3. Fjárveitingar til utanríkisþjónustunnar.
Fjárveitingar til utanríkisþjónustunnar hafa undanfarin ár numið um eða innan við 1% af heildarútgjöldum í A-hluta ríkisreiknings. Framlög til utanríkisþjónustunnar sem hlutfall af vergri landsframleiðslu hafa staðið í stað á milli áranna 1998 og 2003, er 0,31% bæði árin. Árið 2001 sker sig nokkuð úr og er skýringin á því stofnkostnaður vegna sendiráðanna í Ottawa og Tókýó.
Eftirfarandi tafla sýnir annars vegar framlög til utanríkisþjónustunnar sem hlutfall af ríkisútgjöldum í A-hluta, samkvæmt ríkisreikningi (og fjár- og fjáraukalögum fyrir árið 2003 og fjárlögum 2004), og hins vegar framlög til utanríkisþjónustunnar sem hlutfall af vergri landsframleiðslu (tala fyrir 2003 samkvæmt áætlun). Hér er aðeins talinn kostnaður vegna rekstrar- og stofnkostnaðar sendiskrifstofa og aðalskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Kostnaður vegna annarra þátta sem tilheyra utanríkisráðuneytinu, m.a. þróunarmála, friðargæslu og undirstofnana ráðuneytisins á Keflavíkurflugvelli, er hér ekki meðtalinn.
| Framlög til utanríkisþjónustunnar millj. kr. |
% af ríkisútgjöldum |
% af VL | |
| 1998 | 1.746,8 | 0,92 | 0,31 |
| 1999 | 1.627,5 | 0,82 | 0,27 |
| 2000 | 2.771,8 | 1,21 | 0,42 |
| 2001 | 1.901,4 | 0,83 | 0,26 |
| 2002 | 2.263,8 | 0,85 | 0,29 |
| 2003 | 2.465,4 | 0,90 | 0,31 |
| 2004 | 2.364,0 | 0,87 |
Framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna fyrir tímabilið 2009–2010 krefst mikillar vinnu og aukins mannafla í ráðuneytinu og fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. Við frekari uppbyggingu utanríkisþjónustunnar á næstu árum verður að taka fullt tillit til þessara verkefna, þó að þau séu tímabundin.
2.4. Notkun upplýsingatækni í utanríkisþjónustunni.
Utanríkisráðuneytið hefur um árabil byggt á reynslu annarra Norðurlandaþjóða hvað varðar fyrirkomulag og uppbyggingu utanríkisþjónustunnar. Á sviði upplýsingatækni hefur þessu þó að vissu leyti verið öfugt farið og hefur íslenska utanríkisþjónustan verið leiðandi um notkun tölvutækni í starfi sínu.
Utanríkisþjónustan hefur nú um nokkurra ára skeið notað svokallað rafrænt málaskrárkerfi sem tengir alla starfsmenn saman í eitt pappírslaust vinnuumhverfi. Þetta kerfi varðveitir öll skjöl á einum stað og eykur hagræði í vinnu og samskiptum starfsmanna, á milli sendiskrifstofa og í samskiptum þeirra við ráðuneytið. Þetta kerfi er án efa með því fullkomnasta sem gerist meðal utanríkisþjónusta og hið eina sinnar tegundar í notkun á Norðurlöndunum.
Þá hefur ráðuneytið nýlega hafið vinnu við tvö verkefni sem byggjast á þeirri þróun sem orðið hefur á sviði fjarskiptatækni og internets. Er þar annars vegar um að ræða nýtingu internettækni til að tengja alla starfsmenn þjónustunnar saman í eitt símkerfi. Nokkur stofnkostnaður fylgir þessu verkefni en á hinn bóginn lækkar árlegur símakostnaður verulega, þar sem aðeins er greitt fyrir innanbæjarsamtal í Reykjavík þegar hringt er til sendiskrifstofa. Hins vegar er um að ræða uppsetningu fjarfundabúnaðar, sem gerir kleift að halda fundi á milli starfsstaða utanríkisþjónustunnar þar sem fundarmenn sjá hverjir aðra á sjónvarpsskjá. Þessi búnaður hefur þegar skilað ráðuneytinu nokkrum sparnaði með fækkun ferðalaga, auk þess sem með tilkomu hans er hægt að halda allfjölmenna samráðsfundi án fyrirvara og mikils kostnaðar.
2.5. Starfsþjálfun í utanríkisþjónustunni.
Á undanförnum árum hefur utanríkisþjónustan í auknum mæli boðið upp á starfsþjálfun fyrir ungt fólk sem er að hefja starfsferil sinn eða framhaldsmenntun, að loknu B.A.- eða B.S.-námi eða sambærilegu námi. Starfsþjálfunin fer að öllu leyti fram hjá sendiráðum og fastanefndum erlendis og stendur yfir í um sex mánuði. Markmið starfsþjálfunar er að gefa ungu fólki sem er að hefja starfsferil sinn færi á að kynnast störfum utanríkisþjónustunnar. Gert er ráð fyrir að starfsneminn gangi inn í dagleg störf á sendiskrifstofu og verði falin krefjandi verkefni og hefur utanríkisþjónustan því einnig verulegt gagn af þessu fyrirkomulagi.
3. ÖRYGGIS- OG VARNARMÁL
Baráttan gegn hryðjuverkum hefur verið í brennidepli alþjóðamála allt frá hryðjuverkunum í Bandaríkjunum þann 11. september 2001. Ekki má þó gleyma því að á seinni hluta síðustu aldar voru ógnarverk framin af hryðjuverkahópum í Evrópu, t.d. af Rauðu herdeildunum í Þýskalandi og Ítalíu og Írska lýðveldishernum í Bretlandi. Þá er talið að samtök baskneskra aðskilnaðarsinna hafi á síðustu 35 árum myrt meira en 800 manns á Spáni. Hryðjuverk framin af þessum og fleiri hópum beindu kastljósinu að mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu gegn slíkri starfsemi.
Í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum var öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kallað saman. Með ályktun öryggisráðsins nr. 1368 (2001) 12. september 2001 voru hryðjuverkin fordæmd og ríki heims hvött til að vinna saman að því að leita þá uppi sem stóðu á bak við þau og koma lögum yfir þá. Einnig voru ríki hvött til að fullgilda fyrirliggjandi alþjóðasamninga gegn hryðjuverkum og hrinda ákvæðum þeirra í framkvæmd.
Ísland var þegar aðili að meiri hluta alþjóðasamninga gegn hryðjuverkum en lokið var við fullgildingu þeirra samninga sem Ísland var ekki aðili að vorið 2002, þar á meðal alþjóðasamnings um að koma í veg fyrir hryðjuverkasprengingar og alþjóðasamnings um að koma í veg fyrir fjármögnun hryðjuverkastarfsemi. Jafnframt voru viðeigandi ákvæði umræddra samninga innleidd í íslenskan rétt.
3.1. Baráttan gegn hryðjuverkum.
Á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Prag í nóvember 2002 var samþykkt að gera varnir gegn hryðjuverkum að forgangsmáli innan bandalagsins. Þá var einnig samþykkt að hugsanlegar árásir með sýkla-, efna- og geislavopnum væru áþreifanleg og viðvarandi hætta sem öll aðildarríki yrðu að bregðast við. Vegna þessa hefur m.a. verið ákveðið að allt hraðlið Atlantshafsbandalagsins verði útbúið með nauðsynlegum varnarbúnaði gegn hugsanlegri notkun þessara vopna og að starfrækt verði sérstök miðstöð í höfuðstöðvum bandalagsins sem sérhæfi sig í þessum málaflokki. Á sama hátt hefur Ísland skuldbundið sig til að tryggja að íslenskir friðargæsluliðar sem fara til starfa innan vébanda bandalagsins eða ESB kunni að fara með varnarbúnað af því tagi sem önnur aðildarríki hafa. Að auki hafa þau samþykkt að auka eigin viðbúnað, eftirlit og almennar varnir gegn mögulegri notkun þessara vopna og tryggja að viðunandi birgðir mótefna séu til reiðu á hverjum tíma til að vernda líf og heilsu almennings.
Hryðjuverkaárásin í Madrid.
Hryðjuverkaárásin í Madrid 11. mars sl. hefur verið fordæmd af samfélagi þjóðanna. Innan Evrópusambandsins hefur víðtækt samráð átt sér stað með það að markmiði að samræma frekari öryggisaðgerðir til að koma í veg fyrir hryðjuverk, m.a. með stofnun sérstakrar skrifstofu. Atlantshafsbandalagið hefur einnig fordæmt árásina og ákveðið hefur verið að auka flæði trúnaðarupplýsinga milli stofnana bandalagsins og aðildarríkjanna. Jafnframt er búist við jákvæðum viðbrögðum við beiðni grískra stjórnvalda um aðstoð til að tryggja öryggi Ólympíuleikanna sem fram fara í sumar.
Innra öryggi á Íslandi.
Af hálfu utanríkisráðuneytisins er megináhersla lögð á að framfylgja alþjóðlegum stöðlum og öryggiskröfum á Keflavíkurflugvelli með tilliti til farþegaflugs til Bandaríkjanna og innan Evrópu. Fjölgun í sérsveit ríkislögreglustjóra mun efla öryggi á flugvellinum og umhverfis hann. Vopnaleit í farangri og á farþegum, samfara búnaði til gegnumlýsingar á farangri, ásamt hertu öryggiseftirliti í flugstöðinni, á flughlöðum og þjónustusvæði eru allt reglubundnar öryggisráðstafanir sem gripið hefur verið til. Öryggismál á Keflavíkurflugvelli hafa tekið stakkaskiptum í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin í september 2001. Ef þörf krefur má auka allan öryggisviðbúnað á Keflavíkurflugvelli og á varnarsvæðunum með litlum fyrirvara.
Aðgerðir Sameinuðu þjóðanna gegn hryðjuverkum.
Sameinuðu þjóðirnar gegna lykilhlutverki í baráttunni gegn hryðjuverkum og hafa staðið að gerð samtals 12 alþjóðasamninga gegn hryðjuverkum. Ísland hefur fullgilt þá alla.
Ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1373 (2001) um baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi leggur skyldur á ríki sem varða bæði refsinæmi þess að fjármagna hryðjuverkastarfsemi og aðgerðir til þess að stöðva flutning fjármuna til hryðjuverkahópa. Ályktunin er bindandi fyrir Ísland, eins og aðrar ályktanir öryggisráðsins sem samþykktar eru á grundvelli VII. kafla sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Nefnd á vegum öryggisráðsins hefur umsjón og eftirlit með framkvæmd ályktunarinnar í aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna í samstarfi við önnur alþjóðleg og svæðisbundin samtök. Ísland hefur þrívegis skilað skýrslu til nefndarinnar um þær ráðstafanir sem gripið hefur verið til á Íslandi.
Baráttan gegn hryðjuverkum er reglulega til umræðu í öryggisráðinu. Frá því að hryðjuverkin voru framin í New York hefur öryggisráðið með sérstökum ályktunum fordæmt árásir, t.d. í Kakambala í Keníu, Balí, Moskvu, Bagdad, Istanbúl og nú síðast í Madrid.
Ógnin sem stafar af hryðjuverkahópum er jafnframt til umræðu í ýmsum nefndum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Í afvopnunar- og öryggismálanefnd (1. nefnd) hafa aðildarríkin t.d. lagt áherslu á mikilvægi þess að komið verði í veg fyrir að gereyðingarvopn komist í hendur hryðjuverkamanna. Í félags- og mannréttindanefndinni (3. nefnd) hefur verið fjallað um mikilvægi verndunar mannréttinda í baráttunni gegn hryðjuverkum. Í laganefnd allsherjarþingsins (6. nefnd) hefur undanfarin ár verið reynt að ná samkomulagi um gerð alþjóðasamnings gegn hryðjuverkum sem fæli í sér skilgreiningu á hugtakinu. Þótt vel hafi miðað í viðræðum um samningstexta hefur ekki tekist að ná fullu samkomulagi og lýtur ágreiningurinn bæði að gildissviði slíks samnings og skilgreiningu á hugtakinu „hryðjuverk“. Áhugi er á því meðal aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna að boða til alþjóðlegrar ráðstefnu til að fjalla nánar um samstarf í baráttunni gegn hryðjuverkum og skilgreiningu hugtaksins.
Barátta Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) gegn hryðjuverkastarfsemi.
Á vettvangi ÖSE hefur Ísland áréttað mikilvægi starfa stofnunarinnar í baráttunni gegn alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi á grunni samþykktra skjala stofnunarinnar er varða hryðjuverk.
Utanríkisráðherrafundur ÖSE í Maastricht sem haldinn var í desember 2003 tók mikilvægar ákvarðanir til að styrkja og framkvæma stefnu samtakanna, sem áður hafði verið samþykkt í aðgerðaáætlun gegn hryðjuverkum í Búkarest 2001 og áréttuð í yfirlýsingu sem kennd er við Portó árið 2002. Sérstakur vinnuhópur undirbjó tvær ákvarðanir ráðherrafundar ÖSE í Maastricht, annars vegar um aukið öryggi vegabréfa og hins vegar um nýtt samskiptanet stofnunarinnar á sviði hryðjuverkavarna. Vinnuhópurinn var mikilvægur umræðuvettvangur fyrir fastanefndir um starfsemi stofnunarinnar á sviði hryðjuverkavarna. Fastafulltrúi Íslands gegndi formennsku í þessum vinnuhópi ÖSE um framkvæmd skuldbindinga aðildarríkja stofnunarinnar á sviði hryðjuverkavarna. Í kjölfar þessara ákvarðana hefur þegar verið sett á fót samskiptanet, sem mun bæta framkvæmd skuldbindinga, koma í veg fyrir tvíverknað og nýta fjármagn og starfslið á markvissari hátt. Einnig var í mars 2004 haldinn sérfræðingafundur um öryggi vegabréfa í samvinnu við Alþjóðaflugmálastjórnina, en þetta er eitt mikilvægasta atriðið í að gera eftirlit með hugsanlegum hryðjuverkamönnum skilvirkt.
Á ráðherrafundinum í Maastricht var tekin ákvörðun um að efla baráttu stofnunarinnar gegn útbreiðslu léttra eldflauga (Manpads) sem eru alvarleg ógnun gegn öryggi flugvéla og starfsemi flugvalla. ÖSE hefur þegar haft frumkvæði að grunnvinnu í þessum efnum og var haldinn sérstakur fundur sérfræðinga aðildarríkja og ýmissa alþjóðastofnana um hvernig skuli markvisst unnið gegn þessari vá í aðildarríkjum ÖSE. Lögð er áhersla á að aðildarríki stofnunarinnar takmarki útflutning á léttum eldflaugum, auki eftirlit með slíkum vopnum og eyðileggi umframbirgðir af þeim. Einnig má nefna að á vettvangi ÖSE hefur verið samið um skuldbindingar sem miða að því að hefta útbreiðslu og uppræta handvopn. Þetta starf á sér stað innan nefndar ÖSE um öryggismálasamvinnu (FSC).
Í samræmi við tilmæli hryðjuverkanefndar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (CTC) hefur ÖSE tekið frumkvæði að framkvæmd ályktunar öryggisráðsins nr. 1373 um baráttu gegn hryðjuverkum meðal aðildarríkjanna og fá jafnframt aðrar alþjóðastofnanir til samstarfs og samhæfingar verkefna. Liður í þessu ferli var þriðji fundur hryðjuverkanefndar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna með alþjóðastofnunum, sem haldin var í Vín 11.–12. mars sl., undir forsæti ÖSE og skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vín. Vínarskrifstofa Sameinuðu þjóðanna er helsti framkvæmdaaðili samtakanna á sviði hryðjuverkavarna og er þar starfrækt sérstök gagnhryðjuverkadeild.
ÖSE hefur hafist handa við að þróa staðla eða vinnuramma um eftirlit á landamærum m.a. með tilliti til þjálfunar og tækjabúnaðar. Mörg ríki á suðurvæng samtakanna eiga við erfiðleika að stríða í þessum efnum og hefur sérlegur ráðgjafi ÖSE á sviði lögreglumála sinnt þessum verkefnum til þessa. Ef vel tekst til þá mun slíkur stjórnunarrammi þjóna baráttunni gegn hryðjuverkum, mansali og alþjóðlegri glæpastarfsemi. Þetta verkefni er unnið í náinni samvinnu við aðrar alþjóðastofnanir, svo sem Atlantshafsbandalagið, Evrópusambandið og skrifstofu Sameinuðu þjóðanna gegn glæpastarfsemi, sem hefur aðsetur í Vín. Aðildarríkin eru sammála um að mikilvægt sé að nýta stærstu öryggismálasamtök Evrópu, ÖSE, til að skapa pólitískar skuldbindingar um markvissar aðgerðir gegn hryðjuverkavá og koma þannig til móts við ákall hryðjuverkanefndar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um aukið átak alþjóðastofnana og einstakra ríkja á sviði hryðjuverkavarna.
3.2. Atlantshafsbandalagið (NATO).
3.2.1. Þróunin undanfarið ár.
Atlantshafsbandalagið hefur eins og kunnugt er farið í gegnum mjög umfangsmiklar breytingar frá lokum kalda stríðsins og á það ekki hvað síst við um allra síðustu ár. Í reynd eru breytingarnar orðnar svo miklar að menn tala gjarnan um hið nýja Atlantshafsbandalag til að koma því til skila hversu nútíðin er frábrugðin fortíðinni í orði sem og á borði. Atlantshafsbandalagið gegnir áfram því höfuðhlutverki að gæta öryggis aðildarríkja en gegnir því að ýmsu leyti með öðrum hætti en áður í samræmi við mjög breyttan pólitískan veruleika og ógnarmat.
Að formi og uppbyggingu eru þær breytingar helstar að:
a. Aðildarríki eru nú orðin 26 talsins. Hinn 29. mars 2004 bættust sjö ríki í hópinn: Eistland, Lettland, Litháen, Búlgaría, Rúmenía, Slóvenía og Slóvakía. Fleiri ríki hafa lýst áhuga á aðild að Atlantshafsbandalaginu þar á meðal Makedónía, Albanía og Króatía. Öll taka þessi ríki þátt í aðildaráætlun bandalagsins (Membership Action Plan) en hún byggist fyrst og fremst á því að bandalagið gerir mjög miklar kröfur til hugsanlegra aðildarríkja hvað varðar þjóðfélagsþróun, einkum þá er lýtur að þróun lýðræðis og mannréttinda.
b. Innan vébanda bandalagsins hefur um nokkurra ára skeið starfað vettvangur samtals 46 ríkja, Evró-Atlantshafssamstarfsráðið (EAPC). Ráðið myndar rammann utan um samstarf bandalagsins við önnur ríki Evrópu á sviði öryggismála. Aðildarríki ráðsins eiga öll kost á þátttöku í Samstarfi í þágu friðar, samstarfsáætlun sem Atlantshafsbandalagið hleypti af stokkunum fyrir um áratug og hefur reynst mjög vel og er t.d. grunnurinn að þátttöku í heræfingum og almannavarnaæfingum á vegum Atlantshafsbandalagsins sem og samstarfi og þátttöku í friðargæslu á Balkanskaga og í Afganistan.
c. Innan vébanda bandalagsins starfar einnig NATO-Rússlandsráðið (NRC) sem sett var á fót á árinu 2002, en það tók við af samstarfsráði NATO og Rússlands sem stofnað var 1997. Ráðið er samstarfs- og samráðsvettvangur Atlantshafsbandalagsins og Rússlands á sviði öryggismála og fer þar fram umræða um málefni líðandi stundar á pólitíska sviðinu en á vegum ráðsins vinnur einnig nokkur fjöldi vinnuhópa að ýmsum samstarfsverkefnum.
d. NATO-Úkraínu nefndin (NUC) heldur utan um samstarf Úkraínu og Atlantshafsbandalagsins. Samstarfið við Úkraínu, sem hefur lýst áhuga á aðild að Atlantshafsbandalaginu, er álitið það mikilvægt að æskilegt sé að hafa um það sérstakan vettvang.
e. Einhver mikilvægasti samstarfsaðili Atlantshafsbandalagsins er án efa Evrópusambandið. Í árslok 2003 var gert samkomulag um samstarfið sem kveður á um þær leikreglur sem skulu viðhafðar þegar Evrópusambandið tekur að sér aðgerðir á sviði friðargæslu og notar til þess liðsafla og búnað Atlantshafsbandalagsins. Atlantshafsráðið og öryggismálanefnd Evrópusambandsins (Political and Security Committee) hittast reglulega til samráðs til að ræða hin ýmsu mál er varða samstarfið og öryggismál almennt.
f. Á vettvangi Atlantshafsbandalagsins hefur einnig verið haldið uppi samráði og tengslum við Miðjarðarhafsríki (Mediterranean Dialogue) sem ekki eiga aðild að bandalaginu: Alsír, Máritaníu, Marokkó, Túnis, Egyptaland, Jórdaníu og Ísrael.
Ofangreint er sett fram til að varpa ljósi á þá staðreynd hversu víðtækur samstarfsvettvangur Atlantshafsbandalagið er á sviði stjórnmála og öryggismála. Rétt er að hafa í huga að svo til öll aðildarríki Evró-Atlantshafssamstarfsráðsins hafa sendinefndir í höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Brussel árið um kring.
Önnur en nátengd hlið á starfsemi bandalagsins eru aðgerðir þess á sviði friðargæslu á Balkanskaga og í Afganistan.
Atlantshafsbandalagið hefur um 18.500 manna friðargæslulið (KFOR) í Kosóvó-héraði. Héraðið er undir stjórn Sameinuðu þjóðanna en Atlantshafsbandalagið sér um öryggismál í héraðinu í umboði þeirra. Þegar óeirðir brutust þar út í mars 2004 fjölgaði bandalagið í hersveitum í Kosóvó um á þriðja þúsund manns. Í Bosníu og Hersegóvínu er um 11.000 manns í liðsveitum Atlantshafsbandalagsins (SFOR). Stefnt er að því að Evrópusambandið taki við hlutverki Atlantshafsbandalagsins í Bosníu í árslok 2004. Atlantshafsbandalagið mun þó áfram sinna ákveðnum verkefnum í Bosníu. Evrópusambandið tók við friðargæslu af Atlantshafsbandalaginu í Makedóníu haustið 2003, en Atlantshafsbandalagið verður áfram með takmarkaða viðveru í landinu.
Á utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins í Reykjavík í maí 2002 var tekin ákvörðun um að nauðsynlegt væri að mæta og takast á við ógnanir við öryggi aðildarríkjanna, hvaðan sem þær stöfuðu. Í samræmi við þessa ákvörðun sem fól í sér grundvallarbreytingu á afstöðu bandalagsins frá því sem verið hafði tók NATO við stjórn alþjóðlegu öryggissveitanna í Afganistan (ISAF – International Security Assistance Force) í ágúst 2002. Verkefnið náði í fyrstu aðeins til Kabúl og nágrennis. Síðar var ákveðið að breikka verkefnið þannig að tiltölulega litlar sveitir (PRT – Provincial Reconstruction Teams) skyldu staðsettar í dreifbýli, til að stuðla þar að stöðugleika og uppbyggingu. Grundvöllurinn að starfi Atlantshafsbandalagsins í Afganistan eru ákvarðanir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og svonefnt Bonn-samkomulag um endurreisn Afganistans.
Friðargæsluaðgerðir bandalagsins eru þannig mjög viðamiklar, en samtals eru um 36.000 manns á Balkanskaga og í Afganistan. Á þessu ári verður fækkað í herliði NATO á Balkanskaga en fjölgað í Afganistan. Spurningin um friðargæslu á vegum bandalagsins í Írak mun efalítið verða til umræðu þegar líður á árið. Það segir sig sjálft að hin víðtæka friðargæsla á vegum bandalagsins er mjög kostnaðarsöm. Aðeins hluti þess kostnaðar er greiddur úr sameiginlegum sjóðum bandalagsins. Meginreglan er sú að kallað er eftir framlögum aðildarríkja og þau taka að sér ákveðin verkefni á eigin kostnað. Væntingar til þess að aðildarríki taki til hendinni aukast eðlilega eftir því sem verkefnin verða viðameiri.
Ísland hefur lagt fram sinn skerf með þátttöku Íslensku friðargæslunnar á Balkanskaga. Stærsta verkefnið til þessa hefur falist í stjórn flugvallarins í Pristína í Kosóvó, en það verkefni tókust Íslendingar á hendur 1. mars 2003. Ísland mun með hliðstæðum hætti taka við stjórn Kabúl-flugvallar í Afganistan 1. júní 2004. Ísland hefur jafnframt veitt aðstoð við friðargæsluaðgerðir Atlantshafsbandalagsins í formi loftflutninga til Afganistans.
Atlantshafsbandalagið hefur enn fremur stefnt að því að efla hernaðarlegt bolmagn og aðlaga það nýjum tímum. Töluverðar breytingar hafa m.a. verið gerðar á herstjórnarskipulagi bandalagsins. Einnig hefur verið tekin ákvörðun um að setja á stofn sérstaka viðbragðssveit sem hægt er að beita í hernaði með skömmum fyrirvara (NRF – NATO Response Force).
Þegar á heildina er litið hafa orðið mjög umfangsmiklar breytingar á Atlantshafsbandalaginu frá því á tímum kalda stríðsins. Breytingarnar hafa tekið mið af nýjum aðstæðum og beinst að því að bandalagið geti tekist á við ógnir nýrra tíma og þannig haldið áfram að gegna því grundvallarhlutverki að gæta öryggis aðildarríkjanna 26. Bandalagið hefur sýnt það og sannað að það er eina milliríkjastofnunin sem getur tekist á við jafnerfið verkefni og að koma á og viðhalda friði á Balkanskaga. Það verkefni sem Atlantshafsbandalagið hefur tekið að sér í Afganistan er ekki síður vandasamt og viðamikið.
Af ofangreindu má vera ljóst að öll starfsemi bandalagsins hefur tekið miklum stakkaskiptum frá því sem áður var. Þetta kallar m.a. á virkari þátttöku og aukin framlög aðildarríkja.
3.2.2. Tengslin við samstarfsríkin.
Samstarfið við Rússland.
Atlantshafsbandalagið hefur átt formlegt samstarf við Rússland í áratug eða frá 1994 þegar Rússar urðu aðilar að Samstarfi um frið (PfP). Þremur árum síðar, 1997, var grundvallarskjalið um gagnkvæm samskipti, samstarf og öryggi undirritað og samstarfsráð Atlantshafsbandalagsins og Rússlands stofnað (PJC). Það samkomulag tryggði Rússum áheyrn fyrir sjónarmið sín á tilteknum sviðum. Í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september 2001 skapaðist tækifæri til og áhugi á að dýpka samstarfið og á utanríkisráðherrafundi haustið 2001 var samþykkt að kanna möguleika á auknu samstarfi um mál er varða öryggis- og varnarhagsmuni aðildarríkjanna og Rússlands.
Hinn nýi samstarfsvettvangur, NATO-Rússlandsráðið (NRC), var samþykktur á utanríkisráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins í Reykjavík vorið 2002 og staðfestur á leiðtogafundinum í Róm sama ár. Þessi vettvangur er frábrugðinn eldra fyrirkomulagi að því leyti að Rússar sitja nú formlega við borðið til jafns við aðildarríki Atlantshafsbandalagsins.
Meðal málefna sem fjallað er um í samstarfsráðinu má nefna viðbrögð við hryðjuverkum, hættuástandsstjórnun, leiðir til að koma í veg fyrir útbreiðslu gereyðingarvopna, afvopnunarmál, hermálasamstarf, sameiginlegar friðargæsluaðgerðir og samstarf um leit og björgun á sjó. Þau tæp tvö ár sem liðin eru frá undirritun Rómar-yfirlýsingarinnar hefur hagnýtt samstarf eflst til muna, t.d. að því er varðar tíðni funda og fjölda vinnuhópa, sem eru nú alls 17 talsins.
Á sama tíma hefur verið lögð áhersla á að auka hin pólitísku skoðanaskipti um vandamál sem að steðja hverju sinni. Þannig hefur m.a. umræða um málefni Balkanskaga og Afganistans verið á dagskrá og markmiðið er að auka skoðanaskipti af þessu tagi.
Samstarfið við Úkraínu.
Frá því að samstarfssamningur Atlantshafsbandalagsins og Úkraínu var undirritaður árið 1997 hafa stjórnvöld í Úkraínu leitað eftir auknu samstarfi við bandalagið. Þau hafa m.a. lýst yfir áhuga á aðild að bandalaginu og í því skyni leitað eftir þátttöku í aðgerðaáætlun um aðild (MAP – Membership Action Plan). Þátttaka í slíkri áætlun hefur hingað til ekki verið álitin tímabær en ekki útilokuð.
Á ráðherrafundinum í Reykjavík í maí 2002 var ákveðið að gefa tengslunum við Úkraínu aukið vægi með auknu samráði og samstarfi, m.a. á sviði pólitískrar umræðu og á vettvangi efnahags- og varnarmála. Á leiðtogafundinum í Prag haustið 2002 var samstarfið útfært nánar, er verkefnaáætlun NATO–Úkraínu (Action Plan) var samþykkt. Í áætluninni er gert ráð fyrir dýpkun og breikkun samstarfsins. Árlega setja stjórnvöld í Úkraínu fram markmið sín með verkefnáætlun sem samþykkt er af samstarfsráði bandalagsins og Úkraínu.
Framgangur stjórnvalda í Úkraínu samkvæmt verkefnaáætlun hefur verið fremur hægur og metnaðarlaus. Aðildarríki bandalagsins hafa gagnrýnt þá þætti þar sem úrbóta er þörf og ber þar helst að nefna þær hindranir sem ríkja á sviði tjáningarfrelsis. Hefur sú gagnrýni aukist með tilliti til forsetakosninganna í Úkraínu í haust. Ljóst er að grannt verður fylgst með framkvæmd þeirra og niðurstöðum þar sem þær munu endurspegla lýðræðisþróunina í landinu.
Evró-Atlantshafssamstarfsráðið (EAPC).
Í samstarfsáætlun Evró-Atlantshafssamstarfsráðsins (EAPC) 2002–2004 sem samþykkt var á utanríkisráðherrafundi bandalagsins í Reykjavík í maí 2002 er lögð áhersla á samstarf í baráttunni gegn hryðjuverkum og að samráð verði haft um ástandið á Balkanskaga og önnur svæðisbundin öryggismál, svo sem í Suðaustur-Evrópu, á Kákasus-svæðinu og í Mið-Asíu. Einnig er á þessum vettvangi fjallað um stefnumótun Samstarfs í þágu friðar (PfP), friðargæslu, hættuástandsstjórnun, efnahagslegar hliðar varnarmála, vísindasamstarf, umhverfismál, almannavarnir, eftirlit með útbreiðslu léttra handvopna og hreinsun jarðsprengjusvæða.
Samstaða er innan bandalagsins um mikilvægi þessa samstarfs og hefur að undanförnu verið leitast við að koma í veg fyrir að stækkun bandalagsins, nánara samstarf við Rússland og ný verkefni innan bandalagsins dragi úr mikilvægi þess. Með hliðsjón af því voru á leiðtogafundinum í Prag haustið 2002 staðfestar breytingar á samstarfinu og samþykkt að það verði vettvangur fyrir aukið pólitískt og öryggistengt samráð. Enn fremur var samþykkt að tekið skuli meira tillit til sérstakra hagsmuna einstakra ríkja og landsvæða, að verkefni á vettvangi Samstarfs í þágu friðar verði samhæfð og virkari samskipti á hermálasviðinu tryggð.
Með áherslu á hagsmuni einstakra ríkja og svæða varð til nýr rammi innan samstarfsins sem býður upp á aukinn sveigjanleika og sérsniðnar lausnir (Individual Partnership Action Plan (IPAP)). Jafnframt var í Prag samþykkt áætlun um framlag EAPC til baráttunnar gegn hryðjuverkum (PAP-T, Partnership Action Plan against Terrorism) sem m.a. felur í sér aukið samstarf á sviði almannavarna og upplýsingaskipti.
Samstarfsríkin hafa mikilvægu hlutverki að gegna til að tryggja öryggi og stöðugleika á Evró-Atlantshafssvæðinu og leggja nú fram yfir 10% af öllum liðsafla í aðgerðum á vegum Atlantshafsbandalagsins í KFOR, SFOR og ISAF. Áhugi er á að þróa samstarfið frekar og auka umræðu um mikilvæg pólitísk mál og sameiginleg öryggismál.
Miðjarðarhafssamstarfið.
Frá árinu 1994 hefur Atlantshafsbandalagið átt samstarf við nokkur ríki á Miðjarðarhafssvæðinu í því skyni að tryggja betur öryggi á Evró-Atlantshafssvæðinu. Það var m.a. hluti af aðlögun bandalagsins að nýjum aðstæðum í lok kalda stríðsins. Samstarfsríkin eru nú sjö talsins: Alsír, Egyptaland, Ísrael, Jórdanía, Máritanía, Marokkó og Túnis.
Með samstarfinu er stefnt að því að byggja upp traust og efla samskipti á vettvangi öryggismála, m.a. með ráðstefnum og vinnuhópum þar sem fjallað er um viðbrögð við hryðjuverkum, samvinnu á sviði vísinda- og umhverfismála, skipulag almannavarna, hættuástandsstjórnun, landamæraöryggi og umbætur í varnarmálum.
Samstarfið fékk aukið vægi eftir árásina á Bandaríkin 11. september 2001 og árið 2003 var samþykkt að Miðjarðarhafssamstarfið væri eitt af forgangsverkefnum bandalagsins.
Sem liður í þeirri þróun bandalagsins að auka samstarfið við ríki utan bandalagsins er nú til umræðu innan bandalagsins með hvaða hætti unnt sé að auka samstarf við ríki Mið- Austurlanda og þá einnig á mun breiðari landfræðilegum grunni en verið hefur fram til þessa. Ákvarðana um stefnu bandalagsins í þeim efnum er að vænta á leiðtogafundinum í Istanbúl í lok júní 2004.
3.2.3. Stækkun Atlantshafsbandalagsins.
Samhliða inngöngu Póllands, Tékklands og Ungverjalands í Atlantshafsbandalagið á leiðtogafundi bandalagsins, sem haldinn var í Washington D.C. í apríl 1999, ákváðu leiðtogarnir að endurskoða stækkunarferlið á næsta leiðtogafundi sem var ákveðið að haldinn yrði á árinu 2002. Á þeim fundi, sem fram fór í Prag dagana 21. og 22. nóvember, var niðurstaðan sú að bjóða sjö ríkjum, þ.e. Búlgaríu, Eistlandi, Lettlandi, Litháen Rúmeníu. Slóvakíu og Slóveníu, til aðildarviðræðna við bandalagið. Að loknum árangursríkum aðildarviðræðum og samþykki þjóðþinga ríkja bandalagsins, sem og ríkjanna sjö, urðu þau fullgildir aðilar að Atlantshafsbandalaginu þann 29. mars 2004. Á óformlegum utanríkisráðherrafundi bandalagsins, sem haldinn var 2. apríl 2004, var sérstök athöfn í höfuðstöðvunum í Brussel, þar sem ríkin sjö voru boðin velkomin. Leiðtogar bandalagsins munu svo á fundi sínum í Istanbúl í lok júní nk. bjóða nýju aðildarríkin sjö formlega velkomin í hóp aðildarríkja.
Fyrir fundinn í Prag höfðu ríki bandalagsins margítrekað að dyr þess stæðu opnar ríkjum Evrópu, sem óskuðu aðildar og uppfylltu nauðsynleg skilyrði, enda leiddi frekari stækkun til styrkingar bandalagsins sem heildar og eflingar Evrópusamstarfs á sviði öryggis- og varnarmála. Það er þó ljóst að atburðirnir í Bandaríkjunum þann 11. september 2001 hafa haft mikil áhrif á alla forgangsröðun verkefna innan bandalagsins og jafnframt myndað þann hljómgrunn, sem nauðsynlegur var fyrir þessa síðustu og mestu stækkun bandalagsins í 55 ára sögu þess.
Við stofnun Atlantshafsbandalagsins í apríl 1949 gerðust 12 ríki stofnaðilar. Árið 1952 urðu Grikkir og Tyrkir aðilar að Norður-Atlantshafssamningnum, Sambandslýðveldið Þýskaland árið 1955 og Spánn 1982. Síðasta stækkun bandalagsins er hin fimmta í sögu þess og eru aðildarríkin nú orðin 26 talsins.
Líklegt er að heldur verði reynt að hægja á stækkunarferlinu á næstu árum, bæði vegna þess að stækkun um sjö ný ríki, úr 19 í 26, kallar á aðlögun á vinnubrögðum til að tryggja að stækkunin dragi ekki úr núverandi skilvirkni. Til þess ber einnig að líta, að Albanía, Króatía og Makedónía, sem nú eru þátttakendur í aðgerðaáætlun aðildar, eiga nokkuð langt í land með frekari umbætur. Aðgerðaáætlun er ætlað að auðvelda ríkjum hagnýtan undirbúning aðildarumsóknar, m.a. með bættum aðgangi að stofnunum og starfsmönnum bandalagsins. Það sem um er rætt í því sambandi er einkum að styrkja frekar mannréttindi, svo sem réttindi minnihlutahópa, starfsemi dómstóla og löggæslustörf, og að efla baráttuna gegn glæpum og spillingu.
Það er því líklegast, eins og áður er getið, að heldur verði hægt á stækkunarferlinu á leiðtogafundinum í Istanbúl. Þó er næsta víst að bandalagið mun eftir sem áður ítreka þá stefnu sína, að það verði áfram opið öllum lýðræðisríkjum í Evrópu, sem geta stuðlað að framkvæmd markmiða Norður-Atlantshafssamningsins, óháð landfræðilegri legu.
3.2.4. Samstarf Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins í öryggis- og varnarmálum.
Þeir samningar milli Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins um samstarf á sviði öryggis- og varnarmála, sem gerðir voru undir lok ársins 2002 og í upphafi 2003, mynda hinn eiginlega ramma þessa samstarfs, sem nefnt hefur verið Berlín-plús („Berlin+“). Þar er m.a. fjallað um aðgang Evrópusambandsins að tækjum og búnaði bandalagsins þegar ESB er ekki þátttakandi í viðkomandi aðgerð.
Á grundvelli þessa samkomulags og reynslu af hagnýtu samstarfi stofnananna tveggja, eins og t.d. á Balkanskaga, er síðan stefnt að því að efla og þróa samstarfið frekar, s.s. á sviði almannavarna og í baráttunni gegn hryðjuverkum. Mikilvægt er að samstarfið takmarkist ekki við umræður um tæknileg mál heldur að það verði á sem breiðustum grunni. Frekara samstarf á að leiða til þess að efla báðar stofnanirnar, en eftir sem áður er gert ráð fyrir að Atlantshafsbandalagið verði áfram hornsteinn sameiginlegrar öryggis- og varnarmálastefnu aðildarríkjanna.
Í tengslum við undirbúning fyrir leiðtogafund bandalagsins í Istanbúl, sem haldinn verður dagana 28. og 29. júní 2004, hefur sá möguleiki verið ræddur að þar verði samþykkt sérstök yfirlýsing um framtíðarsýn varðandi frekari þróun samstarfsins. Tvennt kæmi til greina í því sambandi, þ.e. að efla samstarfið einungis innan núverandi ramma eða að um leið og núverandi samstarf verði eflt verði það einnig látið ná til fleiri þátta.
Á grundvelli Berlín-plús tók Evrópusambandið við hlutverki Atlantshafsbandalagsins í Makedóníu. Á sama grundvelli er ráðgert að yfirtaka ESB á hlutverki bandalagsins, í tengslum við alþjóðlegu friðargæslusveitirnar í Bosníu og Hersegóvínu (SFOR), fari fram undir lok ársins 2004. Þó engin formleg ákvörðun hafi enn verið tekin um yfirtökuna á SFOR er óformlegur undirbúningur hafinn og stefnt að formlegri ákvörðun á leiðtogafundinum í Istanbúl. Aukin áhersla á frekari þátttöku Atlantshafsbandalagsins í aðgerðum í Afganistan og hugsanlega einnig í Írak hefur orðið til að flýta fyrir yfirtöku Evrópusambandsins á aðgerðum Atlantshafsbandalagsins á Balkanskaga.
3.2.5. Aðgerðir Atlantshafsbandalagsins á Balkanskaga, í Afganistan og á Miðjarðarhafi.
KFOR og SFOR.
Þegar átök brutust út milli Kosóvó-Serba og Kosóvó-Albana í Kosóvó 17. mars sl., sendi Atlantshafsbandalagið þangað liðsafla frá SFOR (Bosníu og Hersegóvínu), Bretlandi, Frakklandi og Ítalíu, auk þess sem þýskar og rúmenskar sveitir voru settar í viðbragðsstöðu. Fyrir voru 18.500 manns í KFOR, en liðsaukinn var miðaður við 2.800 manns. Eftir á að koma í ljós hvaða áhrif síðustu atburðir hafa á áður skipulagða fækkun í KFOR niður í 12 þúsund manns sem stefnt var að á árinu.
Vegna ástandsins í héraðinu þarf KFOR að sinna landamæraeftirliti, beita sér gegn þjóðernisöfgahópum og veita Sameinuðu þjóðunum – UNMIK (United Nations Mission in Kosovo) aðstoð í baráttunni gegn landlægri skipulagðri glæpastarfsemi. KFOR aðstoðar UNMIK einnig í eftirliti með starfsemi verndarsveita Kosóvó (Kosovo Protection Corps – KPC) og almennt við að tryggja að lög og reglur séu virtar í héraðinu.
Stöðugleikasveitirnar (SFOR) hafa verið í Bosníu og Hersegóvínu frá því á árinu 1995. Liðsaflinn er 12 þúsund manns. Aðaláhersla er lögð að á tryggja öruggt umhverfi, auk þess að veita yfirvöldum og lögregluliði Evrópusambandsins aðstoð í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Jafnframt hafa 100 af u.þ.b. 120 eftirlýstum stríðsglæpamönnum í landinu ýmist verið handteknir, þeir felldir eða þeir látist af öðrum ástæðum.
Um mitt þetta ár á liðsafli SFOR að vera kominn úr 10.700 niður í 7.000 manns. Miðað er við að Evrópusambandið taki við af SFOR í árslok og þá verður aðeins fámennt lið bandalagsins eftir í Bosníu og Hersegóvínu, væntanlega m.a. til ráðgjafar við endurskipulagningu og endurbætur á herafla landsins og til að hafa hendur í hári stríðsglæpamanna.
Afganistan.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti 20. desember 2001 að komið yrði á fót alþjóðlegum öryggissveitum í Afganistan (International Security Assistance Force – ISAF) til að tryggja öryggi Kabúl og nágrennis. Bretar tóku að sér forustu sveitanna fyrstu sex mánuðina. Síðan tóku Tyrkir við og þar á eftir Hollendingar og Þjóðverjar í sameiningu. Fastaráð Atlantshafsbandalagsins ákvað 16. apríl 2003 að bandalagið tæki að sér forustu fyrir ISAF og var það gert 11. ágúst sama ár.
Starfsemi sveitanna hefur nær eingöngu takmarkast við Kabúl og nágrenni. Þó hafa Bandaríkjamenn, Bretar og Nýsjálendingar verið með sveitir á nokkrum stöðum utan höfuðborgarinnar til aðstoðar staðbundnum stjórnvöldum við öryggis- og friðargæslu og almenna uppbyggingu (Provincial Restructuring Teams (PRT´s)).
Liðsafli alþjóðlegu öryggissveitanna (International Security Assistance Force – ISAF) í Kabúl er 6.300 manns. Fjölgað verður í liðinu við stækkun umdæmis ISAF út fyrir Kabúl, en öryggisráð Sameinuðu þjóðanna veitti slíkt umboð 14. október 2003. Fyrsta skrefið í stækkun umdæmisins var tekið þegar Atlantshafsbandalagið tók formlega við stjórn endurreisnarliðs (Provincial Reconstruction Team – PRT) í Kundús 6. janúar 2004, en þar er um 240 manna lið frá Þýskalandi. Stefnt er að því að endurreisnarlið undir stjórn bandalagsins verði orðin fimm um mitt næsta sumar og að í hverju þeirra verði um 220 til 250 manns. Hlutverk endurreisnarliða er bæði að tryggja öryggi fulltrúa hjálparstofnana og taka þátt í sjálfu uppbyggingarstarfinu. Með þeim hætti á m.a. að koma á lögum og reglu og tryggja almenningi heilsugæslu, skólagöngu og aðgang að vatni og raforku. Það er nauðsynlegt til að skapa það umhverfi í Afganistan að hægt verði að koma hjólum efnahagslífsins í gang, sem er ein helsta forsenda frekari uppbyggingar og stöðugleika.
Að beiðni Karzai, forseta Afganistans, og Kofi Annan, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, hefur Atlantshafsbandalagið samþykkt að efla viðbúnað ISAF fram yfir þing- og forsetakosningar í landinu í sumar eða haust.
Sérlegur fulltrúi Atlantshafsbandalagsins í Afganistan var skipaður 19. nóvember 2003. Hikmet Cetin, sem áður var utanríkisráðherra Tyrklands, forseti tyrkneska þingsins, auk þess að gegna ýmsum ráðherraembættum, hefur það hlutverk að aðstoða bráðabirgðastjórnina í Afganistan við framkvæmd Bonn-samkomulagsins og samræma samstarf bandalagsins, afganskra stjórnvalda, Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðastofnana sem vinna að uppbyggingu landsins.
Miðjarðarhaf.
Eftirlitsaðgerðir flota Atlantshafsbandalagsins á Miðjarðarhafi (Operation Active Endeavour – OAE) hófust 18. október 2001. Tilgangurinn er að fylgjast með skipaumferð svo koma megi í veg fyrir vopnasmygl og ferðir liðsmanna hryðjuverkahópa, en farið hefur verið um borð í tæplega 50 skip til að kanna farm þeirra. Einnig er skipum veitt fylgd um Gíbraltarsund til að verja þau hugsanlegum hryðjuverkaárásum. Frá upphafi aðgerðanna hafa 420 skip fengið slíka vernd, en alls taka um 2.600 manns þátt í eftirlitsaðgerðunum.
3.2.6. Viðbragðssveitir Atlantshafsbandalagsins (NATO Response Force – NRF).
Bandaríkjamenn kynntu tillögur um stofnun viðbragðssveitanna á óformlegum fundi varnarmálaráðherra bandalagsins í Varsjá 24. september 2002. Aukin varnar-/hernaðargeta bandalagsins mun ráðast töluvert af þeim áhrifum sem NRF er talin koma til með að hafa. NRF tók formlega til starfa 15. október 2003. Sveitirnar eiga að vera að hluta starfhæfar í október 2004 og að fullu árið 2006 og í þeim verður um 21 þúsund manna lið úr flota, flug- og landher aðildarríkjanna. Þátttökuríki skuldbinda sig til að hafa lið til reiðu sex mánuði í senn. Það þýðir í raun ekki að senda þurfi lið á tiltekinn stað til að vera í viðbragðsstöðu. Raunar er frekar um að ræða „liðsafla-pakka“, sem hægt er að grípa til með mjög skömmum fyrirvara, en slíkt á ekki að gera nema í undantekningartilfellum. Gengið er út frá því að stofnun NRF og áætlanir Evrópusambandsins á sviði öryggis- og varnarmála verði til að bæta hvort annað upp, en verði ekki í samkeppni, sem þýðir að ríki sem eiga aðild að báðum stofnununum munu verða með eitt lið fyrir þær báðar. Rétt er þó að benda á að ESB stefnir að því að hafa herlið sem geti leyst af hendi svokölluð Petersberg-verkefni, sem einkum lúta að friðargæslu, en NRF á að vera herlið til að beita í átökum.
Viðbragðssveitunum er ætlað að bregðast við með skjótari hætti en annað lið bandalagsins ef átök brjótast út, hvort sem er innan svæðis bandalagsríkja eða utan, og gildir það um allar hugsanlegar aðgerðir sem nauðsynlegt getur verið að grípa til. Þeim er ætlað að bregðast við með fimm til 30 daga fyrirvara eftir því hvers konar ógn steðjar að. Þær eiga að geta verið án aðfanga í allt að mánuð og vera færar um að ráðast inn á fjandsamlegt landsvæði og undirbúa komu stærra herliðs.
