Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 610. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1406 — 610. mál.
menntamálaráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar um brottfall úr framhaldsskólum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvert var brottfall úr íslenskum framhaldsskólum á síðasta ári
a. sundurliðað eftir kynjum og skólum á vorönn og á haustönn, og
b. sundurliðað eftir bóknámi og verknámi?
Brottfall má skilgreina á marga vegu. Þær tölfræðiupplýsingar sem hér eru lagðar fram sýna hlutfall þeirra nemenda sem hurfu frá námi milli skólaáranna 2002 og 2003. Um er að ræða um 15% nemenda en hlutfallstölur fyrir einstaka skóla eru mjög mismunandi, allt frá því að vera engar eða mjög lágar upp í mjög hátt hlutfall. Hér er einungis um að ræða eina leið til að skilgreina brottfall.
Sveigjanlegt og opið skólakerfi hér á landi gerir nemendum kleift að hverfa tímabundið frá námi. Nemendur vita að skólinn stendur þeim opinn ef þeir kjósa að snúa sér að námi á nýjan leik. Oft er um að ræða nemendur sem af eðlilegum ástæðum kjósa að hverfa frá námi. Nemendum er ljóst að þeir eiga þess kost að fá skólavist aftur þegar þeir sjá ljósari tilgang með náminu eða aðstæður þeirra eru af einhverjum ástæðum betri. Hæpið er að telja alla þá nemendur sem gera hlé á námi sínu hér á landi brottfallsnemendur, enda ljóst að margir þessara nemenda hefja nám að nýju. Síðustu ár hefur t.d. mátt greina hlutfallslega fjölgun nemenda í eldri aldurshópum við nám í framhaldsskólum, sérstaklega í aldurshópnum 20–24 ára en einnig í hópi allra eldri en 20 ára. Það er í raun staðfesting þess sem áður er sagt að
brottfall úr námi er oft og tíðum tímabundið.
Ljóst er að atvinnuástand hefur bein áhrif á sókn í skóla. Hér á landi hefur eftirspurn eftir vinnuafli verið mikil á undanförnum árum. Aðstæður á vinnumarkaði víða erlendis eru hins vegar ólíkar aðstæðum hér á landi. Langvarandi mikið atvinnuleysi í mörgum Evrópulöndum veldur því að stjórnvöld reka þá stefnu að halda nemendum í skóla eins lengi og unnt er enda hafa nemendur enga möguleika á að fá vinnu. Samanburður milli landa um brottfall getur því verið varasamur.
Eftirfarandi tölfræðiupplýsingar um brottfall eru unnar af Hagstofu Íslands. Þær miðast við brottfall frá hausti 2002 til haustsins 2003 (sjá nánar um vinnuaðferð og skilgreiningu hér á eftir). Þar sem gagnaöflun Hagstofu Íslands um nemendafjölda í framhaldsskólum miðast einungis við fjölda nemenda um miðjan október ár hvert er ekki unnt að greina brottfall eftir önnum.
Brottfall úr framhaldsskólum 2002–2003.
Vinnuaðferð og skilgreining:
Taldir eru saman nemendur í dagskóla á framhaldsskólastigi (sjá aftar) um miðjan október 2002 samkvæmt nemendaskrá Hagstofu Íslands og þeir bornir saman við skráða nemendur í öllum skólum (framhaldsskólum, háskólum, sérskólum og tónlistarskólum) um miðjan október 2003. Nemendur haustið 2002 sem ekki eru í námi haustið 2003 voru bornir saman við útskrifaðar nemendur í öllum skólum frá 1.12.2002 til hausts 2003 samkvæmt prófaskrá Hagstofu Íslands. Þeir nemendur sem hvorki hafa útskrifast á þessu tímabili né koma fram í nemendaskrá haustið 2003 teljast vera brottfallnir þetta ár.
Athugasemdir: Nemendur á almennri braut eru taldir með nemendum í bóknámi og nemendur í listnámi með nemendum í starfsnámi. Nemendur eru stundum skráðir í fleiri en einn skóla. Þá eru þeir settir í þann skóla sem þeir stunda aðallega nám í í nemendaskrá Hagstofu Íslands. Þó eru nemendur í listaskólum, sem líka stunda nám í öðrum skólum, settir í aðra skóla en listaskóla.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1406 — 610. mál.
Svar
menntamálaráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar um brottfall úr framhaldsskólum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvert var brottfall úr íslenskum framhaldsskólum á síðasta ári
a. sundurliðað eftir kynjum og skólum á vorönn og á haustönn, og
b. sundurliðað eftir bóknámi og verknámi?
Brottfall má skilgreina á marga vegu. Þær tölfræðiupplýsingar sem hér eru lagðar fram sýna hlutfall þeirra nemenda sem hurfu frá námi milli skólaáranna 2002 og 2003. Um er að ræða um 15% nemenda en hlutfallstölur fyrir einstaka skóla eru mjög mismunandi, allt frá því að vera engar eða mjög lágar upp í mjög hátt hlutfall. Hér er einungis um að ræða eina leið til að skilgreina brottfall.
