Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 631. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1387  —  631. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Atla Gíslasonar um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum við Kárahnjúka.

     1.      Hefur Vinnueftirlit ríkisins formlega krafist rannsókna, úttekta eða lagfæringa á vanbúnaði eða öðru ástandi sem brotið hefur í bága við lög, reglur og tilkynningar varðandi aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum við Kárahnjúka? Ef svo er, hvaða rannsókna, úttekta og lagfæringa hefur verið krafist?
    Vinnueftirlitið hefur allt frá því að framkvæmdir hófust við Kárahnjúkavirkjun verið með lögboðið eftirlit með verklegum framkvæmdum á virkjunarsvæðinu. Það eftirlit er samkvæmt lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, og þeim reglum og reglugerðum sem settar hafa verið á grundvelli laganna. Eftirlitið hefur fyrst og fremst beinst að þeim verktökum sem samið hefur verið við um framkvæmdina, þ.e. Impregilo sem aðalverktaka og Arnarfelli sem helsta undirverktaka, en einnig að Landsvirkjun sem verkkaupa.
    Við eftirlit á virkjunarsvæðinu hafa starfsmenn Vinnueftirlitsins gert fjölda úttekta og skoðana á vinnuaðstöðu hjá verktökum. T.d. hefur verið um að ræða úttektir og skoðanir á öryggisstjórnun við framkvæmdirnar, aðbúnaðarmálum, öryggismálum, réttindamálum og málum sem varða notkun og geymslu sprengiefna. Við slíkar úttektir og skoðanir hefur Vinnueftirlitið í mörgum tilvikum gert kröfur um úrbætur. Í sumum tilvikum hefur verið gerð krafa um tafarlausar úrbætur en í öðrum tilvikum hafa verið gerðar tímasettar kröfur um úrbætur. Einnig hefur verið um að ræða að verktaki hafi lagt fram tímasetta áætlun um úrbætur ákveðinna atriða.

     2.      Hefur ráðherra eða Vinnueftirlit ríkisins veitt verktökum við virkjunarframkvæmdir við Kárahnjúka undanþágur frá kröfum sem gerðar eru í lögum, reglum eða tilkynningum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum eða viðbótarfresti til úrbóta? Ef svo er, hvaða undanþágur eða viðbótarfresti?
    Vinnueftirlit ríkisins annast stjórnsýslu og eftirlit á því sviði er lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, ná til. Ráðherra hefur þar með hvorki veitt leyfi, undanþágur eða fresti af nokkru tagi.
    Vinnueftirlitið hefur ekki gefið verktökum á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka undanþágur frá kröfum sem byggðar eru á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, eða reglum og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Hins vegar hefur verið gefinn frestur til að bæta úr vanbúnaði og uppfylla kröfur sem gerðar hafa verið. Mest var um slíkt fyrstu vikurnar og mánuðina eftir að framkvæmdir hófust. Aðbúnaður starfsmanna hefur mjög færst til betri vegar frá því sem var í upphafi framkvæmda.
    Um vinnuvélaréttindi erlendra starfsmanna við framkvæmdirnar gilda sömu kröfur og gerðar eru til Íslendinga, en tekið hefur verið tillit til tilskipunar ráðsins 92/51/EBE um viðurkenningu starfsréttinda. Erlend réttindi eru tekin gild ef þau eru samkvæmt hliðstæðum kröfum við þær sem hér eru gerðar, en þó er krafist verklegs prófs. Þegar um EES-borgara er að ræða sem æskja réttinda á grundvelli vottorðs um stafsreynslu samkvæmt fyrrgreindri tilskipun er krafist hæfnisprófs þó að starfsvottorð séu fyrir hendi.

     3.      Hafa verið tilnefndir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir og stofnaðar öryggisnefndir hjá fyrirtækjum sem starfa við virkjanaframkvæmdir við Kárahnjúka í samræmi við lög, reglur og tilkynningar þar að lútandi?
    
Á virkjunarsvæðinu er starfandi sérstakt öryggisráð sem í eiga sæti fulltrúar verkkaupa og verktaka, yfirtrúnaðarmaður verkalýðsfélaga og eftirlitsaðilar með öryggismálum á svæðinu. Í ráðinu er fjallað um mál sem varða aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á virkjunarsvæðinu. Samtals starfa átta manns við öryggisstjórnun og eftirlit á svæðinu.
    Starfsmönnum ber að kjósa öryggistrúnaðarmenn og vinnuveitendum að tilnefna öryggisverði fyrir hina ýmsu vinnustaði. Vinnueftirlitið hefur haldið tvö námskeið fyrir þessa aðila og sóttu þau samtals um 30 manns. Hlutverk þeirra er að fylgjast með því að öryggisráðstafanir og aðrar forvarnir séu viðhafðar eftir því sem verkinu vindur fram og skerast í leikinn ef út af ber og eins ef nýjar hættur koma í ljós. Þrátt fyrir þetta hefur kerfisbundið vinnuverndarstarf á virkjunarsvæðinu ekki enn að fullu komist á, en að því er unnið.