Segja má því að NRF sé bæði ætlað a) til smærri aðgerða, þar sem frekari stuðnings er ekki þörf, og b) sem nokkurs konar undanfaralið. Dæmi um slíkar aðgerðir eru flutningur fólks af hættusvæði, stuðningsaðgerðir vegna mannúðaraðstoðar, friðargæsla og aðgerðir gegn hryðjuverkum.
3.3. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE).
3.3.1. Mannréttindi, lýðræði og átakavarnir.
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu gegnir mikilvægu hlutverki við eflingu öryggis, mannréttinda, lýðræðis og átakavarna í aðildarríkjunum sem eru fimmtíu og fimm talsins. Innan stofnunarinnar fer fram reglubundið samráð á sviði mannréttindamála, lýðræðis, réttinda minnihlutahópa, auk öryggis- og afvopnunarmála. Styrkur ÖSE felst m.a. í því að starf stofnunarinnar að eflingu mannréttinda og lýðræðis fer að miklu leyti fram á vettvangi í aðildarríkjunum. ÖSE starfrækir alls átján sendinefndir í aðildarríkjunum, og hafa þær að meginmarkmiði að vinna með og aðstoða viðkomandi stjórnvöld við styrkingu mannréttinda og lýðræðisþróunar. Þannig beitir stofnunin sér fyrir friðsamlegri lausn deilumála og fyrirbyggjandi aðgerðum, auk þess að afla vitneskju um deilur sem ógnað geta friði í aðildarríkjunum.
Utanríkisráðherrafundur ÖSE í Maastricht í desember 2003 tók mikilvægt skref í þá átt að gera starf stofnunarinnar markvissara. Þar samþykkti ÖSE sérstaka áætlun um viðbrögð við nýjum ógnunum í öryggisumhverfi ríkjanna á nýrri öld. Þar er lögð sérstök áhersla á fyrirbyggjandi starf ÖSE að átakavörnum, eflingu mannréttinda og lýðræðis auk aðgerða til að efla traust í samskiptum ríkja á sviði öryggismála. Með framlagi stofnunarinnar á ofangreindum sviðum, ekki síst með starfi sendinefnda, gegnir ÖSE þýðingarmiklu hlutverki við að tryggja stöðugleika og festa lýðræði í sessi í aðildarríkjunum.
Einnig ber að nefna aðgerðaáætlanir um baráttu stofnunarinnar gegn mansali, gegn hryðjuverkum, baráttu fyrir réttindum Roma-Sinti þjóðernisminnihlutans og loks stefnumörkun á sviði efnahags- og umhverfistengdra öryggismála, sem miðar að því að auka samstarf aðildarríkjanna á sviði umhverfis- og efnahagsmála. Þá hefur ÖSE tekið frumkvæði í að auka pólitískt vægi baráttunnar gegn gyðingahatri, útlendingahræðslu, kynþáttahyggju og öfgakenndri þjóðernishyggju, sem hefur aukist til muna í Evrópu á undanförnum missirum. ÖSE mun standa fyrir þremur stórum ráðstefnum um þessi viðfangsefni á þessu ári.
Almennt má segja að megináherslur Íslands á vettvangi ÖSE séu innan mannréttindastarfs ÖSE og lúti að framlagi stofnunarinnar til eflingar mannréttindum, lýðræði og stöðugleika í aðildarríkjunum. Einnig ber að nefna baráttuna gegn hryðjuverkastarfsemi í þessu sambandi. Ísland hefur jafnframt lagt áherslu á eflingu samstarfs ÖSE og Evrópuráðsins m.t.t. skilvirkni og verkaskiptingar við uppbyggingu lýðræðis og mannréttinda á vettvangi í aðildarríkjunum. Þetta er í fullu samræmi við áhersluatriði á formennskutíma Íslands í ráðherranefnd Evrópuráðsins árið 1999, en frá þeim tíma hefur umtalsverðum árangri verið náð í samstarfi stofnananna sem lýtur að fyrirbyggjandi aðgerðum á sviði mannréttinda, lýðræðis og réttarríkisreglna í aðildarríkjunum.
3.3.2. Verkefni ÖSE á Balkanskaga.
Umfangsmestu verkefni ÖSE á sviði eflingar mannréttinda og lýðræðis felast í uppbyggingarstarfi stofnunarinnar á Balkanskaga. ÖSE starfrækir sendinefndir í Kosóvó, Bosníu og Hersegóvínu, Króatíu, Makedóníu, Serbíu og Svartfjallalandi og að auki í Albaníu. Endurreisn samfélagsins í Kosóvó á grundvelli ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1244 er stærsta verkefnið sem ÖSE hefur tekið að sér. Starfsemi ÖSE á Balkanskaga miðast fyrst og fremst að eflingu mannréttinda og lýðræðisþróunar, réttarríkisreglna og að þjálfun dómara auk aðstoðar við frjálsa fjölmiðla svo að dæmi séu nefnd. ÖSE gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki á sviði kosningaeftirlits. ÖSE hefur einnig tekið virkan þátt í framkvæmd Stöðugleikasáttmálans fyrir Suðaustur-Evrópu (Stability Pact), ekki síst á sviði mannréttinda og lýðræðisuppbyggingar á Balkanskaga.
Um það bil eitt þúsund alþjóðlegir starfsmenn starfa á vegum ÖSE á vettvangi, langflestir á Balkanskaga. Stærstu sendinefndir stofnunarinnar eru starfræktar í Kosóvó, Bosníu og Hersegóvínu, Króatíu og Makedóníu. Hlutverk sendinefnda ÖSE er einkum að starfa með og veita þarlendum stjórnvöldum aðstoð við uppbyggingu lýðræðis og mannréttinda og réttarríkisreglna auk frjálsrar fjölmiðlunar. Í Kosóvó má sérstaklega nefna víðtæka þjálfun lögreglumanna á vegum ÖSE, en stofnunin starfrækir lögregluskóla í Kosóvó. Þetta þjálfunar- og fræðslustarf þykir hafa tekist vel og er mikilvægt framlag til stöðugleika á viðkomandi svæðum. Til marks um árangur er fækkun starfsmanna í stóru sendinefndum ÖSE á svæðinu. Ástand mála í Serbíu og Svartfjallalandi sýnir þó að enn eru alvarleg vandamál, sem bíða úrlausnar á svæðinu.
ÖSE starfrækir einnig minni sendinefndir í Moldóvu, Georgíu, Úkraínu, Hvíta-Rússlandi og Kákasus-ríkjunum og einnig hefur stofnunin viðveru í Mið-Asíuríkjunum fimm: Kasakstan, Kirgisíu, Úsbekistan, Tadsjikistan og Túrkmenistan.
3.3.3. Baráttan gegn mansali.
Áætlað er að á annað hundruð þúsund manns verði fórnarlömb mansals í Suðaustur-Evrópu á hverju ári. Í flestum tilfellum er um að ræða konur og stúlkubörn sem þvingaðar eru til vændis og kynlífsþrælkunar á vegum skipulagðra glæpasamtaka. ÖSE telur baráttuna gegn þessari skipulögðu glæpastarfsemi forgangsverkefni, ekki síst á Balkanskaga, en mansal er iðulega nátengt annarri glæpastarfsemi eins og ólöglegri verslun með vopn, eiturlyfjasmygli og fjármögnun hryðjuverka.
ÖSE hefur með markvissum hætti aukið aðgerðir sínar í baráttunni gegn mansali á undanförnum árum. Á utanríkisráðherrafundi ÖSE í Portó var samþykkt sérstök pólitísk yfirlýsing um eflingu starfsemi stofnunarinnar gegn mansali. Á árinu 2003 var samþykkt sérstök aðgerðaáætlun stofnunarinnar gegn mansali og í kjölfarið var tekin ákvörðun um að setja á fót sérstaka skrifstofueiningu ÖSE í Vínarborg sem eingöngu helgi sig baráttunni gegn mansali í aðildarríkjunum.
Á vettvangi ÖSE hefur Ísland lagt sérstaka áherslu á mannréttindi kvenna og barna, auk baráttunnar gegn mansali. Þessar áherslur Íslands voru áréttaðar af Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra á ráðherrafundi ÖSE í Portó 6.–7. desember 2002. Íslensk stjórnvöld lögðu á árinu 2003 fram fjárframlag sem nam 2,5 millj. kr. til eflingar starfsemi ÖSE gegn mansali í Bosníu og Hersegóvínu. Fyrir þetta fjárframlag var ráðinn innlendur sérfræðingur til sendinefndar ÖSE í Bosníu og Hersegóvínu til tveggja ára. Starf sérfræðingsins er sérstaklega fólgið í aukinni fræðslu og eflingu vitundar almennings um mansal og ofbeldi gegn konum og börnum í Bosníu og Hersegóvínu. Einnig er það hlutverk hans að sinna samskiptum við frjáls félagasamtök á þessu sviði auk skipulagningar aðstoðar við fórnarlömb mansals og að efla eftirfylgni innlendra stjórnvalda vegna landsáætlunar Bosníu og Hersegóvínu gegn mansali.
Þann 19. mars 2004 stóð utanríkisráðuneytið, í samvinnu við dóms- og kirkjumálaráðuneytið, fyrir ráðstefnu um hina alþjóðlegu baráttu gegn mansali. Á ráðstefnunni var lögð sérstök áhersla á aðgerðir ÖSE gegn mansali.
3.3.4. Kosningaeftirlit á vegum ÖSE.
Eftirlit með þing- og sveitarstjórnarkosningum í aðildarríkjunum er mikilvægur þáttur í starfi ÖSE á sviði uppbyggingar lýðræðis og mannréttinda. Árið 2002 sendi Ísland annars vegar fulltrúa í kosningaeftirlit vegna sveitarstjórnarkosninga í Kosóvó-héraði og hins vegar vegna þingkosninga og kosninga til forsætisráðs í Bosníu og Hersegóvínu. Þátttaka Íslands í kosningaeftirliti stofnunarinnar var aukin á síðasta ári og tóku íslenskir fulltrúar þátt í kosningaeftirliti vegna þing- og forsetakosninga í Georgíu, forsetakosninga í Aserbaídsjan, þingkosninga í Rússlandi og forsetakosninga í Rússlandi í mars á þessu ári.
3.4. Utanríkis-, öryggis- og varnarmál Evrópusambandsins (ESB).
Staða Evrópusambandsins í alþjóðastjórnmálum hefur gerbreyst frá stofnun þess, frá því að vera laustengt bandalag helstu iðnríkja Vestur-Evrópu yfir í að vera ríkjasamtök með hnattræna hagsmunagæslu á öllum sviðum. Innan skamms verður Evrópusambandið samband 25 ríkja með 450 milljónir íbúa og fjórðung af vergri þjóðarframleiðslu alls heimsins. Staða Evrópusambandsins á vettvangi alþjóðastjórnmála mun því styrkjast enn frekar á næstu árum, þar sem ESB mun leggja áherslu á að viðhalda þeim gildum sem það stendur fyrir og leggja sjálfstætt mat á alþjóðlegar aðstæður á hverjum tíma.
Þróun utanríkisstefnu Evrópusambandsins (CFSP) og skyldrar öryggis- og varnarmálastefnu þess (ESDP) hefur verið hröð á undanförnum missirum. Gera má ráð fyrir að samráð og samræming aðildarríkja ESB muni hafa verulega svæðisbundna og jafnvel hnattræna þýðingu. Vaxandi stuðningur er innan sambandsins við sameiginlega utanríkis- og varnarmálastefnu og fram undan eru umtalsverðar breytingar á stofnunum Evrópusambandsins sem munu styrkja öryggismálahlutverk þess. Þar ber fyrst að nefna væntanlegt nýtt embætti sambandsráðherra utanríkismála, en einnig mun nýtt embætti forseta leiðtogaráðsins fá umtalsvert hlutverk í utanríkismálum, ef það verður samþykkt.
Ísland hefur átt náin pólitísk samskipti við Evrópusambandið frá stofnun þess, bæði á vettvangi ýmissa alþjóðastofnana og milliríkjasamninga sem og í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Utanríkis-, öryggis- og varnarmálastefna ESB hefur skipað þar mikilvægan sess, en þó er rétt að hafa í huga að pólitísk samskipti við ESB eru mun víðtækari. Samráð um ýmis öryggismál á sviði innanríkismála fer vaxandi og hið sama á við um alþjóðlegt samráð um viðskiptamál, umhverfismál, auðlindamál, sjálfbæra þróun, mannréttindamál og hnattvæðingu, svo nokkur dæmi séu nefnd.
3.4.1. Sameiginleg utanríkisstefna (CFSP).
Með lokum kalda stríðsins sköpuðust forsendur innan Evrópusambandsins til að móta sameiginlega stefnu í utanríkis- og öryggismálum (CFSP). Formleg ákvörðun um að taka upp sameiginlega utanríkis- og öryggismálastefnu var tekin á Maastrichtfundinum 1992. Fimm árum síðar, árið 1997, var í Amsterdam ákveðið að stofna til sameiginlegrar varnarmálastefnu (ESDP), sem síðar meir gæti leitt til sameiginlegra varna Evrópusambandsins. Breyttir tímar og aðstæður á Balkanskaga voru þess eðlis að Evrópusambandið lét öryggismál meira til sín taka en áður. Öryggis- og varnarmálasamstarf sambandsins fékk síðan á sig endanlega mynd á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Nice í árslok 2000 og varð þar með mikilvægur þáttur í hinni sameiginlegu utanríkisstefnu þess. Í kjölfar Nice-fundarins var nýjum öryggismálastofnunum ESB, þ.e. stjórnmála- og öryggismálanefnd, hermálanefnd og hermálastarfsliði, komið á fót og hafa þær síðan starfað að samþættingu utanríkis- og öryggismála og forgangsröðun verkefna.
Í fyrstu beindist sameiginleg utanríkisstefna ESB að því að samræma afstöðu aðildarríkjanna til hinna ýmsu mála á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þessi samræming kom til viðbótar við utanríkismálaverkefni sem þegar voru á ábyrgð framkvæmdastjórnarinnar, þ.e. alþjóðlegir viðskiptasamningar, þróunaraðstoð og rekstur sendiskrifstofa í um 120 ríkjum og alþjóðastofnunum. Samræming í utanríkis- og öryggismálum var efld með ákvæði Amsterdam- samningsins um nýtt embætti háttsetts fulltrúa ESB í utanríkis- og varnarmálum. Val Javier Solana, fyrrverandi framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins og utanríkisráðherra Spánar, til starfsins sýndi sterkan vilja sambandsins til aukinnar samræmingar og samheldni í utanríkismálum. Jafnframt var starfslið ESB í utanríkis- og öryggismálum eflt og komið á fót háttsettri embættismannanefnd ESB um utanríkis- og öryggismál. Nefndina sitja sérskipaðir sendiherrar aðildarríkjanna í utanríkis- og öryggismálum sem hafa aðsetur í Brussel.
Ágreiningurinn um Írak jók enn sannfæringu innan sambandsins um að þörf væri á sameiginlegri sýn ESB í utanríkis- og öryggismálum og að efla þyrfti enn betur stofnanaramma sambandsins á sviði utanríkismála. Á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Brussel 12. desember 2003 var samþykkt fyrsta heildarstefnumörkun sambandsins í alþjóðamálum þar sem Evrópusambandið leggur sjálfstætt mat á ástand heimsmála og skilgreinir framtíðaráherslur. („A Secure Europe in a Better World: European Security Strategy“ Brussels, 12 December 2003 (http://ue.eu.int/pressdata/EN/reports/78367.pdf).) Leiðtogum sambandsins auðnaðist hins vegar ekki að ná endanlegu samkomulagi um fyrirliggjandi drög að stjórnarskrársáttmála, en samkomulag lá fyrir um þann þátt stjórnarskrársáttmálans sem fjallar um sameiginlega utanríkis- og varnarmálastefnu sambandsins (texta stjórnarskrársáttmálans er að finna á eftirfarandi slóð: ue.eu.int/igc/index.asp?lang=EN). Í fyrirliggjandi samkomulagi um utanríkis- og öryggismálakafla stjórnarskrárdraganna er einkum tvennt sem er mikilsvert fyrir framtíðarþróun hinnar sameiginlegu utanríkisstefnu ESB. Annars vegar er það embætti forseta leiðtogaráðs ESB sem jafnframt er falið að koma fram fyrir hönd ESB í utanríkismálum. Þessi ráðstöfun kynni að stuðla að aukinni aðkomu leiðtogaráðsins að utanríkismálum. Hins vegar er það stofnun embættis sambandsráðherra utanríkismála. Hlutverk hans er að stýra fundum utanríkisráðsins og framfylgja sameiginlegri utanríkis- og öryggismálastefnu sambandsins. Þá er sambandsráðherra utanríkismála ætlað að leggja sitt af mörkum við þróun utanríkisstefnu sambandsins sem og varnarmálastefnu þess.
3.4.2. Sameiginleg varnarmálastefna (ESDP).
Lengst af hefur sameiginleg varnarmálastefna ESB beinst að uppbyggingu sameiginlegs viðbragðsliðs og getu til að takast á við friðargæsluverkefni. Markmið ESB er að hafa á að skipa 60 þúsund manna herliði í svokölluð Petersberg-verkefni, þ.e. friðaraðgerðir og aðgerðir á sviði mannúðarmála og neyðaraðstoðar (þar á meðal björgunaraðgerðir). Það var með hliðsjón af árangri í þessu starfi sem ESB ákvað að yfirtaka verkefni alþjóðalögreglusveita Sameinuðu þjóðanna í Bosníu og Hersegóvínu (IPTF) í ársbyrjun 2003 og jafnframt að taka yfir eftirlitsaðgerð Atlantshafsbandalagsins í Makedóníu vorið 2003, sem í desember sl. var breytt í lögregluaðgerð. Þá tók ESB að sér friðargæslu í Kongó að beiðni Sameinuðu þjóðanna og stendur vilji sambandsins til að taka við friðargæslu NATO í Bosníu (SFOR) á þessu ári.
Á undanförnum missirum hefur umræða um hvernig efla megi sameiginlega öryggis- og varnarmálastefnu ESB verið fyrirferðarmikil. Þessi umræða hefur ekki síst átt sér stað í kringum undirbúning stjórnarskrársáttmála fyrir Evrópusambandið. Í fyrirliggjandi drögum að stjórnarskrársáttmála eru ákvæði sem gefa ESB kost á að efla umtalsvert varnarmálasamstarf þess. Rétt er að taka fram að textinn felur ekki í sér bein ákvæði um sameiginlegar varnarskuldbindingar. Hann hefur hins vegar að geyma önnur ákvæði sem stuðla skulu að uppbyggingu sameiginlegrar varnarstefnu. Þar á meðal er samstöðuákvæði, sem kveður á um hernaðarlega samstöðu, ef eitt aðildarríkjanna verður fyrir hryðjuverkaárás, náttúruhamförum eða hamförum af mannavöldum. Jafnframt heimilar textinn leiðtogaráðinu að taka ákvörðun um sameiginlegar varnir, en þangað til geti ákveðinn hópur innan sambandsins stofnað til nánari samvinnu sín í milli á sviði varnarmála. Petersberg-markmiðin eru útfærð nánar þannig að auk friðargæslu, aðgerða til að koma á friði og stuðnings við mannúðaraðgerðir er talað um sameiginlegar afvopnunaraðgerðir, hernaðarráðgjöf og stöðugleikaaðgerðir eftir átök. Loks er kveðið á um stofnun sérstakrar varnarmálastofnunar til að stuðla að uppbyggingu hernaðarbolmagns.
3.4.3. Þátttaka samstarfsríkja.
Íslensk stjórnvöld hafa takmarkaða möguleika til áhrifa á sameiginleg utanríkis- eða varnarmál ESB en hafa reynt af fremsta megni að fylgjast með þessari þróun og haldið fram íslenskum hagsmunum og sjónarmiðum þegar tækifæri hafa gefist til.
Á grundvelli EES-samningsins býðst Íslandi að lýsa stuðningi við afstöðu ESB í einstökum utanríkismálum og í flestum tilvikum er fullt samræmi þar á milli, enda yfirleitt um svipuð gildi og hagsmuni að ræða. Utanríkisráðherra á pólitísk skoðanaskipti við Evrópusambandið tvisvar á ári og EES/EFTA-ríkjunum er boðið á samráðsfundi sérfræðinga um einstök utanríkismál nokkrum sinnum á ári.
Um leið og nýjar öryggismálastofnanir ESB voru formfestar á leiðtogafundinum í Nice voru jafnframt teknar ákvarðanir um þátttökurétt umsóknarríkja og evrópskra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins utan ESB. Þær fólust m.a. í því að gert er ráð fyrir reglulegum fundum ráðherra og embættismanna í svonefndum 15+15 og 15+6 hópum. Auk þess gafst ofangreindum samstarfsríkjum kostur á að tilnefna tengiliði gagnvart hermálanefndinni og hermálastarfsliðinu og að leggja af mörkum til framkvæmdar fyrrnefnds meginmarkmiðs ESB. Af Íslands hálfu hafa viðeigandi fundir verið sóttir, tillögur verið gerðar um tilhögun samstarfs og framlagi heitið til meginmarkmiðsins, en eiginleg pólitísk skoðanaskipti um mótun og framkvæmd öryggis- og varnarmálastefnunnar hafa verið af skornum skammti. Með aðild umsóknarríkjanna að ESB hefur þetta samráð breyst í 25+5, þar sem ráðherrum og embættismönnum frá Íslandi, Noregi, Tyrklandi, Búlgaríu og Rúmeníu er boðið á stutta upplýsingafundi um varnarmál nokkrum sinnum á ári. Auk þess á Ísland aðild að reglubundnu samráði ESB og NATO.
Stefna Evrópusambandsins hefur verið að bjóða öðrum ríkjum að taka þátt í friðargæsluverkefnum sem það tekur að sér. Á þetta einkum við um evrópsku NATO-ríkin sem ekki eru í ESB, en einnig hefur Bandaríkjunum, Kanada, Sviss og Rússlandi verið boðin þátttaka. Ísland tók þátt í tveimur fyrstu friðargæsluverkefnum sambandsins, þ.e. lögregluaðgerðinni í Bosníu og Hersegovínu og friðargæslunni í Makedóníu. Þá hefur Ísland lýst yfir áhuga á þátttöku, taki ESB við friðargæslu NATO í Bosníu.
3.5. Afvopnunarmál.
3.5.1. Vettvangur umræðna um afvopnunarmál.
Afvopnunarráðstefnan í Genf (Conference on Disarmament, CD) er meginvettvangur umræðna um afvopnunarmál og vígbúnaðareftirlit, ásamt allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Umræðan um afvopnunar- og öryggismál í 1. nefnd á 57. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna haustið 2003 einkenndist mjög af áherslum Bandaríkjamanna á endurskoðun starfshátta nefndarinnar. Vestræn ríki voru meðal þeirra sem studdu þann málflutning. Í almennri umræðu nefndarinnar lagði fastafulltrúi Íslands áherslu á að breytinga væri þörf og nefndi hann t.d. möguleika á fækkun ályktana sem árlega koma til umfjöllunar, en þær eru flestar lítið breyttar frá ári til árs. Samþykkt var samhljóða á þinginu að fela aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna að taka saman skýrslu um hvernig aðildarríkin telja að hægt sé að gera starf nefndarinnar árangursríkara. Umræður í 1. nefnd allsherjarþingsins hafa enn fremur endurspeglað áhyggjur af útbreiðslu gereyðingarvopna, einkum að hryðjuverkamenn eða ríki þeim vinveitt komist yfir slík vopn.
Frá því afvopnunarráðstefnan náði samkomulagi um efnavopnasamninginn árið 1993 og samninginn um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn árið 1996, hefur ekki tekist að ná samkomulagi um dagskrá hennar og gerð nýrra afvopnunarsamninga. Dagskrá ráðstefnunnar er háð samhljóða samkomulagi aðildarríkjanna, sem eru nú 66 að tölu.
3.5.2. Helstu fjölþjóðasamningar um afvopnunarmál.
Samningurinn um að hefta útbreiðslu kjarnavopna, NPT.
Annar undirbúningsfundur vegna fyrirhugaðrar endurskoðunarráðstefnu 2005 um samninginn um að hefta útbreiðslu kjarnavopna (Non-Proliferation Treaty – NPT), sem gekk í gildi 1970, fór fram í Genf 28. apríl – 9. maí 2003. Í yfirlýsingum margra ríkja komu fram áhyggjur af aukinni hættu á útbreiðslu kjarnavopna og annarra gereyðingarvopna, ekki síst að hryðjuverkamenn gætu fengið þau í hendur með áður óþekktum og ógnvænlegum afleiðingum. Næsti undirbúningsfundur verður í New York í lok apríl 2004.
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin í Vín (IAEA) hefur eftirlit með framkvæmd samningsins með stoð í svonefndum heildarsamningi um öryggisráðstafanir og viðbótarbókun við hann (Model Additional Protocol) við hvert einstakt aðildarríki. Í september 2003 undirritaði Ísland viðbótarbókunina við heildarsamninginn um öryggisráðstafanir, en viðbótarbókunin heimilar strangara eftirlit stofnunarinnar á vettvangi. Eftirlitshlutverk Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar hefur að undanförnu fengið stóraukið vægi ekki síst vegna vanefnda ríkja á borð við Íran og Norður-Kóreu á skuldbindingum sínum gagnvart stofnuninni. Unnið er að því að ná samningum við stjórnvöld í Norður-Kóreu í svonefndum sex ríkja viðræðum (Bandaríkin, Kína, Japan, Rússland, Suður-Kórea og Norður-Kórea).
Upplýsingar um kjarnavopnaáætlun Íran eru sérstakt áhyggjuefni. Íran hefur ekki sýnt stofnuninni fullan samstarfsvilja um eftirlit með þessari áætlun og er ekki ljóst hver endanleg niðurstaða verður. Íran hefur verið gefinn frestur til loka maí 2004 að gera grein fyrir stöðu mála og áætlunum sínum. Hins vegar hefur einnig átt sér stað jákvæð þróun, því Líbía játaði í lok desember 2003 að hafa með leynd unnið að því að koma sér upp kjarnavopnum, en hefur nú samþykkt eftirlit Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar. Leyndar kjarnorkuáætlanir Líbíu og Íran svipta hulunni af svartamarkaðsbraski með kjarnavopnaþekkingu og -tækni og er ljóst að hér er um vandamál að ræða sem endurskoðunarráðstefna samningsins á næsta ári verður að taka á.
Samtals eru 188 ríki aðilar að samningnum um að hefta útbreiðslu kjarnavopna. Nýlega hafa Afganistan, Austur-Tímor og Kúba gerst aðilar að honum. Samkvæmt samningnum teljast fimm ríki ráða yfir kjarnavopnum: Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Kína og Rússland. Hins vegar eru a.m.k. þrjú önnur ríki sem örugglega ættu að teljast í þessum flokki, en þau eru Indland, Pakistan og Ísrael. Ekkert þeirra þriggja eru aðilar að NPT-samningnum. Frekari takmörkun á útbreiðslu kjarnavopna er háð því að öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna gerist aðilar að samningnum og virði að fullu ákvæði hans um að koma sér ekki upp kjarnavopnum. Hin yfirlýsta stefna kjarnorkuveldanna að útrýma kjarnavopnum að fullu er mikilvæg fyrir þróun samningsins og áframhaldandi kjarnorkuafvopnun.
ABM-samningurinn.
Þann 13. júní 2002 tók gildi uppsögn Bandaríkjamanna á tvíhliða samningi við Rússland um almennt bann við uppsetningu gagneldflauga gegn langdrægum eldflaugum (Treaty on the Limitation of Anti-Ballistic Missile Systems – ABM).
Að mati bandarískra stjórnvalda var samningurinn leifar frá kaldastríðsárunum og stóð að þeirra mati í vegi fyrir tilraunum með uppsetningu gagneldflaugakerfis. Rússnesk stjórnvöld höfðu verið mótfallin öllum breytingum á samningnum en lýstu sig síðar reiðubúin til breytinga en án árangurs. Rússum var í mun að halda í meginstoðir hans, annars vegar takmörkun á fjölda gagneldflauga og hins vegar bann við vígbúnaði í himingeimi. Bandarísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir að segja upp ABM-samningnum þar sem það kunni að leiða til nýs vígbúnaðarkapphlaups.
Á sama tíma halda bandarísk stjórnvöld áfram að efla eigin eldflaugavarnir m.a. með tilraunastarfsemi yfir Kyrrahafi. Fjölmörgum Evrópuríkjum hefur verið boðið að taka þátt í þessari undirbúningsvinnu og er stefnt að því að varnarkerfið nái til allra bandamanna þegar fram líða stundir. Fyrir árið 2005 er gert ráð fyrir fjárveitingu rúmlega 9 milljarða bandaríkjadala til að standa straum af tilraunum og útbyggingu fyrsta hluta eldflaugavarnarkerfisins í Alaska.
Í mars 2003 var undirritaður í Moskvu samningur milli Rússlands og Bandaríkjanna sem kveður á um að hvort ríki fækki kjarnaoddum sínum í 1.700–2.200 á næstu tíu árum og gangi þannig mun lengra en gert var ráð fyrir að samið yrði um í SALT III samningnum. Samningurinn hefur verið staðfestur af löggjafarþingum beggja ríkja. Þessi samningur kveður ekki á um upprætingu þessara vopnakerfa, en samkvæmt honum þarf einungis að taka þau úr notkun. Ekki er heldur komið upp eftirlitskerfi með framkvæmd samningsins.
Samningur um baráttu gegn ólöglegri verslun með handvopn.
Á alþjóðaráðstefnu um baráttu gegn ólöglegri verslun með handvopn (United Nations Conference on the Illicit Trade in Small Arms and Light Weapons in All Its Aspects), sem fram fór í New York í júlí 2001, var fyrsta skrefið stigið í aðgerðum til að stemma stigu við þeirri vá og þeim óstöðugleika sem ólögleg handvopn hafa víða skapað. Skýr tengsl eru oft milli ólöglegrar vopnasölu annars vegar og hryðjuverka og skipulagðrar glæpastarfsemi hins vegar.
Framkvæmdaáætlun sem samþykkt var á ráðstefnunni skapar skilyrði fyrir bæði alþjóðlega og svæðisbundna samvinnu gegn ólöglegri verslun með handvopn sem gæti síðar leitt til bindandi alþjóðlegra samninga á þessu sviði. Á grundvelli framkvæmdaáætlunarinnar hefur allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkt að stofna starfshóp sem á að hafa að markmiði að semja alþjóðasamning sem auðvelda á ríkjum að bera kennsl á og komast á spor ólöglegra handvopna. Starfshópurinn mun hefja störf í júní 2004.
Samkvæmt ákvæðum framkvæmdaáætlunarinnar á að kalla saman endurskoðunarráðstefnu eigi síðar en 2006 til þess að meta árangur þeirra aðgerða sem samkomulag náðist um.
Samningurinn um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn (CTBT).
Samningurinn um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn (Comprehensive Test Ban Treaty – CTBT) er einn af merkari samningum í sögu afvopnunar, en hann kveður á um algert bann við hvers kyns tilraunakjarnasprengjum er tengjast þróun kjarnavopna. Samningurinn var lagður fram til undirritunar 24. september 1996. Nú hafa 170 ríki undirritað samninginn og 109 ríki fullgilt hann. Ísland staðfesti samninginn þann 26. júní 2000. Mikilvægi samningsins liggur fyrst og fremst í því að samkvæmt honum er kjarnavopnaríkjum bannað að framkvæma tilraunasprengingar með kjarnavopn jafnframt því sem hann hindrar ríki, sem ekki hafa yfir kjarnavopnum að ráða, að þróa slík vopn með aðstoð tilraunasprenginga. Hann takmarkar því þróun og endurbætur eldri kjarnavopna, kemur í veg fyrir þróun nýrra tegunda vopna og stuðlar þannig að því að markmiðið um útrýmingu kjarnavopna náist. Samningurinn hefur þá sérstöðu að í II. viðauka eru tilgreind 44 ríki, sem verða að fullgilda samninginn áður en hann getur tekið gildi, en það eru þau ríki sem hafa yfir kjarnavopnum eða kjarnaofnum að ráða. Til þessa hafa 32 af umræddum 44 ríkjum fullgilt samninginn, þ.m.t. Rússland, Bretland og Frakkland. Samningurinn gengur ekki í gildi fyrr en eftirfarandi ríki hafa einnig fullgilt hann: Bandaríkin, Kína, Kólumbía, Kongó, Egyptaland, Indland, Indónesía, Íran, Ísrael, Norður-Kórea, Pakistan og Víetnam.
Samningurinn kveður á um að sett verði á laggirnar alþjóðastofnun, Comprehensive Test Ban Treaty Organization (CTBTO), til að annast framkvæmd samningsins, en þar sem hann hefur ekki tekið gildi var komið á fót sérstakri undirbúningsnefnd (Preparatory Commission) í Vínarborg til að vinna að undirbúningi á staðfestingu samningsins. Meginverkefni undirbúningsnefndarinnar hefur verið að þróa alþjóðlegt eftirlitskerfi, sem byggist á neti um 340 eftirlitsstöðva, en slíkt eftirlitskerfi þarf að vera til staðar um leið og samningurinn tekur gildi. Tvær slíkar stöðvar eru á Íslandi, önnur til að mæla jarðhræringar og hin til að mæla geislavirkni. Stöðvarnar eru í Borgarfirði og í Reykjavík og hafa Geislavarnir ríkisins og Veðurstofa Íslands faglega umsjón með þeim. Einnig má nefna að íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Kögun hf. hefur unnið hugbúnað fyrir stofnunina. Á vegum CTBTO er enn fremur verið að þróa eftirlitskerfi, sem fæli í sér eftirlit og skoðun á vettvangi, ef grunsemdir vakna um brot á samningnum.
Í kjölfar alþjóðaráðstefnu sem haldin var í október 1999 í Vín til að hraða endanlegri gildistöku samningsins hafnaði bandaríska öldungadeildin samningnum, þrátt fyrir mikla áherslu Clintons, þáverandi forseta Bandaríkjanna, á framgang málsins. Í nóvember 2001 og september 2003 voru haldnar slíkar alþjóðaráðstefnur til að þrýsta á um fulla gildistöku samningsins, en því miður miðar hægt í þeim efnum. Það er samhljóða álit í fastaráði samningsins í Vínarborg að forsenda þess að samningurinn taki gildi sé staðfesting Bandaríkjanna, enda voru þau í fararbroddi þeirra ríkja sem beittu sér fyrir gerð samningsins og hafa enn fremur ekki gert tilraunir með kjarnavopn síðan 1992. Bandaríkin voru eitt af fyrstu ríkjunum til að skrifa undir samninginn 1996 en hafa nú lýst því yfir að þau muni ekki fullgilda hann að svo stöddu. Í framhaldi af því sóttu Bandaríkin ekki alþjóðaráðstefnuna sem Sameinuðu þjóðirnar stóðu fyrir í New York í nóvember 2001.
Samningurinn um opna lofthelgi (Open Skies).
Samningurinn um opna lofthelgi (Open skies), sem fellur undir Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, gekk í gildi 1. janúar 2002 en þá höfðu bæði Rússland og Hvíta-Rússland afhent vörsluríkjum samningsins fullgildingarskjöl sín. Þar með lauk langri biðstöðu, frá 24. mars 1992 þegar samningurinn var undirritaður. Samningurinn felur í sér að núverandi aðildarríki, 28 að tölu, geta á grundvelli tiltekins kvóta flogið eftirlitsflugvélum til hernaðarlegs eftirlits yfir landsvæði annars aðildarríkis. Samkvæmt samningnum má einnig beita flugvélunum til aðgerða til að forða átökum og til stjórnunar á hættutímum. Eftirlitsflugið getur einnig komið að gagni í öðrum tilgangi, svo sem vegna umhverfisverndar. Öll aðildarríkin hafa aðgang að þeim gögnum sem aflað er með eftirlitsfluginu og er samningurinn því ein af stoðum hins víðfeðma kerfis ÖSE um traustvekjandi aðgerðir. Á undanförnum árum hefur verið unnið mikið verk við að þróa eftirlitið með tilraunaflugi. Aðildarríki samningsins um opna lofthelgi funda reglulega í Vín og verður haldin sérstök endurskoðunarráðstefna um framkvæmd samningsins á næsta ári.
Samningurinn um hefðbundin vopn í Evrópu (CFE).
Framkvæmd samningsins um hefðbundin vopn í Evrópu hefur gengið mjög vel og fækkunarmörkum náð varðandi þær fimm tegundir vígbúnaðar sem samningurinn tekur til: skriðdreka, brynvarinna ökutækja, stórskotaliðsvopna, herþotna og árásarþyrlna. Í sumum tilvikum hefur jafnvel orðið fækkun umfram samningsskyldur en á móti skortir nokkuð á framkvæmd samningsins hvað varðar sérstakar svæðistakmarkanir. Á leiðtogafundi ÖSE í Istanbúl 18.–19. nóvember 1999 var gengið frá samkomulagi um aðlögun samningsins að breyttum aðstæðum. Ljóst er að breyttur samningur mun tryggja öryggi og stöðugleika í Evrópu með verulega minni vopnabúnaði. Sérstök samráðsnefnd (Joint Consultative Group) starfar í Vínarborg og hefur yfirumsjón með framkvæmd samningsins um hefðbundin vopn í Evrópu.
Efnavopnasamningurinn (CWC)
Efnavopnasamningurinn (Chemical Weapons Convention, CWC) sem gekk í gildi 29. apríl 1997 kveður á um algert bann við framleiðslu og notkun efnavopna. Þau aðildarríki efnavopnasamningsins sem búa yfir efnavopnum skulu hafa lokið eyðingu þeirra tíu árum eftir gildistöku samningsins, eða fyrir lok apríl 2007 en þó með mögulegri framlengingu til 2012. Samningurinn mælir einnig fyrir um eyðileggingu tækja og tæknibúnaðar til framleiðslu efnavopna. Efnavopnasamningurinn bannar enn fremur öðrum ríkjum að afla sér þessara vopna. Framkvæmd samningsins hefur gengið hægar en gert var ráð fyrir við gildistöku hans, sem er áhyggjuefni, einkum vegna þess að ýmis efnavopn eru bæði auðveld og ódýr í framleiðslu og gætu enn komist í hendur hryðjuverkamanna. Í samningnum eru mikilvæg eftirlitsákvæði en eftirlit með framkvæmd hans er í höndum Efnavopnastofnunarinnar sem tók formlega til starfa 1997 og hefur aðsetur í Haag. Aðildarríki samningsins eru nú 161 og hafa 21 ríki til viðbótar undirritað en ekki fullgilt hann. Ísland gerðist aðili að efnavopnasamningnum daginn fyrir gildistöku hans, eða 28. apríl 1997.
Fyrsta endurskoðunarráðstefna samningsins var haldin í Haag frá 28. apríl til 9. maí 2003 þar sem samþykkt var samhljóða pólitísk yfirlýsing aðildarríkja. Áttundi fundur aðildarríkja var haldinn í Haag í október 2003.
Lífefnavopnasamningurinn (BWC).
Fimmta endurskoðunarráðstefna lífefnavopnasamningsins (Convention on the Prohibition of the Development, Production and Stockpiling of Bacteriological and Toxin Weapons and on their Destruction, BWC) hófst í Genf í nóvember 2001, var frestað um ár og var framhaldið í Genf í nóvember 2002. Samningurinn bannar framleiðslu og notkun lífrænna vopna og gekk hann í gildi árið 1975. Nú eiga 146 ríki aðild að samningnum. Sautján ríki til viðbótar hafa undirritað en ekki fullgilt hann. Ísland gerðist aðili að lífefnavopnasamningnum 15. febrúar 1973.
Í lokaskjali fimmtu endurskoðunarráðstefnunnar er ákvörðun um að halda fundi aðildarríkja árlega næstu þrjú árin og skal síðan halda sjöttu endurskoðunarráðstefnu samningsins eigi síðar en árið 2006. Í samræmi við framangreint var á árinu 2003 haldinn í Genf fundur aðildarríkja lífefnavopnasamningsins, að undangengnum sérfræðingafundi. Áhersluþættir fundarins voru annars vegar þær ráðstafanir sem aðildarríki þurfa að gera varðandi bönn sem samningurinn fer fram á, þar á meðal breytingar á refsilöggjöf, og hins vegar hvernig aðildarríki skulu standa að öryggisráðstöfunum og umsjón með sjúkdómsvaldandi örverum og eiturefnum.
Á fundinum 2004 verður fjallað um hvernig hægt er að auka alþjóðleg viðbrögð við grunsamlegum sjúkdómsfaröldrum og meintri notkun á lífefnavopnum og hvernig hægt sé að styrkja alþjóðleg viðbrögð við smitsjúkdómum. Fundurinn sem haldinn verður 2005 mun taka fyrir siðareglur sérfræðinga.
Samningur gegn notkun jarðsprengja sem beinast gegn fólki (APM).
Fimmti fundur aðildarríkja samningsins gegn notkun jarðsprengja sem beinast gegn fólki (Convention on the Prohibition of the Use, Stockpiling, Production and Transfer of Anti- personnel Mines and on their Destuction – Ottawa Convention, APM) var haldinn í Bangkok í september 2003. Meginmarkmið samningsins, að koma í veg fyrir framleiðslu jarðsprengna sem beint er gegn fólki, hefur náðst og alþjóðleg viðskipti með þessi vopn hafa algerlega lagst af. Jarðsprengjusamningurinn hefur nú verið fullgiltur af 136 ríkjum og 12 ríki til viðbótar hafa undirritað en ekki fullgilt hann. Ísland gerðist aðili að samningnum 5. maí 1999, en hann gekk í gildi 1. mars 1999.
Ákveðið hefur verið að fyrsta endurskoðunarráðstefna samningsins verði haldin í Naíróbí í Kenía 29. nóvember til 3. desember 2004. Einn undirbúningsfundur hefur verið haldinn í Genf þar sem skipulag og drög að dagskrá fyrstu endurskoðunarráðstefnunnar var til umræðu. Næsti undirbúningsfundur verður haldinn í Genf í lok júní nk.
4. VARNARSAMSTARF ÍSLANDS OG BANDARÍKJANNA
4.1. Tvíhliða varnarsamstarf við Bandaríkin.
Þann 11. september 2001 breyttist öryggisumhverfi vestrænna þjóða í einni svipan. Hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin sýndu svo ekki var um villst að hryðjuverkaverkamenn og samtök þeirra voru reiðubúin til að leggja allt í sölurnar til að vekja athygli á málstað sínum. Hryðjuverkamönnum al Kaída-samtakanna tókst með samræmdum aðgerðum að myrða um þrjú þúsund manns. Ásetningurinn var slíkur að hryðjuverkamennirnir hikuðu ekki við að taka sitt eigið líf og þúsunda saklausra borgara.
Endurskipulagning herja í Evrópu og Norður-Ameríku fylgdi í kjölfarið auk aðgerða sem miða að því að auka innra öryggi, svo sem með auknu landamæraeftirliti. Markmiðið er að gera heri viðkomandi ríkja betur í stakk búna til að taka þátt í verkefnum á alþjóðlegum vettvangi og tryggja að mögulegt sé að vinna sameiginlega með öðrum herjum, hvort sem það er að verkefnum sem lúta að því að tryggja öryggi, þ.e. beinum hernaðaraðgerðum, eða til að styðja við uppbyggingar- og endurreisnarstarf á átakasvæðum.
Þessar breytingar hafa áhrif á Íslandi. Eftir lok kalda stríðsins var ljóst að viðbúnaður varnarliðsins í Keflavík minnkaði. Ekki var lengur nauðsynlegt að miða viðbúnað hér við þann möguleika að stríðsátök brytust út milli stórveldanna. Við fall Sovétríkjanna voru staðsettar hér 18 F-15 orrustuflugvélar. Þeim var fækkað niður í 12 og síðan niður í fjórar með bókun við varnarsamninginn 1994. Við þá breytingu var það sjónarmið haft að leiðarljósi að nauðsynlegt væri að geta haldið hér uppi virkum loftvörnum og ákveðnum fælingarmætti. Árið 1996 var önnur bókun gerð og sá skilningur staðfestur að hér skyldu vera til staðar að minnsta kosti fjórar orrustuflugvélar til að gæta lofthelgi landsins og tryggja öryggi og eftirlit á íslenska flugstjórnarsvæðinu auk þyrlubjörgunarsveitar sem styður við aðgerðir og björgun.
Með þessum breytingum eftir lok kalda stríðsins má segja að viðbúnaður varnarliðsins taki aðallega mið af öryggisumhverfi Íslands, bæði mikilli skipa- og flugumferð á svæðinu í kringum landið. Í þessu sambandi má nefna að öll Norðurlöndin telja loftvarnir hluta af eðlilegum varnar- og öryggisviðbúnaði. Til dæmis má nefna að Noregur hefur yfir að ráða tæplega 50 orrustuflugvélum, Danmörk og Finnland rúmlega 60 og Svíþjóð um 150. Öll ríkin telja það vera eitt af höfuðmarkmiðum sínum í öryggis- og varnarmálum að tryggja virkan viðbúnað í tengslum við loftvarnir landanna.
Graphic file area sar color copy. with height 292 p and width 414 p Left aligned Kort: Flugmálastjórn Íslands
Íslenska flugupplýsingasvæðið nær frá 61. norður og upp eftir 00. lengdar að 73. norður og vestur að Grænlandsströnd. Flugstjórn stjórnar einnig flugumferð yfir stærstum hluta Grænlands í fluglagi 200 og ofar (um 20.00 fetum).Um 80 þúsund flug fara á hverju ári um íslenska flugumferðarstjórnarsvæðið, þar af rúmlega 55 þúsund yfirflug og um 23.500 flug til og frá landinu.
Bókunin frá 1996 rann út árið 2001 en hefur verið framkvæmd áfram. Eins og kunnugt er áttu sendinefndir Íslands og Bandaríkjanna viðræður um framtíðartilhögun varna Íslands á síðasta ári. Þann 24. júní 2003 kom sendinefnd til landsins til að ræða um nýja bókun og 12. desember 2003 kom hingað sameiginleg sendinefnd bandaríska utanríkis- og varnarmálaráðuneytisins til fundar við utanríkisráðherra. Sá fundur var haldinn í tengslum við fyrirhugaða endurskipulagningu á herafla Bandaríkjamanna í Evrópu.
Stefna Íslands í þeim samningaviðræðum sem fram undan eru um bókun við varnarsamninginn er að tryggja að hér verði áfram trúverðugur varnarviðbúnaður, þar á meðal virkar loftvarnir, og að varnarsamningurinn við Bandaríkin verði áfram einn af hornsteinum í öryggis- og varnarmálastefnu landsins.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Upplýsingaskrifstofa varnarliðsins
Varnarliðsmönnum á Keflavíkurflugvelli fækkaði talsvert í byrjun tíunda áratugarins. Mest var fækkun hermanna en vegna þess að sífellt fleiri hermenn geta komið með fjölskyldur sínar hingað til lands hefur heildarfækkun hermanna og fjölskyldna verið hlutfallslega minni. Gera má ráð fyrir að varnarliðsmönnum muni fækka um 220 manns ef ekki verður framhald á rekstri skipa- og kafbátaleitarflugvéla flotans á Keflavíkurflugvelli og vegna brottflutnings viðhaldsdeildar fyrir flugvélar flotans sem áætluð er á fyrri hluta þessa árs.
