Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 801. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1381  —  801. mál.




Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Gunnars Birgissonar um starfsstöð sýslumannsembættisins í Reykjavík í Mosfellsbæ.

     1.      Hvað mundi kosta að sýslumannsembættið í Reykjavík hefði starfsstöð í Mosfellsbæ með einum starfsmanni
             a.    allan daginn,
             b.    hálfan daginn?

    Samkvæmt útreikningum dómsmálaráðuneytisins gæti aukinn kostnaður ríkissjóðs vegna þessa verið frá 2,3 millj. kr. á ári (miðað við viðveru eins starfsmanns hluta úr degi og ef hægt væri að samnýta móttöku- og aðra aðstöðu með öðrum aðilum) og upp í 6,5 millj. kr. á ári (miðað við starf eins lögfræðings allan daginn og leigu á aðstöðu án samnýtingarmöguleika o.fl.). Þessu til viðbótar mætti gera ráð fyrir stofnkostnaði allt að 1 millj. kr. vegna búnaðarkaupa. Þessi útreikningar eru allir með hefðbundnum fyrirvörum.

     2.      Hvers vegna heyrir Mosfellsbær ekki undir sýslumannsembætti í Suðvesturkjördæmi eins og áður og væri mikið mál að breyta núverandi skipan?
    Í lögum um framkvæmdarvald ríkisins í héraði, nr. 92/1989, með síðari breytingum, er kveðið á um að landið skiptist í 25 stjórnsýsluumdæmi auk Reykjavíkurumdæmis, en þar er tekið fram að það umdæmi nái yfir Reykjavíkurborg, Seljarnarneskaupstað, Mosfellsbæ og Kjósarhrepp. Umdæmi annarra sýslumanna skulu samkvæmt sömu lögum ákveðin með reglugerð að fenginni umsögn viðkomandi sýslumanna og sveitarstjórna. Lagabreytingu þarf því til að breyta núverandi skipan hvað þetta varðar.
    Í greinargerð með frumvarpi því sem síðar varð að lögum nr. 92/1989 (þá lög um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði, nú lög um framkvæmdarvald ríkisins í héraði) segir um þetta: „Umdæmi lögreglustjóra, tollstjóra og sýslumanns í Reykjavík nær samkvæmt greininni einnig til Seltjarnarneskaupstaðar, Mosfellsbæjar, Kjalarneshrepps og Kjósarhrepps, enda þægilegra fyrir íbúa þessara sveitarfélaga að sækja þjónustu þessara embætta til Reykjavíkur en til Hafnarfjarðar.“ Í þessu sambandi má einnig á það benda að mun hentugra er fyrir íbúa Mosfellsbæjar að lögreglustjórinn í Reykjavík sinni löggæslu í sveitarfélaginu fremur en t.d. sýslumaðurinn í Hafnarfirði eða Kópavogi. Það væri flókið og ruglingslegt fyrir alla aðila að taka upp það fyrirkomulag að Mosfellsbær heyrði undir sýslumann í Suðvesturkjördæmi að öðru leyti en því að löggæslu væri sinnt af lögreglustjóranum í Reykjavík.