     4.      Hafa verið gerðar skriflegar áætlanir um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum við Kárahnjúka, sérstakt áhættumat og áætlun um heilsuvernd?

    Á öllu virkjunarsvæðinu skal unnið eftir öryggis- og heilbrigðisáætlun, sbr. reglugerð 547/1996. Það felur m.a. í sér gerð áhættumats og áætlun um öryggi og heilsuvernd. Impregilo lagði fram í upphafi stefnumarkandi öryggis- og heilbrigðisáætlun sem gildir fyrir vinnusvæði fyrirtækisins við Kárahnjúka. Skort hefur hins vegar á að fullnægjandi áhættumat lægi fyrir þegar hafist er handa við hina ýmsu verkþætti. Vinnueftirlitið hafi gert ítrekaðar kröfur um að úr þessu verði bætt og verktaki heitið að eftir þessum ákvæðum verði farið.
    Á virkjunarsvæðinu hafa verið gerðar umfangsmiklar ráðstafanir til að bregðast við slysum og heilsuvá. Fjórar sjúkrastofur eru þar og starfa þar bæði hjúkrunarfræðingar og læknar og gerður hefur verið samningur við Heilbrigðisstofnun Austurlands um heilbrigðisþjónustu. Sjúkrabílar eru á öllum helstu vinnustöðum og komið hefur verið upp lendingaraðstöðu fyrir þyrlur vegna neyðarþjónustu.

     5.      Hefur þeim sem hafa með höndum starfsemi við Kárahnjúka verið veitt starfsleyfi skv. 95. gr. laga nr. 46/1980? Ef svo er, með hvaða skilyrðum?
    Áður en framkvæmdir hófust kynnti Landsvirkjun framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun fyrir fulltrúum Vinnueftirlitsins. Allir verkhlutar og verktakar hafa verið tilkynntir til Vinnueftirlitsins samkvæmt III. viðauka reglugerðar 547/1996, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggisráðstafanir á byggingarvinnustöðum, og við aðra tímabundna mannvirkjagerð. Framkvæmd þessara mála er með þeim hætti að sé þessu ákvæði fullnægt öðlist fyrirtækið starfsleyfi eftir fyrstu úttekt á aðstöðu þess á byggingarvinnustað.

     6.      Hefur Vinnueftirliti ríkisins verið gert kleift, með auknum fjárveitingum, ráðningu nýrra starfsmanna eða með annarri aðstöðu, að sinna þeim umfangsmiklu verkefnum sem virkjanaframkvæmdir við Kárahnjúka hafa haft og munu hafa í för með sér og stofnuninni er lögskylt að annast?

    Vinnueftirlitinu eru markaðar tekjur af tryggingagjaldi. Hlutdeild stofnunarinnar 0,048% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. reglugerð 1036/2003, og voru tekjur stofnunarinnar af þeim tekjustofni samkvæmt ríkisreikningi árið 2002 um 221 millj. kr. Til viðbótar hefur stofnunin sértekjur og aðrar rekstrartekjur. Sameiginlega standa þessar tekjur undir rekstrarkostnaði stofnunarinnar.
    Ljóst er að framkvæmdum á Austurlandi fylgja aukin umsvif Vinnueftirlits ríkisins. Ráðinn hefur verið nýr eftirlitsmaður í umdæmi Austurlands vegna framkvæmdanna. Einnig hafa sérfræðingar og aðalskrifstofa Vinnueftirlitsins lagt til umtalsverða vinnu vegna Kárahnjúka.
    Fyrrgreindum umsvifum hefur því verið mætt með þeim mörkuðu tekjustofnum stofnunarinnar og sértekjum sem hún hefur til ráðstöfunar, en ekki hefur verið um að ræða sérstakar viðbótarfjárveitingar til Vinnueftirlitsins vegna framkvæmdanna á Austurlandi.
    Tekið skal fram að hér að framan er ekki fjallað um vinnusvæði í Fljótsdal við byggingu stöðvarhúss og tengdar framkvæmdir.