Frá upphafi aðildar að Atlantshafsbandalaginu var Ísland hluti af Atlantshafsherstjórn bandalagsins (Allied Command Atlantic – ACLANT) sem staðsett var í Norfolk. Í kjölfar leiðtogafundar bandalagsins í Prag í nóvember 2002 var ákveðið að endurskipuleggja herstjórnir bandalagins. Ein helsta breytingin var að fyrrum Atlantshafsherstjórn bandalagsins í Norfolk var lögð niður og ný stofnun sett á laggirnar sem hefur ábyrgð og umsjón með umbreytingu og aðlögun á hernaðarsviði og hernaðartækni bandalagins (Allied Command Transformation – ACT) og tók hún formlega til starfa 19. júní 2003. Samhliða þessu var herstjórnarforræði vegna Íslands flutt frá Norfolk til Evrópuherstjórnar Atlantshafsbandalagsins (Supreme Headquarters Allied Powers Europe – SHAPE) í Mons í Belgíu. Undir Evrópuherstjórninni eru síðan tvær svæðisherstjórnir (Allied Forces North/South Europe – AFNORTH og AFSOUTH), annars vegar í Brunssum í Hollandi og hins vegar Napólí á Ítalíu.
Ísland heyrir nú undir svæðisherstjórn AFNORTH í herstjórnarkerfinu en sú herstjórn hefur umsjón með Evrópu norðan Alpafjalla, þar á meðal Belgíu, Bretlandi, Danmörku, Hollandi, Íslandi, Lúxemborg, Noregi, Póllandi, Tékklandi og Þýskalandi og tilheyrandi hafsvæðum. Svæðisherstjórnin í Brunssum, AFNORTH, sér einnig um skipulagningu og stjórnun af hálfu Atlantshafsbandalagsins á alþjóðlegu friðargæsluliði (International Security Assistance Force – ISAF) í Afganistan en bandalagið tók formlega yfir friðargæsluverkefnið í Afganistan í febrúar 2004. Friðargæsluliðið í Afganistan starfar í umboði Sameinuðu þjóðanna.
Breytingar hafa einnig orðið á fyrirkomulagi herstjórnar Bandaríkjanna, en Ísland tilheyrir nú undir Evrópuherstjórn Bandaríkahers (United States European Command – EUCOM) sem hefur aðsetur í Stuttgart. Varnarliðið er nú hluti af herstjórnarskipulagi Evrópu í stað Ameríku áður.
4.2. Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli.
Verkefni sýslumannsembættisins á Keflavíkurflugvelli hafa vaxið ört síðustu ár. Allt öryggisumhverfi í alþjóðaflugi hefur tekið breytingum í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11. september 2001 og hefur aukinn öryggisviðbúnaður í tengslum við flugsamgöngur breytt varanlega öllum öryggismálum í flugi með tilheyrandi kostnaðarauka og fjölgun starfsmanna. Nú er allur farangur sem fer í borð um flugvélar gegnumlýstur í samræmi við reglur sem tóku gildi þann 1. janúar 2003 en fjölga þurfti starfsmönnum sýslumannsembættisins um 20 til að framfylgja þessum nýju reglum um gegnumlýsingu.
Sýslumannsembættið hefur tekið að sér ýmis verkefni á síðustu árum, til dæmis var tollafgreiðsla á hluta af þeirri frakt sem kemur með flugi flutt frá tollstjóranum í Reykjavík til sýslumannsembættisins í byrjun árs 2002. Þessi breyting gerir það að verkum að embættið tollafgreiðir í dag um það bil 20% af öllum vöruinnflutningi til landsins, en fyrir þessa breytingu var umfangið hjá embættinu tæp 3%. Verkefni sem áður tengdust Umsýslustofnun varnarmála hafa verið færð til embættisins, en sú stofnun var lögð niður í lok árs 2002. Vörur þær sem áður voru seldar með milligöngu þeirrar stofnunar eru nú tollafgreiddar af embættinu sem innflutningur á notuðum vörum. Þessi breyting hefur falið í sér mikinn sparnað og aukið eftirlit með innflutningnum. Þá tók sýslumannsembættið yfir hlutverk ráðningardeildar varnarmálaskrifstofu um síðustu áramót þegar ráðningarskrifstofan var sameinuð sýslumannsembættinu í hagræðingarskyni. Allar starfsumsóknir vegna starfa hjá varnarliðinu eru afgreiddar af sýslumannsembættinu.
Áberandi málaflokkur hjá embættinu á liðnu ári var aukinn fjöldi útlendinga sem reyndi með ólögmætum hætti að komast til landsins eða um flugvöllinn til annarra ríkja. Embættið hefur tekið þessi mál föstum tökum og i nokkrum tilvikum tekist að koma í veg fyrir mansal. Með liðsinni embættis ríkissaksóknara hafa og fengist stefnumarkandi niðurstöður í málefnum þeirra er ferðast á fölsuðum vegabréfum. Árangur fíkniefnadeildar tollgæslu var á liðnu ári athyglisverður og má sjá stöðuga aukningu í haldlagningu embættisins á ólöglegum fíkniefnum.
4.3. Skipulags-, byggingar- og umhverfismál.
Á sviði skipulags- og umhverfismála starfar sérstök nefnd, skipulags-, umhverfis- og byggingarnefnd varnarsvæða. Nefndin hefur sama hlutverk og sambærilegar nefndir sveitarfélaga en auk þess hefur hún samráð við varnarliðið og nágrannasveitarfélögin. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja annast heilbrigðiseftirlit innan varnarsvæða undir yfirstjórn utanríkisráðuneytisins.
Auk venjubundinna verkefna að skipulags- og byggingarmálum hefur vinna við gerð nýs aðalskipulags fyrir Keflavíkurflugvöll verið eitt umfangsmesta verkefni nefndarinnar. Vegna vaxandi uppbyggingar í flugmálum, aukinnar flugumferðar og nýrra möguleika í loftflutningum hefur þörfin á heildarskipulagi fyrir framtíðarþarfir flugvallarsvæðisins á Keflavíkurflugvelli orðið aðkallandi. Allri undirbúningsvinnu við gerð skipulagsins er nú að mestu lokið og stefnt er að því að skipulagið taki gildi á þessu ári.
4.4. Atvinna Íslendinga á varnarsvæðum.
Í lok febrúar sl. störfuðu hjá varnarliðinu 885 Íslendingar. Heildarlaunakostnaður vegna starfa þeirra fyrir varnarliðið á árinu 2003 nam rúmum 56 millj. bandaríkjadala eða sem nemur tæpum 4,3 milljörðum íslenskra króna. Gengislækkun bandaríkjadals gagnvart íslenskri krónu hefur hækkað rekstrarkostnað varnarliðsins umtalsvert á síðustu missirum.
Í nóvember 2004 sagði varnarliðið upp um 100 íslenskum starfsmönnum og sagði jafnframt upp akstursstyrkjum og aksturspeningum starfsmanna í sparnaðarskyni. Þann 1. mars 2004 rann uppsagnarfrestur út og eru íslenskir starfsmenn varnarliðsins nú um 785 talsins. Uppsagnirnar voru viðbrögð við lækkuðum framlögum bandaríska flotans til varnarliðsins en samkvæmt bandarískum fjárlögum var varnarliðinu gert að spara í rekstri á fjárlagaárinu 2003–2004 um rúmar 14 millj. bandaríkjadala. Þessar sparnaðaraðgerðir beindust ekki einungis gegn flotastöðinni í Keflavík heldur voru þær afleiðing ákvörðunar bandaríska flotans um sparnað á strandstöðvum vegna aukins kostnaðar við endurnýjun flotans og aukins úthalds á skipum flotans í tengslum við aðgerðir í Írak og Afganistan.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Starfsmannahald varnarliðsins
Til viðbótar þeim sem starfa hjá varnarliðinu eru starfsmenn verktakafyrirtækja sem vinna við framkvæmdir og endurbætur á vegum varnarliðsins. Að meðaltali hafa starfað um 6–700 Íslendingar í tengslum við verklegar framkvæmdir innan varnarsvæða.
Varnarliðinu ber, að því marki sem unnt er, að ráða íslenska starfsmenn til framkvæmdar varnarsamningsins og skulu slíkar ráðningar fara fram með milligöngu íslenskra stjórnvalda. Til að fullnægja skilyrðum um milligöngu stjórnvalda við ráðningar til varnarliðsins hefur utanríkisráðuneytið um margra áratuga skeið rekið ráðningardeild varnarmálaskrifstofu á Suðurnesjum. Um áramótin var ráðningardeildin sameinuð sýslumannsembættinu á Keflavíkurflugvelli í hagræðingarskyni, eins og áður segir. Til að tryggja að kaup og kjör íslenskra starfsmanna varnarliðsins fari að íslenskum lögum og venjum hefur frá árinu 1952 verið starfrækt kaupskrárnefnd varnarsvæða. Reglugerðir nefndarinnar eru endurskoðaðar reglulega af varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og kaupskrárnefnd gerir grein fyrir ákvörðunum í ársskýrslu sinni.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Seðlabanki Íslands. Tölur fyrir 2003 eru bráðabirgðatölur
Samfara samdrætti í umsvifum varnarliðsins hafa efnahagsleg áhrif af veru varnarliðsins farið minnkandi á síðustu árum. Þegar umsvifin voru sem mest á níunda áratugnum hafði vera varnarliðsins hér á landi mun meiri efnahagslega þýðingu. Á árinu 1982 námu tekjur af veru varnarliðsins rúmlega 8% af útflutningstekjum þjóðarinnar og um 3% af landsframleiðslu. Samkvæmt bráðabirgðatölum Seðlabanka Íslands fyrir árið 2003 voru tekjurnar 3,9% af útflutningstekjum þjóðarinnar og 1,5% af landsframleiðslu.
4.5. Verktaka fyrir varnarliðið.
Í maí árið 2001 var, með vísan til erindaskipta sem fylgdi bókun við varnarsamninginn frá 1996, undirritaður samningur um framtíðarfyrirkomulag verktöku vegna framkvæmda á vegum varnarliðsins hér á landi. Meðal annars var samið um að á tímabilinu 2001–2004 yrði stigvaxandi hluti verklegra framkvæmda varnarliðsins boðinn út. Á árinu 2001 voru 30% verkframkvæmda yfir ákveðnum viðmiðunarmörkum boðin út, 50% árið 2002, 67% árið 2003 og í lok ársins 2004 verða öll verk fyrir varnarliðið boðin út. Varnarliðið hefur lýst ánægju sinni með útboðin og þann fjárhagslega ávinning sem af þeim hefur leitt fyrir verklegar framkvæmdir varnarliðsins. Forvalsnefnd á vegum utanríkisráðuneytisins hefur séð um forval vegna þeirra verkefna sem boðin eru út á vegum varnarliðsins. Fyrirhugað er að sett verði á laggirnar sameiginleg forvalsnefnd, skipuð fulltrúum íslenskra og bandarískra stjórnvalda, samkvæmt ákvæðum samningsins frá 2001. Þá hefur verið ákveðið að almennt forval fyrir verktöku á vegum varnarliðsins verði auglýst með reglulegu millibili. Íslenskir verktakar sem áhuga hafa á að bjóða í verk geta þá sent inn umsókn um að komast í forvalshóp vegna umræddra verkefna. Sameiginlega forvalsnefndin meti síðan hæfi umsækjenda og þeir sem samþykktir verða hafa tímabundna heimild í eitt eða tvö ár til að bjóða í verk á vegum varnarliðsins sem þeir hafa tæknilega og fjárhagslega getu til. Þetta mun leiða til mun minni vinnu fyrir bæði íslenska verktaka, varnarliðið og forvalsnefnd þar sem ekki mun þurfa að senda inn forvalsumsóknir fyrir hvert einasta verk sem boðið verður út á vegum varnarliðsins.
4.6. Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli.
Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli annast alla flugumferðarþjónustu á Keflavíkurflugvelli og stjórnar aðflugi og brottflugi fyrir Reykjavíkurflugvöll. Keflavíkurflugvöllur þjónar bæði hernaðarlegu og borgaralegu flugi og hefur varnarliðið annast viðhald á athafnasvæðum flugvéla, þ.e. flugbrautum, flugvélaakbrautum og flugvélastæðum, jafnframt því að sjá um snjóhreinsun og hálkuvarnir á þessum svæðum. Varnarliðið leggur einnig til húsnæði og búnað flugturns auk slökkviliðs á flugvellinum. Flugmálstjórn sér að mestu leyti um snjóhreinsun og hálkuvarnir á flughlaði Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og fraktflughlaði sem tekið var í notkun í sumarið 2003.
Öryggismál er lykilatriði í starfsemi Flugmálastjórnar. Alþjóðlegar kröfur til flugverndar hafa verið hertar til muna á síðustu árum. Flugmálastjórn hefur þess vegna staðið fyrir umfangsmikilli þjálfun og kennslu í öryggisfræðum fyrir starfsmenn ýmissa embætta og stofnana vegna sprengjuleitar í farangri. Nýlega var haldið námskeið í flugvernd þar sem öllu starfsfólki fyrirtækja í flugrekstri og starfsfólki Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar voru kennd undirstöðuatriði flugverndar.
Flugmálastjórnin er framkvæmdaraðili gatna- og holræsagerðar auk lóðarfrágangs í samræmi við gildandi deiliskipulag á flugþjónustusvæðinu. Stofnunin hefur á undanförnum árum unnið að aðalskipulagi svæðisins. Með aukinni flugumferð, fjölgun farþega og aukningu vöruflutninga um flugvöllinn hafa flugþjónustufyrirtæki sóst eftir að byggja upp starfsemi á flugvallarsvæðinu.
Árið 2003 jókst umferð í borgaralegu flugi um Keflavíkurflugvöll um 8,2% miðað við árið á undan en farþegum um flugstöðina fjölgaði úr 1.220 þús. í 1.370 þús. farþega eða um 12 % á milli 2002 og 2003. Örlítill samdráttur var í flugfrakt og pósti og nam hann ríflega 3%. Á meðfylgjandi töflum má sjá fjölda lendinga í borgaralegu flugi á Keflavíkurflugvelli sem og fjölda farþega á árunum 2002–2003:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Heimild: Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
4.7. Ratsjárstofnun
Ratsjárstofnun annast framkvæmd milliríkjasamninga sem gerðir voru á árunum 1987 og 1988 um viðhald og rekstur á hug- og vélbúnaði fyrir íslenska loftvarnakerfið.
Meginþættir íslenska loftvarnakerfisins sem falla undir stofnunina eru ratsjárstöðvar á fjórum landshornum og hugbúnaðarstöð staðsett í varnarstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Stofnunin sér um rekstur, viðhald og endurnýjun búnaðar á þessum stöðvum í náinni samvinnu við Bandaríkjamenn. Langdrægni hverrar ratsjár er um 250 sjómílur í þotuflughæðum.
Graphic file sjonsvid_2. with height 287 p and width 421 p Left aligned Kort: Ratsjárstofnun.
Ratsjárnar gera það mögulegt að fylgjast stöðugt með allri flugumferð innan sjónsviðs þeirra. Ratsjárupplýsingarnar eru nýttar af varnarliðinu, Flugmálastjórn Íslands og Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli.
Ratsjár-, fjarskipta- og tölvubúnaðurinn er í sífelldri endurnýjun. Sem dæmi má nefna að verið er að smíða nýtt gagnasamskiptakerfi sem mun kosta um 24 millj. bandaríkjadala. Þetta er svokallað Link 16 kerfi sem mun gefa Atlantshafsbandalaginu og varnarliðinu aukna möguleika við flugeftirlit og gagnvirka upplýsingastjórnun á svæðinu. Notkun þessa kerfis mun auka öryggi til muna en það á að vera komið í notkun á árinu 2005. Með stöðugri og markvissri endurnýjun íslenska loftvarnakerfisins er tryggt að það sé ætíð svo fullkomið sem frekast er völ á.
Hjá Ratsjárstofnun starfa um 80 manns. Einnig starfa rúmlega 20 Íslendingar á vegum undirverktakans Kögunar við rekstur hugbúnaðarstoðkerfisins í varnarstöðinni á Keflavíkurflugvelli.
Mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins greiddi allan byggingarkostnað við endurnýjun mannvirkja og búnaðar íslenska loftvarnakerfisins, en bandaríski flugherinn greiðir rekstrarkostnað. Kostnaður við rekstur Ratsjárstofnunar er um 14 millj. bandaríkjadala á ári.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
5. FRIÐARGÆSLA, MANNÚÐARMÁL OG NEYÐARAÐSTOÐ
5.1. Starfsemi Íslensku friðargæslunnar.
Starfsemi Íslensku friðargæslunnar á árunum 2002 og 2003 var í samræmi við sett markmið, en alls voru að störfum 20–25 borgaralegir sérfræðingar á erlendri grund árið 2003 og rúmlega 40 árið 2003, þó mest 25 á hverjum tíma. Um var að ræða þátttöku í friðaraðgerðum á vegum Atlantshafsbandalagsins, Evrópusambandsins og Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) á Balkanskaga auk lögreglumanna er störfuðu á vegum Sameinuðu þjóðanna. Að auki hefur friðargæslan styrkt störf UNIFEM í Kosóvó frá árinu 1998 með því að útvega jafnréttissérfræðinga til starfa á vegum samtakanna að málefnum kvenna í héraðinu. Reynslan af þessu samstarfi er góð og verður því haldið áfram. Einnig var ákveðið að styrkja friðarviðleitni Norðmanna á Sri Lanka með þátttöku íslenskra friðargæsluliða í sendinefnd þeirra á eyjunni.
Kosningaeftirlit er vaxandi þáttur í starfi Íslensku friðargæslunnar og þá einkum í samstarfi við ÖSE. Á árinu 2002 sendi Ísland fulltrúa í kosningaeftirlit vegna sveitarstjórnarkosninga í Kosóvó-héraði og einnig vegna þingkosninga og kosninga til forsætisráðs í Bosníu og Hersegóvínu. Þátttaka Íslands í kosningaeftirliti stofnunarinnar var aukin 2003 og tóku íslenskir kosningaeftirlitsfulltrúar þátt í kosningaeftirliti vegna þing- og forsetakosninga í Georgíu, forsetakosninga í Aserbaídsjan og þingkosninga í Rússlandi. Í ár hafa kosningaeftirlitsmenn þegar farið til að fylgjast með forsetakosningum í Rússlandi.
5.1.1. Flugvöllurinn í Pristína.
Samkvæmt beiðni framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins var á árinu 2002 ákveðið að Íslenska friðargæslan skyldi taka við yfirstjórn á rekstri flugvallarins í Pristína í Kosóvó af ítalska flughernum. Hópur sérfræðinga, þar á meðal flugumferðarstjórar og slökkviliðsmenn, tóku til starfa á flugvellinum í október 2002, en Ísland tók formlega við stjórn rekstursins við athöfn sem fram fór 3. mars 2003 að viðstöddum utanríkisráðherra. Íslenskir starfsmenn friðargæslunnar á flugvellinum í Pristína voru alls um 15 talsins þegar mest var, auk yfirmanns, en undir stjórn Íslands störfuðu tæplega 200 liðsmenn herja frá 13 öðrum þjóðum. Á þessum tíma hefur rekstur flugvallarins verið færður til samræmis við alþjóðlega staðla og reglur Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO). Horft hefur verið til framtíðar með þjálfun heimamanna. Um er að ræða rúmlega 50 slökkviliðsmenn og 20 flugumferðarstjóra, sem gert er ráð fyrir að starfi við flugvöllinn þegar heimamenn taka að fullu við rekstri hans. Gengið hefur verið frá samningi við Sameinuðu þjóðirnar um að sveitir þeirra (United Nations Interim Administration Mission in Kosovo, UNMIK) taki við rekstri flugvallarins af Íslendingum frá 1. apríl 2004. Samkvæmt samningnum mun Flugmálastjórn Íslands sjá um að framfylgja alþjóðlegum stöðlum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar á Pristína-flugvelli um óákveðinn tíma eftir 1. apríl 2004. Nokkrir starfsmenn Flugmálastjórnar verða því við störf í Pristína enn um sinn. Þetta fyrirkomulag er nýmæli í flugsögu Íslands og ef til vill fyrstu skrefin að aukinni útrás á þessu sviði.
Starf Íslendinga í Kosóvó og þá sérstaklega á flugvellinum í Pristína hefur vakið verðskuldaða athygli og íslensk stjórnvöld fengið þakkir fyrir. Heimamenn hafa fagnað þeirri áherslu sem lögð hefur verið á þjálfun þeirra og aðkomu að starfsemi flugvallarins.
5.1.2. Flugvöllurinn í Kabúl.
Við yfirtöku Atlantshafsbandalagsins á friðaraðgerðum í og við Kabúl, höfuðborg Afganistans, voru íslensk stjórnvöld enn á ný beðin um aðstoð við stjórn flugvallarins. Hafa íslensk stjórnvöld ákveðið að verða við þeirri beiðni og er stefnt að því að Íslendingar taki við stjórn hans 1. júní 2004. Á flugvellinum verða um 500 starfsmenn undir stjórn íslensks flugvallarstjóra en alls er gert ráð fyrir að 15 Íslendingar starfi þar samtímis. Við flugvöllinn eru starfsmannabúðir fyrir 1.100 manns og falla þær einnig undir stjórn Íslendinga. Atlantshafsbandalagið mun greiða allan kostnað af útbúnaði og rekstri flugvallarins, en aðildarríkin munu greiða laun, uppihald og ferðir starfsmanna. Gert er ráð fyrir því að starfstími Íslendinga á flugvellinum verði um þrír mánuðir í hvert sinn, en að verkefnið í heild sinni taki eitt til tvö ár. Ljóst er að þetta verkefni verður mun umfangsmeira en verkefnið í Pristína sem að framan er getið. Undirbúningsþjálfun fyrir þá Íslendinga sem fara til starfa í Kabúl mun fara fram í Noregi.
5.1.3. Efling friðargæslunnar.
Á fundi ríkisstjórnarinnar þann 25. október 2002 var ákveðið að efla starfsemi Íslensku friðargæslunnar. Gert er ráð fyrir að því markmiði sem sett hafði verið fyrir árið 2008 verði náð 2006 þannig að þá þegar verði heildarfjöldi útsendra starfsmanna á hverjum tíma alls 50 og heildarfjárveiting til starfseminnar nemi alls 550 millj. kr. Þessi ákvörðun var kynnt sérstaklega á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Prag haustið 2002 sem framlag Íslands til sameiginlegra skuldbindinga bandalagsins á sviði friðaraðgerða. Atlantshafsbandalagið féllst á að gera ráð fyrir umræddu fyrirkomulagi í aðgerðaáætlunum sínum.
Á viðbragðslista Íslensku friðargæslunnar eru nú um 185 manns. Öryggis- og kynningarnámskeið fyrir alla þátttakendur viðbragðslistans eru haldin 27.–28. mars og 17.–18. apríl 2004.
5.1.4. Mannúðarmál og neyðaraðstoð.
Íslenska friðargæslan hafði milligöngu um að alþjóðasveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar, rústabjörgunarsveitin, var send á vettvang í kjölfar jarðskjálfta í Alsír árið 2003. Í lok febrúar 2004 var sveitin enn fremur send til Marokkó vegna jarðskjálfta þar.
Þegar miklir jarðskjálftar riðu yfir Bam í Íran um jólin 2003 könnuðu Íslenska friðargæslan og Slysavarnarfélagið Landsbjörg hvort þörf væri á að senda rústabjörgunarsveitina til aðstoðar. Að ráði OCHA, samræmingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í mannúðaraðstoðarmálum, var ákveðið að sveitin skyldi ekki send á vettvang að þessu sinni. Þess í stað beitti utanríkisráðherra sér fyrir því að fé og hjálpargögn, að andvirði 10 millj. kr., voru send til Íran fyrir milligöngu Rauða kross Íslands.
5.1.5. Samstarf við alþjóðastofnanir.
Á árinu 2003 var undirritaður samstarfssamningur milli matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme – WFP) og Íslensku friðargæslunnar. Samkvæmt samningnum tekur friðargæslan að sér að útvega sérstaka fulltrúa (Reports Officers). Hlutverk þeirra er að taka saman skýrslur um ástand á svæðum þar sem neyðarástand ríkir eða er yfirvofandi.
6. EVRÓPUMÁL
6.1. Almennt.
Undanfarin tvö ár hafa verið viðburðarík í Evrópusamstarfinu. Ber þar hæst stækkun Evrópska efnahagssvæðisins. Stækkunarviðræðurnar voru um margt erfiðar en niðurstaðan sem náðist, og frá verður greint hér á eftir, var ásættanleg og raunar betri en á horfðist um tíma. Þá má segja að stækkunarviðræðurnar hafi beint sjónum manna í Evrópusambandinu í auknum mæli að EES-samstarfinu á ný og fram kom greinilegur vilji allra aðildarríkja til að tryggja áframhald samstarfsins í stækkuðu Evrópusambandi. Í stækkunarviðræðunum var samþykkt að koma á fót nýjum þróunarsjóði EFTA. Sjóðurinn býður upp á aukin tækifæri fyrir samvinnuverkefni íslensks atvinnulífs með nýju aðildarríkjunum á sviðum þar sem íslensk sérþekking er í fyrirrúmi, eins og fiskvinnslu og nýtingu jarðvarma. Í þessum kafla verður greint frá þeim málum sem nú eru efst á baugi í Evrópusamstarfinu. Að venju er af nógu að taka og verður því stiklað á stóru í þessari umfjöllun.
6.2. Verndaraðgerðir gegn innflutningi á eldislaxi.
Framkvæmdastjórn ESB ákvað nýlega að hefja formlega rannsókn á því hvort grípa eigi til verndaraðgerða gegn innflutningi á eldislaxi vegna erfiðrar rekstrarstöðu fiskeldisfyrirtækja á Skotlandi og Írlandi. Kemur ákvörðunin í kjölfar beiðni Breta og Íra um að gripið verði til slíkra aðgerða.
Utanríkisþjónustan hefur fylgst grannt með framvindu þessa máls og haft samráð við landbúnaðarráðuneytið og hagsmunaaðila um viðbrögð íslenskra stjórnvalda. Útflutningur á eldislaxi frá Íslandi til Evrópusambandsins hefur aukist á allra síðustu árum. Þar skiptir mestu tilkoma fyrirtækisins Sæsilfurs, sem rekur laxeldisstöð í Mjóafirði, en Evrópusambandið er mikilvægasta markaðssvæðið fyrir afurðir þess fyrirtækis. Önnur fiskeldisfyrirtæki sem flytja út á Evrópumarkað eru Salar, sem rekur laxeldisstöð í Berufirði, og Rifós, sem rekur laxeldisstöð í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjarsýslu. Hugsanlegar verndaraðgerðir á eldislaxi frá Íslandi til Evrópusambandsins kynnu að reynast mikið reiðarslag fyrir þessa atvinnugrein. Hafa ber í huga að fiskeldi hér á landi er enn að slíta barnsskónum og kynni skyndileg lokun markaða eða ákvörðun um að setja innflutningskvóta sem byggðar eru á sögulegum útflutningi að hafa alvarleg áhrif á framtíð greinarinnar.
Ákvæði um beitingu slíkra verndaraðgerða er að finna í reglugerð Evrópusambandsins frá árinu 1994. Þau byggjast á samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar um verndarráðstafanir. Helstu efnisskilyrði fyrir beitingu verndarráðstafana eru eftirfarandi:
– innflutningur vörunnar á yfirráðasvæði viðkomandi aðila hafi aukist verulega,
– aukinn innflutningur valdi innlendri atvinnugrein alvarlegum skaða eða hætta sé á slíkum skaða.
Á þessari stundu ekki hægt að fullyrða neitt um hvort Evrópusambandið muni ákveða að grípa til slíkra aðgerða eða hver framvinda málsins verður að öðru leyti. Utanríkisþjónustan mun leggja ríka áherslu á að koma sjónarmiðum Íslands á framfæri við Evrópusambandið og kanna hvort finna megi lausn sem kæmi í veg fyrir að hugsanlegar verndaraðgerðir hefðu skaðvænleg áhrif á hagsmuni íslenskra fiskeldisfyrirtækja. Í því skyni hafa fulltrúar stjórnvalda þegar átt fundi með háttsettum embættismönnum framkvæmdastjórnar ESB sem hafa sýnt sjónarmiðum Íslands skilning. Þá hafa íslensk stjórnvöld sent framkvæmdastjórn ítarlega greinargerð um málið til framkvæmdastjórnar. Endanleg ákvörðun um verndaraðgerðir verður væntanlega ekki tekin fyrr en síðar á þessu ári eða jafnvel í byrjun næsta árs.
6.3. Íslenskur landbúnaður í alþjóðlegu samhengi.
Utanríkisráðuneytið hefur með ýmsum hætti leitast við að stuðla að markvissri umræðu um ýmis Evrópumál sem varða hagsmuni Íslands. Má þar nefna að sumarið 2002 var, að frumkvæði utanríkisráðherra, myndaður starfshópur til að fjalla um óvissuþætti varðandi stöðu íslensks landbúnaðar að teknu tilliti til Doha-lotunnar á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) og alþjóðavæðingar, þ.m.t. til samrunaþróunarinnar í Evrópu. Í hópnum störfuðu fulltrúar Bændasamtaka Íslands, utanríkisráðuneytisins, landbúnaðarráðuneytisins og Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði. Nefndin skilaði skýrslu í nóvember 2003. Helstu niðurstöður skýrslunnar eru þær að innganga Íslendinga í Evrópusambandið nú, í samanburði við núverandi stuðningskerfi ríkisins við landbúnaðinn, mundi m.a. valda samdrætti og tekjumissi í landbúnaði og afurðastöðvum. Þessu valda einkum breytingar sem gera má ráð fyrir að yrðu á markaðshlutdeild innlendrar framleiðslu og innfluttrar. Stefnuákvarðanir Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO), sem að líkindum koma til framkvæmda eftir 2006, geta hugsanlega kallað á endurskoðun viðhorfa í íslenskum landbúnaðarmálum. Skýrsluna er hægt að nálgast á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.
6.4. Möguleikar sveitarstjórna á Íslandi til áhrifa innan EES.
Utanríkisráðuneytið hefur eftir því sem kostur er fylgst með þeirri öru þróun sem átt hefur sér stað hjá Evrópusambandinu um málefni sveitarstjórnarstigsins. Árið 2001 kom ráðuneytið á fót sérstökum starfshópi ráðuneyta og Sambands íslenskra sveitarfélaga um EES og sveitarfélögin. Starfshópurinn hefur m.a. staðið fyrir tveimur stórum ráðstefnum um EES og sveitarfélögin á árunum 2002 og 2003. Markmiðið með slíku samstarfi ríkis og sveitarfélaga er að sveitarfélögin geti sem best gætt hagsmuna sinna að því er varðar EES-samninginn, einkum þegar löggjöf er í undirbúningi hjá Evrópusambandinu.
Að tillögu starfshópsins fól utanríkisráðuneytið hópnum í mars 2003 að vinna skýrslu um framtíðartilhögun á samstarfi ríkis og sveitarfélaga um EES-mál. Þar átti og að finna tillögur, sem lagðar yrðu fyrir ríkisstjórn, um hvernig þessu samstarfi yrði best háttað. Starfshópurinn skilaði skýrslunni fyrr á þessu ári og var skýrslan kynnt í ríkisstjórn nú í febrúar. Þar er að finna fjölmargar tillögur um fyrirkomulag á samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Til að mynda er lagt til að ríki og sveitarfélög eigi með sér formlegt og skipulagt samstarf um EES-mál og að utanríkisráðuneytið beiti sér fyrir því að komið verði á sérstakri nefnd á vettvangi EFTA, hliðstæðri héraðanefnd Evrópusambandsins, sem skipuð yrði fulltrúum sveitarfélaga. Enn fremur er lagt til að kannað verði með samstarf ríkis og sveitarfélaga um rekstur skrifstofu til hagsmunagæslu í Brussel svo og aðstöðu fyrir sveitarstjórnarmann í starfsnámi í sendiráði Íslands í Brussel. Þessar tillögur eru nú til skoðunar í utanríkisráðuneytinu og hefur nú þegar verið kallað eftir tilnefningum fulltrúa til setu í starfshópnum. Skýrsluna er að finna á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.
6.5. Stækkun Evrópska efnahagssvæðisins og Evrópusambandsins.
Hinn 11. nóvember 2003 undirritaði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra samning um aðild tíu nýrra ríkja að Evrópska efnahagssvæðinu. Þessi ríki eru Tékkland, Eistland, Kýpur, Lettland, Litháen, Ungverjaland, Malta, Pólland, Slóvenía og Slóvakía. Kemur stækkun EES í kjölfar stækkunar Evrópusambandsins og mun stækkað EES verða sameiginlegt efnahagssvæði 28 Evrópuríkja með yfir 450 milljónir íbúa.
Aðdragandi stækkunarinnar
Aðdragandi stækkunar ESB og EES má rekja allt aftur til loka kalda stríðsins og endurreisnar lýðræðis í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu undir lok níunda áratugar síðustu aldar. Eftir að ríkin í austurvegi endurheimtu stjórnarfarslegt sjálfstæði sitt hafa þau lagt á það ríka áherslu að verða fullgildir þátttakendur í samvinnu og samstarfi Evrópuþjóða. Hafa þau litið á aðild að Evrópusambandinu sem mikilvægan áfanga á þeirri leið.
Leiðtogar Evrópusambandsins ákváðu á fundi sínum í Kaupmannahöfn árið 1993 að þeim ríkjum Mið- og Austur-Evrópu sem kysu að sækjast eftir aðild að ESB skyldi vera gefinn kostur á því. Á leiðtogafundinum í Kaupmannahöfn voru jafnframt sett fram helstu skilyrðin fyrir aðild að Evrópusambandinu. Meginskilyrðið er virðing fyrir lýðræði og mannréttindum. Þá þarf ríki sem sækist eftir inngöngu í Evrópusambandið að búa við pólitískan stöðugleika, lýðræði og réttarríki og virða réttindi minnihlutahópa. Enn fremur þarf nýtt aðildarríki að búa við markaðsbúskap og vera í stakk búið til að taka þátt í innri markaðnum. Að lokum þarf nýtt aðildarríki að geta lagt sitt af mörkum til framtíðarþróunar sambandsins. Þessi skilyrði eru jafnan kennd við fyrrgreindan fundarstað leiðtoganna og nefnd „Kaupmannahafnar-skilyrðin“.
Á fundi leiðtoga Evrópusambandsins í Lúxemborg árið 1997 var ákveðið að hefja stækkunarferli ESB með formlegum hætti. Ári síðar hófust formlegar aðildarviðræður við Eistland, Pólland, Slóveníu, Tékkland, Ungverjaland og Kýpur. Er þessi hópur ríkja yfirleitt kenndur við leiðtogafundinn í Lúxemborg og kallaður Lúxemborgar-hópurinn. Á leiðtogafundinum í Helsinki árið 1999 var ákveðið að hefja jafnframt samningaviðræður við Búlgaríu, Lettland, Litháen, Rúmeníu, Slóvakíu og Möltu. Þessi hópur ríkja nefnist Helsinki-hópurinn og hófust viðræður um aðild þessara ríkja um mitt árið 2000. Öll framangreind ríki voru talin uppfylla hin stjórnarfarslegu skilyrði fyrir aðild að Evrópusambandinu. Hins vegar var talið vafasamt að Búlgaríu og Rúmeníu tækist að uppfylla efnahagsleg skilyrði aðildar.
Samningaviðræður um aðild umsóknarríkjanna að Evrópusambandinu voru bæði tímafrekar og vandasamar. Eru skýringar þess vafalaust margvíslegar. Í fyrsta lagi má benda á að aldrei áður hefur Evrópusambandið átt í viðræðum um aðild jafnmargra ríkja í einu. Í öðru lagi er rétt að hafa í huga að flest umsóknarríkjanna standa núverandi aðildarríkjum nokkuð að baki í efnahagslegu tilliti og hvað varðar þróun markaðsbúskapar. Hafa ber í huga að við aðild að Evrópusambandinu verður nýtt aðildarríki að taka yfir alla gildandi löggjöf Evrópusambandsins. Í mörgum tilfellum var hins vegar nauðsynlegt að semja um aðlögun á löggjöf Evrópusambandsins gagnvart umsóknarríkjunum. Þar sem löggjöf Evrópusambandsins spannar vítt svið og ríkin sem sátu að samningaborðinu hafa ólíkra hagsmuna að gæta var oft vandfundin niðurstaða sem allir gátu sætt sig við. Sum málefni reyndust sérstaklega viðkvæm í þessum samningaviðræðum. Má þar nefna styrkveitingar til umsóknarríkjanna úr byggða- og þróunarsjóðum Evrópusambandsins, þátttöku umsóknarríkjanna í sameiginlegri landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins og frjálsa för launþega frá umsóknarríkjunum til núverandi aðildarríkja Evrópusambandsins.
Samningaviðræðunum lauk síðan á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Kaupmannahöfn í desember 2002 þar sem endanlegt samkomulag náðist um aðild umsóknarríkjanna að Evrópusambandinu, að Búlgaríu og Rúmeníu undanskyldum. Stefnt er að því að ljúka samningum við þau ríki árið 2007. Á grundvelli samkomulagsins sem náðist í Kaupmannahöfn var aðildarsáttmáli við nýju aðildarríkin undirritaður í Aþenu þann 16. apríl 2003 og mun stækkunin koma til framkvæmda hinn 1. maí 2004.
Viðræður um stækkun EES.
EES-samningurinn gerir ráð fyrir að nýjum aðildarríkjum ESB beri einnig að sækja um aðild að Evrópska efnahagssvæðinu skv. 128. gr. EES-samningsins. Af þessum sökum var nauðsynlegt að hefja viðræður um þátttöku nýju aðildarríkjanna í Evrópska efnahagssvæðinu um leið og samkomulag hafði náðst um aðild þeirra að Evrópusambandinu. Hófust þær viðræður í byrjun janúar 2003.
Meginmarkmið þessara viðræðna var að tryggja samhliða stækkun Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins, þannig að nýju aðildarríkin verði samtímis aðilar að Evrópusambandinu og EES-samningnum. Í því skyni þurfti að semja um nauðsynlegar aðlaganir á EES-samningnum vegna aðildar hinna tíu nýju EES-ríkja að samningnum. Full samstaða var á milli EFTA-ríkjanna og Evrópusambandsins um að fella skyldi þær aðlaganir, sem samið hafði verið um í aðildarviðræðum Evrópusambandsins við nýju aðildarríkin, inn í EES-samninginn, að svo miklu leyti sem þær vörðuðu efnissvið samningsins.
Helsta samningsmarkmið Íslands í stækkunarviðræðunum var að tryggja að stækkun Evrópska efnahagssvæðisins leiddi ekki til slakari viðskiptakjara en fríverslunarsamningar EFTA-ríkjanna við nýju samningsaðilana höfðu þegar tryggt. Af þeim sökum lögðu Ísland og Noregur áherslu á frekari tollalækkanir vegna viðskipta með sjávarafurðir. Var sú krafa byggð á því að með aðild hinna nýju aðildarríkja að Evrópusambandinu mundu fríverslunarsamningar sem flest þessara ríkja höfðu gert við EFTA-ríkin falla úr gildi, en í þeim samningum var m.a. kveðið á um fulla fríverslun með sjávarafurðir. Lögðu bæði Noregur og Ísland ríka áherslu á að stækkun Evrópska efnahagssvæðisins yrði ekki til að hindra viðskipti með sjávarafurðir til nýju aðildarríkjanna. Sérstaklega hefðu slíkar tollahækkanir komið niður á útflutningi síldarafurða frá Íslandi til nýju aðildarríkjanna.
Af hálfu Evrópusambandsins lagði framkvæmdastjórnin hins vegar áherslu á aukin framlög EFTA-ríkjanna til þróunarsjóðs EFTA. Í upphafi viðræðnanna krafðist framkvæmdastjórnin margfaldarar hækkunar á framlagi EES/EFTA-ríkjanna til þróunarsjóðsins. EES/ EFTA-ríkin mótmæltu þessari kröfu og töldu að engar forsendur væru fyrir slíkum fjárkröfum af hálfu Evrópusambandsins.
Í samningaviðræðunum reyndust þessi tvö málefni erfiðust viðfangs. Eftir þriggja mánaða samningaviðræður, þar sem lengst af bar himin og haf milli aðila, virtist sameiginleg niðurstaða vera í sjónmáli í aprílbyrjun. Þegar til átti að taka hafði þó framkvæmdastjórninni láðst að tryggja sér stuðning hinna nýju samningsaðila við þá niðurstöðu. Það voru sérstaklega fiskinnflutningsþjóðirnar Pólland og Eystrasaltsríkin þrjú sem lýstu yfir óánægju sinni. Eftir tveggja mánaða viðræður þeirra í millum, einkum milli framkvæmdastjórnarinnar og Pólverja, náðist endanlegt samkomulag. Samningaviðræðunum lauk 3. júlí 2003 með áritun samnings um þátttöku nýju samningsaðilanna í EES.
Undirritun stækkunarsamningsins.
Samningur um stækkun EES var hins vegar ekki undirritaður af EFTA-ríkjunum fyrr en 11. nóvember 2003. Fyrir þessari seinkun voru í meginatriðum tvær ástæður. Í fyrsta lagi var ekki gengið frá endanlegum samningsdrögum fyrr en í byrjun júlí vegna ágreinings milli Eystrasaltsríkjanna og Póllands við Evrópusambandið, en sá ágreiningur var okkur óviðkomandi. Af þeim sökum varð að fresta formlegri undirritun samningsins til haustsins. Undirritunin átti síðan að eiga sér stað 14. október í Lúxemborg og raunar undirrituðu nýju aðildarríkin og núverandi aðildarríki Evrópusambandsins þá samninginn, að undanskildu formennskuríkinu Ítalíu. En þegar til kom neitaði ríkisstjórn Liechtenstein að undirrita samninginn þar sem Liechtenstein taldi að Slóvakía og Tékkland hefðu ekki viðurkennt sjálfstæði þjóðarinnar með fullnægjandi hætti.
Þegar afstaða Liechtenstein var okkur ljós töldu Íslendingar og Norðmenn rétt að sýna þessari nánu samstarfsþjóð okkar þann stuðning að bíða með undirritun samningsins þannig að ráðrúm gæfist til þess að setja niður þessa deilu. Hins vegar var ljóst að þessi deila var mjög viðkvæm af hálfu allra aðila. Utanríkisráðherra, Halldór Ásgrímsson, átti í kjölfarið fundi með utanríkisráðherrum Liechtenstein, Tékklands og Slóvakíu til þess að freista þess að koma í veg fyrir að þessi deila kæmi í veg fyrir stækkun EES. Að lokum féllst Liechtenstein á að undirrita stækkunarsamninginn og var hann því undirritaður af EFTA-þjóðunum þremur 11. nóvember sl. í Vaduz.
Meginefni stækkunarsamnings.
Niðurstaða samningaviðræðnanna gerir ráð fyrir því að stofnaður verði nýr þróunarsjóður EFTA (sem nefnist fjármagnskerfi EES í samningnum). Framlög EFTA-ríkjanna til sjóðsins verða fimmfalt hærri en þau hafa verið síðustu fimm árin. Er þessi niðurstaða fjarri upphaflegum kröfum Evrópusambandsins og verður hún í því ljósi að teljast viðunandi fyrir EES/ EFTA-ríkin.
Þá gerir samkomulagið enn fremur ráð fyrir því að Evrópusambandið felli niður tolla á frosnum síldarsamflökum frá Íslandi. Hafa ber í huga að samkvæmt núgildandi fríverslunarsamningum Íslands við nýju samningsaðilana ber þessi afurð ekki tolla. Hins vegar hefði þessi afurð að öllu óbreyttu þurft að bera 15% toll við inngöngu nýju aðildarríkjanna í Evrópusambandið. Samkvæmt tölum útflytjenda frá árinu 2002 flutti Ísland út rúm 21.000 tonn af síldarsamflökum til þessara ríkja. Ef 15% tollur hefði verið greiddur af þeim útflutningi hefði hann numið 200–300 millj. kr. á ári. Þetta er rúmlega 90% af öllum þeim tollum sem á Ísland hefðu fallið hefðu viðskiptakjör EES-samningsins óbreytt komið í stað þeirra viðskiptakjara sem fríverslunarsamningar EFTA við nýju samningsaðilana mæla fyrir um. Af þeim sökum lagði Ísland ríka áherslu á afnám tolla á þessa afurð. Að lokum féllst Evrópusambandið á þessa kröfu Íslands. Aðildarsamningi EES fylgir því viðbótarbókun við fríverslunarsamning Íslands og Efnahagsbandalags Evrópu frá 1972. Þar er mælt fyrir um að frosin síldarsamflök verði endurflokkuð í tollskrá ESB og munu þau eftir gildistöku samningsins fá sömu tollmeðferð og frosin síldarflök.
Fullgilding stækkunarsamningsins.
Brýnt er að stækkunarsamningur EES verði fullgiltur tímanlega af aðildarríkjum ESB, einkum nýju aðildarríkjunum, þannig að hann taki gildi samhliða stækkunarsamningi ESB hinn 1. maí næstkomandi. Utanríkisþjónustan fylgist náið með fullgildingu aðildarríkjanna og er hvert tækifæri nýtt til að hvetja aðildarríkin til að fullgilda samninginn tímanlega.
Í ljósi þess dráttar sem varð á undirritun samningsins er þó þegar orðið ljóst að nokkur ríki ná ekki að fullgilda hann í tíma. Til að tryggja að stækkun EES taki samt sem áður gildi samtímis stækkun Evrópusambandsins hefur verið gert samkomulag um að samningurinn taki eigi að síður gildi til bráðabirgða hinn 1. maí.
Í kjölfar undirritunar stækkunarsamningsins sl. nóvember lagði utanríkisráðherra fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, með síðari breytingum, sem heimilaði ríkisstjórn að fullgilda stækkunarsamninginn. Frumvarpið var samþykkt á Alþingi hinn 15. mars sl. með öllum greiddum atkvæðum.
Frjáls för launþega frá nýju EES-ríkjunum.
Samkvæmt ákvæðum stækkunarsamnings EES er EFTA-ríkjum EES heimilt að takmarka frjálsa för launþega frá nýju EES-ríkjunum, að Möltu og Kýpur undanskildum. Eru þessi ákvæði sambærileg heimildum núverandi ESB-ríkja til að takmarka frjálsa för launþega frá þessum sömu ríkjum. Þessum takmörkunum má beita í allt að sjö ár frá því að nýju aðildarríkin fá aðild að Evrópusambandinu og EES-samningnum.
Ríkisstjórnin hefur mótað þá afstöðu að ríkisborgarar nýju EES-ríkjanna skuli ekki njóta frekari aðgangs að íslenskum vinnumarkaði en beinlínis leiðir af ákvæðum stækkunarsamnings EES. Af þeim sökum mun aðgangur launþega frá þessum ríkjum að vinnumarkaði hér á landi sæta takmörkunum fyrstu tvö árin frá stækkun EES. Það kallar hins vegar á breytingar á lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 96/2002, um útlendinga. Félagsmálaráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra hafa þegar lagt fram á Alþingi frumvörp vegna nauðsynlegra lagabreytinga af þessum sökum.
Þróunarsjóður EFTA.
Samfara stækkun EES verður nýr þróunarsjóður EFTA settur á laggirnar og munu nýju aðildarríkin, auk Spánar, Grikklands og Portúgals, njóta framlaga úr sjóðnum. Markmið sjóðsins er að styðja við framfarir á fátækari svæðum EES og verður 120 millj. evra úthlutað árlega næstu fimm árin. Af ríkjunum 13 er Pólland stærsti styrkþeginn og verður tæpum helmingi fjárins varið til uppbyggingar þar. Verkefni sem sjóðurinn mun styrkja geta verið á sviði umhverfisverndar, sjálfbærrar þróunar, varðveitingar menningarverðmæta, menntunar og þjálfunar starfsfólks og uppbyggingar opinberrar þjónustu og heilbrigðisþjónustu. Þá geta rannsóknir á þessum sviðum fallið undir styrkhæf verkefni.
Í viðræðunum um stækkun EES lagði Ísland ríka áherslu á að skilgreina styrkhæf verkefni á þeim sviðum sem Íslendingar geta lagt sitt af mörkum, svo sem á sviði orkumála og sjávarútvegs. Ávinningur af þátttöku íslenskra fyrirtækja í verkefnum fjármögnuðum af sjóðnum getur m.a. falist í sölu þjónustu og ráðgjafar sem og tækifærum til að kynna þá þekkingu og vöru sem þau hafa upp á að bjóða. Styrkumsóknir þurfa að koma frá aðilum í því landi sem styrk hlýtur en í samstarfi við innlenda aðila geta íslensk fyrirtæki tekið þátt í styrkhæfum verkefnum. Umsóknir eru samþykktar af stjórnvöldum viðkomandi ríkis áður en þær eru sendar þróunarsjóði EFTA sem endanlega samþykkir styrkveitingu.
Ísland á einn fulltrúa í stjórn þróunarsjóðsins en rekstur sjóðsins er í umsjá EFTA-skrifstofunnar í Brussel. Um verkefni fjármögnuð af sjóðnum gilda reglur um samkeppni, ríkisstyrki og opinber útboð.
6.6. Efst á baugi í EES-samstarfinu.
Á síðasta ári voru teknar 179 ákvarðanir í sameiginlegu EES-nefndinni sem bættu 297 nýjum gerðum í EES-samninginn. Hér á eftir verður farið yfir helstu mál sem hafa verið til umfjöllunar innan EES að undanförnu. Stór hluti gerða sem teknar eru inn í EES-samninginn eru tæknilegs eðlis og verður ekki fjallað nánar um þær hér.
Þátttaka í stofnunum ESB.
Samningaviðræður um þátttöku EFTA-ríkjanna í stofnunum ESB um öryggi matvæla, flugöryggi og öryggi á sjó skipuðu stóran sess í EES-samstarfinu á árinu.
Samkomulag náðist um þátttöku EFTA-ríkjanna í Siglingaöryggisstofnun Evrópu (European Maritime Safety Agency – EMSA) og var reglugerð um stofnun hennar tekin upp í samninginn í júní 2003. Hlutverk stofnunarinnar er fyrst og fremst að aðstoða framkvæmdastjórn ESB við undirbúning löggjafar á sviði siglingaöryggis og í tengslum við aðgerðir til að draga úr mengun sjávar.
Enn er til umræðu þátttaka EFTA ríkjanna í Flugöryggisstofnun Evrópu (European Aviation Safety Authority – EASA) og matvælaöryggisstofnun Evrópu (European Food Safety Authority – EFSA) en samningaviðræður um EASA eru langt á veg komnar.
Markmið Flugöryggisstofnunar Evrópu er að vinna að auknu flugöryggi í Evrópu og tryggja samræmdar öryggiskröfur í flugi. Stofnunin mun m.a. taka við verkefnum sem áður voru hjá Flugöryggissamtökum Evrópu (JAA) . Ísland og Noregur hafa lagt áherslu á að aðkoma þeirra að ákvarðanatöku innan stofnunarinnar verði tryggð að því er varðar mál þar sem þau höfðu áður fullan atkvæðisrétt í Flugöryggissamtökum Evrópu og hafa óskað eftir atkvæðisrétti í stjórnarnefnd stofnunarinnar. Einnig hafa fjárframlög EFTA-ríkjanna til stofnunarinnar verið til umræðu. Framkvæmdastjórnin hefur lýst sig reiðubúna til að koma til móts við sjónarmið EFTA-ríkjanna að því er varðar fjárframlög til stofnunarinnar en er andvíg því að veita fulltrúum ríkjanna atkvæðisrétt í stjórn stofnunarinnar. EFTA-ríkin hafa málið til skoðunar.
Unnið að upptöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins um almennar meginreglur og kröfur samkvæmt lögum um matvæli, um stofnun Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (European Food Safety Authority – EFSA) og um málsmeðferð vegna öryggis matvæla. Unnið er að skilgreiningu og túlkun á stöðu EFTA-ríkjanna í starfsemi Matvælaöryggisstofnunarinnar. Stefnt er að því að fella gerðina inn í viðauka I við EES-samninginn. Viðaukinn fjallar um dýraheilbrigði en gildissvið hans er hvað Ísland varðar takmarkað við sjávarafurðir. Framkvæmdastjórnin hefur sett fram kröfu um að Ísland falli hvað þessa gerð varðar frá takmörkun sinni á gildissviðinu, en því hefur verið mótmælt af Íslands hálfu.
Má geta þess að framkvæmdastjórnin hefur lagt fram tillögu að reglugerð um stofnun Net- og upplýsingaöryggisstofnunar Evrópu (ENISA). Stofnuninni er ætlað að samræma aðgerðir ESB í tengslum við net og upplýsingaöryggi og að stuðla að samræmi varna í netum og upplýsingakerfum. Þátttaka í stofnuninni hefur verið til skoðunar í EFTA-ríkjunum.
Flugvernd.
ESB setti reglugerð um flugvernd í desember 2002 m.a. til að bregðast við hryðjuverkunum í Bandaríkjunum 11. september 2001. Reglugerðin tekur til flugverndar á öllum flugvöllum innan ESB og setur sameiginleg lágmarksskilyrði fyrir öryggi flugfara fyrir utanaðkomandi ógnum auk þess sem kveðið er á um eftirlit með framkvæmd reglugerðarinnar. Reglugerðin er í raun nú þegar framkvæmd í millilandaflugi á Íslandi. Aftur á móti er ljóst að framkvæmd hennar án afbrigða mundi kalla á umfangsmiklar breytingar í innanlandsflugi á tilteknum flugvöllum.
Óskað hefur verið eftir undanþágu frá gildissviði reglugerðarinnar fyrir innanlandsflugvellina í heild sinni og hafa fulltrúar framkvæmdastjórnarinnar komið hingað til lands til fundar við íslensk stjórnvöld og þeim verið kynntar aðstæður víða um landið. Þessar vettvangsferðir virðast hafa sannfært framkvæmdastjórnina um að rök Íslands væru þess eðlis að hægt væri að fallast á undanþáguna. Beðið er formlegrar afgreiðslu málsins.
Erfðabreyttar lífverur og nýfæði.
Tvær tilskipanir bíða upptöku í EES-samninginn þar sem reynir á tveggja stoða kerfið, annars vegar um markaðssetningu á erfðabreyttum lífverum og vörum úr þeim og hins vegar um markaðssetningu á nýfæði. Í báðum tilskipununum er kveðið á um veitingu markaðsleyfa fyrir vöru í gegnum nefndaferli („comitology“). Umsóknir um markaðsleyfi koma fram í einstökum ríkjum og eru endanlega afgreiddar þar, en kveðið er á um samráðsferli áður. Komi upp ágreiningur í slíku samráðsferli er gert ráð fyrir bindandi ákvörðun framkvæmdastjórnar eða ráðherraráðsins (með nefndaferli) sem hið lögbæra yfirvald í aðildarríki verður að fara eftir við endanlega afgreiðslu málsins.
Í drögum að aðlögunartexta sem nú liggur fyrir er gert ráð fyrir að komi upp ágreiningur varðandi veitingu markaðsleyfis í EFTA-ríki verði málsmeðferðin innan EFTA-stofnananna í samræmi við tveggja stoða kerfið.
Með tilskipuninni um erfðabreyttar lífverur er umfjöllun um umsóknir um markaðssetningu og sleppingu erfðabreyttra lífvera gerð opnari og gagnsærri. Rekjanleiki erfðabreyttra lífvera með merkingum er aukinn. Jafnframt eru gerðar auknar kröfur um upplýsingagjöf til almennings og hvaða skilyrði þurfa að vera fyrir hendi til að fá leyfi til markaðssetningar.
Rammatilskipun um vatn.
Rammatilskipun um vatn var samþykkt í ESB í október 2000. Meginmarkmið tilskipunarinnar er að bæta gæði vatns og koma stjórn á nýtingu vatnsauðlindarinnar.
Tilskipunin varðar EES eingöngu að hluta til þar sem hún inniheldur einnig reglur sem eru utan gildissviðs EES-samningsins, svo sem varðandi náttúruvernd, auðlindanýtingu og skattamál. Framkvæmd tilskipunarinnar hér á landi mun hafa mikinn kostnað í för með sér. Ísland hefur óskað eftir að tilskipunin verði aðlöguð að íslenskum aðstæðum og að skyldur okkar samkvæmt tilskipuninni miðist við stærð landsins og hvernig byggð er skipulögð, m.a. þannig að tilskipunin taki ekki til svæða þar sem fólksfjöldi er innan ákveðinna marka
Landbúnaður.
Framkvæmdastjórnin hefur verið upplýst með formlegum hætti um að Ísland sé tilbúið í viðræður um endurskoðun eins og umsamið er skv. 19. gr. EES-samningsins. Framkvæmdastjórnin aflar sér nú samningsumboðs. Markmið samninga af hálfu Íslands er að tryggja sem mest frjálsræði í útflutningi hrossa og aukningu lambakjötskvóta.
Orkumál.
Evrópusambandið samþykkti í desember 2002 tilskipun um orkunýtni bygginga. Ísland hefur óskað eftir undanþágu frá tilskipuninni þar sem nánast öll orka sem notuð er til að mæta staðbundinni orkuþörf á Íslandi er komin frá endurnýtanlegum orkulindum. Fram hefur komið skilningur á sérstöðu Íslands en beðið er eftir formlegri afstöðu framkvæmdastjórnarinnar.
Til umfjöllunar hefur enn fremur verið tilskipun ESB um að stuðla að aukinni framleiðslu raforku frá endurnýjanlegum orkulindum. Í tilskipuninni eru m.a. sett viðmiðunarmarkmið hvað varðar hlutfall endurnýjanlegra orkulinda í raforkuframleiðslu einstakra ríkja. Tilskipunin skapar grunn að mögulegu ESB-kerfi um græn vottorð, þ.e. upprunavottorð er staðfesta að raforka hafi verið framleidd með endurnýjanlegum orkulindum.
Tilkynningar um vöruflutninga til og frá ESB – 24-tíma reglan.
Framkvæmdastjórn ESB sendi 24. júlí 2003 frá sér samskiptaskjal 1 þar sem m.a. eru lagðar til breytingar á tollalöggjöf ESB sem lúta að eftirliti með flutningi á vörum til og frá aðildarríkjum sambandsins. Megintilgangurinn er að leggja grunninn að betri áhættugreiningu vegna eftirlits með vöruflutningum, m.a. með vísan til hryðjuverkaógnarinnar í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september 2001.
Megininntak breytinganna felst í því að lagt er til að skylt verði að tilkynna um allar vörusendingar sem fluttar eru til og frá tollabandalagi ESB með 24 klst. fyrirvara. Gert er ráð fyrir nokkrum undantekningum frá þessari meginreglu varðandi: a) vörur sem ferðamenn flytja með sér, b) smásendingar, c) land og sjóflutninga þar sem flutningstími er minni en 24 klst. og d) hraðsendingar á vegum viðurkenndra fyrirtækja. Ef ekki er tilkynnt um vöruflutning með tilskyldum fyrirvara er gert ráð fyrir því að flutningur verði eftir sem áður heimill en það gæti haft tafir í för með sér við tollafgreiðslu. Gert er ráð fyrir því að reglurnar öðlist gildi 1. janúar 2005 en með tveggja ára aðlögunartíma vegna nauðsynlegrar útfærslu á tæknilegum atriðum. Á fundum tollanefndar EFTA með fulltrúum framkvæmdastjórnar í nóvember 2003 og mars 2004 hefur komið fram að ríkur vilji er til samstarfs um útfærslu gagnvart EES- ríkjunum sem ekki er óþarflega íþyngjandi og verður áframhaldandi samráð um málið síðsumars.
Aðgerðir gegn mismunun.
Í desember 2003 var tekin upp í samninginn ákvörðun ráðsins um að koma á fót aðgerðaáætlun bandalagsins um aðgerðir gegn mismunun fyrir árin 2001–2006. Áður hafði ríkisstjórnin komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri nægjanlegur lagagrundvöllur fyrir upptöku tilskipana ESB um aðgerðir gegn mismunun í EES-samningnum þar sem þær byggjast á 13. gr. Amsterdam-sáttmálans sem á sér ekki hliðstæðu í EES-samningnum. Með þátttöku í áætluninni er EFTA-ríkjunum gert kleift að fylgja eftir tilskipun ESB um aðgerðir gegn mismunun án þess að þær séu teknar upp í EES-samninginn. Við samþykki ákvörðunarinnar í sameiginlegu EES-nefndinni gáfu EFTA ríkin yfirlýsingu um að þau styddu markmið tilskipananna og jafnframt lýstu þau yfir vilja til að skoða gaumgæfilega hvort aðlaga mætti innlenda löggjöf að ákvæðum þeirra.
Sjötta rannsóknaáætlunin.
Framkvæmd Sjöttu rannsóknaáætlunarinnar sem hófst árið 2003 gengur samkvæmt áætlun. Íslenskir aðilar eru þátttakendur í rúmlega 90 umsóknum og er heildarfjöldi þátttakenda í þeim yfir 120. Af þeim fá um 24 verkefni styrki sem er 28% árangurshlutfall, en almennt er árangurshlutfall tæp 20% þannig að árangur íslenskra þátttakenda er betri en almennt gerist. Sérstaka athygli vekur mikil þátttaka fyrirtækja, en þau eru 40% þátttakenda í umsóknum og 34% þátttakenda í samþykktum verkefnum. Þá koma rannsóknastofnanir vel út og RANNÍS fær góða styrki til samstarfsverkefna við systurstofnanir. Ekki liggur fyrir hversu háum styrkjum þessi verkefni munu skila til íslenskra þátttakenda, en þær upplýsingar sem tiltækar eru benda til að það verði ríflega 500 millj. kr. á næstu þremur árum.
Umræður eru þegar hafnar um næstu áætlun sem hefst í ársbyrjun 2007. Ástæðan er sú að núverandi vísindastjóri vill hafa eins mikil áhrif á hana og kostur er áður en hann fer frá í nóvember á þessu ári og jafnframt nýta þann pólitíska meðbyr sem málaflokkurinn hefur núna, en ESB hefur sett sér það markmið að útgjöld til rannsókna og þróunarmála aukist á næstu árum úr 1,9% af landsframleiðslu ESB í 3% árið 2010. Áformað er að grunnrannsóknir bætist við þau viðfangsefni sem sambandið mun styrkja og auk þess eru tillögur um stóraukna áherslu á geimvísindi og öryggismál. Gert er ráð fyrir verulegri aukningu á fjármagni samhliða þessu og fyrstu hugmyndir benda til meira en helmings hækkunar á fjárveitingu. Fari svo munu útgjöld Íslands vegna EES-samningsins aukast talsvert frá því sem nú er.
Unnið er markvisst að því að koma rannsóknasjónarmiðum Íslands á framfæri. Þannig hefur t.d. áherslum Íslands í vetnismálum verið komið á framfæri með árangursríkum hætti. Í framhaldi af heimsókn vísindastjóra ESB til Íslands í ágúst í fyrra verður lögð sérstök áhersla á næstunni á kynningu á jarðhitarannsóknum. Með stækkun ESB mun áhugi aukast á að efla jarðhitarannsóknir og hefur utanríkisþjónustan haft frumkvæði að því að byggja upp samstarf aðila sem eiga hagsmuna að gæta í þessum málaflokki.
Mennta-, menningar- og æskulýðsmál.
Á þessum vettvangi tekur Ísland þátt í fjölbreytilegu samstarfi á grundvelli EES-samningsins. Að verulegu leyti er þetta samstarf skipulagt innan ramma aðgerðaáætlana á borð við Sókrates-menntaáætlunina, Leonardo da Vinci-starfsmenntaáætlunina, æskulýðsáætlunina „Youth“ og menningaráætlunina „Culture 2000“. Þessar áætlanir í núverandi mynd renna skeið sitt á enda í lok árs 2006. Hér gildir það sama og um rannsóknarmálin, verið er að undirbúa hvað skuli taka við og hefur framkvæmdastjórnin nýverið lagt fram sínar tillögur í þeim efnum. Samkvæmt tillögunum er gert ráð fyrir verulegri uppstokkun á núverandi kerfi. Áhersla er lögð á að fella næstu kynslóð menntaáætlana að Lissabon-markmiðunum með kröfuna um símenntun að leiðarljósi. Í ljósi þeirrar pólitísku áherslu sem lagt var upp með í Lissabon um nauðsyn markvissrar uppbyggingar þekkingarþjóðfélagsins gera menn sér vonir um að hugur fylgi máli og að fjárveitingar verði stórauknar til þessa málaflokks. Þannig gera tillögur framkvæmdastjórnarinnar um næstu kynslóð menntaáætlana, ráð fyrir u.þ.b. fjórfaldri aukningu fjármagns til þessa málaflokks.
6.7. Málefni fram undan á vettvangi EES.
Auk þeirra mála sem hér hefur verið fjallað um má nefna nokkur mál sem ætla má að verði áberandi í EES-samstarfinu á næstu missirum.
Efnatilskipanir.
Í október 2003 lagði umhverfismálastjórnardeild framkvæmdastjórnarinnar fram frumvarp að heildstæðri eiturefnalöggjöf ESB (Registration Evaluation and Authorization of Chemicals – REACH). Hér er í uppsiglingu viðamikil löggjöf á vegum ESB sem ætlað er að koma í stað u.þ.b. 40 núgildandi tilskipana og reglugerða varðandi eiturefni og hættuleg efni og kemur í stað gerða sem þegar eru hluti af EES-samningnum.
Grænbók um þjónustu sem hefur almenna þýðingu.
Á síðasta ári gaf framkvæmdastjórn Evrópusambandsins út svokallaða grænbók um „þjónustu sem hefur almenna þýðingu“ (Services of General Interests). Í grænbókinni er gengið út frá mjög víðtækri skilgreiningu á hugtakinu „þjónusta sem hefur almenna þýðingu“. Í grænbók þessari er að finna fyrsta skrefið að mótun stefnu Evrópusambandsins varðandi þjónustu sem hefur almenna þýðingu. Er þar fjallað um hvort ástæða sé til frekari samræmingar á löggjöf aðildarríkjanna um þær þjónustugreinar sem falla undir þetta hugtak. Íslensk stjórnvöld sendu framkvæmdastjórninni athugasemdir vegna grænbókarinnar þar sem lögð var áhersla á gæta yrði varfærni áður en ákveðið yrði að stíga frekari skref í þessum efnum og sérstaklega yrði að huga að áhrifum slíkrar stefnumótunar á hinar dreifðu byggðir. Enn fremur var í umsögn íslenskra stjórnvalda vegna grænbókarinnar vakin athygli á því að ekki væri óyggjandi að ný löggjöf á þessu sviði mundi falla að öllu leyti undir gildissvið EES- samningsins.
Innri markaðstefna Evrópusambandsins.
Á síðasta ári samþykkti framkvæmdastjórn ESB yfirlýsingu um innri markaðsstefnu ESB fyrir árin 2003–2006. Innri markaðsstefnan felur í sér almenna stefnumörkun í málefnum innri markaðarins til næstu þriggja ára og í henni er að finna lista yfir tillögur framkvæmdastjórnarinnar að aðgerðum á þessu tímabili. Innri markaðsstefnan er stefnumarkandi fyrir Evrópska efnahagssvæðið í heild sinni. Megináhersla innri markaðsstefnunnar er að styrkja kjarna innri markaðarins með því að afnema hindranir í vegi viðskipta með vöru og þjónustu og tryggja að reglum innri markaðarins sé framfylgt. Helstu áherslusvið innri markaðsstefnunnar eru frjáls vöruviðskipti, frjáls þjónustuviðskipti, samgöngumál, skattar, opinber innkaup, bætt viðskiptaumhverfi fyrirtækja, einfaldara regluverk, bætt upplýsingastreymi, stækkun innri markaðarins og innri markaðurinn í alþjóðlegu samhengi.
Innri markaðsstefnan var samþykkt af framkvæmdastjórninni 7. maí 2003 Á fundi ráðherraráðsins 22. september 2003 kallaði ráðið eftir frekari tillögum frá framkvæmdastjórninni til að hrinda stefnunni í framkvæmd. EFTA-ríkin hafa bæði hvert í sínu lagi og sameiginlega undir merki EFTA fjallað um innri markaðsstefnuna.
Tillaga að tilskipun um þjónustustarfsemi.
Framkvæmdastjórn ESB hefur nýlega lagt fram tillögu að tilskipun um þjónustustarfsemi sem stefnir að því að hrinda úr vegi ýmsum hindrunum sem eru á því að innri markaðurinn á sviði þjónustustarfsemi virki í líkingu við það sem hann gerir að því er varðar vörur. Sérstaklega er tekið á skrifræði sem tengist því að fyrirtæki veiti þjónustu milli landa, svo sem í sambandi við skráningar, leyfisveitingar o.fl. Er m.a. kveðið á um skyldu til gagnkvæmrar viðurkenningar á skráningu og leyfum á milli aðildarríkjanna. Um er að ræða mjög umfangsmiklar tillögur og eru þær til skoðunar innan EFTA-ríkjanna og að hve miklu leyti þær varði EES-samninginn. Gert er ráð fyrir að tilskipunin verði komin til framkvæmda árið 2007.
6.8. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA).
Eftirlitsstofnun EFTA birtir tvisvar á ári úttekt sem sýnir frammistöðu EFTA-ríkjanna í upptöku tilskipana Evrópusambandsins í landsrétt. Er það gert í nánu samráði við framkvæmdastjórn ESB og nær samanburðurinn til EES-ríkjanna 18. ESB hefur sett sér þau viðmið að aðildarríki verði með 1,5% gerða útistandandi eða minna. Í frammistöðumati sem birt var í maí 2003 var Ísland í 8.–9. sæti með 1,8% gerða útistandandi, yfir viðmiðunarmörkum ESB, en bætti sig umtalsvert seinni hluta ársins og í niðurstöðum sem birtar voru í byrjun árs 2004 var Ísland í 4. sæti með 1% gerða útistandandi.
6.9. Schengen-samstarfið.
Á undanförnum árum hefur fengist aukin reynsla af þátttöku Íslands í Schengen-samstarfinu. Í dag er Schengen-samstarfið orðið órjúfanlegur hluti af starfsemi ESB á sviði dóms- og innanríkismála. Eigi að síður hefur tekist vel með þátttöku Schengen-ríkjanna tveggja sem standa utan sambandsins og nú er fyrirhugað að þriðja ríkið bætist í þann hóp þar sem viðræður standa nú yfir um þátttöku Sviss í Schengen-samstarfinu. Þá hillir undir að nýju ESB- ríkin tíu verði hluti af Schengen-svæðinu. Innan fárra ára má því vænta að 25 ríki í Evrópu myndi Schengen-svæðið.
Íslandi hefur gengið vel að standa undir skuldbindingum sínum samkvæmt samningnum. Dagleg framkvæmd samningsins hér á landi er fyrst og fremst fólgin í landamæraeftirliti, einkum á Keflavíkurflugvelli, og lögreglusamvinnu, t.d. rekstri Schengen-upplýsingakerfisins hér á landi.
Þá er Ísland virkur þátttakandi í mótun þeirra reglna sem varða framkvæmd Schengen með þátttöku sinni í svonefndri samsettri nefnd. Ísland var í formennsku samsettu nefndarinnar síðari hluta ársins 2003 og stýrði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra m.a. fundum dómsmálaráðherra Schengen-ríkjanna í samsettu nefndinni. Innan samsettu nefndarinnar er síaukin áhersla lögð á nánari samvinnu þeirra aðila sem hafa daglegt landamæraeftirlit á sinni könnu. Þannig fær samvinnan smám saman á sig þá mynd að hún felist ekki aðeins í samræmdum reglum, heldur í nánum samskiptum þeirra sem sinna framkvæmd samningsins. Nú í vor hefur verið unnið að því að setja upp sérstaka stofnun sem mun leiða þetta verklega samstarf og munu Íslendingar eiga aðild að henni.
Innan þessa samstarfs hefur einnig verið unnið að því að beita nýjustu tækni til að halda uppi öflugu landamæraeftirliti og til að gera lögreglusamvinnu eins skilvirka og mögulegt er. Má í því sambandi nefna að nú er unnið að því að skrá allar vegabréfsáritanir inn á Schengen-svæðið jafnóðum í sérstakan grunn ásamt upplýsingum um viðkomandi ferðamenn, sem síðan verða bornar saman við handhafa áritana á landamærunum. Einnig er hafin vinna við nýtt Schengen-upplýsingakerfi sem ætlunin er að nýtist lögreglu enn betur í baráttunni gegn glæpum, ekki síst hvers konar smygli á fólki, auk þess sem þetta nýja kerfi er forsenda þess að unnt verði að fjölga notendum í 25.
6.10. Þróun Evrópusambandsins.
Drög að stofnsáttmála ESB.
Í síðustu skýrslu utanríkisráðherra um alþjóðamál var þess getið að aðildarríki ESB hefðu hrundið af stað ráðstefnu um „Framtíð Evrópu“ þar sem áætlað var að taka enn á ný til skoðunar stofnsáttmála ESB og aðlaga hann að þeim breytta veruleika sem m.a. fælist í stækkun ESB sem nú kemur til framkvæmda 1. maí 2004. Ráðstefnunni lauk í júní á síðasta ári með sameiginlegri tillögu að nýjum stjórnarskrársáttmála fyrir ESB sem afhent var þjóðarleiðtogum ESB til frekari meðferðar. Sú málsmeðferð hefur hins vegar tafist þar sem ósamkomulag er á milli aðildarríkjanna, einkum um hvert atkvæðavægi einstakra ríkja skuli vera í ráðherraráðinu. Að undanförnu hafa þó líkur aukist á því að lausn verði fundin á þessum ágreiningi innan fárra mánaða.
Eitt af meginmarkmiðum með endurskoðun sáttmálans var að gera hann auðskildari og aðgengilegri hinum almenna borgara. Er það liður í að færa Evrópusambandið nær íbúum ESB-ríkjanna, eins og það er orðað. Segja má að fyrirliggjandi drög að stjórnarskrársáttmálanum séu á margan hátt skýrari og einfaldari en núgildandi ákvæði, t.d. þau ákvæði sem mæla fyrir um valdsvið ESB.
Án efa munu ákvæði stjórnarskrársáttmálans um stofnanir ESB vekja mesta athygli. Er í fyrirliggjandi drögum m.a. lagt til að komið verði á fót embætti samstarfsráðherra utanríkismála sem mun sinna utanríkis- og öryggismálum ESB og stýra fundum utanríkisráðherra ESB. Þá er lagt til að stofnað verði embætti forseta leiðtogaráðsins sem skal stýra fundum leiðtoga ESB og koma fram á alþjóðavettvangi fyrir hönd þeirra. Einnig er tekist á um breytt hlutverk framkvæmdastjórnarinnar eftir stækkun auk þess sem leitast er við að gera ákvörðunarferlið skilvirkara, m.a. með því að mæla fyrir um að fleiri málefni megi afgreiða með meirihlutaákvörðunum. Þá eru lagðar til breytingar á reglum um hvernig meirihlutaákvarðanir skulu teknar í ráðherraráði Evrópusambandsins. Er lagt til að tekin verði upp regla um svonefndan tvöfaldan meiri hluta, en í þeirri reglu felst að tilllaga telst samþykkt njóti hún stuðnings annars vegar meiri hluta aðildarríkjanna og hins vegar aðildarríkja sem hafa 3/ 5 af íbúafjölda sambandsins. Það er þessi regla sem hefur vakið hvað mestar deilur. Sérstaklega hafa Spánverjar og Pólverjar átt erfitt með að sætta sig við slíka reglu, en þessi ríki hafa hlutfallslega meira vægi samkvæmt þeirri skipan sem Nice-sáttmálinn mælir fyrir um en leiða mundi af þessu fyrirkomulagi.
Tillögur að stjórnarskrársáttmálanum gera einnig ráð fyrir vaxandi hlutverki ESB á sviði utanríkis- og öryggismála, en nánar er vikið að því á öðrum stað í skýrslunni. Hvað Ísland varðar er ástæða til að nefna að breytingar á undirbúningi ákvarðana á sviði Schengen-samstarfsins gera ráð fyrir auknu hlutverki Evrópuþingsins en á þeim vettvangi hefur Ísland ekki áhrif á mótun ákvarðana. Er hér um að ræða áþekka þróun og átt hefur sér stað í EES-samstarfinu þar sem vægi Evrópuþingsins hefur aukist.
Drög að nýjum stjórnarskrársáttmála mæla fyrir um að Evrópusambandið skuli vera lögaðili og að sameina skuli hinar svonefndu þrjár stoðir Evrópusambandsins (undir fyrstu stoð falla málefni innri markaðarins, undir aðra stoð falla utanríkismál og innanríkis- og dómsmál tilheyra þriðju stoðinni). Það kann að valda því að Evrópusambandið samþykki löggjöf sem aðeins að hluta til mundi varða málefni innri markaðarins. Þetta kann að valda vissum erfiðleikum í rekstri EES-samningsins því þetta getur leitt til þess að ESB samþykki gerðir sem falla aðeins að hluta til undir gildissvið EES-samningsins. Í slíkum tilfellum mundu aðeins þau ákvæði slíkra gerða sem beinlínis féllu undir gildissvið EES-samningsins verða tekin upp í samninginn, en önnur ákvæði yrðu ekki bindandi. Þetta kann að skapa vissar lagaflækur og kallar á árvekni af hálfu EFTA-ríkjanna þegar metið er hvort fella skuli nýjar gerðir undir samninginn.
Lissabon-ferlið.
Þátttaka Íslands í því markaðsumhverfi sem skapaðist með EES-samningnum hefur haft mikil áhrif á íslenskt atvinnulíf og samkeppnishæfni vegna samkeppnisreglna EES-samningsins. Evrópusambandið hefur lagt mikla áherslu á samkeppnishæfni fyrirtækja á innri markaðnum og hefur Ísland verið þátttakandi í svonefndri Lissabon-áætlun Evrópusambandsins frá árinu 2000.
Markmiðið með henni er að gera Evrópusambandið að framsæknasta og samkeppnishæfasta þekkingarhagkerfi veraldar árið 2010. Ljóst er að nái áætlunin fram að ganga mun hún auka samkeppni og kaupmátt á EES-svæðinu sem leiðir til meiri verðmætasköpunar og eftirspurnar á útflutningsmörkuðum okkar. Það byggist á því að aðildarríkin geri það sem í þeirra valdi stendur til að framfylgja áætluninni og er stuðst við sérstaka hagvísa til að mæla frammistöðu ríkjanna að því er varðar efnahagsmál, atvinnumál, nýsköpun og rannsóknir, efnahagslegar umbætur, félagslega samheldni og umhverfismál.
Ísland hefur vissulega mikla sérstöðu á sumum sviðum sem áætlunin tekur til. Til að mynda er atvinnuleysi hér lágt og atvinnuþátttaka mikil. Sé frammistaða Íslands skoðuð í samanburði við hin ríkin kemur og í ljós að landsframleiðsla hér á landi hefur verið hærri en að meðaltali í Evrópusambandsríkjunum auk þess sem við stöndum vel að vígi í útgjöldum til rannsókna- og þróunarmála. Nú á haustdögum 2003, á reglulegum fundi ráðuneyta um EES-mál, var tekin ákvörðun um að ráðuneytin gerðu úttekt á stöðu Íslands í Lissabon-áætlunininni. Slík skýrsla eða úttekt er nú í undirbúningi í ráðuneytinu en í henni verður lagt mat á frammistöðu Íslands í samanburði við önnur aðildarríki EES-samningsins með aðstoð þeirra hagvísa sem eiga við á þeim sviðum sem áætlunin tekur til. Er vonast til að skýrslan verði tilbúin nú með vorinu.
7. SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR
Frá því í júní árið 2001 er Kofi Annan var einróma endurkjörinn aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna til næstu fimm ára hefur ríkt almenn ánægja með störf hans. Mörg átakamál hafa þó sett svip á starfsemi stofnunarinnar að undanförnu sem erfið hefur reynst aðalframkvæmdastjóranum í starfi hans og raunar Sameinuðu þjóðunum í heild. Nauðsynlegum umbótum á Sameinuðu þjóðunum og sérstofnunum þeirra hefur miðað hægt þrátt fyrir að málið hafi verið efst á baugi og að aðalframkvæmdastjórinn hafi unnið ötullega að því. Enn fremur hefur deilan um þróun mála í Írak og átökin þar leitt til ákveðins uppgjörs sem hefur reynst Sameinuðu þjóðunum erfitt. Kofi Annan hefur nú skipað 16 manna hóp valinkunnra aðila til að gera úttekt á helstu ógnum við öryggi í heiminum og tillögur um aðgerðir gegn þeim. Hópurinn mun skila skýrslu til aðalframkvæmdastjórans í lok ársins 2004.
7.1. Virk þátttaka Íslands í starfi Sameinuðu þjóðanna.
Á þessu ári fer Ísland með formennsku í hópi Norðurlanda innan Sameinuðu þjóðanna. Margir héldu að draga mundi úr norrænu samstarfi innan samtakanna eftir að þrjú Norðurlandanna gerðust aðilar að Evrópusambandinu. Það hefur ekki gengið eftir og er norræna samstarfið innan Sameinuðu þjóðanna mjög virkt. Norrænu fastafulltrúarnir í New York hittast t.d. alltaf einu sinni í viku til að bera saman bækur sínar. Í ár fara þessir fundir fram undir íslenskri fundarstjórn. Enn fremur hittast fastafulltrúar Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna reglulega. Þá hafa norrænir fulltrúar í nefndum Sameinuðu þjóðanna og undirstofnunum með sér náið samráð.
Ísland er í marsmánuði þessa árs oddviti hóps Vestur-Evrópu og annarra ríkja (WEOG, samtals 30 ríki), en innan hans fer fram samræming vegna framboðsmála til nefnda og ráða Sameinuðu þjóðanna og stofnana á vegum samtakanna.
Á yfirstandandi allsherjarþingi (58. þing) hafa fulltrúar Íslands sem fyrr leitast við að taka þátt í umfjöllun og flytja ræður um málefni sem varða hagsmuni þjóðarinnar í alþjóðasamfélaginu. Hægt er að nálgast ræðurnar á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.
7.2. Framboð Íslands til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að sækjast eftir sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir tímabilið 2009–2010 var öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna tilkynnt með formlegum hætti um framboð Íslands haustið 2003. Framboð Íslands nýtur stuðnings Norðurlandanna.
Framboðið til öryggisráðsins er eitt stærsta verkefni sem utanríkisþjónusta Íslands hefur tekist á við til þessa. Austurríki og Tyrkland hafa tilkynnt um framboð til öryggisráðsins fyrir sama tímabil þannig að ljóst er að kosningabarátta er óumflýjanleg, enda eru aðeins tvö sæti í boði fyrir fulltrúa vestræna hópsins. Nú þegar hefur talsvert starf verið unnið fyrir undirbúning framboðsins bæði hvað varðar áætlanagerð og með því að leitast við að gera Ísland enn sýnilegra á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og undirstofnana þeirra.
Einn liður í undirbúningi framboðsins er að stofna til stjórnmálasambands við þau ríki sem hingað til hefur ekki verið stjórnmálasamband við. Stofnun stjórnmálasambands hefur yfirleitt farið fram á milli fastanefnda í New York og felur ekki í sér að ríkin skiptist á sendiherrum. Hins vegar er lagður grunnur að frekari samskiptum og viðskiptum við þessi ríki. Stefnt er að því að ljúka þessu verkefni fyrir lok ársins 2004.
Enn fremur er stefnt að því að nota árið 2004 fyrst og fremst til undirbúnings framboðsins með það fyrir augum að tryggja markvissa og skilvirka kosningabaráttu sem og ábyrga og árangursríka þátttöku í öryggisráðinu.
Hlutverk öryggisráðsins og rökstuðningur við framboð Íslands.
Í stofnskrá Sameinuðu þjóðanna er öryggisráðinu falin aðalábyrgð á varðveislu friðar og öryggis í heiminum. Síðan Ísland gerðist aðili að Sameinuðu þjóðunum haustið 1946 hafa Íslendingar ásamt öðrum þjóðum verið skuldbundnir til að stuðla að þessum meginmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og öryggisráðsins.
Í ræðu sinni um utanríkismál á Alþingi síðastliðið haust sagði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra að framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna væri ekki markmið í sjálfu sér heldur rökrétt framhald af þeirri þróun að tryggja grundvallarutanríkishagsmuni Íslands með virkri þátttöku í alþjóðasamstarfi og sérstaklega á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Sú þróun felur í sér að Ísland axli þá ábyrgð á alþjóðavettvangi sem vel stæðu og sjálfstæðu ríki ber skylda til gagnvart alþjóðasamfélaginu.
Beinn ávinningur af framboði Íslands til öryggisráðsins er ekki meginmarkmiðið en ljóst er að með framboðinu styrkir Ísland stöðu sína á alþjóðavettvangi og auðveldar gæslu á grundvallarhagsmunum Íslands. Jafnframt styrkir framboðið samningsstöðu íslenskra stjórnvalda í þeim mörgu erfiðu málum sem leysa þarf á alþjóðavettvangi. Með framboðinu gefst einstakt tækifæri til að halda fram megináherslum utanríkisstefnu Íslands og annarra Norðurlanda og smærri ríkja almennt á alþjóðavettvangi. Takist vel til öðlast Ísland virðingu og traust annarra ríkja sem aftur eykur bolmagn Íslendinga til að koma málum á framfæri á alþjóðavettvangi. Jafnframt krefst framboð og seta í öryggisráðinu þess að Íslendingar leitist við að verða öðrum ríkjum fyrirmynd, einkum á eigin áherslusviðum, og því verður framboðið hvatning til að gera enn betur á þessum sviðum heima fyrir.
Áherslur Íslands og málefnaundirbúningur framboðsins mun nýtast víðar en innan vébanda Sameinuðu þjóðanna. Þannig er víst að framboðið verður til þess að styrkja stöðu EFTA/EES-ríkjanna í því utanríkispólitíska samráði sem þau eiga við Evrópusambandið. Verði vel að verki staðið er mögulegt að nýta þetta einstaka tækifæri í samskiptum Íslands við önnur ríki, jafnt tvíhliða sem marghliða.
Áherslur Íslands.
Í kynningu á öryggisráðsframboðinu verður lögð áhersla á eftirfarandi atriði:
Friður og öryggi í heiminum: Ísland mun halda áfram að leggja ríka áherslu á virðingu fyrir grundvallarmannréttindum, eflingu lýðræðis, baráttu gegn fátækt, virðingu fyrir grundvallarreglum þjóðaréttar og þar með viðurlögum við þjóðarmorði og grófum mannréttindabrotum.
Umbætur á starfi öryggisráðsins: Ísland hefur á undanförnum árum lagt áherslu á umbætur í starfi og uppbyggingu Sameinuðu þjóðanna og stutt umbótaviðleitni Kofi Annan, aðalframkvæmdastjóra samtakanna. Með þessu starfi hefur Ísland áunnið sér virðingu og traust samstarfsríkjanna, ekki síst með varaformennsku fastafulltrúa Íslands í vinnuhópi um umbætur á starfi öryggisráðsins. Umbætur á starfi ráðsins eru nauðsynlegar og styður Ísland fjölgun sæta í öryggisráðinu, jafnt kjörinna sem fastra ríkja, og að neitunarvaldið verði skilyrt.
Afvopnunarmál: Ísland leggur áherslu á afvopnunarmál og þá sérstaklega á aðgerðir gegn útbreiðslu gereyðingavopna. Sameinuðu þjóðirnar er sú stofnun sem hefur fjallað hvað mest um afvopnunarmál og mikilvægt er að stofnunin setji viðmið og standi vörð um alþjóðlegar skuldbindingar hvað varðar útbreiðslu gereyðingavopna. Stofnunin er einnig mikilvægur vettvangur til skoðanaskipta sem dregið geta úr spennu á milli aðildarríkja.
Enn fremur mun Ísland nýta sér setuna í öryggisráðinu til þess að vinna að hagsmunamálum sem Ísland hefur stutt og barist fyrir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Ísland hefur mikið látið að sér kveða á sviði hafréttar og í umhverfismálum, sérstaklega hvað varðar sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda. Enn fremur hefur Ísland lagt áherslu á réttindi kvenna. Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sl. haust lagði Ísland fram fyrir hönd Norðurlanda ályktun tengda alþjóðasamningnum um afnám hvers kyns misréttis gegn konum. Í samvinnu við önnur Norðurlönd hefur Ísland unnið að því að tryggja framkvæmd fyrirheita um vernd kvenna í átökum og að tryggja þátttöku þeirra í friðarferli að átökum afstöðnum. Þess má að lokum geta að Ísland hefur beitt sér fyrir aðgerðum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna til að hefta og uppræta mansal líkt og gert hefur verið innan ÖSE og Eystrasaltsráðsins.
7.2.1. Aðild Íslands að ráðum, nefndum og stjórnum.
Efnahags- og félagsmálaráð Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC).
Á aðalfundi efnahags- og félagsmálaráðs Sameinuðu þjóðanna var samþykkt yfirlýsing þar sem mikilvægi uppbyggingar mannauðs í baráttunni fyrir útrýmingu fátæktar var staðfest. Lögð var áhersla á lykilhlutverk menntunar og heilbrigðis í þessu efni og á nauðsyn þess að samþætta kynjasjónarhornið í allri stefnumörkun og öllum verkefnum til uppbyggingar mannauðs. Ísland var meðflytjandi að tveimur ályktunum: annars vegar ályktun um samþættingu kynjasjónarhornsins og hins vegar ályktun um frumbyggja sem var norræn ályktun.
Ísland hefur boðið sig fram til setu í efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC) á tímabilinu 2005–2007. Vesturlandahópurinn (WEOG) fær 13 sæti í ECOSOC og verður kosið um fjögur þeirra á 59. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna næsta haust. Ásamt Íslandi hafa Ástralía, Bretland og Danmörk boðið sig fram. Að öllu óbreyttu mun Ísland taka sæti í ECOSOC í upphafi næsta árs enda liggur fyrir samkomulag innan WEOG um skiptingu sæta í ráðinu til ársins 2021. Í sumar verður aðalfundur ECOSOC haldinn í New York og mun Ísland taka virkan þátt í honum í krafti áheyrnaraðildar. Vafalaust mun það reynast mikilvægur undirbúningur fyrir setu Íslands í ráðinu.
Nefnd Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (CSD).
Ísland er nú að ljúka þriggja ára kjörtímabili sínu í nefnd Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (CSD). Ísland hefur tekið virkan þátt í starfi nefndarinnar öll árin og mun halda áfram að fylgjast með starfinu sem áheyrnarfulltrúi eftir að kjörtímabilinu lýkur.
Nefndin var sett á fót til að fylgja eftir ákvörðunum Ríó-ráðstefnunnar um umhverfi og þróun og vann hún að undirbúningi leiðtogafundar Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem haldinn var í Jóhannesarborg haustið 2002. Á leiðtogafundinum var ákveðið að nefndin skyldi áfram vera vettvangur umræðu um sjálfbæra þróun en að nauðsynlegt væri að styrkja framkvæmdahlutverk hennar. Á 11. fundi nefndarinnar, sem haldinn var í New York 28. apríl – 9. maí 2003, voru samþykktar tillögur til efnahags- og félagsmálaráðs Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC) um að starfi nefndarinnar yrði skipað í sérstök tveggja ára umræðuferli sem skiptast í endurskoðunarár annars vegar og í stefnumótunarár hins vegar. Jafnframt var samþykkt tillaga um umræðuefni til næstu 14 ára. Umræðuefnin í fyrsta umræðuferlinu 2004–2005 eru vatn, frárennslismál og byggðaþróun. Efnahags- og félagsmálaráðið samþykkti sumarið 2003 framangreindar tillögur nefndarinnar um sjálfbæra þróun.
Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna (CSW).
Ísland hefur tekið sæti í kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna (The Commission on the Status of Women – CSW) til næstu fjögurra ára. Alls eiga 45 ríki sæti í nefndinni sem fellur undir efnahags- og félagsmálaráð Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC). Kvennanefndin kemur saman einu sinni á ári, tvær vikur í senn og er markmið hennar að vinna að jafnrétti karla og kvenna. Í kjölfar kvennaráðstefnunnar í Peking árið 1995 var kvennanefndinni falið að mynda, ásamt efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna og allsherjarþinginu, þríeyki til að vinna að stefnumótun og eftirfylgni með framkvæmdaáætluninni sem samþykkt var í Peking. Eftir aukaallsherjarþingið árið 2000 sem haldið var í tilefni fimm ára afmælis Peking-ráðstefnunnar var nefndinni jafnframt falið að fylgjast með framkvæmd samþykkta ráðstefnunnar.
Næsta ár verða tíu ár liðin frá kvennaráðstefnunni í Peking. Af því tilefni mun næsti fundur kvennanefndarinnar meta árangur hennar og aukaallsherjarþingsins árið 2000. Áhersla verður lögð á framkvæmd þeirra skuldbindinga sem þar voru samþykktar. Ekki er gert ráð fyrir samningum um nýjar skuldbindingar. Einnig liggur fyrir tillaga frá kvennanefndinni til efnahags- og félagsmálaráðsins um að lagt verði til að haldið verði upp á tíu ára afmæli kvennaráðstefnunnar í Peking með almennri umræðu í allsherjarþinginu.
Undirnefnd mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna.
Ísland hefur tilkynnt framboð dr. Guðmundar Alfreðssonar, þjóðréttarfræðings og forstöðumanns Raoul Wallenberg-stofnunarinnar í Lundi, til setu í undirnefnd mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (Sub-Commission on the Promotion and Protection of Human Rights) 2004–2008. Framboðið nýtur stuðnings Norðurlandanna. Utanríkisráðuneytið ásamt fastanefnd Íslands í Genf hefur unnið að kynningu framboðsins og öflun stuðnings við það, en kosið verður á mannréttindaþingi Sameinuðu þjóðanna í apríl 2004.
Undirnefndin er skipuð 26 óháðum sérfræðingum og er hlutverk hennar í megindráttum að takast á hendur rannsóknir, sérstaklega með mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna (Universal Declaration of Human Rights) að leiðarljósi, og senda tilmæli til mannréttindaráðsins sjálfs. Undirnefndin innir þau verk af hendi sem henni eru falin sérstaklega af efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC) og/eða mannréttindaráðinu.
Framkvæmdastjórn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).
Ísland tók sæti í framkvæmdastjórn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar á alþjóðaheilbrigðisþinginu í maí 2003 og er Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, fulltrúi Íslands. Ísland hefur tvisvar áður átt sæti í stjórninni, síðast 1983–86. Kjörtímabil Íslands stendur til loka alþjóðaheilbrigðisþingsins í maí 2006.
Framkvæmdastjórnin fer með æðsta vald í málefnum stofnunarinnar, en í framkvæmdastjórninni sitja fulltrúar 32 aðildarríkja. Með aðild að framkvæmdastjórninni fær Ísland tækifæri til þess að hafa áhrif á mikilvægar ákvarðanir um starfsemi og stefnu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
Framboð til setu í framkvæmdastjórn Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO).
Magnús Jónsson veðurstofustjóri hefur verið tilnefndur sem frambjóðandi til setu í framkvæmdastjórn Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO) sem fulltrúi Evrópusvæðisins og hefur hann samþykkt tilnefninguna. Íslenskur veðurstofustjóri hefur aldrei áður átt sæti í framkvæmdastjórn stofnunarinnar. Kosið er skriflega og frestur til að skila inn atkvæði rennur út í maí 2004. Utanríkisráðuneytið, sendiráð og fastanefndir vinna að kynningu framboðsins og öflun stuðnings við það í samvinnu við veðurstofustjóra.
7.2.2. Þátttaka íslenskra þingmanna í störfum allsherjarþingsins.
Þátttaka íslenskra þingmanna í störfum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna tengir á mikilvægan hátt löggjafarvaldið við framkvæmd utanríkismála. Það er stefna utanríkisráðuneytisins að viðhalda opnu upplýsingaflæði milli Alþingis og utanríkisþjónustunnar og eru heimsóknir alþingismanna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna mikilvægur liður í því.
Eftirfarandi þingmenn sóttu 57. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna haustið 2002: Árni R. Árnason, Björn Bjarnason, Ísólfur Gylfi Pálmason, Karl V. Matthíasson, Sigríður Ingvarsdóttir og Svanfríður Jónasdóttir.
58. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna haustið 2003 sóttu eftirtaldir þingmenn: Dagný Jónsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Jón Bjarnason, Jón Gunnarsson, Mörður Árnason og Sólveig Pétursdóttir.
7.2.3. Íslenskir starfsmenn hjá Sameinuðu þjóðunum.
Það er stefna utanríkisráðuneytisins að stuðla að fjölgun íslenskra starfsmanna hjá alþjóðastofnunum. Íslendingar starfa á vegum Sameinuðu þjóðanna, sérstofnana þeirra og undirstofnana víða um heim. Á þessu ári hófu tveir íslenskir starfsmenn störf hjá efnahags- og félagsmáladeild Sameinuðu þjóðanna í höfuðstöðvum stofnunarinnar í New York, þau R. Hulda Proppé og Broddi Sigurðarson. Jón Ingi Herbertsson starfar í uppýsingadeild Sameinuðu þjóðanna í New York. Íslendingar hafa einnig í auknum mæli lagt fyrir sig störf innan friðargæslu Sameinuðu þjóðanna á eigin vegum, þ.e. ekki sem útsendir starfsmenn Íslensku friðargæslunnar. Af þeim sem inna slík störf af hendi má nefna Steinar Berg Björnsson viðskiptafræðing, sem er yfirmaður rekstrarsviðs friðargæslu Sameinuðu þjóðanna í Síerra Leóne, og Ingibjörgu Ásgeirsdóttur og Snorra Magnússon lögreglumenn sem bæði gegna ábyrgðarstöðum á sviði öryggismála. Ingibjörg starfar í Síerra Leóne og Snorri er nýkominn til starfa í New York eftir störf í Líberíu.
7.3. Leiðtogafundir Sameinuðu þjóðanna og aðrir stórviðburðir.
7.3.1. Leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (World Summit for Sustainable Development, WSSD)
Leiðtogafundurinn var haldinn í Jóhannesarborg 26. ágúst – 4. september 2002 í tilefni af tíu ára afmæli Ríó-ráðstefnunnar um umhverfi og þróun. Megintilgangur hans var að endurnýja skuldbindingar sem gerðar voru í Ríó 1992 og að skilgreina helstu áherslur í umhverfis- og þróunarmálum á komandi áratug. Fundurinn var hinn fjölmennasti af slíkum samkomum sem haldnar hafa verið á vegum Sameinuðu þjóðanna, en hann sóttu yfir 21 þúsund fulltrúar, auk þúsunda annarra gesta sem lögðu leið sína til Jóhannesarborgar í tengslum við fundinn og aðrar ráðstefnur sem haldnar voru á sama tíma. Davíð Oddsson forsætisráðherra var formaður sendinefndar Íslands á fundinum.
Að loknum undirbúningsfundi var leiðtogafundurinn formlega settur 26. september 2002. Þá hófust formlegir samningafundir um framkvæmdaskjalið og pólitíska yfirlýsingu fundarins og skrásetning um 230 samstarfsverkefna sem voru tilkynnt á fundinum. Hundruð kynninga og viðburða af ýmsu tagi fóru fram í tengslum við leiðtogafundinn. Meðal meginviðburða má nefna hringborðsumræður leiðtoga og ráðherra, málþing hagsmunaaðila og umræður um þau fimm svið, sem aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna taldi að leiðtogafundurinn gæti skilað mestum árangri á, þ.e. á sviði heilbrigðismála, vatns, orku, landbúnaðar og líffræðilegs fjölbreytileika.
Helstu samþykktir fundarins voru annars vegar pólitísk yfirlýsing, Jóhannesarborgar-yfirlýsingin, en hins vegar viðamikil framkvæmdaáætlun um umhverfis- og þróunarmál. Að auki voru kynnt á fundinum yfir 200 samstarfsverkefni ríkja, alþjóðastofnana, fyrirtækja og félagasamtaka. Þjóðarleiðtogar ávörpuðu fundinn á lokadögum hans.
7.3.2. Málþing um alnæmi (HIV/AIDS).
Hinn 22. september 2003 var haldið í New York málþing um alnæmi til að fylgja eftir niðurstöðum 26. aukaallsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem haldið var 2001. Niðurstöðuskjal aukaallsherjarþingsins var yfirlýsing um skuldbindingar varðandi alnæmi.
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sótti málþingið fyrir hönd Íslands, ásamt Davíð Á. Gunnarssyni, ráðuneytisstjóra heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, og Haraldi Briem, sóttvarnalækni. Á málþinginu var fjallað um skuldbindingar og markmið Sameinuðu þjóðanna í baráttunni gegn alnæmisvánni sem hefur lagt að velli yfir tuttugu milljónir manna. Í ræðu sinni lagði heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra áherslu á samstöðu þjóða til að styrkja þau markmið sem sett voru með yfirlýsingu um skuldbindingar í baráttunni gegn alnæmisvandanum. Sagði hann að bæta þyrfti félagslega stöðu fólks, tryggja að meðferð við sjúkdómnum sé aðgengileg fyrir alla, stuðla að þróun lyfja og bólusetningarefna og tryggja fjármagn í baráttunni gegn alnæmi. Þá lýsti ráðherrann því yfir að Ísland mundi standa standa við skuldbindingar samkvæmt yfirlýsingu 26. aukaallsherjarþingsins. Ísland hefur heitið að greiða 15 millj. kr. til alheimssjóðs sem ætlaður er til að berjast gegn alnæmi.
7.3.3. Málþing um fjármögnun þróunar.
Dagana 29.–30. október 2003 var haldið í New York málþing til að fylgja eftir niðurstöðum alþjóðlegrar ráðstefnu um fjármögnun þróunar sem haldin var í Monterrey í Mexíkó árið 2002. Á málþinginu kom fram eindreginn stuðningur við samþykkt Monterrey-ráðstefnunnar sem þykir skipta miklu máli fyrir framkvæmd hennar. Nokkur árangur þykir hafa náðst við framkvæmd samþykktarinnar. Ljóst er þó að frekari aðgerða er þörf með samstilltu átaki, en sérstaklega þarf að efla þróun í alþjóðlegum viðskiptum.
7.3.4. Leiðtogafundur um upplýsingasamfélagið (WSIS).
Dagana 10.–12. desember 2003 var haldinn í Genf leiðtogafundur Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðafjarskiptastofnunarinnar (ITU) um upplýsingasamfélagið (World Summit on the Information Society, WSIS). Undirbúningur og þátttaka í fundinum af Íslands hálfu var í höndum menntamálaráðuneytisins og verkefnisstjórnar um upplýsingasamfélagið í samvinnu við utanríkisráðuneytið. Haldnir voru þrír undirbúningsfundir í Genf og einn í París, auk svæðisbundinna undirbúningsfunda og fjölda óformlegra funda. Tómas Ingi Olrich, þáverandi menntamálaráðherra, sótti leiðtogafundinn ásamt íslenskri sendinefnd fulltrúa frá menntamálaráðuneyti, forsætisráðuneyti, fastanefnd Íslands í Genf, félagasamtökum og fyrirtækjum.
Menntamálaráðherra flutti ræðu á allsherjarfundi, auk þess sem hann flutti erindi á sérstökum fundi um fjölmiðla (World Electronic Media Forum, WEMF). Ráðherrann tók einnig þátt í hringborðsumræðum um nýja möguleika í fjarskiptum.
Leiðtogafundinn sóttu um 10 þúsund manns, þar af um 50 þjóðarleiðtogar. Fundurinn samþykkti yfirlýsingu og framkvæmdaáætlun um upplýsingasamfélagið. Meginviðfangsefni þessara skjala er að bæta aðgengi íbúa fátækari ríkja að upplýsingatækni og auka þátttöku þeirra í upplýsingasamfélaginu. Á meðan á leiðtogafundinum stóð var boðið upp á tæplega 300 hliðarviðburði, svo sem málstofur og ráðstefnur af ýmsu tagi. Auk þessa var mikil vörusýning haldin í ráðstefnuhöll leiðtogafundarins.
Leiðtogafundinum í Genf verður fylgt eftir með öðrum leiðtogafundi í Túnis 16.–18. nóvember 2005.
7.3.5. Ráðstefna um uppbyggingu í Líberíu.
Ráðstefna um uppbyggingu í Líberíu var haldin í New York 5.–6. febrúar 2004 í boði Sameinuðu þjóðanna, ríkisstjórnar Bandaríkjanna og Alþjóðabankans. Fulltrúar 96 ríkja og 45 stofnana tóku þátt í ráðstefnunni. Á ráðstefnunni var fjallað um skipulagningu uppbyggingarstarfs í Líberíu eftir að borgarastyrjöldinni sem þar hefur geisað undanfarin 14–15 ár lauk með undirritun svonefnds Akkra-samnings í ágúst 2003. Kynnt var tveggja ára áætlun um umbætur á stjórnarháttum og stjórnsýslu Líberíu. Lögð var áhersla á að nauðsynlegt væri að nota það tækifæri sem skapast hefur til að efla efnahagslífið og veita mannúðaraðstoð. Meðal þeirra sem ávörpuðu ráðstefnuna voru Kofi Annan, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Á ráðstefnunni var því lýst hve illa leikin líberíska þjóðin var á meðan borgarastyrjöldinni stóð, ekki síst vegna mannréttindabrota og brota á alþjóðlegum mannúðarlögum. Víðtækt umboð friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna og framlög alþjóðasamfélagsins muni hins vegar hafa mikil áhrif til batnaðar.
Mörg þeirra ríkja sem tóku þátt í ráðstefnunni lofuðu fjárframlagi til uppbyggingar í Líberíu, m.a. Ísland sem hét framlagi að fjárhæð 1 millj. kr.
7.3.6. Ráðherrafundur ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og þróun (UNCTAD).
Áformað er að halda ellefta ráðherrafund ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og þróun (UNCTAD XI) í Sao Paulo 13.–18. júní 2004. Á slíkum ráherrafundum eru teknar ákvarðanir um forgangsmál ráðstefnunnar næstu fjögur árin, auk þess sem þeir eru vettvangur umræðna um efnahags- og þróunarmál. Að þessu sinni verður meginviðfangsefni fundarins að finna leiðir til að samræma stefnu einstakra ríkja í þróunarmálum og styrkja stefnumótun á alþjóðavettvangi í viðskipta- og efnahagsmálum.
7.4. Mannréttindamál.
Í samræmi við mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna sem og yfirlýsingu og framkvæmdaáætlun mannréttindaráðstefnunnar í Vínarborg árið 1993 leggja íslensk stjórnvöld áherslu á að tryggja beri mannréttindi um allan heim óháð svæðisbundnum aðstæðum, t.d. stjórnarfari og menningu, félagslegu umhverfi eða trúarbrögðum. Efling mannréttinda er órjúfanlegur hluti af starfi Sameinuðu þjóðanna í þágu friðar og öryggis. Mannréttindi eru óaðskiljanlegur hluti alþjóðastjórnmála en ekki einkamál hvers ríkis fyrir sig. Ísland mun sem fyrr leggja áherslu á að styðja baráttuna fyrir mannréttindum sem eru samofin baráttunni gegn fátækt, kúgun, ófriði og hryðjuverkum.
Ísland mun einkum halda áfram að leggja ríka áherslu á réttindi kvenna og barna, þ.m.t. samþættingu kynjasjónarmiða. Utanríkisráðherra hefur ávallt gert mannréttindamál að umtalsefni í ræðum sínum á allsherjarþinginu og hafa íslensk stjórnvöld almennt leitast við að taka sem virkastan þátt í starfi Sameinuðu þjóðanna á þessu sviði.
7.4.1. Mannréttindi og alþjóðlegir samningar.
Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Á síðustu tveimur allsherjarþingum Sameinuðu þjóðanna hefur Ísland lagt fram tvær ályktanir um mannréttindi. Á 57. allsherjarþinginu árið 2002 lagði Ísland í fyrsta sinn fram ályktunartillögu á allsherjarþinginu. Ályktunin fjallaði um pyntingar og aðra ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og byggðist í aðalatriðum á alþjóðasamningnum um sama efni. Danmörk hefur yfirleitt flutt þessa tillögu fyrir hönd Norðurlandanna en vegna formennsku Dana í Evrópusambandinu á þessu tímabili tók Ísland það hlutverk að sér. Allsherjarþingið samþykkti ályktunina einróma. Á 58. allsherjarþinginu árið 2003 lagði Ísland aftur fram ályktun fyrir hönd Norðurlandanna. Ályktunin fjallar um alþjóðasamninginn um afnám alls misréttis gegn konum (CEDAW). Ályktunin var samþykkt án atkvæðagreiðslu.
Jafnréttismál eiga undir högg að sækja á alþjóðavettvangi og er mikilvægt að standa vörð um þær skuldbindingar sem þegar hefur náðst samkomulag um. Síðastliðið haust lögðu Hollendingar fram ályktunartillögu á allsherjarþinginu sem fjallaði um baráttuna gegn hvers kyns ofbeldi gegn konum. Þegar ljóst var að ekki næðist samkomulag nema á kostnað þegar samþykktra skuldbindinga drógu Hollendingar tillöguna til baka. Þess í stað lögðu þeir fram tvær ályktanir. Önnur fjallar um heimilisofbeldi og hin um skýrslu um ofbeldi gegn konum. Fyrri ályktunin er söguleg að því leyti að um er að ræða fyrstu ályktun Sameinuðu þjóðanna um heimilisofbeldi, en það er ein algengasta tegund ofbeldis gegn konum og jafnframt eitt viðkvæmasta viðfangsefnið í þessum málaflokki. Viðkvæmnin er meðal annars vegna þess að sum ríki viðurkenna ekki að vandinn sé til staðar, t.d. að til sé kynferðislegt ofbeldi innan hjónabands. Ísland flutti almennt innlegg fyrir hönd Norðurlandanna varðandi þessa ályktun. Þar var sá skilningur áréttaður að með tilvísun ályktunarinnar í kynferðislegt ofbeldi innan fjölskyldunnar væri meðal annars átt við nauðgun innan hjónabands. Að því er varðar skýrsluna um ofbeldi gegn konum, sem aðalframkvæmdastjórinn á að leggja fram á 60. allsherjarþinginu, eru vonir bundnar við að hún greiði fyrir samkomulagi síðar um allsherjarályktun um ofbeldi gegn konum. Ástæðan er sú að ríki sem vilja ganga skemmst í samþykktum á þessu sviði bera oft fyrir sig skorti á upplýsingum til að komast hjá efnislegri umfjöllun. Með umbeðinni skýrslu verður hægt að draga úr slíkum röksemdum sem yfirleitt eru settar fram til málamynda.
Af hálfu Íslands hefur enn fremur verið lögð rík áhersla á að ákvæði Genfarsáttmálanna og viðbótarbókana við þá um vernd særðra og sjúkra, stríðsfanga, óbreyttra borgara og fórnarlamba staðbundinna vopnaðra átaka verði virt. Þess má geta að Ísland er eitt fárra ríkja sem lagt hefur fram fé í sjóð Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum. Norðurlöndin hafa enn fremur eindregið stutt málefni frumbyggja á vettvangi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna.
Skýrsluskil Íslands á grundvelli mannréttindasamninga.
Aðildarríki að alþjóðlegum mannréttindasamningum eru skuldbundin til að skila reglulega skýrslum til Sameinuðu þjóðanna um framkvæmd viðkomandi samninga.
Í janúar 2003 gerðu fulltrúar íslenskra stjórnvalda grein fyrir annarri skýrslu Íslands á grundvelli samningsins um réttindi barnsins. Í maí 2003 gerðu fulltrúar íslenskra stjórnvalda grein fyrir annarri skýrslu Íslands á grundvelli samningsins um pyntingar og einnig þriðju skýrslu Íslands á grundvelli samnings Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi (CESCR).
Á næstunni verður eftirfarandi skýrslum skilað: 17. og 18. skýrslu Íslands á grundvelli alþjóðasamningsins um afnám kynþáttamisréttis, fjórðu skýrslu á grundvelli samningsins um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi (CCPR) og tveimur skýrslum á grundvelli viðbótarbókunarinnar við samninginn um réttindi barnsins, annars vegar um sölu barna og barnaklám og hins vegar um þátttöku barna í vopnuðum átökum.
Þriðju skýrslu Íslands á grundvelli samningsins um pyntingar ber að skila í nóvember 2005. Þriðju skýrslu Íslands á grundvelli samningsins um réttindi barnsins ber að skila í maí 2008 og fjórðu skýrslu Íslands á grundvelli samningsins um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi ber að skila í júní 2008.
Embætti mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna í Genf.
Mannréttindamál eru einn allra mikilvægasti hluti af starfsemi Sameinuðu þjóðanna og hefur starf þeirra á sviði mannréttinda styrkst enn frekar með sérstöku embætti mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna sem stofnað var til árið 1993. Starfsemi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna hefur verið verulega efld hin síðustu ár, auk þess sem öll aðstaða mannréttindaskrifstofunnar hefur verið bætt verulega.
Þrír einstaklingar hafa gegnt embætti mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna frá upphafi og nú síðast (2002–2003) Sergio Vieira de Mello sem lést 19. ágúst 2003 í hörmulegri hryðjuverkaárás á höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Bagdad. Í lok febrúar á þessu ári var nýr mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna skipaður, kanadíski hæstaréttardómarinn Louise Arbour, sem mun taka við embættinu um mitt ár 2004.
7.4.2. Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í Genf (CHR).
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna (Commission on Human Rights – CHR) heldur sex vikna þing í Genf á vori hverju. Í ráðinu eiga 53 ríki sæti hverju sinni, sem kosin eru af efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC). Svíþjóð er nú fulltrúi Norðurlanda í ráðinu.
Dagskrá mannréttindaþingsins er þétt skipuð. Fjallað er um mannréttindi í ákveðnum löndum og landsvæðum, efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, pyntingar, brotthvarf og aftökur, tjáningarfrelsi, trúfrelsi og fleira. Einnig er fjallað um kynþáttamisrétti, réttindi minnihlutahópa, réttindi frumbyggja, réttindi kvenna og barna, hryðjuverk, menntun, fátækt, alþjóðavæðingu, stöðu alþjóðlegra mannréttindasamninga og verjendur mannréttinda svo eitthvað sé nefnt. Á vegum mannréttindaráðsins starfa sérstakir fulltrúar sem ætlað er að fylgjast með stöðu mannréttindamála í ríkjum þar sem mannréttindi eru síst virt. Einnig hefur sérstökum fulltrúum ráðsins eða óháðum sérfræðingum verið falið að kanna stöðu mannréttinda í hinum ýmsu málaflokkum óháð landsvæðum. Allir þessir einstaklingar og/eða vinnuhópar skila skýrslum til þingsins.
7.4.3. 59. þing mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna.
Venja er að forseti mannréttindaþingsins sé kosinn með lófataki en slík var ekki reyndin á þinginu 2003. Bandaríkjamenn fóru fram á kosningu þar sem ekki var einhugur um stuðning við Najat Al-Hajjaji, sendiherra Líbíu í Genf, sem var í framboði til forseta þingsins. Hún var þó kjörin með 33 atkvæðum, 3 voru á móti og 17 sátu hjá.
Það vakti athygli að greidd voru atkvæði um óvenjumargar ályktunartillögur á þinginu 2003, en ætíð er reynt til þrautar að ná samkomulagi án atkvæðagreiðslu. Aldrei hafa verið fluttar og samþykktar fleiri frávísunartillögur (No Action Motion) en á þinginu 2003. Frávísunartillögur eru lagðar fram til þess að koma í veg fyrir að þingið afgreiði viðkomandi ályktunartillögu og samþykki þar með gagnrýni og tilmæli til ákveðinna ríkja um stöðu mannréttindamála. Einnig voru lagðar fram margar breytingartillögur sem í flestum tilfellum voru felldar. Hin svonefnda norður-suður-skipting er ríkjandi á þinginu og ágreiningur á milli þróunar- og iðnríkja setti sem fyrr og í ríkari mæli svip sinn á störf þingsins. Atkvæðagreiðslur á þinginu 2003 báru þessa skýr merki. Sem dæmi má nefna að greidd voru atkvæði um nær allar ályktunartillögur um einstök ríki. Þar sem þróunarríki eru í meiri hluta á mannréttindaþinginu eru iðulega samþykktar ályktunartillögur sem varða sérstakar áherslur þeirra án þess að samið hafi verið um efnislegt innihald við önnur ríki. Ýmis þróunarríki ásaka einnig vestræn ríki og bandamenn þeirra um að efna til átaka í stað umræðna um stöðu mannréttinda í einstökum ríkjum (landatillögur). Því er haldið fram að vestræn ríki leggi höfuðáherslu á borgaraleg og stjórnmálalaleg réttindi á kostnað félagslegra og efnahagslegra réttinda.
Rúmlega 100 ályktunartillögur og ákvarðanir voru samþykktar á þinginu. Ísland var meðflytjandi að 46 ályktunartillögum um afnám dauðarefsingar, aftökur, baráttu gegn pyntingum, afnám alls ofbeldis gegn konum, réttindi minnihlutahópa, afnám hvers kyns fordóma gagnvart trúarbrögðum, tjáningarfrelsi, réttindi barnsins, mannréttindi fatlaðra, verjendur mannréttinda, alþjóðlega mannréttindasamninga, mannréttindi og hryðjuverk, málefni frumbyggja, fátækt, alnæmi, menntun o.fl. Jafnframt var Ísland meðflytjandi að sérstökum ályktunartillögum um stöðu mannréttinda í Búrúndí, Hvíta-Rússlandi, Írak, Kambódíu, Lýðræðislega lýðveldinu Kongó, Kúbu, Myanmar, Norður-Kóreu, Simbabve, Sierra Leóne, Súdan, Tsjetsjeníu og Túrkmenistan. Tillögurnar voru allar samþykktar nema tillögurnar um Simbabve, Súdan og Tsjetsjeníu.
Ísland var enn fremur meðflytjandi að tillögu Evrópusambandsins um ólöglegt landnám Ísraelsmanna á hernumdu svæðunum og að tillögu Arabaríkjanna um rétt Palestínumanna til sjálfsákvörðunar og stofnunar sjálfstæðs ríkis. Báðar tillögurnar voru samþykktar.
Engin ályktunartillaga var lögð fram um stöðu mannréttindamála í Kína, en undanfarin tíu ár hefur kínverska sendinefndin flutt frávísunartillögu. Hin eiginlega ályktunartillaga um stöðu mannréttinda í Kína hefur því aldrei komið til atkvæðagreiðslu.
Ályktunartillaga Evrópusambandsins um stöðu mannréttindamála í Íran var felld á þinginu 2002 með eins atkvæðis mun. Engin tillaga var lögð fram 2003.
Ályktunartillaga Evrópusambandsins um afnám dauðarefsingar var samþykkt með fimm atkvæða mun eins og á þinginu í 2002.
Ályktunartillögur um réttindi barnsins, tjáningarfrelsi og um mannréttindi og hryðjuverk voru samþykkar samhljóða. Ályktunartillaga Norðmanna um verjendur mannréttinda var samþykkt án atkvæðagreiðslu svo og ályktunartillaga Danmerkur um afnám pyntinga.
Á mannréttindaþinginu flutti fulltrúi Íslands ávarp um réttindi barnsins og lagði áherslu á réttindi barna á stofnunum og stöðu barna án umsjár. Norðurlönd og Eystrasaltsríkin stóðu sameiginlega að ræðum um mannréttindasamninga og verslun með konur og stúlkur. Einnig voru fluttar norrænar ræður um málefni fólks á vergangi og málefni frumbyggja.
7.4.4. 60. þing mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna.
Sextugasta þing mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna stendur hófst 15. mars og stendur til 23. apríl 2004. Að þessu sinni náðist hefðbundin samstaða um kjör forseta þingsins, Mike Smith, sendiherra og fastafulltrúi Ástralíu í Genf.
Sem fyrr verður fylgst náið með tillöguflutningi í ráðinu og Ísland mun gerast meðflytjandi að þeim ályktunartillögum sem styrkt geta þróun, vernd og virðingu alþjóðlegra mannréttinda og mannréttindasamninga.
7.4.5. Stofnun Alþjóðasakamáladómstólsins (International Criminal Court – ICC).
Hlutverk Alþjóðasakamáladómstólsins er að dæma í málum einstaklinga sem grunaðir eru um alvarlegustu glæpi gegn mannkyninu, þ.e. hópmorð, glæpi gegn mannúð, stríðsglæpi og glæpi gegn friði. Stofnun hans er tvímælalaust eitt mikilvægasta framlag til mannréttindaverndar og friðar í heiminum frá stofnun Sameinuðu þjóðanna.
Rómarsamþykktin um Alþjóðasakamáladómstólinn öðlaðist gildi 1. júlí 2002 þegar 60 ríki höfðu fullgilt hana. Fyrsti fundur aðildarríkja samþykktarinnar var haldinn í New York í september sama ár. Fyrstu dómarar Alþjóðasakamáladómstólsins voru kjörnir í febrúar 2003 og jafnframt var á því ári kjörinn aðalsaksóknari við dómstólinn. Dómstóllinn, sem hefur aðsetur í Haag, tók til starfa sama ár. Aðildarríki Rómarsamþykktarinnar eru nú 92 talsins.
7.5. Málefni Mið-Austurlanda.
Málefni Mið-Austurlanda, einkum átökin fyrir botni Miðjarðarhafsins og í Írak, eru áfram í brennidepli alþjóðastjórnmála. Frá því að núverandi uppreisn Palestínumanna hófst í lok september 2000 hefur hvorki verið lát á ofbeldinu né öryggisleysinu á svæðinu. Þær fjölmörgu tillögur sem kynntar hafa verið til lausnar átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs hafa allar runnið út í sandinn. Í raun er staðan enn sú sama og þegar átökin hófust haustið 2000. Á meðan vantraustið milli Ísraelsmanna og Palestínumanna er algert er borin von að friðarhorfur aukist.
Afstaða Íslands til átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs er skýr. Íslensk stjórnvöld hafa gert sér far um að fylgjast náið með þróun mála á svæðinu og utanríkisráðherra kynnti sér ástandið í Mið-Austurlöndum af eigin raun í heimsókn sinni til Ísrael, Palestínu og Jórdaníu vorið 2002 og til Íran í desember 2003.
Vilji Alþingis í þessu máli er einnig skýr eins og hann birtist í þingsályktunum um deilur Ísraela og Palestínumanna, annars vegar frá 18. maí 1989 og hins vegar frá 30. apríl 2002.
Ísland hefur fordæmt ofbeldisverk beggja aðila og krafist þess að deiluaðilar semji um vopnahlé án nokkurra skilyrða og hefji friðarviðræður á grundvelli fyrri samningaviðræðna og Vegvísisins svonefnda (The Roadmap), þar sem skilgreint er hvaða skref skuli stigin til að leysa ágreiningin með friðsamlegum hætti. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti 19. nóvember 2003 ályktun nr. 1515(2003) sem felur í sér formlegan stuðning ráðsins við Vegvísinn.
Ástandið í Mið-Austurlöndum er stöðugt til umfjöllunar á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Ísland studdi ályktun allsherjarþingsins frá 21. október 2003 sem fordæmir byggingu aðskilnaðarmúrsins á Vesturbakkanum og skipar Ísraelsmönnum að hætta við framkvæmdirnar. Við atkvæðagreiðslu í allsherjarþinginu 8. desember 2003 um ályktun varðandi álit Alþjóðadómstólsins í Haag um lögmæti múrsins sat Ísland hjá ásamt öðrum Norðurlöndum og aðildarríkjum Evrópusambandsins. Það var afstaða þeirra 73 ríkja sem sátu hjá við afgreiðslu ályktunarinnar að þessi nálgun væri líklegri til að torvelda friðarferlið fremur en liðka fyrir því enda bein orsakatengsl á milli sjálfmorðsárása á ísraelska borgara og byggingar múrsins. Þessi afstaða þýðir ekki að málið sé eingöngu af pólitískum toga og útilokar ekki að ágreiningurinn byggist að einhverju leyti á lagalegum grunni.
Vandséð er hvernig unnt verður að þvinga Ísraelsmenn og Palestínumenn til að leysa ágreiningsefni sín á friðsamlegan hátt ef þeir hafa meiri trú á því að ofbeldi og átök leysi sambýlisvanda þeirra. Blóðsúthellingar undanfarinna ára munu engu breyta um endanlega niðurstöðu því að Ísraelsríki mun standa og stofnun ríkis Palestínumanna er óumflýjanleg. Lausnin á ágreiningsefnum Ísraelsmanna og Palestínumanna getur hvorki orðið hernaðarleg né lagaleg heldur verður hún að vera pólitísk. Íslensk stjórnvöld fordæma morð Ísraelsmanna á Sheikh Ahmed Yassin, andlegum leiðtoga Hamas-samtakanna, þó svo að þau hvorki styðji markmið né aðferðir samtakanna.
Það er afstaða íslenskra stjórnvalda að Ísraelsmenn þurfi að hverfa af hernumdu svæðunum, bæði her og landtökumenn, og fjarlægja aðskilnaðarmúrinn af palestínsku landi. Palestínumenn þurfa að tryggja ábyrga stjórn í eigin landi og koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir á Ísrael um leið og þeir fá svigrúm til að byggja upp efnahagslíf sitt. Tök Ísraelsmanna á efnahagslífi Palestínumanna eru alger enda er efnahagslíf þeirra í rúst. Ástæða er til að hafa sérstakar áhyggjur af mannúðarástandinu á hernumdu svæðunum. Árlegt framlag Íslands til Flóttamannaaðstoðar Palestínumanna (UNRWA) hefur á undanförnum árum verið aukið og er nú tæpar 3 millj. kr.
Rúmt ár er nú liðið frá innrás Bandaríkjanna og Bretlands í Írak í mars 2003. Það var ekki auðveld ákvörðun sem íslensk stjórnvöld stóðu þá frammi fyrir. Að vandlega íhuguðu máli ákvað ríkisstjórnin að skipa Íslandi á bekk með hinum viljugu þjóðum. Það var fullljóst að ákvörðunin yrði bæði mjög umdeild og sætti gagnrýni en íslensk stjórnvöld voru viss um að ákvörðunin væri rétt miðað við þáverandi kringumstæður. Ísland átti ekki hernaðarlega aðild að innrásinni í Írak en studdi aðgerðir Bandaríkjanna og Bretlands sem höfðu það að markmiði að koma lögum yfir einn illræmdasta harðstjóra mannkynssögunnar. Í dag er það fyrst og fremst írakska þjóðin sem fagnar falli Saddams Husseins nú þegar hún er smám saman að taka aftur við stjórn landsins.
Það hefur ávallt verið ljóst að ástæður þess að gripið var til hernaðaraðgerða gegn stjórn Saddams Husseins voru margþættar. Hinar sterku vísbendingar um gereyðingarvopn írakskra stjórnvalda réðu miklu þar um en fleira kom til. Allt atferli stjórnar Saddams Husseins var ógnun við alþjóðlegan og svæðisbundinn frið og stöðugleika. Alþjóðasamfélagið gat ekki lengur búið við þá ógn sem stafaði af stjórn Saddams Husseins nema bíða alvarlega álitshnekki af. Sameinuðu þjóðirnar höfðu staðið í 12 ára skollaleik við stjórnvöld í Írak um tilvist gereyðingarvopna í landinu. Allan þann tíma hunsaði Saddam Hussein vilja alþjóðasamfélagsins í ítrekuðum ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Stjórnvöld í Írak torvelduðu sem mest þau máttu störf vopnaeftirlitsmanna Sameinuðu þjóðanna og gerðu þeim ókleift að vinna í landinu í fjögur ár, þ.e. 1998–2002. Rétt er að minna á að Saddam Hussein hóf tvö árásarstríð, þ.e. gegn Íran og Kúveit, og hermenn hans beittu efnavopnum bæði gegn Írönum og eigin þegnum þegar hann lét myrða þúsundir Kúrda í þorpinu Halabaja 1988. Alvarleg og kerfisbundin mannréttindabrot voru framin í Írak þar til ógnarstjórnin féll.
Samfélag þjóðanna stóð frammi fyrir þeirri staðreynd að ábyrgðarlaus einræðisstjórn virti ekki vilja þess. Íröksk stjórnvöld stóðu hvorki við vopnahlésskilmálana frá 1991, að afloknu Flóastríðinu, né hlíttu þau fjölda ályktana öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á þeim 12 árum sem liðin voru. Í sögulegri ályktun öryggisráðsins nr. 1441 frá 8. nóvember 2002 var sérstaklega vísað til fyrri ályktana ráðsins um Írak og þarlendum stjórnvöldum gefið lokatækifæri til að sýna fram á að öllum gereyðingarvopnum hefði verið eytt. Það tækifæri var ekki notað með trúverðugum hætti. Síðar hefur reyndar komið í ljós að hættan af gereyðingarvopnaeign Íraka virðist hafa verið orðum aukin en það breytir því ekki að íröksk stjórnvöld nýttu sér ekki það tækifæri sem þeim var gefið með samþykkt ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1441 (2002).
Ákvörðun íslenskra stjórnvalda um stuðning við innrásina í Írak var hvort tveggja í senn pólitísk og byggð á grundvelli alþjóðalaga. Ákvörðunin var pólitísk vegna þess að trúverðugleiki Sameinuðu þjóðanna var í húfi og hún var lögleg vegna þess að stjórn Saddams Husseins hafði ítrekað brotið ályktanir samtakanna, síðast ályktun nr. 1441(2002) sem samþykkt var samhljóða og fól í sér lokatækifæri til óskilyrtrar samvinnu.
Írakskt samfélag var í sárum eftir ógnarstjórn Saddams Husseins. Ógnin sem stafaði af einræðisstjórninni er horfin og það er því mikilvægt að horfa nú fram á veginn og styðja enduruppbygginguna í Írak og hina grýttu leið Íraka frá einræði til lýðræðis og sjálfstjórnar.
Afnám viðskiptaþvingana Sameinuðu þjóðanna gegn Írak, framlagaráðstefna í Madríd í október 2003, endurreisn atvinnuveganna og lýðræðislegir stjórnarhættir gefa vissulega góð fyrirheit um bjarta framtíð fyrir Íraka og nágranna þeirra, að því gefnu að niðurrifsöflunum takist ekki að ala á sundrungu milli einstakra hópa innan Íraks. Íslensk stjórnvöld vilja vissulega leggja sinn skerf af mörkum og ríkisstjórnin ákvað því í apríl 2003 að veita 300 millj. kr. til enduruppbyggingarinnar í Írak.
Það er ljóst að mörgum ríkjum í Mið-Austurlöndum stendur stuggur af Írak sem lýðræðisríki en víðtækur alþjóðlegur stuðningur virðist þó vera við endurreisnarstarfið. Ljóst er að Sameinuðu þjóðirnar munu fá þar víðtækt hlutverk um leið og öryggisástandið batnar í landinu. Hernámi Íraks mun ljúka 30. júní 2004 þegar Bandaríkin og Bretland afhenda Írökum formlega stjórn landsins.
Fulltrúar í írakska framkvæmdaráðinu hafa nú náð samkomulagi um nýja bráðabirgðastjórnarskrá, þar sem kveðið er á um stofnun sambandsríkis í Írak. Með gerð stjórnarskrárinnar er lagður grunnur að réttarríki í Írak þar sem grundvallarmannréttindi íbúanna eru tryggð. Á grundvelli stjórnarskrárinnar verður síðan boðað til kosninga í Írak eigi síðar en í janúar 2005. Konum verður tryggður a.m.k. fjórðungur þingsæta.
Ólýðræðislegir stjórnarhættir einkenna stjórnarfarið í Mið-Austurlöndum og hafa hefur leitt til misréttis og efnahags- og félagslegrar vanþróunar. Mannréttindi eru víða fótum troðin. Þessar aðstæður eru gróðrarstía ofbeldis og hryðjuverka. Okkur ber að styðja lýðræðis- og umbótaöfl í Mið-Austurlöndum enda eru stjórnarfarslegar umbætur forsenda framfara á sviði efnahagsmála, félagsmála, menntunar og jafnréttis. Mikilvægt er að bæði Evrópuríkin og Bandaríkin beiti sér til að efla lýðræðisþróunina á svæðinu. Fyrr getum við ekki vænst þess að friður, framþróun og velmegun ríki í Mið-Austurlöndum.
8. SVÆÐISBUNDIN SAMVINNA OG STOFNANIR
8.1. Evrópuráðið.
Stækkun Evrópuráðsins hefur haldið áfram. Undanfarin tvö ár hafa Bosnía og Hersegóvína og Serbía-Svartfjallaland bæst í hópinn og telur Evrópuráðið nú 45 aðildarríki og 800 milljónir Evrópubúa. Einungis tvö Evrópuríki, Hvíta-Rússland og Mónakó, standa nú utan Evrópuráðsins. Stjórnarfar í Hvíta-Rússlandi og einangrun þess á alþjóðavettvangi koma í veg fyrir að aðildarumsókn verði tekin til umræðu. Skilgreining á lýðræðislegri stöðu þjóðþings Mónakó og stjórnskipulegum tengslum við Frakkland hefur tafið aðild þess ríkis. Mónakó stefnir að því að gera nauðsynlegar breytingar á stjórnskipan sinni þannig að aðild verði mögulega innan tíðar.
Við stækkun Evrópusambandsins í maímánuði 2004 verða Evrópusambandsríkin 25 orðin meirihlutahópur í Evrópuráðinu. Evrópusambandsríkin hafa þó ekki komið fram sem ein heild innan Evrópuráðsins og er ekki fyrirsjáanlegt að svo verði eftir stækkunina. Vegna eðlis starfsemi Evrópuráðsins, sem snýst um mannréttindi, lýðræði og réttarfar með Evrópusamningana og Mannréttindadómstólinn sem þungamiðju, hefur samvinna Norðurlandanna á þessum vettvangi hins vegar verið bæði öflug og áberandi. Umræður standa nú yfir innan Evrópuráðsins um að efna til þriðja leiðtogafundar ráðsins árið 2005 eða síðar til að festa sérsvið, sérstöðu og markmið þess enn á ný í sessi og samstarf og verkaskiptingu við aðrar Evrópustofnanir. Þá er fyrst litið til samstarfsins við Evrópusambandið og mikilvægi þess að sambandið sjálft gerist formlegur aðili að mannréttindasáttmála Evrópu.
Aðlögun ríkja austur- og suðaustur Evrópu að mannréttinda- og lýðræðishefðum Evrópuráðsins er nú sem fyrr meginverkefni stofnunarinnar, en það starf stuðlar einnig að stöðugleika í álfunni. Evrópuráðið er mikilvægur vettvangur fyrir hin nýfrjálsu ríki Evrópu og hefur hraðað uppbyggingu lýðræðislegra stjórnarhátta í þessum ríkjum með markvissum eftirlits- og stoðaðgerðum. Þessi vinna hefur einnig leitt til frekari nálgunar á öðrum pólitískum sviðum. Staðsetning skrifstofa Evrópuráðsins á Balkanskaga og í Kákasus er mikilvægur þáttur í þessu samstarfi á svæðum þar sem enn ríkir óstöðugleiki og pólitískt uppnám. Litið er til þess að Evrópuráðið sé vettvangur allra Evrópuríkja og tengiliður án landamæra eftir stækkanir Evrópusambandsins og NATO.
Undanfarin tvö ár hefur Evrópuráðið einnig lagt áherslu á að endurskoða samninga sína um aðgerðir gegn hryðjuverkum og samstarf í sakamálum með tilliti til skuldbindinga gagnvart mannréttindasáttmálanum. Alvarleg mannréttindabrot samfara mansali hafa verið til ítarlegrar umræðu hjá ráðinu og eru tillögur í undirbúningi, sem stefna að gerð Evrópusamnings gegn mansali, sem styðji enn frekar við aðgerðir Sameinuðu þjóðanna í þessum efnum.
Mannréttindadómstóll Evrópu.
Á undanförnum árum hefur sérstaklega verið stutt við starfsemi Mannréttindadómstóls Evrópu, endurskipulagningu hans og fjármögnun. Mannréttindadómstóllinn gegnir því hlutverki að framfylgja skuldbindingum samkvæmt alþjóðasamningum Evrópuráðsins. Dómstóllinn tekur fyrir kærur frá einstaklingum, félagasamtökum og ríkjum um brot á samningsskyldum aðildarríkjanna þegar öll önnur úrræði fyrir innlendum dómstólum hafa verið fullreynd. Aðildarríkin eru samningsbundin til að hlíta niðurstöðum dómstólsins og fara eftir þeim, en ráðherranefndin fer með eftirlit með því að dómsúrskurðum sé framfylgt. Starfsálag á dómstólinn hefur vaxið gífurlega undanfarin ár og er nú svo komið að hann annar ekki verkefnum sínum við óbreyttar aðstæður. Miklar líkur eru taldar á því að starfsálag Mannréttindadómstólsins eigi enn eftir að margfaldast á næstu árum ef ekki verður gripið til aðgerða. Ísland var meðal þeirra ríkja sem áttu frumkvæði að því að hefja umfjöllun um endurskipulagningu á innri starfsemi dómstólsins og aukinni fjárveitingu til hans þannig að hann gæti betur sinnt hlutverki sínu, enda er dómstóllinn ein meginstoð Evrópuráðsins. Stefnt er að því að utanríkisráðherrar Evrópuráðsins taki ákvörðun um skipulagsbreytingar á dómstólnum á fundi sínum í maímánuði 2004 sem m.a. feli í sér breytingar á stofnsáttmála.
8.2. Norræn samvinna.
Reglulegir fundir utanríkisráðherra Norðurlanda er aðalvettvangurinn fyrir norræna samvinnu á sviði utanríkismála, en utanríkisráðherrarnir heyra sem kunnugt er ekki undir Norrænu ráðherranefndina. Þrátt fyrir ólíkar áherslur á ýmsum sviðum í gegnum tíðina, t.d. vegna hlutleysisstefnu tveggja Norðurlandanna og aðild þriggja þeirra að Evrópusambandinu, hefur yfirleitt náðst samstaða í þeim milliríkjamálum sem til umfjöllunar hafa verið. Aðrir embættismenn utanríkisráðuneyta Norðurlanda hafa einnig náið og gagnlegt samstarf og samráð varðandi flesta málaflokka sem undir ráðuneytin heyra.
Frá því að Eystrasaltsríkin þrjú endurheimtu sjálfstæði sitt árið 1991 hafa bæði formleg og óformleg samskipti þeirra og Norðurlandanna farið vaxandi, ekki síst á sviði utanríkismála. Undanfarin ár hefur verið haldinn sameiginlegur fundur utanríkisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna þriggja einu sinni á ári og samstarf og samráð embættismanna utanríkisráðuneytanna átta eykst stöðugt.
Samstarf á alþjóðavettvangi.
Óhætt er að fullyrða að staða Norðurlandanna á vettvangi Sameinuð þjóðanna er mun sterkari en stærð og fólksfjöldi gefa tilefni til að ætla. Vafasamt er að löndin hefðu getað haft eins mikil áhrif innan samtakanna og raun ber vitni ef þau stæðu ekki saman og kynntu sig oft sem eina norræna heild og málstað sinn sem norrænan. Stuðningur Norðurlanda við Sameinuðu þjóðirnar og hugsjónir þær sem samtökin byggjast á hefur ætið verið mikill. Á Norðurlönd er víða litið sem fyrirmyndar velferðarþjóðfélög og þykir málflutningur þeirra um jafnrétti, jafnræði, frelsi, lýðræði, mannúð og mannréttindi trúverðugur, hvort sem um er að ræða einstaklinga heima fyrir eða þjóðir í samfélagi þjóðanna. Norræn samvinna, samráð og upplýsingamiðlun um málefni Sameinuðu þjóðanna er afar mikilvæg til að viðhalda og efla stöðu Norðurlandanna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Tvö af meginverkefnum utanríkisþjónustunnar á næstu árum varða þátttöku Íslands í starfsemi Sameinuðu þjóðanna, þ.e. framboð Íslands til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna 2009–2010 og formennska Íslands fyrir hönd Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna í framkvæmdaráði Alþjóðabankans. Norrænt samstarf er sérlega mikilvægt með tilliti til þessara verkefna og málefna sem tengjast þeim eins og fram kemur annars staðar í skýrslu þessari.
Á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda í Reykjavík í janúar 2004 var m.a. rætt um samstarf og samráð Norðurlanda um Evrópumál í ljósi stækkunar Evrópusambandsins 1. maí 2004. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra lagði m.a. áherslu á mikilvægi þess að viðhalda og styrkja samvinnu og samráð Norðurlanda, ekki einungis um Evrópumál, heldur einnig á sviði utanríkismála almennt. Ráðherra sagði væntanlega stækkun Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins sögulegan viðburð, ekki aðeins í viðskiptalegu tilliti. Stækkunin fæli í sér að söguleg og pólitísk skil á milli ríkja og þjóða í Evrópu væru afmáð. Ráðherrarnir voru sammála um að norrænt samráð og samvinna um Evrópumál yrði jafnvel enn mikilvægari með stækkun ESB, ekki síst með tilliti bæði til aukinna möguleika og þarfa á því að koma norrænum gildum og sjónarmiðum á framfæri.
Utanríkisráðherra tók þátt í umræðunni um varnarmál á þingi Norðurlandaráðs í Ósló haustið 2003. Hann lýsti vilja Íslands til virkari þátttöku í norrænu samráði og samstarfi á sviði varnarmála í kjölfar þess að Ísland gerðist aðili að formlegri samræmingu Norðurlanda á sviði friðargæslu (Normi Coordinated Arrangement for Military Peace Support, NORDCAPS) á fundi varnarmálaráðherra Norðurlanda, sem haldinn var í Reykjavík í september 2003.
Samstarf norrænna sendiráða.
Fulltrúar sendiráða Íslands erlendis eiga yfirleitt mikið og gott samstarf við norræna sendierindreka á staðnum, bæði í höfuðborgum Norðurlandanna sjálfra og annars staðar þar sem norrænar sendiskrifstofur starfa. Sendiráð skiptast á upplýsingum og hafa samráð í ýmsum málum er varða sameiginlega hagsmuni ríkjanna. Óformleg tengsl sendierindreka við embættismenn í stjórnkerfi, stjórnmálamenn og leiðandi aðila í stjórnmála-, viðskipta- og menningarlífi eru mjög mikilvæg, en vegna opinna og vandalausra samskipta sín á milli geta norrænir sendierindrekar oft nýtt sér sambönd hvers annars með góðum árangri. Eins og áður segir er ímynd Norðurlanda yfirleitt mjög jákvæð á alþjóðavettvangi og eru flestar dyr því opnar norrænum sendierindrekum, sérstaklega þegar þeir koma fram sem ein heild. Rétt er að minna á að hið verðmæta samráð milli utanríkisráðuneyta Norðurlanda og sendierindreka Norðurlanda hvar sem þeir starfa, sem farið er að líta á sem sjálfsagðan hlut, byggist að sjálfsögðu á langri hefð og sameiginlegri menningarlegri og sögulegri fortíð. Í breyttum heimi, með breyttum tengslamynstrum, er mikilvægt að sérstaklega sé hlúð að sameiginlegum norrænum verðmætum til þess að viðhalda vitund um og þekkingu á þeim menningarlega og sögulega skyldleika sem er forsenda þeirra nánu formlegu og óformlegu tengsla milli Norðurlandanna sem við búum við.
Eins og fram hefur komið eru náin tengsl, samráð og samvinna milli embættismanna flestra skrifstofa og deilda utanríkisráðuneyta Norðurlanda, auk þess sem norrænir sendierindrekar í erlendum ríkjum eiga yfirleitt gott samstarf með reglulegum fundum. Gagnsemi þessara tengsla fyrir Ísland er ótvíræð. Til að efla þau enn frekar, einkum meðal yngri embættismanna, efndi utanríkisráðuneytið til námsstefnu fyrir unga norræna diplómata í október 2003, en samkvæmt ákvörðun ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneyta Norðurlanda er gert ráð fyrir að slíkar námsstefnur verði haldnar árlega, til skiptis í löndunum fimm. Í stuttu máli má segja að markmiðið sé að vekja og viðhalda áhuga á norrænu samstarfi við upphaf starfsferils ungra diplómata, að kynna land gestgjafans hverju sinni með áherslu á menningarleg, söguleg og pólitísk tengsl Norðurlanda, að styrkja stöðu norrænna tungumála í samstarfi utanríkisráðuneyta Norðurlanda og að efla skilning á mikilvægi norræns samstarfs almennt.
Á ári formennsku Íslands í norrænu ráðherranefndinni mun utanríkisráðuneytið leggja sérstaka áherslu á að efla þekkingu og skilning á norrænu samstarfi meðal embættismanna utanríkiráðuneytisinsm m.a. með því að gefa þeim tækifæri til að bæta kunnáttu sína í norrænum tungumálum og þekkingu á málefnum Norðurlanda. Fjöldi starfsmanna hefur þegar sótt námskeið í dönsku sem haldin hafa verið í utanríkisráðuneytinu.
8.3. Eystrasaltsráðið.
Ákveðið hefur verið að Ísland taki að sér formennsku í Eystrasaltsráðinu haustið 2005. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland mun gegna þar formennsku en formennskan stendur í eitt ár. Eystrasaltsráðið var stofnað árið 1992 en Ísland gerðist aðili að því árið 1995. Er því við hæfi að Ísland axli formennskuna þegar tíu ár eru liðin frá aðildinni að ráðinu. Þegar Eystrasaltsráðið var stofnað í mars 1992 í kjölfar umskiptanna í Evrópu eftir hrun Sovétríkjanna var ráðinu ætlað að vera svæðastofnun ríkjanna við Eystrasaltið. Hlutverk þess var að sinna aðkallandi þörf á nánara samstarfi ríkjanna og var markmiðið að efla lýðræðislega þróun og einingu ríkjanna til að skapa hagstætt umhverfi fyrir efnahagsþróun á svæðinu. Þetta hefur tekist eins og að var stefnt og hefur samstarfið einkum komið nýju lýðræðisríkjunum til góða.
Ísland hefur undanfarin ár lagt áherslu á mannréttindi og málefni er snúa að lýðræði og lýðræðisstofnunum á vettvangi ráðsins auk samstarfs er lýtur að málefnum barna og mansali en hér er um svipaðar áherslur að ræða og á vettvangi ÖSE. Ísland gegndi t.d. formennsku í nefnd Eystrasaltsráðsins um málefni barna árið 2002. Í síðustu skýrslu til Alþingis var fjallað um EUROBALTIC samstarfsverkefni Eystrasaltsráðsins, sem m.a. tekur til samstarfs um Neyðarlínu. Hefur því verkefni verið fram haldið og er nú að komast á lokastig á vettvangi ráðsins.
Hafinn er undirbúningur að formennsku Íslands 2005–2006 og er verið að leggja drög að frekari þátttöku í nefndum þeim sem heyra undir nefnd háttsettra embættismanna ráðsins, en þar mun Ísland m.a. gegna formennsku á formennskutímanum. Að öllum líkindum mun leiðtogafundur Eystrasaltsráðsins verða haldinn á Íslandi í lok formennskutímans 2006.
Svo sem kunnugt er munu fjögur aðildarríki Eystrasaltsráðsins ganga í Evrópusambandið 1. maí næstkomandi en þau eru Pólland, Eistland, Lettland og Litháen. Stækkun Evrópusambandsins mun eðlilega hafa áhrif á starfsemi Eystrasaltsráðsins. Of snemmt er að spá fyrir um framvindu samstarfsins við þessar breyttu aðstæður. Ljóst er að samstarfið í Eystrasaltsráðinu hefur auðveldað þessum ríkjum aðlögun að Evrópusambandinu líkt og aðild þeirra að Evrópuráðinu hefur gert. Samstarfið á vettvangi Eystrasaltsráðsins mun halda áfram þótt áherslurnar muni væntanlega breytast nokkuð. Því má heldur ekki gleyma að þrjú ríki, Ísland, Noregur og Rússland, munu standa utan Evrópusambandsins en Ísland og Noregur eru aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu (EES).
Eftir stendur Rússland og gefur því augaleið að hlutverk Eystrasaltsráðsins sem samstarfsvettvangur við Rússland verður æ mikilvægara eftir stækkunina en áður hefur verið enda hefur samstarfið í auknum mæli dregið dám af samskiptunum við Rússland og þróuninni þar í landi, m.a. á vettvangi hinnar svokölluðu Norðlægu víddar Evrópusambandsins. Þar kemur m.a. til aukið landamærasamstarf og staða Kaliningrad-héraðsins í Rússlandi, sem verður umlukið Evrópusambandinu eftir 1. maí næstkomandi.
8.4. Barentsráðið.
Barentsráðið er samstarfsvettvangur Norðurlandanna, Rússlands og Evrópusambandsins. Meginmarkmið ráðsins er að efla samvinnu og samstarf að sameiginlegum hagsmunamálum þeirra svæða sem liggja að Barentshafinu, þ.e. norðurhluta Noregs, Svíþjóðar og Finnlands og norðvesturhluta Rússlands.
Tíu ára afmæli Barentsráðsins var fagnað í formennskutíð Svíþjóðar (2001–2003) með fundi forsætisráðherra Norðurlanda og Rússlands í janúar 2003 í Kirkenes. Umræður á þeim fundi snerust einkum um þróun efnahagsmála, umhverfismál og kjarnorkuöryggi og heilbrigðis- og félagsmál. Í yfirlýsingu fundarins um framtíðarmarkmið fyrir starfsemi Barentsráðsins er m.a. lögð áhersla á sjálfbæra þróun, bættar samgöngur, bætt landamæraeftirlit til að liðka fyrir vöruflutningi og um leið koma í veg fyrir ólöglega starfsemi, þ.m.t. mansal, aukna samvinnu um ýmis félagsmál, bætt kjör frumbyggja og eflingu tengsla við önnur svæðasamtök, þ.e. Eystrasaltsráðið, Norðurskautsráðið og Norrænu ráðherranefndina. Mikilvægum áfanga var náð í Kirkenes varðandi svonefndar MNEPR-samningsviðræður (Multilateral Nuclear Environmental Programme in the Russian Federation) um hreinsun geislavirks úrgangs í hinum rússneska hluta Barentssvæðisins, sem utanríkisráðherrafundur Barentsráðsins beitti sér fyrir í mars 1999, og var samningurinn undirritaður í Stokkhólmi 21. maí 2003.
Noregur tók við formennsku í Barentsráðinu til tveggja ára (2003–2005) á ráðherrafundi Barentsráðsins sem haldinn var í Umeå 2.–3. október 2003. Í formennskuáætlun sinni leggja Norðmenn einkum áherslu á viðskiptasamvinnu, menntun og þjálfun, dóms- og innanríkismál, slysavarna- og björgunarmál og heilbrigðismál.
Gunnar Snorri Gunnarsson ráðuneytisstjóri sat ráðherrafundinn í Umeå fyrir hönd Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra. Þar var einkum fjallað um styrkingu efnahagslegrar samvinnu á Barentssvæðinu. Af hálfu Íslands var sérstaklega minnt á mikilvægi norðaustursiglingaleiðarinnar í framtíðinni. Æskulýðsmál, menningarmál, ferðamál, heilbrigðismál og umhverfismál á Barentssvæðinu voru einnig til umræðu. Baráttan gegn mansali var sérstaklega rædd og vinnuhópur hefur verið settur á laggirnar til að berjast gegn mansali á Barentssvæðinu.
Næsti ráðherrafundur Barentsráðsins verður haldinn í Noregi haustið 2005.
9. UTANRÍKISVIÐSKIPTI OG EFNAHAGSSAMVINNA
9.1. Almennt.
Alþjóðavæðingin á m.a. rætur sínar í alþjóðlegum viðskiptasamningum sem ríki hafa gert sín í milli á undanförnum áratugum. Óhætt er að segja að alþjóðavæðingin hafi í grundvallaratriðum breytt starfsháttum og uppbyggingu atvinnulífs hér á landi. Sem dæmi má nefna að það færist í vöxt að fyrirtæki selji þjónustu og þekkingu ekki síður en vörur í hefðbundnum skilningi. Aukið frjálsræði í viðskiptum hefur einnig skapað greiðari leiðir til fjárfestinga erlendis. Fyrirtæki notfæra sér þetta með því m.a. að hasla sér völl á mörkuðum þar sem sérþekking þeirra gefur þeim forskot. Er nú svo komið að þjónustuviðskipti vaxa mun hraðar milli landa en vöruviðskipti. Hins vegar er bein fjárfesting Íslendinga erlendis enn lítil á alþjóðlega mælikvarða og sama gildir um erlendar fjárfestingar hér á landi sem vaxa hægar en í öðrum aðildarríkjum Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunarinnar (OECD).
Ljóst er að þegar til lengri tíma er litið er mikilvægt fyrir íslenskt atvinnulíf að horfa í vaxandi mæli á stöðu sína í alþjóðlegu samhengi. Nauðsynlegt er að íslensk stjórnvöld og íslenskt atvinnulíf geti nýtt sér þau tækifæri sem skapast í kjölfar vaxandi alþjóðavæðingar. Mikilvægt er að stjórnvöld hafi náið samráð við hagsmunaðila um stefnumótun í þessum efnum.
9.2. Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA).
Meginhlutverk EFTA er þríþætt: Í fyrsta lagi innbyrðis samskipti EFTA-ríkjanna á grundvelli stofnsamnings samtakanna, í öðru lagi gerð fríverslunarsamninga við lönd utan samtakanna og Evrópusambandsins og í þriðja lagi samstarf þeirra þriggja EFTA-ríkja sem eru aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu.
Samstarf EFTA-ríkjanna hefur þróast og breyst, m.a. með Vaduz-sáttmálanum sem er endurskoðaður stofnsáttmáli EFTA, en hann tók gildi í júní 2002. Með honum voru kröfur og reglur innri markaðarins að miklu leyti teknar upp milli EES/EFTA-ríkjanna og Sviss. Þannig voru samræmdar ýmsar reglur sem giltu annars vegar milli allra EFTA-ríkjanna og hins vegar milli EFTA-ríkjanna og ESB, m.a. varðandi frjálsa för fólks. Ísland tekur við formennsku í EFTA þann 1. júlí næstkomandi.
EFTA og fríverslunarsamningar.
Á síðustu árum hefur EFTA unnið að því að víkka net fríverslunarsamninga sinna, m.a. með samningum og viðræðum við ríki í Mið-Austurlöndum, Suður-Ameríku og Asíu, en áður hafði verið byggt upp net samninga við ríki Mið- og Austur-Evrópu, samhliða sams konar neti ESB. Með því að fylgja þeirri þróun sem á sér stað í fríverslunarsamningum innan ESB er tryggt að íslensk fyrirtæki og fyrirtæki annarra EFTA-landa njóti sambærilegra markaðskjara og samkeppnisstöðu í þessum löndum og fyrirtæki innan ESB. Þetta er mikilvægt til þess að skapa þau skilyrði fyrir íslensk fyrirtæki að þau sjái hag sínum best borgið með því að vera staðsett áfram á Íslandi.
Þótt hagsmunir EFTA-ríkjanna innbyrðis séu að mörgu leyti ólíkir hafa þau ávallt náð samstöðu um grundvallaratriði samningsmarkmiða og má nefna sem dæmi að það er grundvallarskilyrði EFTA-ríkjanna að í öllum fríverslunarsamningum verði fríverslun með sjávarafurðir tryggð og raunar með allar iðnaðarvörur sem varða útflutningshagsmuni landanna. Með samningunum leggja ríkin fjögur líka sitt af mörkum við uppbyggingu viðskiptalífs í öðrum heimshlutum, auk þess sem svæðisbundin fríverslun getur auðveldað samninga á alþjóðavettvangi, til dæmis innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO).
Ísland hefur, sem aðili að Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA), á undanförnum árum gert fríverslunarsamninga við 20 ríki, nú síðast við Chile og gengur sá samningur í gildi á næstu mánuðum. Að auki er nýlokið viðræðum við Líbanon og verður sá samningur undirritaður á ráðherrafundi samtakanna í Sviss í júní 2004. Yfir standa samningaviðræður við fjögur ríki og samtök að auki: Kanada, Túnis, Egyptaland og suðurafríska tollabandalagið. Stefnt er að því að ljúka samningaviðræðum við öll þessi ríki fyrir lok þessa árs.
Líklegt er að samningaviðræður hefjist á næstu árum við ríki á borð við Suður-Kóreu, Mercosur-ríkin, 2 Serbíu og Svartfjallaland, Úkraínu, Flóaráðið, 3 Alsír og Albaníu, en fyrir hendi eru samstarfsyfirlýsingar við flest þessara ríkja. Auk þess er áhugi á að kanna möguleika á gerð fríverslunarsamninga við Bandaríkin, Japan, Rússland, Kína, Íran og nokkur Asíuríki sem eru hluti af ASEAN-ríkjabandalaginu 4 en eins og áður segir hefur þegar verið samið við Singapúr.
Fyrirséð er hins vegar að við inngöngu átta samningsaðila EFTA-ríkjanna í Evrópusambandið þann 1. maí 2004 fækki fríverslunarsamningum sem því nemur, enda tekur þá við samstarf við ríkin innan EES-samningsins gagnvart Íslandi, Noregi og Liecthenstein.
Gerð fríverslunarsamninga hefur reynst þeim aðildarríkjum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar vel sem hafa það sameiginlega markmið að liðka enn betur fyrir viðskiptum en WTO- samningarnir segja til um. Evrópuríkin hafa verið í fararbroddi fríverslunarsamvinnu og gert marga fríverslunarsamninga bæði innbyrðis og við ríki í öðrum heimsálfum.
Önnur viðskiptaveldi hafa á síðustu árum í auknum mæli samið um fríverslun við einstök ríki eða ríkjasambönd og þannig fylgt því fordæmi sem Evrópuríkin hafa sett. Bandaríkin hafa gert samninga við fjölda ríkja á undanförnum árum, meðal annars í Mið- og Suður- Ameríku, Ástralíu og Suður-Afríku. Hugmyndir hafa jafnvel verið uppi um að innan nokkurra ára gætu ESB og Bandaríkin gert með sér fríverslunarsamning. Japan hefur einnig gert fríverslunarsamning við Singapúr og er í viðræðum við nokkur önnur Asíulönd innan ASEAN-ríkjabandalagsins. EFTA fylgist grannt með þessari þróun og hefur áhuga á að nýta þau tækifæri sem gefast til að semja um fríverslun.
9.3. Alþjóðaviðskiptastofnunin (WTO).
Alþjóðaviðskiptastofnunin og viðskiptahagsmunir Íslands.
Starfsemi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar hefur ekki síst mikla þýðingu fyrir opin og lítil hagkerfi. Því skiptir máli fyrir Ísland að leitast verði við að laga alþjóðlega viðskiptakerfið að breyttum aðstæðum þannig að það svari sem best þörfum heimsviðskipta og milliríkjaverslunar á hverjum tíma. Endurbættar alþjóðareglur um heimsviðskipti treysta réttarstöðu smærri ríkja sem verða að geta reitt sig á að alþjóðlegar reglur ráði meiru en aflsmunur í milliríkjaverslun. Samningar um frekara frelsi í alþjóðaviðskiptum hafa jákvæð áhrif á heimsbúskapinn og þar af leiðandi á efnahagsumhverfi og viðskiptakjör Íslands sem önnur lönd. Alþjóðaviðskiptastofnunin gegnir einnig mikilvægu hlutverki við að stuðla að þróun fátækari ríkja og umbreytingu hagkerfa frá miðstýringu í markaðsbúskap. Íslensk stjórnvöld hafa því eindregið stutt að viðræður innan stofnunarinnar fjalli um sem flest svið alþjóðaviðskipta. Rannsóknir sýna einnig að smærri hagkerfi eru oft betur í stakk búin en þau sem stærri eru til að nýta sér þau tækifæri sem aukin alþjóðavæðing hefur í för með sér.
Doha-samningalotan.
Nýrri samningalotu var ýtt úr vör í nóvember 2001 og er sú lota kennd við fundarstaðinn, Doha í Katar. Samningalotunni er ætlað að taka sérstakt mið af hagsmunum þróunarríkja og bæta aðkomu þeirra að alþjóðaviðskiptasamfélaginu. Upphaflega var gert ráð fyrir að ljúka lotunni á þremur árum þannig að nýr samningur gæti tekið gildi í ársbyrjun 2005. Eftir ráðherrafund Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í Kankún í Mexíkó síðastliðið haust er ólíklegt að sú áætlun standist. Ekki náðist samkomulag á fundinum um ýmsa meginþætti viðræðnanna og má segja að framhald viðræðnanna sé nú í biðstöðu.
Vonir standa til að taka megi upp þráðinn að nýju á þessu ári. Erfiðasta einstaka málið er sem fyrr landbúnaður. Kröfur þróaðri ríkja um samræmingu reglna um fjárfestingar, samkeppni, opinber innkaup og reglur sem miða að því einfalda viðskipti milli ríkja (svokölluð Singapúr-málefni) höfðu einnig fengið dræmar undirtektir þróunarlanda. Enn fremur höfðu komið fram sérstakar kröfur frá þróunarlöndum varðandi meðferð einstakra landbúnaðarafurða.
Yfirmenn utanríkisviðskiptamála bæði í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu hafa lýst eindregnum vilja til hleypa lífi í viðræðurnar á ný. Hefur Bob Zoellick, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, ferðast víða um heim til að ræða við stjórnvöld annarra ríkja í þessum tilgangi og virðist hann hafa hlotið góðar undirtektir. Almennur skilningur virðist ríkja meðal aðildarríkjanna á mikilvægi þessara viðræðna fyrir heimsviðskiptin og er vilji til þess að nýta tímann vel næstu mánuðina þannig að samkomulag takist í helstu málum á fyrri hluta þessa árs. Ólíklegt er að síðari hluti þessa árs nýtist sem skyldi, m.a. vegna forsetakosninga í Bandaríkjunum auk þess sem ný framkvæmdastjórn tekur við í Evrópusambandinu innan fárra mánaða.
Alþjóðaviðskiptastofnunin er mikilvægur vettvangur til að tryggja íslenska hagsmuni og bæta markaðsaðgang á heimsvísu fyrir íslenskar útflutningsvörur. Einnig nýtast samningaviðræður á vettvangi WTO til að fjalla um málefni á breiðari vettvangi, t.d. ríkisstyrki í sjávarútvegi. Því er ljóst að samningaviðræðurnar skipta miklu fyrir viðskiptahagsmuni Íslands. Í stöðuskjali Íslands vegna Doha-lotunnar sem unnið var í aðdraganda Kankún-fundarins og kynnt var í utanríkismálanefnd Alþingis kemur fram að Ísland á sóknarhagsmuni á flestum þeim sviðum sem fjallað er um í viðræðunum. 5
Viðræður um landbúnaðarviðskipti eru afgerandi þáttur í Doha-lotunni. Það er mikilvægt fyrir íslenskan landbúnað að vera búinn undir þær breytingar sem niðurstöður samninga gætu kallað á. Í því skyni hafði utanríkisráðuneyti frumkvæði að stofnun vinnuhóps sem hóf störf árið 2002 og eiga sæti í honum fulltrúar hagsmunaaðila, landbúnaðarráðuneytis og utanríkisráðuneytis. Áfangaskýrsla vinnuhópsins kom út í nóvember 2003 og er þar m.a. fjallað um hugsanleg áhrif þróunar í viðræðum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar á framtíð landbúnaðarins hér á landi. Vinnuhópurinn mun starfa áfram og fylgjast með þróun þessa sviðs eftir því sem þörf krefur.
Kröfur og sjónarmið þróunarríkjanna hafa haft mikil áhrif á viðræðurnar. Þau eru mikill áhrifavaldur í lotunni, enda felur umboðið frá Doha í sér að sérstök áhersla verði lögð á málefni þróunarlandanna og hagsmuni þeirra. Vefnaðarvörur og ýmsar búvörur eru mikilvæg útflutningsvara fyrir mörg þróunarríkjanna og því má gera ráð fyrir bæði tollalækkunum á slíkum vöruflokkum og takmörkun heimilda til ríkisstyrkja í landbúnaðargeiranum.
Hér á eftir verður fjallað í stuttu máli um stöðu mála í Doha-lotunni á stærstu sviðum lotunnar og þar sem sérstakir íslenskir hagsmunir eru fyrir hendi
Landbúnaður.
Í viðræðunum um landbúnaðarviðskipti er tekist á um hversu langt eigi að ganga í að knýja fram frekara frelsi með því að draga úr styrkjum til innlends landbúnaðar og styrkjum til útflutnings jafnframt því sem tollar verði lækkaðir á innfluttum landbúnaðarafurðum. Þróunarríki og iðnríki sem hafa útflutningshagsmuni í landbúnaði hafa sett fram kröfur um að iðnríkin taki á sig verulegar skuldbindingar í þá veru. Hvorki sé sanngjarnt né eðlilegt að þau þurfi að keppa við ríkisstyrktar landbúnaðarvörur iðnríkjanna og greiða að auki háa tolla fyrir afurðir sínar og því sé tímabært að viðskipti með landbúnaðarvörur lúti sömu lögmálum og önnur vöruviðskipti. Fyrir ráðherrafundinn í Kankún hófu 20 þróunarríki samstarf um þennan þátt viðræðnanna og er hópur þeirra kallaður G20 („Group of 20“ en í þeim hópi eru m.a. Brasilía, Indland, Kína, Suður-Afríka, Argentína, Bólivía, Chile, Egyptaland, Mexíkó, Pakistan, Nígería o.fl.). Þessi ríkjahópur hafði mikil áhrif á ráðherrafundinum í Kankún og mun afstaða þessa hóps, ásamt sjónarmiðum Bandaríkjanna og ESB, skipta miklu um framhaldið. G20-hópurinn hefur krafist þess að iðnríkin gangi fremur langt í frjálsræðisátt en hefur viljað að skuldbindingar þróunarríkja yrðu frekar léttvægar. Bandaríkin og Evrópusambandið náðu samkomulagi um lausn fyrir ráðherrafundinn í Kankún sem gengur skemmra en kröfur G20- hópsins gera ráð fyrir.
Ísland hefur tilheyrt tíu ríkja hópi (G10) ásamt Sviss, Noregi, Liechtenstein, Búlgaríu, Ísrael, Tævan, Máritíus, Suður-Kóreu og Japan. Þessi ríkjahópur hefur lagt áherslu hið fjölþætta hlutverk landbúnaður í byggðastefnu, umhverfismálum o.fl. og því megi ekki eingöngu taka mið af viðskiptalegum sjónarmiðum. Einnig leggur hópurinn áherslu á að í umbótaferlinu þurfi að tryggja nægjanlegan sveigjanleika enda eru aðstæður til landbúnaðar í einstökum ríkjum mjög mismunandi.
Árangur í viðræðum um landbúnað er lykillinn að því að árangur náist á öðrum sviðum lotunnar. Ljóst er að breitt bil er á milli andstæðra sjónarmiða og að verulegt átak þarf til að takast megi að finna lausn sem er ásættanleg fyrir alla aðila. Bandaríkin hafa leitast við að ná viðræðunum aftur á skrið með því að telja Evrópusambandið á að afnema alla útflutningsstyrki. Ísland, ásamt öðrum ríkjum í G10-hópnum, hefur verið reiðubúið að ganga lengra en ESB hvað afnám útflutningsbóta varðar en viljað rýmri heimildir til að nýta ríkisstyrki í landbúnaði vegna byggðasjónarmiða, umhverfismarkmiða, fæðuöryggis o.fl. Að auki hafa ríkin í G10 talið að fara verði varlega í að setja hámark á tolla enda sé nauðsynlegt að standa vörð um þær greinar sem eru viðkvæmar fyrir erlendri samkeppni af sérstökum ástæðum.
Markaðsaðgangur.
Fyrir mörg þróunarríkjanna kemur ekki til álita að sýna sveigjanleika í viðræðunum um markaðsaðgang fyrir iðnaðarvörur fyrr en árangur næst í landbúnaðarviðræðunum. Þrátt fyrir að landbúnaðarþáttur lotunnar sé mjög mikilvægur og hafi reynst helsti áhrifavaldurinn í viðræðunum, einkum vegna afstöðu þróunarríkjanna, eru meiri hagsmunir í húfi í tengslum við markaðsaðgangsviðræðurnar að því leyti að iðnaðarvörur eru um 80% vöruviðskipta í heiminum en um 10% eru landbúnaðarvörur. Einn helsti ásteytingarsteinninn á þessu sviði hefur verið hversu langt eigi að ganga í tollalækkunum, einkum fyrir þróunarríki. Í tillögum fráfarandi formanns samninganefndarinnar, sem lágu fyrir í aðdraganda Kankún-fundarins, þótti iðnríkjunum að þau þróunarríki sem komin eru vel áleiðis á þróunarbrautinni þyrftu að taka á sig meiri skyldur en fátækustu ríkin ættu hins vegar ekki að þurfa þess. Þróunarríkin leggja hins vegar áherslu á að í umboðinu fyrir samningaviðræðurnar sé gert ráð fyrir sérmeðferð fyrir þróunarríki og gera eigi vægari kröfur til þeirra. Tiltölulega óumdeilt er að ekki verða gerðar kröfur til allra fátækustu ríkjanna um tollalækkanir.
Viðræðurnar um markaðsaðgang hafa, eins og önnur svið viðræðnanna, verið í biðstöðu. Samningaumleitanir milli aðildarríkjanna eru í þann mund að hefjast. Eins og áður segir er þó vart við því að búast að skriður komist á viðræðurnar nema að rofi til í landbúnaðarmálunum. Þess má geta að fastafulltrúi Íslands í Genf hefur nú tekið við formennsku í vinnuhópnum sem fjallar um markaðsaðgang fyrir iðnaðarvörur, þar með taldar sjávarafurðir.
Enn eru innheimtir tollar á ýmsar útflutningsvörur Íslands. Þar eru sjávarafurðir mikilvægastar og Ísland mun leggja áherslu á lækkun tolla fyrir þær. Ýmsar iðnaðarvörur eru einnig mikilvægar, t.d. ál, kísiljárn, lyf, veiðarfæri og vélar og tæki til fiskvinnslu. Ísland hefur verið opið fyrir lausnum sem leggja skyldur á öll ríkin að lækka tollbindingar sínar, en veita þróunarlöndum heimild til takmarkaðri lækkunar, þó þannig að ekki sé hægt að halda háum tollum á einstökum vörum.
Singapúr-málefnin.
Hugsanlegar samningaviðræður um samkeppni, reglur sem miða að því að einfalda viðskipti milli ríkja (viðskiptaliprun), fjárfestingar og opinber innkaup eru málefni sem ESB hefur sett á oddinn í Doha-viðræðunum en hefur einnig verið stutt af ýmsum öðrum ríkjum, m.a. Japan og Íslandi. Þróunarríkin hafa ekki fallist á að hefja viðræður um þessi málefni og bera m.a. fyrir sig að þau eigi þegar fullt í fangi með að standa undir þeim skuldbindingum sem á þeim hvíla frá síðustu samningalotu (Úrúgvæ-viðræðunum), auk þess að standa í samningum á hefðbundnum sviðum í Doha-lotunni. Á ráðherrafundinum í Kankún féllst ESB á að falla frá kröfu sinni um tvo málaflokka, fjárfestingar og samkeppni, gegn því að samkomulag næðist um að hefja viðræður um viðskiptaliprun og opinber útboð. Það tókst ekki og átti þessi ágreiningur þátt í því að viðræðurnar sigldu í strand í Kankún. Viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, Bob Zoellick, hefur í viðleitni sinni til að koma viðræðunum af stað á ný leitast við að miðla málum. Hann hefur lagt til við þróunarríkin að fallast á að hefja viðræður eingöngu um viðskiptaliprun. Virðist nokkuð almennur vilji til að fallast á þessa málamiðlun af hálfu þróunarríkjanna en ESB telur að það hafi þegar sýnt nægjanlegan sveigjanleika og tími sé kominn til að önnur aðildarríki geri slíkt hið sama. Staðan er því óljós en mörg aðildarríkjanna telja að nauðsynlegt sé að fá skýra mynd af því hver staða Singapúr-málanna svokölluðu er áður en hægt verður að koma Doha-viðræðunum í farveg á ný.
Hugverk í viðskiptum og aðgangur að lyfjum.
Á fundinum í Doha var samþykkt sérstök yfirlýsing um aðgang þróunarríkja að nauðsynlegum lyfjum og náðist samkomulag um útfærslu hennar í lok ágúst 2003 sem tók þegar gildi. Yfirlýsingin felur m.a. í sér viðurkenningu á rétti aðildarríkja til að veita leyfi til tímabundinnar framleiðslu á lyfjum sem háð eru einkaleyfi fram hjá einkaleyfishafa. Þessi heimild er þó bundin því að neyðarástand ríki og er í því sambandi viðurkenndur réttur ríkja til að meta sjálf hvenær slíkt ástand ríkir. Einnig er viðurkennt að aðildarríki WTO með litla framleiðslugetu í lyfjaiðnaði geti átt í erfiðleikum með að nýta sér tímabundin framleiðsluleyfi, samkvæmt samningnum um hugverk í viðskiptum (TRIPS- samningurinn). Fátækustu ríkjunum, sem nú eru aðilar að WTO, er ekki skylt að framkvæma ákveðna þætti samningsins fyrr en 1. janúar 2016.
Segja má að ástæðan fyrir því að samkomulag náðist loks í ágúst 2003 hafi verið sú að formaður TRIPS-ráðsins lagði fram ,,yfirlýsingu um sameiginlegan skilning aðildarríkjanna“ samhliða samkomulagstextanum sjálfum. Yfirlýsingin gerði Bandaríkjunum kleift að samþykkja samkomulagstextann. Nauðsynlegt er hins vegar að gera breytingar á texta TRIPS- samningsins fyrir júní 2004 og endurspegla þannig samkomulagið. Nú virðist yfirlýsing formannsins ætla að standa í vegi fyrir því að samkomulag náist fyrir tilsettan tíma um textabreytingarnar vegna mismunandi skilnings aðildarríkjanna á lagalegu gildi yfirlýsingarinnar. Bandaríkin vilja að minnst sé á hana í texta TRIPS-samningsins en Afríkuríkin eru því mótfallin.
Þjónustuviðskipti.
Hinn almenni samningur WTO um þjónustuviðskipti (GATS) gildir um öll þjónustuviðskipti að undanskilinni opinberri þjónustu. Nokkuð mismunandi er á hvaða sviðum þjónustuviðskipta einstök ríki hafa opnað markaði sína og jafnframt hversu langt þau hafa gengið í þeim efnum. Iðnríkin hafa almennt opnað fyrir viðskipti á fleiri sviðum en þróunarríkin og í Úrúgvæ-viðræðunum lagði Ísland fram viðamikla skuldbindingaskrá á flestum sviðum þjónustuviðskipta. Enn fremur tók Ísland á sig frekari skuldbindingar varðandi flutninga á sjó, fjarskiptaþjónustu og fjármálaþjónustu á árunum 1996–1997. Skuldbindingaskrá Íslands ber því glöggt með sér hve opinn markaðurinn er á Íslandi fyrir viðskipti með þjónustu, enda er þjónusta einn helsti vaxtarbroddur í milliríkjaviðskiptum iðnríkja. Hlutfall þjónustu í heildargjaldeyristekjum Íslands hefur undanfarin ár verið á milli 31–36%, en stærstur hluti þjónustuviðskiptanna fer fram á Evrópska efnahagssvæðinu.
Í yfirstandandi samningaviðræðum hefur Íslands móttekið kröfur frá þremur aðildarríkjum 6 og lagði Ísland fram tilboð sitt í samræmi við þau tímamörk sem sett voru í Doha, fyrir 31. mars 2003. Í tilboði Íslands hefur ekki verið opnað fyrir markaðsaðgang á nýjum sviðum en skráin hefur verið uppfærð til samræmis við núgildandi lög og reglur, svo og með tilliti til krafna fyrrgreindra aðildarríkja til Íslands.
Samningaviðræðurnar um markaðsaðgang fyrir þjónustuviðskipti voru komnar á nokkurt skrið fyrir ráðherrafundinn í Kankún en síðan þá hafa þær verið í lægð eins og aðrar samningaviðræður á vettvangi WTO. Á þessu stigi málsins er erfitt að segja til um hver niðurstaða samningaviðræðnanna gæti orðið, m.a. vegna þess að enn sem komið er hafa einungis 40 aðildarríki lagt fram tilboð sín. 7 Mörg aðildarríkjanna hafa lýst yfir vonbrigðum með þau tilboð sem fram hafa komið, sérstaklega tilboð þeirra ríkja sem höfðu gengið hvað lengst í kröfum um opnun markaða gagnvart öðrum aðildarríkum. Þróunarríki hafa gengið hvað lengst í því að tengja sveigjanleika í samningaviðræðum vegna GATS við árangur á öðrum sviðum lotunnar, einkum landbúnað.
Þróunarríkin með Indland í fararbroddi hafa lagt mesta áherslu á í málflutningi sínum að frekar verði opnað fyrir þann möguleika að einstaklingi eða fyrirtæki sem starfrækir þjónustustarfsemi í heimaríki sínu sé kleift að bjóða þjónustu sína á yfirráðasvæði annars ríkis, t.d. þegar sjálfstætt starfandi ráðgjafi veitir tímabundna þjónustu í öðru ríki en heimalandi sínu. Þess má geta að í flestum tilfellum hafa aðildarríki ekki tekist á hendur skuldbindingar í þá veru, en það þýðir þó ekki að útilokað sé að veita þjónustu með þessum hætti í þeim ríkjum sem hafa ekki undirgengist slíkar skuldbindingar.
Reglur um undirboð og ríkisstyrki, þ.m.t. í sjávarútvegi.
Í Doha-lotunni verður jafnframt samið um að skýra og bæta ákvæði um undirboð og aðgerðir gegn þeim. Enn fremur verða settar skýrari reglur um ríkisstyrki. Ísland ásamt fleiri ríkjum átti frumkvæði að því að ríkisstyrkir í sjávarútvegi yrðu teknir sérstaklega fyrir í þessari viðræðulotu og hafði forustu um þetta málefni í undirbúningi fyrir ráðherrastefnuna í Doha í nóvember 2001. Á það var bent að þegar ríkisstyrkir í sjávarútvegi skaða viðskiptahagsmuni hafa þeir sjálfkrafa þær hliðarverkanir að þeir stuðla að ofveiði og skaða því umhverfið. Ísland hefur leitt hóp aðildarríkja WTO sem kallast „Sporðavinir“. Sá hópur telur aðkallandi að semja sérstaklega um afnám ríkisstyrkja í sjávarútvegi þar sem þeir trufli viðskipti, stuðli að ofveiði og grafi jafnframt undan aðlögun þróunarríkja að hinu alþjóðlega viðskiptaumhverfi. Fram að þessu hefur athyglin reyndar beinst að öðrum málefnum eins og fjallað hefur verið um hér að framan. Íslensk stjórnvöld hafa þó fylgt þessu máli eftir en ekki er að vænta mikilla tíðinda af þessum þætti viðræðnanna fyrr en hilla fer undir samkomulag í stærri deilumálum.
Þróunarríkin.
Í þessari samningalotu hefur sérstök áhersla verið lögð á hagsmuni fátækari ríkja en tvö af hverjum þremur aðildarríkjum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar eru þróunarríki. Þróunarríkin hafa því í auknum mæli beitt sér innan stofnunarinnar og í samningaviðræðum á vegum hennar. Þróunarríkin léku lykilhlutverk á ráðherrafundinum í Kankún. Fyrir fundinn lögðu þróunarríkin fram kröfur sem sum hinna iðnvæddu ríkja áttu mjög erfitt með að fallast á, einkum Bandaríkin og ESB. Eitt erfiðasta málið sem Bandaríkin þurftu að kljást við í aðdraganda Kankún og á fundinum sjálfum var tillaga fjögurra fátækra ríkja (Tsjad, Búrkína Fasó, Benín og Malí) um aukinn markaðsaðgang og lækkun ríkisstyrkja í bómullarframleiðslu, en öll þessi ríki eru að miklu leyti háð framleiðslu á bómull. Bandaríkin veita umtalsverða styrki til framleiðslu á bómull í 17 fylkjum Bandaríkjanna og hefur bómullariðnaðurinn umtalsvert vægi í bandarískum stjórnmálum. Bandarísk stjórnvöld hafa bent á að í Doha-yfirlýsingunni sé ekki að finna heimild til að semja sérstaklega um þetta mál heldur falli það undir landbúnaðarþáttinn í heild sinni. Að auki telja bandarísk stjórnvöld að sett yrði varasamt fordæmi ef slík sérmál yrðu tekin út fyrir viðræður um einstaka málaflokka í viðræðulotunni. ESB hefur hins vegar sýnt þessum málflutningi meiri samúð enda ekki um eins viðkvæm mál að ræða fyrir Evrópusambandsríkin. Þróunarríkin voru hins vegar ósátt við þá umfjöllun sem þessi tillaga fékk á fundinum í Kankún og stuðlaði það að skipbroti fundarins.
Þróunarríkin hafa einnig gert harða hríð að ríkisstyrkjum til sykurframleiðslu, einkum í ríkjum ESB. Stór hluti útgjalda ESB til landbúnaðar rennur til sykurframleiðenda og er ESB einn stærsti útflutningsaðili á sykurmarkaðinum. Ástralía, Brasilía og Tæland, sem eru einnig meðal stærstu útflytjenda á sykri, hafa sameinast gegn ESB og báru fyrr á árinu upp formlega kvörtun við WTO þar sem ESB er sakað um að flytja út þrjár til fjórar milljónir tonna af sykri umfram skuldbindingar sínar innan WTO og að útflutningsstyrkir á sykri séu meira en tvöfalt hærri en skuldbindingar samkvæmt landbúnaðarsamningi WTO leyfa.
Nokkur aðildarríki, þar á meðal Noregur, Nýja-Sjáland og ESB-ríkin hafa lagt til að aðildarríkin felli niður alla tolla á öllum vörum frá vanþróuðustu ríkjunum, líka landbúnaðarvörum (ESB undanskilur nokkrar landbúnaðarvörur, t.d. banana og sykur). Ísland hefur fellt einhliða niður alla tolla á iðnaðarvörum frá þessum ríkjum. Hugmyndin er að vanþróuðustu ríkin bindi alla tolla, en þurfi ekki að taka þátt í því að lækka tolla í þessari lotu. Nokkur þróunarríkjanna hafa lýst yfir áhyggjum af því að samningaviðræðurnar leiði af sér lakari samkeppnisstöðu þeirra vegna almennrar lækkunar á tollum í ríkjum sem veita þróunarríkjum sérmeðferð í dag.
Þess má að lokum geta að Norðurlöndin hafa tekið upp óformlegar viðræður við nokkur Afríkuríki um þróunarmál og viðskipti og á döfinni er að Norðurlöndin haldi ráðstefnu í Afríku í haust með hópi þróunarlanda til að auka gagnkvæman skilning á hagsmunum landanna.
Fyrirhuguð aðild Rússlands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni.
Rússnesk stjórnvöld sóttu um aðild að GATT í júní 1993 en í júlí sama ár var vinnunefnd stofnuð um aðildarviðræðurnar. Eftir að Alþjóðaviðskiptastofnunin var sett á laggirnar árið 1995 var nefndinni breytt í aðildarnefnd undir WTO samkvæmt XII. grein Marrakess-samningsins (en svo nefnist stofnsáttmáli Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar). Aðild Rússlands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni er eitt stærsta verkefni stofnunarinnar og umfangsmestu aðildarviðræður á vettvangi hennar síðan Kína varð aðili. Aðildin er forgangsverkefni Pútíns, forseta Rússlands, og hann hefur óformlega stefnt að því að ná samningum um aðild árið 2005. Breytingarnar sem gerðar voru á ríkisstjórninni fyrir forsetakosningarnar í mars 2004 þykja til þess fallnar að styrkja þessa stefnu enn frekar auk þess sem endurkjör forsetans styrkir hann og stefnu hans enn frekar í sessi.
Stjórnvöldum í Rússlandi hefur gengið vel að standast áætlanir um lagabreytingar og framlagningu lagafrumvarpa sem nauðsynleg eru til að skilyrðum aðildar verði fullnægt þótt vissulega séu erfiðir hjallar eftir og mörg mál bíði úrlausnar enn þá. Þess er vænst að verulegur skriður komist á aðildarferlið á árinu og sett hafa verið metnaðarfull markmið en ljóst er að meiri árangur þarf að nást ef þetta á verða að veruleika. Mikilvægt er Rússland sitji við sama borð og önnur ríki heims og sé háð sömu alþjóðareglum í milliríkjaviðskiptum enda er landið síðasta stóra hagkerfi heims sem stendur utan stofnunarinnar. Þá er aðild Rússlands að stofnuninni mikilvægur þáttur í umbótaferlinu þar í landi. Því ríkir eindreginn vilji til þess meðal aðildarríkjanna og ekki síst meðal viðskiptaveldanna beggja megin Atlantsála að af aðildinni geti orðið sem fyrst.
Einstök aðildarríki Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, þar á meðal Bandaríkin, ESB o.fl., hafa tekið virkan þátt í viðræðunum og leitast við að finna lausn á einstökum álitamálum sem þau telja mikilvæg. Meðal erfiðra og óleystra mála má nefna verðmyndun á orku, hugverkareglur, reglur um viðskiptahindranir, óljósar reglur um heilbrigðis- og sjúkdómavarnir, íhlutun ríkisins í bankageiranum o.fl. Mikið veltur einnig á hvernig málum vindur fram í tvíhliða viðræðum sem ýmis aðildarríki eiga í við Rússa vegna inngöngu þeirra, en mestu máli skiptir að samningar takist við ESB og Bandaríkin. ESB hefur t.d. sett fram umfangsmiklar kröfur í þjónustuviðskiptum og hefur þeim miðað lítið áfram. Sömu sögu er að segja í viðræðum Bandaríkjamanna við Rússa þar sem árangur hefur verið misjafn. Helstu ágreiningsefnin í tvíhliða viðræðunum snúast um landbúnað, þjónustuviðskipti og ýmsar tæknilegar viðskiptahindranir.
Ísland hefur átt í tvíhliða viðræðum við Rússland í vetur og er lögð áhersla á tollalækkanir á fiski og fiskafurðum, auk ýmissa iðnaðarvara sem nýtast til fiskvinnslu og veiða.
Fastafulltrúi Íslands í Genf var í desember 2003 skipaður formaður samningaviðræðnanna um aðild Rússa að WTO.
Afríku-framtak Norðurlandanna.
Ísland hefur ákveðið þátttöku í Afríku-framtaki Norðurlandanna, svonefndu „Africa- initiative“, sem er samstarfsverkefni allra Norðurlandanna að frumkvæði danska utanríkisráðuneytisins. Markmið framtaksins er að koma til móts við hagsmuni þeirra Afríkuríkja sem aðild eiga að Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Verkefnið er svar við skipbroti ráðherrafundarins í Kankún í september 2003 þar sem glöggt kom fram sú djúpa gjá sem er á milli sjónarmiða iðnríkjanna og þróunarlandanna. Hugmyndin er að Norðurlöndin haldi málþing og ráðherrafund með um 20 þróunarríkjum í Afríku og samtökum þeirra þar sem rætt verður um hvernig efla megi vitund á mikilvægi alþjóðaviðskiptakerfisins og auka skilning á mikilvægi tæknilegra aðgerða í því samhengi.
Markmiðið með þessu framtaki er að koma á framfæri því sjónarmiði að milliríkjaviðskipti séu undirstöðuatriði fyrir hagstæðari efnahagsþróun í Afríku og að auka skilning Afríkuríkja á málefninu. Gert er ráð fyrir eins til tveggja daga málþingi á haustdögum 2004 og ráðherrafundi í lok ársins. Ákveðið er að Ísland beri 1% af heildarkostnaði verkefnisins.
9.4. Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunin (OECD).
Margir þættir þeirra breytinga sem fram hafa farið í efnahagsmálum, peningamálum, skattamálum, fjárlagagerð og stjórnsýslu á Íslandi hafa verið sóttir í smiðju OECD.
Markmið OECD eru þríþætt:
– Að ná sem mestum og varanlegustum hagvexti og sem hæstu atvinnustigi í aðildarríkjunum.
– Að stuðla að almennri efnahagsþróun jafnt í aðildarríkjunum sem utan þeirra.
– Að leggja sitt að mörkum til vaxtar og þróunar heimsviðskiptanna.
Hjá samtökunum starfa um 2.300 manns og nemur árlegur rekstrarkostnaður þeirra um 20 milljörðum kr. Af því greiðir Ísland 0,1% eða 20 millj. kr. á ári.
Unnið er að tæplega 200 verkefnum á vegum stofnunarinnar. Ísland tekur þátt í um 50 þeirra og sækja um 60 sérfræðingar úr íslenskri stjórnsýslu fundi stofnunarinnar sem flestir fara fram í höfuðstöðvum þeirra í París.
Flestir fundir eru sóttir af sérfræðingum fjármálaráðuneytis og Seðlabanka. Þeir taka einkum þátt í verkefnum sem fjalla um efnahags-, peninga- og fjárfestingarmál. Auk þess tekur Ísland þátt í verkefnum sem fjalla um sjávarútvegsmál, utanríkisviðskipti, landbúnaðarmál, vísinda- og tæknimál, menntamál, umhverfismál og stjórnsýsluumbætur svo fátt eitt sé nefnt.
Umbótaferlið og fjölgun aðildarríkja.
Eitt viðamesta verkefni síðustu ára eru umbætur í rekstri og starfsemi stofnunarinnar. Tilgangur umbótanna er fyrst og fremst að búa stofnunina undir fjölgun aðildarríkja. Fyrirséð er að þeim geti fjölgað um allt að 15, eða úr 30 í 45.
Síðustu missiri hefur verið unnið að því að ná samstöðu um breytingu á framlagahlutfalli aðildarríkjanna til reksturs stofnunarinnar, en það lá fyrir að Japan mundi lækka einhliða hlutfall sitt ef ekki næðist samstaða um breytingu, sem valdið hefði alvarlegri fjárhagskreppu hjá stofnuninni. Fyrir áramót náðist samstaða um breytingu sem felur í sér að framlag Japans lækkar úr 23% í 21%. Framlag hinna G7-ríkjanna verður óbreytt en framlag annarra OECD- ríkja hækkar. Þannig hækkar framlag Íslands úr 0,100% í 0,165% eða úr 19 millj. kr. í 32 millj. kr. á ári.
Óútkljáð er hins vegar hver bera skal kostnaðinn af fjölgun aðildarríkja, nýju aðildarríkin, núverandi aðildarríki eða ríkin öll. Líkleg aðildarríki eru nýju aðildarríki ESB, sem ekki eru þegar orðin meðlimir, þ.e. Eystrasaltsríkin, Slóvenía, Kýpur og Malta, og auk þeirra Rússland, Chile, Brasilía, Argentína, Indland, Ísrael, Kína og Suður-Afríka.
Aðild Íslands að þróunarsamvinnunefnd OECD (DAC).
Þróunarsamvinnunefnd OECD (Development Aid Committee – DAC) er ein af elstu nefndum stofnunarinnar. Alls átta núverandi aðildarríki OECD eiga ekki aðild að nefndinni, en það eru auk Íslands, Pólland, Ungverjaland, Tékkland, Slóvakía, Tyrkland, Kórea og Mexíkó. Ástæðan er tiltölulega lágt framlag þessara ríkja til þróunarmála. Íslensk stjórnvöld lýstu áhuga sínum á að gerast aðilar að nefndinni haustið 2003 og í byrjun árs 2004 var slíku aðildarferli ýtt úr vör og er gert ráð fyrir að Ísland gerist fullgildur aðili nefndinni í desember næstkomandi.
Hlutverk OECD eftir fund Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í Kankún.
Eftir að samningalota Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO), Doha-lotan, beið skipbrot í Kankún í september 2003 hafa farið fram miklar umræður um hvað OECD geti lagt af mörkum til að koma viðræðunum aftur í gang og aðstoða samningaferlið.
Viðurkennt er að OECD getur leikið lykilhlutverk í því að lotan beri árangur. Stofnunin mun endurmeta forgangsröðun verkefna sinna og einbeita sér að greiningu á málum sem eru mikilvæg fyrir þróunarríkin samfara því að efla samband sitt við þau. Í þessu sambandi má nefna að stofnunin mun meta landbúnaðarstefnu Brasilíu, Kína, Indlands og Suður-Afríku auk útreiknings á heildarstuðningi við landbúnað í þessum ríkjum,
Þá hefur verið ákveðið að gera allsherjargreiningu á fyrirkomulagi milliríkjaviðskipta og leita leiða til að sníða verstu agnúana af núverandi fyrirkomulagi.
Hafin verður athugun á því fyrirkomulagi í þróuðum ríkjum sem hamlar frjálsum viðskiptum með tilteknar vörur sem eru mikilvægar fyrir Afríkuríkin, svo sem sykur. Sykur er ein mest niðurgreidda landbúnaðarafurð í ESB. Auk þess er talið að fyrirkomulag sykurviðskipta innan ESB hamli mest allra varnaraðgerða viðskiptum með landbúnaðarafurðir innan ESB.
Loks ætlar OECD sér að veita þróunarríkjum sérstaka aðstoð við að aðlaga sig og taka þátt í hinu alþjóðlega efnahagskerfi með þróun nauðsynlegs stofnanafyrirkomulags í þeim efnum.
Sum ríki OECD, þar á meðal Ísland, hafa gerst málsvarar þeirra sjónarmiða að á vettvangi OECD fari fram í fullri samvinnu við þróunarríkin prófun á nýjum leiðum og lausnum sem gætu leitt til samkomulags í Doha-lotunni. OECD er ekki samningsvettvangur og því hægara um vik að ræða þar óformlega um lausnir en á hinum formlega vettvangi í Genf.
9.5. Viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytisins.
Viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytisins var stofnuð árið 1997. Hlutverk hennar er að leysa úr þeim vandamálum sem upp koma í samskiptum fyrirtækja við erlend stjórnvöld, veita íslenskum fyrirtækjum faglega þjónustu á mikilvægum mörkuðum og styrkja íslenska útrás með víðfeðmu neti sendiráða og ræðismanna Íslands á erlendri grundu.
Viðskiptafulltrúar eru nú starfandi í sex af 21 sendiskrifstofu Íslands. Þeir vinna margs konar viðskiptatengd verkefni fyrir fyrirtæki samkvæmt verksamningum, m.a. markaðsskýrslur og upplýsingar um lánstraust fyrirtækja, finna hugsanlega viðskiptaaðila og koma á fundum. Aðrar sendiskrifstofur bjóða upp á slíka þjónustu eftir föngum og veita grunnaðstoð og upplýsingar.
Skipulagsbreytingar Viðskiptaþjónustunnar.
Í kjölfar nýrra laga um útflutningsaðstoð frá 2002 hafa átt sér stað skipulagsbreytingar í starfi Viðskiptaþjónustunnar sem felast í auknu samstarfi við Útflutningsráð og aukinni þátttöku sendiráða í útflutningsaðstoð. Viðskiptafulltrúar koma nú reglulega til Íslands og eru til viðtals hjá Útflutningsráði. Á undanförnu missiri hafa fjórir viðskiptafulltrúar tekið á móti fulltrúum um 90 fyrirtækja og hefur áhugi fyrirtækja aldrei verið meiri. Viðtalstímar sendiherra hafa sömuleiðis verið afar vel sóttir en þeir fara nú fram í húsakynnum Útflutningsráðs, Húsi atvinnulífsins, auk þess sem þeir eru auglýstir á markvissari hátt en áður.
Aukin samvinna við Útflutningsráð hefur styrkt opinbera útflutningsaðstoð og minnkað tvíverknað. Til dæmis er þjónusta viðskiptafulltrúanna nú seld samhliða annarri ráðgjöf sem Útflutningsráð býður upp á og því tryggt að hverju fyrirtæki býðst sú þjónusta sem því hentar best. Skipulagning viðskiptasendinefnda fer nú fram hjá Útflutningsráði í samvinnu við viðkomandi sendiráð, en áður hafði bæði Viðskiptaþjónustan og Útflutningsráð staðið að slíkum viðskiptasendinefndum.
Samningar voru gerðir við nær allar sendiskrifstofur Íslands í þeim tilgangi að gera vinnu þeirra að útflutningsaðstoð hnitmiðaðri og árangursríkari. Verkefnabókhald hefur verið tekið upp, samband við ýmsa tengiliði hefur verið eflt til að auðvelda upplýsingasöfnun og svörun fyrirspurna. Sendiskrifstofur skila áætlun um umfang viðskiptamála þar sem gerð er grein fyrir helstu sýningum og atburðum í viðskiptalífi umdæmisríkja.
Áætlanir og skýrslur sendiráðanna, ásamt umsóknum um fjárveitingar, fara fyrir stýrinefnd Útflutningsráðs og Viðskiptaþjónustunnar sem tryggir að upplýsingar berist einnig frá sendiráðum til Útflutningsráðs. Verkefni eru þannig falin þeim aðila sem best er til þeirra fallinn, hvort sem um ræðir ákveðna deild innan Útflutningsráðs eða utanríkisþjónustunnar. Að auki fjallar stýrinefndin um önnur skipulags- og stefnumál.
Samráðsnefnd atvinnulífs og stjórnvalda um utanríkisviðskipti og útflutningsaðstoð var efld til muna með nýju lögunum. Í henni situr nú fjöldi hagsmunaaðila úr viðskiptalífinu sem fjallar um hvernig utanríkisráðuneytið og Útflutningsráð geta orðið viðskiptalífinu að liði í sókn á erlenda markaði. Nefndin hittist fjórum sinnum á ári, einn fundur fór fram í febrúar og annar fer fram í apríl 2004.
10. HAFRÉTTARMÁL
10.1. Hafréttarsamingur Sameinuðu þjóðanna.
Ísland tekur virkan þátt í starfi Sameinuðu þjóðanna í hafréttarmálum og leggur þar áherslu á að standa vörð um hafréttarsamninginn, en um er að ræða eina heildstæða alþjóðasamninginn á sviði hafréttar. Hagsmunir Íslands sem strandríkis, sem á mikið undir nýtingu auðlinda hafsins, eru vel tryggðir í hafréttarsamningnum og samningum tengdum honum. Af Íslands hálfu hefur í samræmi við þetta verið lögð á það áhersla á aðildarríkjafundum hafréttarsamningsins og á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að vinna beri á grundvelli þessara samninga og að mikilvægt sé að þeir séu fullgiltir og ákvæðum þeirra framfylgt af ríkjum heims. Jafnframt hefur verið lagst gegn tilraunum til að opna að nýju mál sem voru til lykta leidd á hafréttarráðstefnunni, enda fól niðurstaða ráðstefnunnar í sér pakkalausn þar sem einstök ríki fengu sitt fram á sumum sviðum en urðu að gefa eftir á öðrum.
Hinn 10. desember 2002 var í New York minnst 20 ára afmælis hafréttarsamningsins. Í tengslum við athöfnina og í kjölfar hennar fullgiltu ýmis ríki samninginn, m.a. Kanada, og önnur ríki, svo sem Bandaríkin og Danmörk, hafa fullgildingu samningsins til athugunar. Aðildarríki hafréttarsamningsins voru 145 talsins hinn 19. mars 2004.
10.2. Úthafsveiðisamningur Sameinuðu þjóðanna.
Úthafsveiðisamningurinn, sem samþykktur var í New York 4. ágúst 1995, öðlaðist gildi 11. desember 2001 þegar 30 ríki höfðu gerst aðilar að honum. Ísland hafði fullgilt samninginn 14. febrúar 1997.
Í úthafsveiðisamningnum er kveðið á um framkvæmd og nánari útfærslu ákvæða hafréttarsamningsins um deilistofna og víðförula fiskstofna, þ.e. stofna sem finnast bæði innan efnahagslögsögu strandríkja og á úthafinu. Yfirlýst markmið samningsins er að tryggja langtímaverndun og sjálfbæra nýtingu áðurnefndra fiskstofna. Samningurinn styrkir verulega ramma um samstarf strandríkja og úthafsveiðiríkja á vettvangi svæðisbundinna fiskveiðistofnana um verndun þessara stofna og stjórnun veiða úr þeim. Sérstök réttindi strandríkja eru viðurkennd í samningnum og í honum felast frekari takmarkanir á hefðbundnu frelsi til fiskveiða á úthafinu.
Þegar þýðing úthafsveiðisamningsins er vegin og metin er rétt að hafa í huga að langtímahagsmunir allra fiskveiðiþjóða eru í því fólgnir að markmiði samningsins verði náð og að bundinn verði endi á stjórnlausar veiðar á úthafinu víðs vegar í heiminum. Engin ríki eiga meira undir því en ríki á borð við Ísland sem byggja afkomu sína að miklu leyti á fiskveiðum.
Mikilvægt er þó að hafa í huga að ákvæði samningsins binda einungis þau ríki sem eru aðilar að honum. Hefur Ísland verið í hópi þeirra ríkja sem hvatt hafa til þess að samningurinn verði fullgiltur og ákvæðum hans framfylgt af ríkjum heims. Ástæða er til að fagna því að aðildarríkjum úthafsveiðisamningsins hefur fjölgað verulega á undanförnum missirum. Í desember 2003 fullgiltu Evrópubandalagið og aðildarríki þess samninginn og voru aðildarríki samningsins hinn 19. mars 2004 51 talsins.
10.3. Afmörkun efnahagslögsögunnar gagnvart lögsögu nágrannalandanna.
Haustið 2002 náðist á fundi Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra og Anfinns Kallsberg, lögmanns Færeyja, í Þórshöfn samkomulag um afmörkun umdeilda hafsvæðisins milli Íslands og Færeyja. Þar með lauk afmörkun efnahagslögsögu Íslands gagnvart lögsögu nágrannalandanna, en áður hafði verið gengið frá afmörkun efnahagslögsögunnar gagnvart lögsögu Jan Mayen, Grænlands og Bretlands.
Í samkomulaginu milli Íslands og Færeyja felst að nyrðri hluti umdeilda svæðisins, sem liggur norðan 63° 30´ og nemur um tveimur þriðju hlutum af svæðinu í heild, skiptist þannig milli aðila að Ísland fær 60% í sinn hlut en Færeyjar 40%. Syðsti hluti umdeilda svæðisins, sem liggur sunnan 63° 30´ og nemur um þriðjungi af svæðinu í heild, skiptist hins vegar jafnt á milli aðila. Vegna sérstakra aðstæðna á syðsta hluta svæðisins var um það samið að aðilar heimili fiskiskipum hvor annars veiðar á sínum hluta svæðisins og verður því í raun um sameiginlegt nýtingarsvæði landanna tveggja að ræða. Á þessum hluta svæðisins er að finna rækjuhóla sem hvorki er að finna í næsta nágrenni til vesturs né austurs og mundi það gera fiskiskipum beggja aðila erfitt fyrir að stunda rækjuveiðarnar ef aðgangur þeirra að svæðinu yrði takmarkaður.
Gengið verður frá formlegum afmörkunarsamningi, sem mun ná til allrar lögsögulínunnar milli landanna, þegar tæknilegri endurskoðun á grunnlínupunktum hvors lands um sig er lokið.
10.4. Landgrunnsmál.
10.4.1. Afmörkun ytri marka landgrunns Íslands utan 200 sjómílna.
Unnið er að undirbúningi greinargerðar til landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna um mörk landgrunns Íslands utan 200 sjómílna. Gert er ráð fyrir að verkefnið, sem felur m.a. í sér mælingar á landgrunnssvæðum sem samsvara þrettán-földu landsvæði Íslands, muni taka um fimm ár og að greinargerðinni verði skilað til nefndarinnar árið 2006. Áætlaður heildarkostnaður vegna þessa er um 700 millj. kr. Utanríkisráðuneytið ber ábyrgð á umræddri greinargerð og hefur verið skipaður starfshópur undir forustu þess til að vinna hana.
Samkvæmt hafréttarsamningnum skulu strandríki, sem gera tilkall til landgrunns utan 200 sjómílna, skila greinargerð um ytri mörk landgrunns síns til landgrunnsnefndarinnar. Nefndin gerir í framhaldi af því tillögur þar að lútandi og skulu mörk landgrunnsins, sem strandríki ákveður á grundvelli þessara tillagna, vera endanleg og bindandi. Frestur Íslands til að skila greinargerð til nefndarinnar er til 13. maí 2009, en eins og áður segir er stefnt að því að skila henni mun fyrr.
Af Íslands hálfu er gert tilkall til landgrunns utan 200 sjómílna í suðri, þ.e. á Reykjaneshrygg og Hatton Rockall-svæðinu, og í austri, þ.e. í Síldarsmugunni. Landgrunnið var afmarkað til suðurs með reglugerð árið 1985 en afmörkun landgrunnsins til austurs er skemmra á veg komin. Aðeins Ísland gerir kröfu um landgrunnsréttindi á Reykjaneshrygg, en á Hatton Rockall-svæðinu hafa Danmörk, fyrir hönd Færeyja, Bretland og Írland einnig sett fram kröfur um slík réttindi. Í Síldarsmugunni mun Noregur einnig gera kröfu til landgrunnsréttinda út frá Jan Mayen og væntanlega mun Danmörk einnig setja fram kröfu um slík réttindi fyrir hönd Færeyja.
Mörg álitamál eru ríkjandi um túlkun 76. gr. hafréttarsamningsins sem fjallar um ákvörðun ytri marka landgrunnsins og snerta nokkur þeirra kröfur Íslands til landgrunnsréttinda utan 200 sjómílna. Mikilvægt er að Íslendingar geri sig gildandi á þessu mikilvæga sviði hafréttarins og vinni sjónarmiðum sínum fylgi.
Í þessu skyni ákvað Hafréttarstofnun Íslands, sem utanríkisráðuneytið stendur að auk sjávarútvegsráðuneytisins og Háskóla Íslands, að gangast fyrir alþjóða-ráðstefnu um afmörkun landgrunnsins í Reykjavík 25.–27. júní 2003 í samvinnu við Hafréttarstofnunina við Háskólann í Virginíu. Á ráðstefnunni var einkum fjallað um lagalegar og vísindalegar hliðar ákvörðunar ytri marka landgrunns utan 200 sjómílna. Alls tóku um 170 sérfræðingar frá 50 löndum þátt í ráðstefnunni sem er hin stærsta sinnar tegundar sem haldin hefur verið. Meðlimum landgrunnsnefndarinnar, sem eru 21 að tölu, var boðið að sækja ráðstefnuna og þekktist þorri þeirra boðið. Jafnframt styrkti Hafréttarstofnun þátttöku fulltrúa nokkurra þróunarríkja í ráðstefnunni.
Landgrunnsráðstefnan þótti takast afar vel og ljóst er að hún hefur stuðlað að því að efla stöðu Íslands sem ríkis sem á raunverulegt tilkall til landgrunnsréttinda utan 200 sjómílna.
10.4.2. Hatton Rockall-málið.
Haustið 2001 fóru fram í Reykjavík að frumkvæði Íslands óformlegar viðræður allra deiluaðila í Hatton Rockall-málinu, þ.e. Íslands, Bretlands, Írlands og Danmerkur, fyrir hönd Færeyja. Var um að ræða fyrsta fjórhliða fund þeirra aðila sem gera tilkall til landgrunns á Hatton Rockall-svæðinu og markaði fundurinn því tímamót. Viðræðurnar voru gagnlegar og hefur þeim verið fram haldið.
Mikilvægt er að aðilar byrji að leita leiða til að leysa þetta mikilvæga mál, en ekki er við því að búast að viðræður aðila muni leiða til skjótrar niðurstöðu enda er málið afar flókið og erfitt að samræma sjónarmið aðila.
Til þess að lausn náist um afmörkun landgrunns á umdeildum svæðum á borð við Hatton Rockall-svæðið og raunhæft sé að nýta auðlindir þess þarf tvennt að koma til: Annars vegar þurfa hlutaðeigandi ríki að komast að samkomulagi um skiptingu landgrunnsins sín á milli eða um að það verði sameiginlegt nýtingarsvæði. Hins vegar þarf að nást niðurstaða um afmörkun ytri marka landgrunnsins á grundvelli tillagna landgrunnsnefndarinnar.
11. UMHVERFISMÁL OG AUÐLINDAMÁL
11.1. Auðlindir og utanríkismál.
Mikilvægi auðlinda hafsins er samofið íslenskum utanríkishagsmunum. Nýting þeirra hefur lagt grunninn að velferð þjóðarinnar og verið hreyfiafl framfara í landinu. Markmið stjórnvalda hefur annars vegar verið að tryggja full yfirráð yfir auðlindinni og hins vegar að tryggja sjálfbæra nýtingu hennar til framtíðar.
Til að svo megi verða, þurfa stjórnvöld að vera vakandi á verðinum, jafnt heima sem í alþjóðlegu umhverfi. Hnattræn umræða um málefni hafsins hefur aukist og þátttaka íslenskra stjórnvalda í alþjóðlegu starfi samhliða tekið breytingum. Vaxandi mengun, m.a. vegna aukinna efnahagsumsvifa á hafinu, umræða um fæðuöryggi og margföldun sjávarafla á heimsvísu undanfarna áratugi, hefur stuðlað að aukinni umfjöllun. Ríki heims hafa vaknað til vitundar um að auður hafanna er ekki óþrjótandi, en verður að vakta.
Það er æ algengara að kallað sé eftir því að alþjóðasamfélagið hlutist til um verndun og nýtingu fiskistofna og hafsvæða. Tillögur hafa komið fram um að fela valdi ríkjum æðra eða alþjóðastofnunum stjórnun nýtingar auðlinda hafsins. Þessari þróun verður einungis mætt með því að afla sjónarmiðum Íslands viðurkenningar og fylgis, enda gengur þessi nálgun þvert á grundavallarhugsun íslenskra stjórnvalda um fullveldisrétt ríkja yfir auðlindum sínum og að stjórn auðlindanýtingar sé best borgið í höndum þeirra ríkja sem standi þeim næst. Sterk rödd Íslands, er heldur á loft meginreglum sjálfbærrar þróunar, er því afar mikilvæg á alþjóðlegum vettvangi, sérstaklega í ljósi þess að afkoma Íslendinga byggist að stærstum hluta á nýtingu náttúrunnar.
Íslendingar hafa löngum státað af nútímalegum og framsýnum sjávarútvegi sem er öðrum ríkjum fyrirmynd. Íslensk stjórnvöld hafa einnig, sérstaklega hin síðari ár, sýnt frumkvæði í málefnum hafanna á alþjóðavettvangi þannig að eftir því hefur verið tekið. Í því sambandi er rétt að benda á Reykjavíkurráðstefnuna um vistkerfisnálgun í nýtingu auðlinda hafsins, sem íslensk stjórnvöld stóðu fyrir í samvinnu við Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) og stjórnvöld í Noregi, með eftirminnilegum hætti. Þar tókst að beina jákvæðu ljósi að málefnum hafsins en Reykjavíkuryfirlýsingin var eitt merkasta framlag fiskveiðiþjóða heims til umræðunnar um sjálfbæra þróun. Framlag Íslands innan FAO varðandi umhverfismerkingar, úttekt og greiningu á ríkisstyrkjum í sjávarútvegi og vegna aðgerðaáætlana gegn ólöglegum fiskveiðum, svo eitthvað sé nefnt, stuðlar að því að Ísland afli sér viðurkenningar á sviði sjálfbærrar auðlindanýtingar. Hér ber einnig að nefna starf okkar í því að koma á fót reglulegu ferli innan Sameinuðu þjóðanna að skrá og meta mengun sjávar á hnattræna vísu. Stofnfundur ferlisins verður væntanlega haldinn hér á landi síðar á þessu ári.
Ríkisstjórn Íslands hefur falið umhverfis-, sjávarútvegs- og utanríkisráðuneytum vinnu að mótun heildarstefnu í málefnum hafsins sem bráðlega verður lögð fyrir ríkisstjórn til samþykktar. Markmið sameiginlegrar nefndar ráðuneytanna er að meta stöðu verndar og nýtingar lifandi auðlinda hafsins í kringum landið og móta heildræna stefnu sem tekur mið af mikilvægi hafsins fyrir Ísland. Henni er jafnframt ætlað að vera aðgengileg fyrir alla þá sem áhuga hafa á málefnum hafsins, auk þeirra sem með beinum hætti taka þátt í hagsmunagæslu Íslands á alþjóðlegum vettvangi.
11.2. Málefni hafsins á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, sem er hinn almenni hnattræni vettvangur fyrir umfjöllun um málefni hafsins og hafréttarmál, eru árlega samþykktar tvenns konar ályktanir á þessu sviði. Annars vegar er um að ræða almenna ályktun um hafið og hafréttarmál, svonefnda „omnibus“-ályktun, og hins vegar fiskveiðiályktun þar sem sérstök áhersla er lögð á umfjöllun um úthafsveiðisamninginn.
Af Íslands hálfu hefur verið lögð áhersla á það á allsherjarþinginu að þar beri að fjalla um tiltekin málefni sem séu hnattræns eðlis en ekki mál sem falli undir fullveldisrétt einstakra ríkja eða fjalla beri um á svæðisbundinn hátt. Þannig sé rétt að ræða á allsherjarþinginu um mengun hafsins, enda virði hún engin landamæri og glíma verði við hana með hnattrænum aðgerðum. Verndun og sjálfbær nýting lifandi auðlinda hafsins sé hins vegar dæmi um staðbundið eða svæðisbundið málefni. Hefur Ísland staðið gegn tilraunum til hnattrænnar stjórnunar fiskveiða þar sem fiskveiðistjórnun fellur undir fullveldisrétt einstakra ríkja eða er á ábyrgð svæðisbundinna fiskveiðistjórnunarstofnana.
11.3. Svæðasamstarf um auðlindir hafsins.
Íslensk stjórnvöld leggja metnað sinn í að starfa með nágrannaþjóðum á vettvangi svæðastofnana um auðlindir hafsins. Samstarf ríkja með þessum hætti er í anda hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna, þar sem ákvarðanir um nýtingu eru teknar með tilliti til vísindalegrar ráðgjafar á vettvangi svæðasamstarfs auk samstarfs og samvinnu við Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES). Því er það nokkurt áhyggjuefni hvernig mál hafa þróast í þeim efnum. Nú er svo háttað að ekki eru í gildi neinir samningur um veiðar úr sameiginlegum stofnum, sem koma til kasta svæðastofnana að hlutast til um. Þrátt fyrir umtalsverða vinnu og fjölda funda hefur ekki náðst samkomulag um veiðar úr kolmunnastofninum og síldarsamningar eru nú í uppnámi annað árið í röð. Ástæða er til að óttast að sú sátt sem ríkt hefur um stjórnun síldveiðanna frá árinu 1996 sé sprungin vegna óbilgjarnrar afstöðu norskra stjórnvalda sem ætla sér mun stærri hlut í veiðunum.
11.4. Hvalveiðar.
Sá merki árangur náðist haustið 2002 að Ísland varð viðurkenndur aðili að Alþjóðahvalveiðiráðinu með fyrirvara um bann ráðsins við hvalveiðum í atvinnuskyni. Þar með styrktum við mjög stöðu okkar í hvalveiðimálum, bæði frá þjóðréttarlegu og pólitísku sjónarmiði.
Starf utanríkisráðuneytisins að því að kynna hvalveiðistefnu Íslands á alþjóðavettvangi hefur skilað mikilvægum árangri og dregið úr þunga þeirrar gagnrýni sem ákvörðunin um vísindaveiðar mætti. Sendiráð Íslands erlendis hafa svarað allri gagnrýni sem borist hefur með tölvupósti og bréfum með því að útskýra hvernig hvalveiðistefnan er óaðskiljanlegur liður í afstöðu Íslendinga til sjálfbærrar nýtingar íslenskra náttúruauðlinda sem liggur til grundvallar efnahagsstefnu okkar og er lykillinn að viðvarandi og vaxandi velsæld í landinu.
11.5. Orkumál og vetnisnýting.
Utanríkisráðuneytið hefur orðið vart við vaxandi velvilja í garð Íslands vegna vistvænnar nálgunar til náttúruauðlinda landsins hvort heldur er til sjávar eða lands. Ráðuneytið telur mikilvægt að nýta þennan velvilja í alþjóðasamskiptum í þágu heildarhagsmuna þjóðarinnar. Þetta á ekki síður við um orkustefnuna en sjávarútvegsmál. Ísland er eina ríkið þar sem allt rafmagn er framleitt með endurnýtanlegum orkugjöfum.
Utanríkisráðuneytið lítur á alþjóðasamstarf á sviði orkumála sem mikilvægt utanríkismál sem er til þess fallið að auka hróður Íslendinga á alþjóðavettvangi. Þátttaka Íslands í alþjóðasamstarfi á sviði vetnismála og kynning á Íslandi sem vettvangi fyrir vetnisrannsóknir og tilraunaverkefni styður viðleitni Íslands við að skapa sér sérstöðu á alþjóðavettvangi sem leiðandi talsmaður sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda. Íslendingar eiga í samstarfi um vetnismál við ríki bæði austanhafs og vestan þar sem sérstaða Íslands á sviði orkumála hefur vakið athygli og var Ísland kosið til sameiginlegrar forustu með Þjóðverjum í framkvæmdanefnd alþjóðlegs vetnissamstarfs, IPHE, sem stofnað var til að frumkvæði Bandaríkjanna í nóvember í fyrra.
Þrátt fyrir þann velvilja sem áhersla Íslands á vetnisvæðingu sem framtíðarmarkmiðs hefur víða mætt hefur utanríkisráðuneytið líka orðið vart við tregðu gegn slíkri þróun, þar á meðal af hálfu olíuríkja, sem telja umræðu um vetni sem orkubera ekki tímabæra. Utanríkisráðuneytið hyggst beita sér á alþjóðavettvangi í samvinnu við önnur ríki sem hafa svipaða stefnu til að vinna sjónarmiðum okkar í vetnismálum brautargengi.
11.6. Norðaustursiglingaleiðin.
Utanríkisráðuneytið er vakandi fyrir þeim áhrifum sem umhverfis- og veðurfarsbreytingar á norðurhveli kunna að hafa á siglingar og flutningaleiðir í okkar heimshluta. Að undanförnu hefur nefnd á vegum utanríkisráðuneytisins unnið að úttekt á hugsanlegri opnun nýrra siglingaleiða um norðurheimskautssvæðið og þýðingu þeirra fyrir Ísland. Miklir hagsmunir eru í húfi enda mundi slík leið frá Atlantshafi til Kyrrahafsins um Beringssund tengja með beinum hætti hagvaxtarsvæðin í Austur-Asíu og iðnríkin við Norður-Atlantshaf. Slíkt mundi gjörbreyta atvinnulífi á norðurslóðum. Þessi leið er ekki fær til stórfelldra vöruflutninga sem stendur en vísbendingar eru um að hún geti opnast hratt vegna skyndilegra ísbreytinga. Enginn veit hvenær það gæti gerst en þá er nauðsynlegt fyrir Íslendinga að vera vel undirbúnir til að nýta þau tækifæri sem gefast.
11.7. Formennska Íslands í Norðurskautsráðinu.
Ísland tók við formennsku í Norðurskautsráðinu í október 2002 til tveggja ára. Í formennskutíð sinni hefur Ísland lagt megináherslu á að efla starfsemi Norðurskautsráðsins á sviðum sem lúta að lífskjörum og lífsskilyrðum fólks á norðurslóðum. Á sama tíma hefur verið stuðlað að áframhaldandi öflugu samstarfi á sviði umhverfismála.
Helstu þættir í formennskuáætlun Íslands eru samantekt skýrslu um mannlíf á norðurslóðum. Hér stendur til að gera úttekt á lífsskilyrðum fólks á svæðinu, benda á bæði það sem vel hefur tekist og snöggu blettina. Samantektin verður kynnt á ráðherrafundi Norðurskautsráðsins 2004. Áhersla hefur verið lögð á aukna notkun upplýsinga- og fjarskiptatækni og bætt aðgengi að henni á svæðinu. Skipulögð var alþjóðleg ráðstefna í október 2003 til að fjalla sérstaklega um tvo afmarkaða þætti: fjarlækningar og fjarkennslu. Niðurstöður ráðstefnunnar og tillögur verða felldar að starfsemi Norðurskautsráðsins. Rannsóknastarf á norðurslóðum hefur jafnframt verið sett á oddinn og aukið samstarf aðila sem beita sér á því sviði, t.d. háskóla, fyrirtækja, sveitarfélaga, ríkisvalds og alþjóðastofnana, í því skyni að nýta betur föng og fjármagn. Til að efla þennan þátt verður Vísindavika norðurslóða haldin hér á landi í næsta mánuði en þar koma saman samtök og stofnanir sem sinna alþjóðlegu rannsóknastarfi á norðurslóðum.
Auk þessara þriggja þátta eru önnur viðamikil viðfangsefni á döfinni. Umfangsmikilli skýrslu um mat á áhrifum loftslagsbreytinga verður lokið á íslenska formennskutímabilinu og það mun koma til kasta Norðurskautsráðsins að taka ákvarðanir um viðbrögð og aðgerðir. Ísland leiðir, ásamt Kanada, stórt verkefni um mörkun heildarstefnu sem tekur til málefna hafanna til lengri tíma litið. Auk þessa má nefna að efnt verður til fundar menntamálaráðherra á norðurslóðum til að fjalla um æðri menntun og rannsóknir á svæðinu.
Ísland hefur jafnframt lagt mikla áherslu á kynningu á starfsemi ráðsins út á við og hafa fjölmörg erindi verið flutt á fundum og ráðstefnum á vettvangi alþjóðastofnana og á öðrum vettvangi í þeim tilgangi. Auk þess hefur verið unnið að hlutdeild norðurslóða í framkvæmdaáætlun ESB fyrir Norðlægu víddina 2004–2006 og að auknu samstarfi Norðurskautsráðsins og ESB.
Í formennsku Norðurskautsráðsins hefur Ísland fengið tækifæri til að vera í forsvari fyrir starfsemi ráðsins á alþjóðavettvangi og koma fram fyrir hönd aðildarríkjanna í þeim mikilvægu málum sem ráðið lætur sig varða. Margt bendir til þess að athygli hins alþjóðlega samfélags muni á næstu árum beinast í auknum mæli að þeim viðfangsefnum sem Norðurskautsráðið hefur til umfjöllunar. Þetta á t.d. við um loftslagsbreytingar á norðurslóðum sem vísindamenn telja að feli í sér vísbendingar um það sem gerast mun annars staðar á jörðinni á næstu áratugum.
12. ÞRÓUNARSAMVINNA
Hafin er stefnumótunarvinna á vegum utanríkisráðuneytisins um þróunarmál er tekur til bæði marghliða og tvíhliða þróunarsamvinnu Íslendinga. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki á vormánuðum 2004. Stefnumótunin byggist á skýrslu sem utanríkisráðherra lét gera, „Ísland og þróunarlöndin, álitsgerð um þróunarsamvinnu Íslands og þátttöku í starfi alþjóðastofnana“. Skýrsluna unnu Jónas H. Haralz og Hermann Örn Ingólfsson.
Í skýrslunni eru viðhorf til þróunarmála rakin, tölulegum upplýsingum gerð skil og staða Íslands sérstaklega skoðuð í því samhengi. Rætt er um marghliða og tvíhliða samvinnu, þróunaraðstoð og viðskipti, þátt frjálsra félagasamtaka og að lokum um skipulag þróunarsamvinnunnar. Ítarlegir viðaukar fylgja skýrslunni, þar á meðal kaflar um starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og um starf ýmissa alþjóðastofnana.
12.1. Tvíhliða þróunarsamvinna.
Þróunarsamvinnustofnun Íslands.
Framlög úr ríkissjóði til tvíhliða þróunarsamvinnu á vegum ÞSSÍ hafa aukist jafnt og þétt á undanförnum árum, eða úr 170 millj. kr. árið 1997 í 520 millj. kr. árið 2004. Umsvif stofnunarinnar hafa aukist samsvarandi. Aukning fjárframlaga hefur kallað á endurskoðun á starfsemi og starfsháttum stofnunarinnar. Nýtt skipurit og nýjar reglur um réttindi og skyldur starfsmanna stofnunarinnar í þróunarlöndum voru samþykktar árið 2001. Jafnframt voru samdar starfslýsingar fyrir öll starfsheiti. Sömuleiðis hefur nýtt áætlunar- og bókhaldskerfi verið tekið í notkun og öll útgáfustarfsemi ÞSSÍ verið endurskipulögð. Á árinu 2004 verður þannig allt bókhald ÞSSÍ og umdæmisskrifstofa fært frá Fjársýslu ríkisins til stofnunarinnar sjálfrar sem krefst m.a. endurbóta í samskiptatækni á milli aðalskrifstofu og umdæmisskrifstofa. Í ljósi vilja ríkisstjórnarinnar til þess að halda áfram að auka framlög til þróunarsamvinnu hefur endurskipulagningu verið haldið áfram og hafinn er undirbúningur að vali á nýjum samstarfslöndum. Ný stefna ÞSSÍ í þróunarsamvinnu, þar sem m.a. eru settar reglur, sem fylgja á um val nýrra samstarfslanda, var samþykkt af stjórn stofnunarinnar í marsmánuði 2004. Á sama stjórnarfundi voru einnig samþykktar nýjar verklagsreglur með skýrum ákvæðum um hvernig skuli standa að framkvæmd þróunarverkefna. Jafnréttismál kynja eru mikilvægt áhersluatriði hjá ÞSSÍ eins og sjá má af því, að af fjórum umdæmisstjórum stofnunarinnar eru nú þrjár konur, af sjö verkefnisstjórum fjórar konur og af fjórum starfsmönnum á aðalskrifstofu í stjórnunarstörfum eru tvær konur.
Formlegur samstarfssamningur hefur verið gerður við Háskóla Íslands og á grundvelli hans hefur ýmsum verkefnum, svo sem rannsóknarverkefnum, ráðstefnum og fundum, þegar verið hrundið í framkvæmd. Nú er stefnt að því að gera fleiri slíka samstarfssamninga við aðrar háskóla- og rannsóknastofnanir á Íslandi. Þá hafa verið gerðir samstarfssamningar við Rauða kross Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, Alþýðusamband Íslands, ABC-hjálparstarf og fleiri frjáls félagasamtök. Þróunarsamvinnustofnun hefur einnig hafið þátttöku í samstarfi svonefnds „Nordic +“ hóps, sem skipaður er þróunarsamvinnustofnunum Norðurlandanna fimm auk Hollands, Írlands og Stóra-Bretlands. Þá er hafinn undirbúningur að þátttöku í þróunarsamvinnunefnd (DAC) Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnunar Evrópu, OECD.
Bein samvinna við utanríkisráðuneytið, sérstaklega alþjóðaskrifstofu ráðuneytisins, hefur verið efld og verður unnið að vali nýrra samstarfslanda í samvinnu við ráðuneytið. Þetta aukna samstarf hefur m.a. leitt til þess, að utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að veita umdæmisskrifstofum ÞSSÍ, sem eru ein í hverju samstarfslandanna, stöðu sendiskrifstofa, sem mun auðvelda starfsemi ÞSSÍ að miklum mun (sjá næsta kafla).
Núverandi samstarfslönd ÞSSÍ eru Malaví, Mósambík, Namibía og Úganda. Þó að fiskimál séu enn stór þáttur í verkefnavali ÞSSÍ hefur aðstoð á sviði félagsmála og heilbrigðismála farið ört vaxandi. Þannig voru samanlögð framlög til fræðslumála hæst árið 2002, eða um 32% af samanlögðum útgjöldum til þróunaraðstoðar á vegum ÞSSÍ, en aðstoð til fiskimálaverkefna nam þá 25% heildarútgjaldanna. Í fræðslumálunum er aðaláhersla nú lögð á fullorðinnafræðslu, sem einkum gagnast konum, og viðfangsefni jafnréttismála eru sívaxandi meðal viðfangsefna stofnunarinnar.
Áðurgreind álitsgerð um þróunarsamvinnu Íslendinga náði til starfsemi ÞSSÍ og var niðurstaða úttektarinnar jákvæð fyrir stofnunina. Í úttektinni var lagt til, að umtalsverð aukning yrði á framlögum til bæði marghliða og tvíhliða þróunaraðstoðar á næstu árum og hefur ríkisstjórnin niðurstöður skýrslunnar nú til umfjöllunar.
Sendiráð Íslands í Mósambík.
Sendiráð Íslands í Mapútó var stofnað fyrir tæpum þremur árum og er það fyrsta íslenska sendiráðið í Afríku. Auk Mósambík annast það sendiráðsstörf í nokkrum öðrum ríkjum í sunnan- og austanverðri Afríku, meðal annars Suður-Afríku, Namibíu, Malaví, Úganda, Keníu og Tansaníu. Tilkoma sendiráðsins er nátengd þróunarsamstarfi Íslands í Afríku og endurspeglar þörfina á því að efla tengslin við ríki Afríku og treysta þróunarsamvinnu í sessi í samstarfsríkjunum.
Verkefni sendiráðsins hafa einkum falist í því að stuðla að framgangi og greiða götu þróunarsamvinnuverkefna Íslands í samskiptum við stjórnvöld samstarfsríkjanna. Jafnframt tekur sendiráðið þátt í fjölþjóðlegu samstarfi fulltrúa þeirra ríkja og alþjóðastofnana sem eru í þróunarsamvinnu við ríkin í sunnanverðri Afríku. Hér er einkum um að ræða samstarf á vegum Sameinuðu þjóðanna og samráð Norðurlanda og tengdra ríkja.
Þróunarsamstarfið við ríkin í þessum hluta heims er nátengt pólitískum og diplómatískum samskiptum við þessi ríki. Í framhaldi af eða samhliða tvíhliða þróunarsamstarfi koma jafnan pólitísk tengsl milli viðkomandi ríkja enda eru þau til þess fallin að treysta þróunarsamvinnuna í sessi. Stjórnmálasamband er yfirleitt til staðar þegar þróunarsamvinna hefst.
Í því skyni að auðvelda starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og til að greiða götu þróunarsamvinnu Íslands í samstarfsríkjunum hefur verið ákveðið að gera umdæmisskrifstofur ÞSSÍ að sendiskrifstofum, eins og áður er getið. Sem umdæmisskrifstofur heyra þær hins vegar áfram undir ÞSSÍ. Á þennan hátt er að vissu marki verið að fylgja fordæmi annarra Norðurlanda og fleiri vestrænna ríkja. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að því að hrinda þessari ákvörðun í framkvæmd. Umdæmisskrifstofur ÞSSÍ í Malaví og Úganda hafa verið eða verða á næstunni tilkynntar gistiríkinu sem sendiráð Íslands og umdæmisstjórarnir sem starfsmenn sendiráða. Sendiherrann gagnvart þessum ríkjum situr hins vegar áfram í Mapútó.
Með þessari nýbreytni er verið að styrkja stöðu umdæmisskrifstofa ÞSSÍ og starfsmanna þeirra gagnvart stjórnvöldum í samstarfsríkjunum, jafnframt því að treysta enn frekar samstarfið á milli utanríkisþjónustunnar og ÞSSÍ. Viðbótarkostnaður vegna þessa fyrirkomulags er óverulegur.
Í byrjun þessa árs fluttu sendiráð Íslands og umdæmisskrifstofa ÞSSÍ í Mapútó í sama húsnæði samhliða því að umdæmisskrifstofan var tilkynnt stjórnvöldum í Mósambík sem hluti af sendiráðinu. Þetta er mun hentugra fyrirkomulag en að þessar tvær íslensku skrifstofur séu alfarið aðskildar.
Það er einnig í verkahring sendiráðsins að stuðla að og greiða fyrir viðskiptum á milli Íslands og umdæmislanda þess. Viðskipti Íslands við þessi ríki hafa yfirleitt verið takmörkuð, að Namibíu og Suður-Afríku frátöldum. Mikil fátækt, lítil kaupgeta og erfitt viðskiptaumhverfi í mörgum ríkjum í sunnanverðri Afríku eru þrándur í götu viðskipta.
12.2. Fjölþjóðleg þróunarsamvinna.
12.2.1. Alþjóðabankinn (IBRD).
Alþjóðabankinn og dótturstofnanir hans, Alþjóðaframfarastofnunin (IDA), Alþjóðalánastofnunin (IFC) og Fjölþjóðlega fjárfestingarábyrgðastofnunin (MIGA) eru lykilstofnanir í alþjóðlegri þróunarsamvinnu.
Á síðustu árum hefur Alþjóðabankinn lagt höfuðáherslu á þróunarsamvinnu sem miðar að framgangi þúsaldarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna (Millennium Development Goals). Með þetta í huga leggur bankinn áherslu á tvo þætti í starfsemi sinni. Í fyrsta lagi að stuðla að uppbyggingu mannauðs, m.a. með aðstoð á sviði mennta- og heilbrigðismála, og í öðru lagi með stuðningi við fjárfestingar í innviðum samfélaga og stofnanauppbyggingu sem skal stuðla að fjölbreyttara atvinnulífi og öflugra einkaframtaki.
Eins og nánar er fjallað um síðar leiðir Ísland nú starf kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í stjórn Alþjóðabankans. Þær áherslur sem Alþjóðabankinn vinnur eftir eru mjög í anda þess sem kjördæmið hefur beitt sér fyrir undanfarin ár, þ.e. að hlutverk Alþjóðabankans sé fyrst og fremst að vinna gegn fátækt í heiminum. Því má hins vegar ekki gleyma að 70% jarðarbúa sem búa við sára fátækt er að finna í þróunarlöndum sem ekki teljast í hópi þeirra fátækustu, þ.e. svokölluðum millitekjulöndum. Með þetta í huga þarf Alþjóðabankinn að laga starfsemi sína að þörfum þessara landa, sem oft búa við ágætt stofnanaumhverfi og menntastig, en sökum vanþróaðs fjármálageira, og lélegra samgangna og fjarskipta búa við veikt efnahagslíf sem hamlar almennum framförum.
Alþjóðabankinn er fjárvörsluaðili margra alheimssjóða á sviði þróunarsamvinnu og annarra minni sjóða fyrir afmörkuð verkefni. Má þar nefna sem dæmi Alþjóðaalnæmissjóðinn sem settur var á fót að frumkvæði aðalritara Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðaumhverfissjóðinn (GEF), styrktarsjóð vegna HIPC-átaksins og sjóði vegna enduruppbyggingarinnar í Austur- Tímor, Afganistan og Írak. Íslensk yfirvöld hafa lagt fé í Alþjóðaalnæmissjóðinn og til HIPC-átaksins eins og síðar kemur fram, auk þess sem undirritaður var samningur milli Íslands og Alþjóðabankans um framlag að upphæð 1 millj. bandaríkjadala til enduruppbyggingar í Írak í mars sl.
Alþjóðaframfarastofnunin er sú stofnun Alþjóðabankans sem veitir fátækustu þróunarlöndunum aðstoð í formi mjúkra lána, styrkja og ábyrgða. Starfsemi stofnunarinnar er fjármögnuð til þriggja ára í senn. Á yfirstandandi fjármögnunartímabili, sem nær til 36 mánaða tímabils á árunum 2002–2005, leggur Ísland fram 505 millj. kr. Á árinu 2004 fer fram samningalota um fjármögnun starfseminnar fyrir árin 2005–2008 þar sem hlutverk og ábyrgð Alþjóðaframfarastofnunarinnar með hliðsjón af starfsemi annarra fjölþjóðlegra og tvíhliða stofnana verður m.a. í brennidepli.
Á ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins haustið 2003 flutti fjármálaráðherra, í fjarveru utanríkisráðherra, ræðu fyrir hönd Norðurlanda um málefni Alþjóðabankans.
Formennska Íslands í kjördæmi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja.
Ísland tilheyrir kjördæmi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum og skipar kjördæmið sameiginlegan aðalfulltrúa í stjórn Alþjóðabankans til þriggja ára í senn. Aðalfulltrúinn hefur aðsetur á skrifstofu kjördæmisins í Washington og auk hans starfa þar fulltrúar frá hinum aðildarríkjunum sjö. Þetta fyrirkomulag kallar á afar náið samstarf og samráð á milli kjördæmislandanna, enda talar fulltrúi í stjórn fyrir hönd allra kjördæmislanda.
Samkomulag ríkir á milli kjördæmislandanna um að Norðurlöndin fimm útnefni til skiptis aðalfulltrúa í stjórn bankans. Þann 1. október sl. tók Ísland í fimmta skipti við stöðu aðalfulltrúa kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja og mun Þorsteinn Ingólfsson, sendiherra og fyrrverandi fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, sinna þessu mikilvæga starfi til þriggja ára.
Setu í stjórn Alþjóðabankans fylgir að jafnaði það starf að leiða málefnavinnu kjördæmislandanna gagnvart bankanum og mun utanríkisráðuneytið gegna því umfangsmikla hlutverki til haustsins 2006. Í þessu felst að Ísland ber ábyrgð á að gera drög að skriflegum fyrirmælum um þau málefni er bankinn fjallar um hverju sinni.
Þetta er stærsta verkefni sem utanríkisráðuneytið hefur tekið að sér á sviði þróunarmála og hefur sérstakt svið fjölþjóðlegrar þróunarsamvinnu verið sett á fót innan alþjóðaskrifstofu ráðuneytisins. Samræmingarhlutverkið krefst aukinnar þekkingar á málefnum þróunarlandanna og margvíslegs samráðs, jafnt við samstarfsfólk í Washington, við önnur kjördæmislönd, við starfsmenn íslenska stjórnkerfisins og Þróunarsamvinnustofnun Íslands.
Vandað var til undirbúnings og hefur verkefnið farið vel af stað. Íslensk formennska í kjördæmi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja hjá Alþjóðabankanum er mikilvægur liður í aukinni þátttöku Íslands og vaxandi ábyrgð okkar í baráttunni gegn fátækt í heimum.
12.2.2. Aðild Íslands að Þróunarsamvinnunefnd OECD (DAC).
Þróunarsamvinnunefnd OECD (DAC) er mikilvægur samráðsvettvangur iðnríkja á sviði þróunarsamvinnu og er hlutverk nefndarinnar einkum að leiða samræmingarvinnu iðnríkja, auk þess að fylgjast með umfangi þróunarsamvinnu og meta árangur hennar.
DAC var sett á fót árið 1960 og gerðist Ísland ekki aðili að nefndinni í upphafi, enda naut Ísland enn tækniaðstoðar frá OECD þegar hún var stofnuð. Enn fremur hafa lágmarksviðmið DAC um framlög til þróunarmála sem hlutfall af vergri landsframleiðslu gert Íslandi ókleift að sækja þar um aðild.
Undanfarin ár hafa framlög Íslands til þróunarmála hins vegar aukist jöfnum skrefum og í kjölfar áðurnefndrar álitsgerðar um þróunarsamvinnu Íslands, ákvað utanríkisráðherra að Ísland skyldi sækja um aðild að DAC.
Aðild Íslands að nefndinni mun hafa margvíslega og jákvæða þýðingu fyrir Ísland. Með aðild mun Ísland hafa beinan aðgang að reynslu og upplýsingum annarra stofnana, sem nýtist við mótun stefnu í þróunarsamvinnu og framkvæmd þróunarverkefna. Þá gerir DAC úttekt á þróunarsamvinnu aðildarríkja sinna á fjögurra ára fresti, sem ætti að tryggja enn frekar gæði þeirrar þróunaraðstoðar sem Ísland veitir. Þá mun aðild Íslands að DAC gera þróunarsamvinnu Íslands sýnilegri á alþjóðavettvangi.
Gert er ráð fyrir að aðildarumsókn Íslands verði formlega samþykkt á fundi DAC í desember 2004.
12.2.3. Niðurfelling skulda fátækustu ríkja heims.
Ísland hefur verið dyggur stuðningsaðili átaks um niðurfellingu skulda fátækustu ríkja heims (Heavily Indebted Poor Countries Initiative – HIPC). Að átakinu standa allar helstu fjölþjóðlegu þróunarsamvinnustofnanir heims, en framkvæmd þess er í höndum Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Markmið átaksins er að lækka skuldir fátækustu ríkja heims niður fyrir þau mörk er teljast sjálfbær og mynda þannig svigrúm fyrir aukin útgjöld til málefna er miða að minnkun fátæktar. Reiknað er með að átakið taki til skuldastöðu 38 ríkja, en 27 ríki hafa nú komið til umfjöllunar, og af þeim hafa tíu ríki útskrifast úr átakinu.
Styrktarsjóðurinn (HIPC) var stofnaður til þess að mæta þeim kostnaði sem alþjóðastofnanir bera af átakinu og hefur framlag Íslands í sjóðinn numið 2,75 millj. bandaríkjadala. Búast má við að Ísland haldi áfram stuðning sínum við átakið.
12.2.4. Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO).
Í lok árs 2002 lauk þriggja ára setu Íslands í FAO-ráðinu. Í þau þrjú ár stýrði Ísland samstarfi og samráði Norðurlandanna hjá FAO. Skrifstofa fastanefndar var starfrækt í Róm á þessu tímabili, en að því loknu var gerð sú breyting að staða fastafulltrúa Íslands hjá FAO, sem verið hefur í París, var flutt heim í utanríkisráðuneytið. Stærsta samstarfsverkefni síðustu ára milli Íslands og FAO var ráðstefnan „Ábyrgar fiskveiðar í vistkerfi sjávar“. Ráðstefnan samþykkti Reykjavíkuryfirlýsinguna, sem var framlag sjávarútvegsríkja til leiðtogafundar Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem haldin var í Jóhannesarborg árið 2002. Í yfirlýsingunni eru ítrekaðar skuldbindingar þjóða heims til að stunda fiskveiðar með ábyrgum og sjálfbærum hætti. Árið 2003 var haldinn fundur í fiskinefnd FAO (COFI) árið 2003. Þar var m.a. rætt um þá jákvæðu umfjöllun sem Reykjavíkuryfirlýsingin fékk í Jóhannesarborg haustið 2002. Á fundinum voru einnig til umræðu umhverfismerkingar sjávarafurða, samstarf FAO við CITES-samninginn um verslun með tegundir í útrýmingarhættu, ríkisstyrkir í sjávarútvegi og ólöglegar fiskveiðar.
12.2.5. Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP).
Samstarf utanríkisráðuneytisins við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna hefur verið að aukast undanfarin ár. Allar aðildarþjóðir Sameinuðu þjóðanna standa að stofnuninni með frjálsum framlögum. Matvælaáætlunin veitir neyðaraðstoð og fæðuhjálp til flóttamanna og annarra í neyð af völdum náttúruhamfara. Framlög íslenskra stjórnvalda til neyðaraðstoðar á vegum stofnunarinnar voru um 240.000 bandaríkjadalir árið 2003. Enn fremur hefur verið gerður samningur á milli íslensku friðargæslunnar og Matvælaáætlunarinnar um stuðning. Samkvæmt þeim samningi getur Matvælaáætlunin beðið um starfsmenn að láni til neyðaraðstoðarverkefna. Íslenska friðargæslan skoðar þessar beiðnir með tilliti til getu og þess fólks sem er á viðbragðslista hennar. Málefnum Matvælaáætlunarinnar er nú sinnt beint frá utanríkisráðuneytinu en var áður hjá fastanefnd Íslands hjá FAO í sendiráði Íslands í París.
12.2.6. Alþjóðasjóðurinn um þróun landbúnaðar (IFAD).
Ísland gerðist formlegur aðili að Alþjóðasjóðnum um þróun landbúnaðar (IFAD) árið 2001. Ísland hefur tekið þátt í samráði Norðurlandanna um málefni sjóðsins frá upphafi aðildar og var í forsvari fyrir því samráði í eitt ár. Því forsvari fyrir Norðurlöndin lauk með því að Ísland hélt ávarp fyrir hönd þeirra á aðalfundi sjóðsins árið 2003.
12.2.7. Jarðhitaskóli og Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna.
Árið 2003 hélt Jarðhitaskólinn upp á 25 ára starfsafmæli. Frá upphafi hafa nú útskrifast 300 nemendur frá 39 þróunarlöndum eftir sex mánaða sérhæft nám. Frá Sjávarútvegsskólanum, sem hóf starfsemi sína árið 1997, hafa útskrifast alls 62 nemendur frá 19 þróunarlöndum. Í september 2003 voru alls 46 nemendur við nám á Íslandi samtímis á vegum Jarðhitaskólans og Sjávarútvegsskólans.
Jarðhitaskólinn og Sjávarútvegsskólinn hafa notið mikils stuðnings stjórnvalda og almennings á Íslandi. Starfsemi skólanna er orðin snar þáttur í þróunarsamvinnu Íslands. Vorið 2002 þegar íslensk stjórnvöld huguðu að ákveðnum verkefnum sem framlagi Íslands til ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í Jóhannesarborg var ákveðið að tefla fram kennslu í sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Gert var ráð fyrir að Jarðhitaskólinn og Sjávarútvegsskólinn undirbyggju nokkurra vikna námskeið sem haldin yrðu í völdum þróunarlöndum, einkum í Afríku, í samvinnu við heimamenn, alþjóðastofnanir og einstök iðnríki sem hefðu hug á að taka þátt í verkefnum. Slík námskeið um jarðhita eru í undirbúningi í Afríkulöndum innan fjölþjóðlegs verkefnaramma sem nefnist „Renewable Energy Efficiency Partnership“ og ákveðið var að stofna til á ráðstefnunni í Jóhannesarborg. Sjávarútvegsskólinn hóf námskeið í Víetnam árið 2003 sem er hluti af tvíhliða samningi á milli Íslands og Víetnam.
Um nokkurra ára skeið hafa verið til umræðu hugmyndir um breytingu á fyrirkomulagi skólanna hér á Íslandi og samstarfi þeirra við Háskóla Sameinuðu þjóðanna í Tókýó. Utanríkisráðherra tók málið síðast upp á fundi með Hans van Ginkel, rektor Háskóla Sameinuðu þjóðanna, þegar hann kom til Íslands í tilefni 25 ára afmælis og árlegrar setningar Jarðhitaskólans í apríl 2003. Á þeim fundi var staðfestur eindreginn vilji beggja aðila til þess að styrkja tengsl og tryggja stöðu skóladeildanna innan Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Við það tækifæri skýrði ráðherra frá því að ætlunin væri að skipa sérstakan starfshóp sem falið yrði að meta starfsemi Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og koma með tillögur að áframhaldandi eflingu skólanna. Starfshópurinn er nú að störfum.
12.2.8. Norræni þróunarsjóðurinn (NDF).
Markmið Norræna þróunarsjóðsins er að lána fátækustu þróunarríkjunum, í samvinnu við aðra þróunarbanka, til verkefna sem styrkja efnahagslegar og félagslegar framfarir. Lánað var einvörðungu til ríkisstjórna þróunarlandanna þar til árið 2001 þegar reglum sjóðsins var breytt þannig að farið var einnig að lána til einkafyrirtækja. Ekki er gert ráð fyrir því að lán til einkaaðila verði stór hluti heildarútlána sjóðsins. Sjóðurinn var síðast endurfjármagnaður árið 1999 vegna reksturs áranna 2000–2005, en hlutur Íslands í endurfjármögnun sjóðsins hefur verið 1%. Sérstök úttekt er í gangi á starfsemi sjóðsins sem lokið verður árið 2004. Úttekt sem þessi er gerð á fimm ára fresti. Í kjölfar úttektarinnar verður tekin ákvörðun um hvort aukið verður við stofnfé sjóðsins. Í stjórn sjóðsins sitja fulltrúar Norðurlandanna fimm. Starfsmenn sjóðsins eru 16, þar af einn Íslendingur.
12.2.9. Stuðningur við frjáls félagasamtök.
Frjáls félagasamtök gegna mikilvægu hlutverki í íslenskri þróunarsamvinnu, og hafa stjórnvöld lagt sitt fram við að efla starfsemi þeirra og styrkja. Félagasamtökin njóta útbreidds stuðnings í íslensku samfélagi og eru oft góður kostur í framkvæmd verkefna í þróunarríkjum. Því hafa íslensk stjórnvöld tekið þátt í ýmiss konar samstarfi á sviði þróunarsamvinnu með frjálsum félagasamtökum. Góð reynsla er af slíku samstarfi og eru Rauði kross Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, ABC-hjálparstarf og Barnaheill dæmi um samstarfsaðila.
Til viðbótar fyrrnefndum samstarfssamningum sem ÞSSÍ hefur gert við nokkur félagasamtök styður ríkisstjórnin félagasamtök að jafnaði um 10–20 millj. kr. árlega. Að auki hefur Rauða krossi Íslands verið gert kleift að afla fjármagns með rekstri spilakassa í samstarfi við önnur íslensk félagasamtök, en hluti þeirra tekna rennur til verkefna í þróunarríkjunum.
13. UPPLÝSINGA- OG MENNINGARMÁL, ÞJÓÐRÆKNI OG KJÖRRÆÐISMENN
13.1. Upplýsinga- og menningarmál.
13.1.1. Auðveldur aðgangur að upplýsingum.
Í upplýsingasamfélagi nútímans er gerð krafa um að hægt sé að nálgast greinargóðar upplýsingar um skipulag, starfsemi og stefnu opinberra stofnana. Á undanförnum árum hefur verið unnið að því með góðum árangri að auka og bæta upplýsingaþjónustu ráðuneytisins. Markmiðið er að aðgangur að upplýsingum um starfsemi ráðuneytisins og utanríkisþjónustunnar verði auðveldur öllum og starfsemin gegnsæ með þeim fyrirvörum sem augljóslega eru fyrir hendi.
Sérstök skrifstofa upplýsinga-, menningarmála og ræðistengsla var stofnuð árið 1999. Í verkahring hennar er m.a. yfirumsjón með vefsetrum utanríkisþjónustunnar sem eru nú 30 talsins. Mikil áhersla hefur verið lögð á uppbyggingu vefsetra undanfarin ár og er markmiðið að á þeim sé ávallt að finna greinargóðar upplýsingar um þau málefni sem hæst ber í starfi ráðuneytisins hverju sinni. Með aukinni umfjöllun og bættu upplýsingaflæði á vefsetrum ráðuneytisins og sendiskrifstofa Íslands erlendis leitast utanríkisráðuneytið við að varpa ljósi á margþætta starfsemi utanríkisþjónustunnar og beina umræðu um hana í málefnalegan farveg. Aðalvefur utanríkisráðuneytisins er mest sóttur af öllum vefjum stjórnarráðsins og brýnt er að sinna þörfum þeirra fjölmörgu aðila sem þangað leita eftir upplýsingum um utanríkismál Íslands og starfsemi utanríkisþjónustunnar.
Með aukinni þátttöku Íslands í alþjóðastarfi er nauðsynlegt að gefa erlendum aðilum betri kost á að nálgast upplýsingar um utanríkisstefnu landsins og málefni íslensku utanríkisþjónustunnar. Framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna leggur utanríkisþjónustunni auknar skyldur á herðar hvað þetta varðar. Gott aðgengi að upplýsingum á ensku er mikilvæg undirstaða hvers kyns kynningar. Vefurinn er öflugt tæki til slíkrar kynningar. Enskur vefur ráðuneytisins verður efldur og aukinn gaumur gefinn að framsetningu upplýsinga- og kynningarefnis á ensku auk þess sem lagt verður í aukna útgáfu á prentuðu efni um stefnu Íslands í utanríkis- og innanríkismálum.
Allar sendiskrifstofur Íslands erlendis reka eigin vefsetur sem byggjast að hluta á sameiginlegum gagnabanka sem inniheldur almennar upplýsingar um Ísland. Fyrir dyrum stendur gagnger endurskoðun og endurbygging á þessum vefsetrum með það fyrir augum að þau megi nýtast sendiskrifstofunum enn betur sem öflug upplýsingatæki.
Viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytisins rekur eigið vefsetur, www.vur.is, sem hefur að markmiði að veita íslenskum fyrirtækjum upplýsingar og margvíslega fyrirgreiðslu varðandi útflutning. Vefrit viðskiptaskrifstofu, „Stiklur“, hefur verið gefið út um nokkurt skeið og eykur það enn aðgang að upplýsingum um starfsemi ráðuneytisins. Aðrir undirvefir ráðuneytisins eru upplýsingavefur um EES-samninginn og tengd málefni, www.ees.is, og vefur þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins þar sem meðal annars má finna hugtakasafn þýðingamiðstöðvarinnar.
Útgáfa og dreifing á prentuðu efni er og verður stór hluti af upplýsingaþjónustu ráðuneytisins. Sendiskrifstofur Íslands dreifa miklu magni kynningarefnis um land og þjóð. Mikil ásókn er í upplýsingar um Ísland og íslensk málefni hjá sendiskrifstofunum og er þörf á enn frekara upplýsingaefni. Því er stefna ráðuneytisins að auka samvinnu við Ferðamálaráð og aðra aðila varðandi útgáfu og dreifingu, bæði á prentefni og upplýsingaefni á mynddiskum og margmiðlunardiskum.
Utanríkisráðuneytið hefur um langa hríð tekið þátt í útgáfu tölfræðilegra upplýsinga um Ísland annað hvert ár í samvinnu við Hagstofu Íslands. Frá og með árinu 2004 mun ráðuneytið standa árlega að útgáfu bæklingsins „Iceland in Figures“ í samvinnu við Hagstofuna og þannig tryggja að ávallt verði dreift nýjustu tölfræðilegu upplýsingum um Ísland.
13.1.2. Mikilvægi menningarmála í starfi utanríkisþjónustunnar
Eitt af meginhlutverkum utanríkisþjónustunnar er að kynna íslenska menningu erlendis. Þrátt fyrir að utanríkisráðuneytinu sé ekki úthlutað fé í fjárlögum vegna menningarkynninga hafa sendiskrifstofur Íslands erlendis unnið mjög ötullega að því að kynna menningu og listir Íslendinga o.fl. í samstarfi við einstaklinga og stofnanir í viðkomandi landi. Gífurlegt starf liggur að baki einni menningarkynningu og ekki síst í því að afla fjár til þess að af henni geti orðið. Samstarf og samráð utanríkis- og menntamálaráðuneyta hefur verið aukið til muna að undanförnu, einkum hvað varðar fyrirgreiðslu við íslenska listamenn erlendis og sérstök menningarverkefni sendiráðanna. Þess er að vænta að í framtíðinni skapist aukið samstarf milli ýmissa stofnana og fyrirtækja, sem hagsmuna eiga að gæta erlendis og viðkomandi sendiráða, líkt og tíðkast í nágrannalöndum okkar.
Faglegt samstarf menntamálaráðuneytis og utanríkisráðuneytis á sviði lista og menningar hefur aukist á undanförnum missirum. Utanríkisráðuneytið á fulltrúa í stjórn hinnar nýstofnuðu Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar og markmiðið er að svo verði einnig ef stofnaðar verða kynningarmiðstöðvar varðandi aðrar listgreinar.
Ráðuneytið hefur átt mikið og gott samstarf við ýmsar menningarstofnanir, svo sem Listahátíð og Höfuðborgarstofu. Einnig hafa ýmsir aðilar, þ.m.t. mörg fyrirtæki, lagt hönd á plóg við menningarkynningar hjá sendiskrifstofum Íslands erlendis. Bókmenntakynningarsjóður hefur og sýnt ómetanlegan stuðning við kynningu á íslenskum bókmenntum erlendis sem og Kvikmyndamiðstöð Íslands við kynningu á íslenskum kvikmyndum. Ráðuneytið mun hér eftir sem hingað til leitast við að eiga náið og gott samstarf við íslenskar og erlendar menningarstofnanir varðandi menningarkynningar erlendis.
Utanríkisráðuneytið á fulltrúa í nefnd á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar sem skipuleggur norrænar menningarkynningar utan Norðurlanda. Um þessar mundir er að hefjast viðamikil kynning á norrænni menningu á Balkanskaga og haustið 2003 var í Berlín opnuð ein stærsta sýning á norrænni hönnun sem sett hefur verið upp. Áætlað er að sýningin fari milli landa allt til ársins 2006 og mun næst verða opnuð í Mílanó á Ítalíu. Norræn samvinna um menningarverkefni fer víða fram milli norrænna sendiskrifstofa og má í því sambandi nefna samvinnu sendiráðanna í Berlín, en sem kunnugt er hafa norrænu sendiráðin þar yfir að ráða sameiginlegu húsi þar sem nánast stöðugt fara fram norrænar myndlistarsýningar, kvikmyndasýningar, fyrirlestrar og samnorrænar móttökur. Mikill sameiginlegur undirbúningur á sér þar stað milli sendiráðanna.
13.2. Þjóðrækni.
Ekki þarf að fjölyrða um þróun þjóðræknismála á undanförnum árum. Frá opnun aðalræðisskrifstofunnar í Winnipeg árið 1999 hafa samskipti Íslendinga og fólks af íslenskum uppruna í Norður-Ameríku aukist gífurlega. Samskiptin eru einkum á sviði menningar, ferðamála og fræðslu og verið er að kanna möguleika á viðskiptum.
Alþingi, ríkisstjórn Íslands og utanríkisráðuneytið hafa stutt dyggilega við þessa starfsemi með beinum fjárframlögum og aðstoð við að koma á tengslum félaga, fræðimanna, einstaklinga og stofnana. Ráðherrar í ríkisstjórn hafa lagt áherslu á áhuga Íslands á samskiptunum með því að sækja samkomur fólks af íslenskum ættum í Norður-Ameríku og yrði það þessum málum enn frekar til framdráttar ef þingmenn tækju meiri þátt í því starfi.
Í bígerð eru ótal samvinnuverkefni varðandi samskiptin yfir hafið innan fjölmargra málaflokka. Margt er þó óunnið, en áfram verður haldið á sömu braut . Markmiðið er að auka samskiptin frekar með samstarfi á öllum sviðum þjóðlífsins.
13.3. Samskipti við kjörræðismenn Íslands erlendis.
Fyrir utanríkisþjónustu sem er afar lítil í sniðum er nauðsynlegt að hafa þéttriðið net kjörræðismanna út um allan heim. Um er að ræða einstaklinga sem jafnframt sínum störfum taka að sér umsýslu fyrir viðkomandi ríki án endurgjalds. Kjörræðismenn Íslands eru nú tæplega 300 talsins og hefur að undanförnu markvisst verið leitast við að fjölga ræðismönnum Íslands í Mið-Ameríku og í hinum nýfrjálsu ríkjum Austur-Evrópu.
Til að efla áhuga og þekkingu kjörræðismanna á Íslandi hafa verið haldnar ræðismannaráðstefnur hér á landi með jöfnu millibili. Í tíð núverandi utanríkisráðherra hafa tvær slíkar ráðstefnur verið haldnar, 1995 og 2001.
Ráðuneytið leitast við að vera í sem bestum tengslum við ræðismenn Íslands og sér um að veita þeim ávallt nýjar upplýsingar, fréttir og fyrirgreiðslu. Stefnt er að enn nánara samstarfi við ræðismenn og fjölgun þeirra í samræmi við áherslur utanríkisráðuneytisins hverju sinni.
VIÐAUKI 1
Þróunarsamvinna á vegum ríkisins (ODA).
| Í milljónum króna | 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | |
| Styrkir og framlög samtals | 583,1 | 799,3 | 1.102,1 | 1.268,1 | 1.397,7 | 1.644,9 | |
| Beinir styrkir | 462,3 | 668,1 | 977,6 | 1.116,6 | 1.197,2 | 1.424,4 | |
| ÞSSÍ | 228,4 | 298,6 | 479,7 | 439,8 | 468,0 | 520,0 | |
| Sendiráð í Mósambík | 16,5 | 21,0 | 26,4 | 19,1 | |||
| Utanríkisráðuneyti – starfsmenn þróunarmála | 7,0 | 7,0 | 14,0 | 21,0 | 21,0 | 21,0 | |
| Jarðhitaskóli Háskóla Sþ. | 44,0 | 50,3 | 51,8 | 63,0 | 67,4 | 67,3 | |
| Sjávarútvegsskóli Háskóla Sþ. | 23,2 | 30,4 | 36,1 | 48,9 | 54,6 | 52,0 | |
| Sameinuðu þjóðirnar: | 54,7 | 39,0 | 66,1 | 60,0 | 51,3 | 43,8 | |
| þar af til: | |||||||
| FAO | 7,0 | 7,3 | 10,1 | 11,4 | 9,3 | 4,4 | |
| UNDP | 18,3 | 18,3 | 21,8 | 22,4 | 20,0 | 18,2 | |
| UNICEF | 9,5 | 9,5 | 9,5 | 11,6 | 10,4 | 9,4 | |
| UNIFEM | 2,5 | 2,5 | 2,5 | 3,1 | 2,8 | 2,5 | |
| UNWRA | 0,5 | 0,6 | 3,1 | 2,9 | 3,1 | ||
| OCHA | 0,7 | 3,1 | |||||
| UNFPA | 0,6 | 1,0 | 1,1 | 1,0 | |||
| UNHCR | 10,5 | 11,0 | 6,0 | 4,4 | |||
| WFP | 0,4 | 0,4 | 3,6 | 1,0 | |||
| UNVFVT | 0,5 | 0,4 | 0,4 | 0,5 | 0,3 | ||
| UNDAC | 3,8 | ||||||
| UNDCP | 0,4 | ||||||
| WHO | 7,8 | ||||||
| ILO | 1,4 | ||||||
| Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn | 19,8 | 22,1 | 26,2 | 21,9 | |||
| Alþjóðabankinn – íslenski ráðgjafarsjóðurinn | 13,6 | 15,7 | 11,9 | 14,4 | |||
| Alþjóðabankinn – norræn/baltnesk samræmingarvinna | 25,0 | 35,0 | |||||
| Aðstoð til Bosníu | 31,7 | 16,3 | 1,7 | 1,1 | 4,7 | 35,0 | |
| Enduruppbygging í þr.löndum (borgaral. friðargæsla) | 110,3 | 166,9 | 205,4 | 284,0 | 329,8 | ||
| Enduruppbygging í Írak | 102,0 | 198,0 | |||||
| Flóttamannaaðstoð | 39,0 | 17,0 | 15,0 | 27,5 | 40,3 | 41,3 | |
| Átak til niðurfellinga skulda í þróunarríkjum (HIPC) | 68,0 | 68,5 | 113,7 | 30,0 | |||
| Þróunarsjóður Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar | 0,9 | 0,9 | 0,9 | ||||
| Framlög til félagasamtaka: | 13,6 | 5,9 | 21,4 | 14,2 | 12,4 | ||
| þar af til: | |||||||
| ABC-hjálparstarf | 0,9 | 2,0 | 2,0 | ||||
| Alþjóða Rauði krossinn | 8,0 | 4,0 | 4,2 | 4,7 | 4,1 | ||
| Barnaheill | 0,2 | 0,2 | 3,0 | 3,3 | |||
| Indverska barnahjálpin | 0,2 | ||||||
| Rauði kross Íslands | 5,2 | 10,5 | 2,5 | 5,0 | |||
| Hjálparstarf kirkjunnar | 1,0 | 4,5 | 2,0 | ||||
| Ýmis framlög og neyðaraðstoð | 0,9 | 3,2 | 0,1 | 62,5 | 27,3 | 16,8 | |
| Stofnfjárframlög | 120,8 | 131,2 | 124,5 | 151,5 | 200,5 | 220,5 | |
| Alþjóðaframfarastofnunin (IDA) | 79,7 | 95,3 | 95,0 | 95,0 | 160,0 | 160,0 | |
| Norræni þróunarsjóðurinn (NDF) | 40,7 | 35,4 | 29,0 | 56,0 | 40,0 | 60,0 | |
| Alþjóðasjóður um þróun landbúnaðar (IFAD) | 0,4 | 0,5 | 0,5 | 0,5 | 0,5 | 0,5 | |
| Hlutfall af landsframleiðslu | 0,09 | 0,12 | 0,15 | 0,16 | 0,17 | 0,19 | |
| Landsframleiðsla (í milljónum króna) | 623.418 | 658.300 | 744.200 | 786.900 | 815.400 | 861.742 | |
VIÐAUKI 2
Starfsmenn utanríkisþjónustunnar, sendiskrifstofur og umdæmi.
(Mars 2004.)
Samtals eru 212 launaðir starfsmenn í utanríkisþjónustunni, þar af eru 93 í utanríkisráðuneytinu í Reykjavík og 119 í sendiskrifstofum erlendis. Af þeim síðarnefndu eru 74 útsendir og 45 staðarráðnir. Ólaunaðir kjörræðismenn eru 227. Starfsmenn utanríkisþjónustunnar eru samtals 439.
Sendiskrifstofur erlendis (sendiráð, fastanefndir og sendiræðisskrifstofur) eru 20 í 16 löndum. Umdæmislönd þeirra eru:
| Berlín Umdæmislönd: 4 (Þýskaland, Króatía, Sviss og Pólland) Ræðisskrifstofur: 17 Útsendir starfsmenn: 3 Staðarráðnir: 5 Samtals: 8 + 17 kjörræðismenn Brussel, sr. Umdæmislönd: 4 (Belgía, Liechtenstein, Lúxemborg og Marokkó) Stofnanir: 1 (ESB) Ræðisskrifstofur: 4 Útsendir starfsmenn: 6 Staðarráðnir: 5 Frá öðrum ráðuneytum: 10 21 samtals + 4 kjörræðismenn Brussel, fn. Stofnanir: 3 (NATO, OPCW og VES) Útsendir starfsmenn: 6 Staðarráðinn: 1 7 samtals |
Genf, fn. Umdæmisland: 1 (Slóvenía) Stofnanir: 8 (EFTA, WTO, S. þj. – Genf, ITU, WHO, WIPO, WMO og ILO) Útsendir starfsmenn: 4 Staðarráðnir: 2 Frá öðru ráðuneyti: 1 7 samtals Helsinki Umdæmislönd: 4 (Finnland, Eistland, Lettland, Litháen og Úkraína) Ræðisskrifstofur: 9 Útsendir starfsmenn: 2 Staðarráðinn: 3 5 samtals + 10 kjörræðismenn Kaupmannahöfn Umdæmislönd: 6 (Danmörk, Ísrael, Jórdanía, Rúmenía, Túnis og Tyrkland) Ræðisskrifstofur: 23 Útsendir starfsmenn: 3 Staðarráðnir: 3 Frá öðrum ráðuneytum: 1 7 samtals + 25 kjörræðismenn |
London Umdæmislönd: 10 (Bretland, Grikkland, Holland, Indland, Írland, Líbanon, Maldíveyjar, Malta, Nepal og Nígería) Ræðisskrifstofur: 26 Útsendir starfsmenn: 4 Staðarráðnir: 3 Frá öðru ráðuneyti: 1 8 samtals + 27 kjörræðismenn Mapútó Umdæmislönd: 9 (Mósambík, Angóla, Kenía, Malaví, Namibía, Sambía, Suður Afríka, Tansanía og Úganda) Ræðisskrifstofur: 5 Útsendir starfsmenn: 1 Staðarráðnir: 1 2 samtals + 5 ræðismenn Moskva Umdæmislönd: 11 (Rússland, Armenía, Aserbaídsjan, Georgía, Hvíta Rússland, Kasakstan, Kirgisía, Moldóva, Túrkmenistan og Úsbekistan) Ræðisskrifstofur: 3 Útsendir starfsmenn: 3 Staðarráðnir: 5 8 samtals + 4 kjörræðismenn. |
| New York, fn. Stofnanir: 1 (S.þj. – New York). Umdæmislönd: 6 (Bahamaeyjar, Barbadoseyjar, Dóminíska lýðveldið, Grenada, Jamaíka og Kúba) Ræðisskrifstofa: 4 Útsendir starfsmenn: 9 Staðarráðinn: 1 10 samtals, þar af 4 ræðismenn New York, aðalræðisskr. Umdæmi: 4 (New York, Connecticut, New Jersey og Rhode Island) Útsendir starfsmenn: 3 Ottawa Umdæmislönd: 8 (Kanada, Ekvador, Kostaríka, Kólumbía, Níkaragva, Panama, Perú og Venesúela) Ræðisskrifstofur: 15 Útsendir starfsmenn: 2 Staðarráðnir: 2 4 samtals + 15 kjörræðismenn Ósló Umdæmislönd: 7 (Noregur, Alsír, Egyptaland, Katar, Kúveit, Kýpur, Makedónía, Sádi Arabía) Ræðisskrifstofur: 15 Útsendir starfsmenn: 3 Staðarráðnir: 2 5 samtals + 11 kjörræðismenn |
París Umdæmislönd: 6 (Frakkland, Andorra, Ítalía, Portúgal, San Marínó og Spánn) Stofnanir: 3 (OECD, FAO og UNESCO) Ræðisskrifstofur: 23 Útsendir starfsmenn: 6 Staðarráðnir: 3 9 samtals + 34 kjörræðismenn Peking Umdæmislönd: 7 (Kína, Ástralía, Mongólía, Norður- Kórea, Nýja-Sjáland, Suður- Kórea og Víetnam) Ræðisskrifstofur: 6 Útsendir starfsmenn: 3 Staðarráðnir: 4 7 samtals + 7 kjörræðismenn Stokkhólmur Umdæmislönd: 7 (Svíþjóð, Albanía, Bangladesh, Búlgaría, Júgóslavía (Serbía Svartfjallaland), Pakistan og Sri Lanka) Ræðisskrifstofur: 10 Útsendir starfsmenn: 3 Staðarráðnir: 2 5 samtals + 10 kjörræðismenn Strassborg Stofnun: 1 (Evrópuráðið) Umdæmisland: 1 (Páfagarður) Útsendir starfsmenn: 2 Staðarráðinn: 1 3 samtals. |
Tókýó Umdæmislönd: 3 (Japan, Filippseyjar og Austur Tímor) Ræðisskrifstofur: 2 Útsendir starfsmenn: 3 Staðarráðnir: 3 6 samtals + 2 kjörræðismenn Vín Umdæmislönd: 5 (Austurríki, Bosnía og Hersegóvína, Slóvakía, Ungverjaland og Tékkland) Stofnanir: 3 (ÖSE, IAEA og S.þj. – Vín) Ræðisskrifstofur: 6 Útsendir starfsmenn: 3 Staðarráðnir: 2 4 samtals + 7 ræðismenn Washington Umdæmislönd: 8 (Bandaríkin, Argentína, Brasilía, Chile, El Salvador, Gvatemala, Mexíkó og Úrúgvæ) Ræðisskrifstofur: 35 (þar af ein sendiræðisskrifstofa í New York) Útsendir starfsmenn: 7 Staðarráðnir: 2 9 samtals + 43 kjörræðismenn Winnipeg Ræðisskrifstofa: 1 Útsendir starfsmenn: 1 Staðarráðinn: 1 2 samtals ... Utanríkisráðuneytið Umdæmislönd: 22 93 starfsmenn |
VIÐAUKI 3
Stjórnmálasamband og ræðissamband Íslands við erlend ríki.
(Mars 2004.)
I. Stjórnmálasamband (137).
| Afganistan Albanía Alsír Andorra Angóla Antígva og Barbúda Argentína Armenía Aserbaídsjan Austurríki Austur-Tímor Ástralía Bahamaeyjar Bandaríkin Bangladess Barbadoseyjar Barein Belgía Bosnía og Hersegóvína Botsvana Brasilía Bretland Búlgaría Búrkína Fasó Chile Danmörk Dóminíska lýðveldið Egyptaland Eistland Ekvador El Salvador (Evrópusambandið) Eþíópía Filippseyjar Finnland |
Frakkland (Frelsissamtök Palestínu) Gana Georgía Grenada Grikkland Grænhöfðaeyjar Gvatemala Holland Hvíta-Rússland Indland Indónesía Írak Íran Írland Ísrael Ítalía Jamaíka Japan Jemen Jórdanía Kambódía Kanada Katar Kenía Kirgisía Kína Kostaríka Kólumbía Króatía Kúba Kúveit Kýpur Lesótó Lettland |
Liechtenstein Litháen Líbanon Líbía Lúxemborg Makedónía1 Malasía Malaví Maldíveyjar Malta Marokkó Marshalleyjar Máritíus Mexíkó Moldóva Mongólía Mósambík Namibía Nárú Nepal Níger Nígería Níkaragva Norður-Kórea Noregur Nýja-Sjáland Óman Pakistan Panama Paragvæ Páfagarður Perú Portúgal Pólland Rúmenía Rússland |
Sameinuðu arabísku furstadæmin San Marínó Sádi Arabía Serbía og Svartfjallaland Seychelleseyjar Singapúr Slóvakía Slóvenía Sómalía Spánn Sri Lanka Suður-Afríka Suður-Kórea Súdan Svasíland Sviss Svíþjóð Taíland Tansanía Tékkland Túnis Túrkmenistan Tyrkland Ungverjaland Úganda Úkraína Úrúgvæ Úsbekistan Venesúela Víetnam Þýskaland |
1 Fyrrum sambandslýðveldi Júgóslavíu. II. Ræðissamband eingöngu (3).
| Hondúras | Mónakó | Tógó |
III. Hvorki stjórnmálasamband né ræðissamband (54).
| Belís Benín Bólivía Brúnei Burma (Myanmar) Búrúndí Bútan Djíbútí Dóminíka Erítrea Fidjieyjar Fílabeinaströndin Gabon Gambía Gínea |
Gínea-Bissá Gvæana Haítí Kamerún Kasakstan Kíribatí Kongó Kóngó-Alþýðulýðv. Kómoreyjar Laos Líbería Madagaskar Malí Máritanía Mið-Afríkulýðvelið |
Miðbaugs-Gínea Míkrónesía Palá Papúa Rúanda Saír Salómonseyjar Sambía Samóa Sankti Kristófer og Nevis Sankti Lúsía Sankti Vincen og Grenadíneyjar Saó Tóme og Prinsípe |
Senegal Simbabve Síerra Leóne Súrínam Sýrland Tadsjikistan Tonga Trinidad og Tóbagó Tsjad Túvalú Vanúatú |
VIÐAUKI 4
Fyrirsvar Íslands við ríki sem Ísland hefur stjórnmála- eða
ræðissamband við og fyrirsvar þeirra gagnvart Íslandi.
(Fyrirsvar Íslands byggt á forsetaúrskurði frá 11. febrúar 2003.)
| Land | Fyrirsvar Íslands | Fyrirsvar gagnvart Íslandi |
| Afganistan | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Albanía | Sr. Stokkhólmi | Sr. Stokkhólmi |
| Alsír | Sr. Ósló | Sr. Stokkhólmi |
| Andorra | Sr. París | Utanríkisráðuneytið |
| Angóla | Sr. Mapútó | Sr. Stokkhólmi |
| Antígva og Barbúda | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Argentína | Sr. Washington | Sr. Ósló |
| Armenía | Sr. Moskvu | Utanríkisráðuneytið |
| Aserbaídsjan | Sr. Moskvu | Utanríkisráðuneytið |
| Austurríki | Sr. Vínarborg | Sr. Kaupmannahöfn |
| Austur-Tímor | Sr. Tókýó | Utanríkisráðuneytið |
| Ástralía | Sr. Peking | Sr. Kaupmannahöfn |
| Bahamaeyjar | Fn. New York | Sr. Washington |
| Bandaríkin | Sr. Washington | Sr. Reykjavík |
| Bangladess | Sr. Stokkhólmi | Sr. Stokkhólmi |
| Barbadoseyjar | Fn. New York | Sr. London |
| Barein | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Belgía | Sr. Brussel | Sr. Ósló |
| Bosnía og Hersegóvína | Sr. Vínarborg | Sr. Stokkhólmi |
| Botsvana | Utanríkisráðuneytið | Sr. Stokkhólmi |
| Brasilía | Sr. Washington | Sr. Ósló |
| Bretland | Sr. London | Sr. Reykjavík |
| Búlgaría | Sr. Stokkhólmi | Sr. Stokkhólmi |
| Búrkína Fasó | Utanríkisráðuneytið | Sr. Kaupmannahöfn |
| Chile | Sr. Washington | Sr. Ósló |
| Danmörk | Sr. Kaupmannahöfn | Sr. Reykjavík |
| Dóminíska lýðveldið | Fn. New York | Sr. Ósló |
| Egyptaland | Sr. Ósló | Sr. Ósló |
| Eistland | Sr. Helskinki | Sr. Ósló |
| Ekvador | Sr. Ottawa | Utanríkisráðuneytið |
| El Salvador | Sr. Washington | Sr. Stokkhólmi |
| (Evrópusambandið) | Sr. Brussel | Sr. Ósló |
| Eþíópía | Utanríkisráðuneytið | Sr. Stokkhólmi |
| Filippseyjar | Sr. Tókýó | Sr. London |
| Finnland | Sr. Helskinki | Sr. Reykjavík |
| Frakkland | Sr. París | Sr. Reykjavík |
| Frelsissamtök Palestínu | Utanríkisráðuneytið | Sr. Ósló |
| Land | Fyrirsvar Íslands | Fyrirsvar gagnvart Íslandi |
| Gana | Utanríkisráðuneytið | Sr. Kaupmannahöfn |
| Georgía | Sr. Moskvu | Utanríkisráðuneytið |
| Grenada | Fn. New York | Utanríkisráðuneytið |
| Grikkland | Sr. London | Sr. Ósló |
| Grænhöfðaeyjar | Utanríkisráðuneytið | Sr. Berlín |
| Gvatemala | Sr. Washington | Utanríkisráðuneytið |
| Holland | Sr. London | Sr. Ósló |
| Hondúras | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Hvíta-Rússland | Sr. Moskvu | Utanríkisráðuneytið |
| Indland | Sr. London | Sr. Ósló |
| Indónesía | Utanríkisráðuneytið | Sr. Ósló |
| Írak | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Íran | Sr. Ósló | Sr. Ósló |
| Írland | Sr. London | Sr. Kaupmannahöfn |
| Ísrael | Sr. Kaupmannahöfn | Sr. Ósló |
| Ítalía | Sr. París | Sr. Ósló |
| Jamaíka | Fn. New York | Utanríkisráðuneytið |
| Japan | Sr. Tókýó | Sr. Reykjavík |
| Jemen | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Jórdanía | Sr. Kaupmannahöfn | Sr. London |
| Kambódía | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Kanada | Sr. Ottawa | Sr. Reykjavík |
| Katar | Sr. Ósló | Sr. London |
| Kenía | Sr. Mapútó | Sr. Stokkhólmi |
| Kirgisía | Sr. Moskvu | Utanríkisráðuneytið |
| Kína | Sr. Peking | Sr. Reykjavík |
| Kostaríka | Sr. Ottawa | Sr. London |
| Kólumbía | Sr. Ottawa | Sr. Stokkhólmi |
| Alþýðulýðveldið Kórea | Sr. Peking | Sr. Stokkhólmi |
| Lýðveldið Kórea | Sr. Peking | Sr. Ósló |
| Króatía | Sr. Berlín | Sr. Kaupmannahöfn |
| Kúba | Fn. New York | Sr. Stokkhólmi |
| Kúveit | Sr. Ósló | Sr. Stokkhólmi |
| Kýpur | Sr. Ósló | Sr. Stokkhólmi |
| Lesótó | Utanríkisráðuneytið | Sr. Kaupmannahöfn |
| Lettland | Sr. Helskinki | Sr. Ósló |
| Liechtenstein | Sr. Brussel | Utanríkisráðuneytið |
| Litháen | Sr. Helskinki | Sr. Kaupmannahöfn |
| Líbanon | Sr. London | Utanríkisráðuneytið |
| Líbía | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Lúxemborg | Sr. Brussel | Sr. London |
| Makedónía | Sr. Ósló | Sr. London |
| Malasía | Utanríkisráðuneytið | Sr. Stokkhólmi |
| Malaví | Sr. Mapútó | Sr. London |
| Maldíveyjar | Sr. London | Utanríkisráðuneytið |
| Land | Fyrirsvar Íslands | Fyrirsvar gagnvart Íslandi |
| Malta | Sr. London | Sr. Kaupmannahöfn |
| Marokkó | Sr. Brussel | Sr. Kaupmannahöfn |
| Marshalleyjar | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Máritíus | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Mexíkó | Sr. Washington | Sr. Kaupmannahöfn |
| Moldóva | Sr. Moskvu | Utanríkisráðuneytið |
| Mongólía | Sr. Peking | Sr. London |
| Mónakó | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Mósambík | Sr. Mapútó | Sr. Stokkhólmi |
| Namibía | Sr. Mapútó | Sr. Stokkhólmi |
| Nárú | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Nepal | Sr. London | Sr. London |
| Níger | Utanríkisráðuneytið | Sr. Brussel |
| Nígería | Sr. London | Sr. Dublin |
| Níkaragva | Sr. Ottawa | Sr. Stokkhólmi |
| Noregur | Sr. Ósló | Sr. Reykjavík |
| Nýja-Sjáland | Sr. Peking | Utanríkisráðuneytið |
| Óman | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Pakistan | Sr. Stokkhólmi | Sr. Ósló |
| Panama | Sr. Ottawa | Utanríkisráðuneytið |
| Paragvæ | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Páfagarður | Fn. Strassborg | Sr. Stokkhólmi |
| Perú | Sr. Ottawa | Sr. Stokkhólmi |
| Portúgal | Sr. París | Sr. Ósló |
| Pólland | Sr. Berlín | Sr. Ósló |
| Rúmenía | Sr. Kaupmannahöfn | Sr. Kaupmannahöfn |
| Rússland | Sr. Moskvu | Sr. Reykjavík |
| Sameinuðu arabísku furstadæmin | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| San Marínó | Sr. París | Utanríkisráðuneytið |
| Sádi Arabía | Sr. Ósló | Sr. Stokkhólmi |
| Serbía og Svartfjallaland | Sr. Stokkhólmi | Sr. Stokkhólmi |
| Seychelleseyjar | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Singapúr | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Slóvakía | Sr. Vínarborg | Sr. Ósló |
| Slóvenía | Fn. Genf | Sr. Kaupmannahöfn |
| Sómalía | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Spánn | Sr. París | Sr. Ósló |
| Srí Lanka | Sr. Stokkhólmi | Sr. Stokkhólmi |
| Suður-Afríka | Sr. Mapútó | Sr. Ósló |
| Súdan | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Svasíland | Utanríkisráðuneytið | Sr. Kaupmannahöfn |
| Sviss | Sr. Berlín | Sr. Ósló |
| Svíþjóð | Sr. Stokkhólmi | Sr. Reykjavík |
| Taíland | Utanríkisráðuneytið | Sr. Kaupmannahöfn |
| Tansanía | Sr. Mapútó | Sr. Stokkhólmi |
| Land | Fyrirsvar Íslands | Fyrirsvar gagnvart Íslandi |
| Tékkland | Sr. Vínarborg | Sr. Ósló |
| Tógó | Utanríkisráðuneytið | Utanríkisráðuneytið |
| Túnis | Sr. Kaupmannahöfn | Sr. Stokkhólmi |
| Túrkmenistan | Sr. Moskvu | Utanríkisráðuneytið |
| Tyrkland | Sr. Kaupmannahöfn | Sr. Ósló |
| Ungverjaland | Sr. Vínarborg | Sr. Ósló |
| Úganda | Sr. Mapútó | Sr. Kaupmannahöfn |
| Úkraína | Sr. Helskinki | Sr. Helsinki |
| Úrúgvæ | Sr. Washington | Sr. Ottawa |
| Úsbekistan | Sr. Moskvu | Sr. London |
| Venesúela | Sr. Ottawa | Sr. Ósló |
| Víetnam | Sr. Peking | Sr. Kaupmannahöfn |
| Þýskaland | Sr. Berlín | Sr. Reykjavík |
| Samantekt | Fjöldi umdæmislanda sendiskrifstofa Íslands og utanríkisrn. |
Fjöldi erlendra sendiskrifstofa gagnvart Íslandi |
| Sr. Berlín: 4 | Berlín: 1 | |
| Sr. Brussel: 5 | Brussel: 1 | |
| Sr. Helsinki: 5 | Dublin: 1 | |
| Sr. Kaupmannahöfn: 6 | Helsinki: 1 | |
| Sr. London: 10 | Kaupmannahöfn: 17 | |
| Sr. Mapútó: 8 | London: 11 | |
| Sr. Moskvu: 9 | Ottawa: 1 | |
| Sr. Ottawa: 8 | Ósló: 29 | |
| Sr. Ósló: 9 | Reykjavík: 12 | |
| Sr. París: 6 | Stokkhólmur: 26 | |
| Sr. Peking: 7 | Washington: 1 | |
| Sr. Stokkhólmi: 7 | Ráðuneyti: 39 | |
| Sr. Tókýó: 3 | ||
| Sr. Vínarborg: 5 | ||
| Sr. Washington: 8 | ||
| Fn. Genf: 1 | ||
| Fn. New York: 6 | ||
| Fn. Strassborg: 1 | ||
| Utanríkisráðuneytið: 32 | ||
| Samtals: 140 | Samtals: 140 | Samtals: 140 |
VIÐAUKI 5
Aðsetur kjörræðismanna Íslands eftir heimsálfum.
| 2004 | (2002) | ||
| Evrópa | 143 | (141) | **) |
| Norður-Ameríka (Bandaríkin, Kanada og Mexikó) | 55 | (46) | |
| Mið- og Suður-Ameríka og Karíbahaf | 20 | (18) | *) og **) |
| Asía | 20 | (18) | *) |
| Afríka (sunnan Sahara) | 6 | (6) | *) |
| Mið-Austurlönd og Norður-Afríka | 9 | (6) | *) og **) |
| Eyjaálfa | 4 | (4) | **) |
| Samtals | 257 | (239) |
*) Beðið eftir samþykki fyrir nýja ræðismenn í Venesúela, Eþíópíu, Máritaníu, Suður-Afríku (Pretoríu), Pakistan (Islamabad), Indónesíu og Japan.
**) Umsækjendur um ræðismannsstöður í Svíþjóð, Nikaragúa, Pakistan (Karachi og Lahore), Mongólíu og Nýja-Sjálandi.
VIÐAUKI 6
Hagnýtir veftenglar.
Utanríkisráðuneytið: www.utanrikisraduneyti.is
Viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytisins: www.vur.is
Íslenska friðargæslan: www.utanrikisraduneyti.is/utanrikismal/fridargaesla/
Þróunarsamvinnustofnun Íslands: www.iceida.is
Flugstöð Leifs Eiríkssonar: www.airport.is
Ratsjárstofnun: www.ratsjarstofnun.is
Atlantshafsbandalagið (NATO): www.nato.int
Barentsráðið (BEAC): www.beac.st
Efnahagsamvinnu- og þróunarstofnunin (OECD): www.oecd.org/home
Evrópusambandið (ESB): europa.eu.int/index_en.htm
Eystrasaltsráðið (CBSS): www.cbss.st
Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA): www.efta.int/
Háskóli Sameinuðu þjóðanna (UNU): www.unu.edu/index.htm
Norðurskautsráðið: www.arctic-council.org/index.html
Sameinuðu þjóðirnar (UN): www.un.org
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (OSCE): www.osce.org
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 COM(2003) 452, Proposal for an amendment to Council Regulation EEC/2913/92, establishing the Community Custom Code.
- Neðanmálsgrein: 2
- 2 Mercosur-ríkin eru Argentína, Brasilía, Paragvæ og Úrúgvæ.
- Neðanmálsgrein: 3
- 3 Flóaráðið er samsett af Sádi-Arabíu, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Óman, Katar og Kúvæt.
- Neðanmálsgrein: 4
- 4 ASEAN-ríkin eru Brúnei, Kambódía, Indónesía, Laos, Malasía, Myanmar, Filipseyjar, Singapúr, Tæland og Víetnam.
- Neðanmálsgrein: 5
- 5 Stöðuskjal Íslands er birt á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.
- Neðanmálsgrein: 6
- 6 Bandaríkin, Japan og Indland.
- Neðanmálsgrein: 7
- 7 ESB-ríkin 15 eru talin sem eitt ríki þar sem þau koma fram sem ein heild á vettvangi WTO.