Sveigjanlegt og opið skólakerfi hér á landi gerir nemendum kleift að hverfa tímabundið frá námi. Nemendur vita að skólinn stendur þeim opinn ef þeir kjósa að snúa sér að námi á nýjan leik. Oft er um að ræða nemendur sem af eðlilegum ástæðum kjósa að hverfa frá námi. Nemendum er ljóst að þeir eiga þess kost að fá skólavist aftur þegar þeir sjá ljósari tilgang með náminu eða aðstæður þeirra eru af einhverjum ástæðum betri. Hæpið er að telja alla þá nemendur sem gera hlé á námi sínu hér á landi brottfallsnemendur, enda ljóst að margir þessara nemenda hefja nám að nýju. Síðustu ár hefur t.d. mátt greina hlutfallslega fjölgun nemenda í eldri aldurshópum við nám í framhaldsskólum, sérstaklega í aldurshópnum 20–24 ára en einnig í hópi allra eldri en 20 ára. Það er í raun staðfesting þess sem áður er sagt að
brottfall úr námi er oft og tíðum tímabundið.
Ljóst er að atvinnuástand hefur bein áhrif á sókn í skóla. Hér á landi hefur eftirspurn eftir vinnuafli verið mikil á undanförnum árum. Aðstæður á vinnumarkaði víða erlendis eru hins vegar ólíkar aðstæðum hér á landi. Langvarandi mikið atvinnuleysi í mörgum Evrópulöndum veldur því að stjórnvöld reka þá stefnu að halda nemendum í skóla eins lengi og unnt er enda hafa nemendur enga möguleika á að fá vinnu. Samanburður milli landa um brottfall getur því verið varasamur.
Eftirfarandi tölfræðiupplýsingar um brottfall eru unnar af Hagstofu Íslands. Þær miðast við brottfall frá hausti 2002 til haustsins 2003 (sjá nánar um vinnuaðferð og skilgreiningu hér á eftir). Þar sem gagnaöflun Hagstofu Íslands um nemendafjölda í framhaldsskólum miðast einungis við fjölda nemenda um miðjan október ár hvert er ekki unnt að greina brottfall eftir önnum.
Brottfall úr framhaldsskólum 2002–2003.
Vinnuaðferð og skilgreining:
Taldir eru saman nemendur í dagskóla á framhaldsskólastigi (sjá aftar) um miðjan október 2002 samkvæmt nemendaskrá Hagstofu Íslands og þeir bornir saman við skráða nemendur í öllum skólum (framhaldsskólum, háskólum, sérskólum og tónlistarskólum) um miðjan október 2003. Nemendur haustið 2002 sem ekki eru í námi haustið 2003 voru bornir saman við útskrifaðar nemendur í öllum skólum frá 1.12.2002 til hausts 2003 samkvæmt prófaskrá Hagstofu Íslands. Þeir nemendur sem hvorki hafa útskrifast á þessu tímabili né koma fram í nemendaskrá haustið 2003 teljast vera brottfallnir þetta ár.
| Heildarbrottfall. | |
| Fjöldi nemenda haustið 2002 | 18.250 |
| Nemendur haustið 2002 sem ekki koma fram í neinum skóla á framhaldsskólastigi og háskólastigi haustið 2003 | 4.504 |
| Þar af brautskráðir frá 1.12.2002 til hausts 2003 | 1.747 |
| Brottfallnir nemendur frá hausti 2002 | 2.757 |
| Brottfall í % | 15,1 |
| Brottfallnir eftir kyni. | |||
| Kyn | Nem. 2002 | Brottfall, fjöldi | Brottfall % |
| Karlar | 9.049 | 1.547 | 17,1 |
| Konur | 9.201 | 1.210 | 13,2 |
| Alls | 18.250 | 2.757 | 15,1 |
| Brottfallnir eftir flokkun náms. | |||
| Flokkun | Nem. 2002 | Brottfall, fjöldi | Brottfall % |
| Bóknám | 11.414 | 1.331 | 11,7 |
| Starfsnám | 6.836 | 1.426 | 20,9 |
| Alls | 18.250 | 2.757 | 15,1 |
| Brottfallnir eftir skólum. | |||
| Skóli | Nem. 2002 | Brottfall, fjöldi | Brottfall % |
| Borgarholtsskóli | 952 | 231 | 24,3 |
| Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra | 400 | 91 | 22,8 |
| Fjölbrautaskóli Suðurlands | 789 | 124 | 15,7 |
| Fjölbrautaskóli Suðurnesja | 714 | 124 | 17,4 |
| Fjölbrautaskóli Vesturlands | 593 | 106 | 17,9 |
| Fjölbrautaskóli Vesturlands, útibú Stykkishólmi | 13 | 2 | 15,4 |
| Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | 1.196 | 166 | 13,9 |
| Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | 575 | 55 | 9,6 |
| Fjölbrautaskólinn við Ármúla | 831 | 173 | 20,8 |
| Flensborgarskóli | 550 | 47 | 8,5 |
| Framhaldsskólinn á Húsavík | 129 | 25 | 19,4 |
| Framhaldsskólinn á Laugum | 118 | 25 | 21,2 |
| Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu | 115 | 37 | 32,2 |
| Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | 250 | 51 | 20,4 |
| Garðyrkjuskólinn á Reykjum | 36 | 1 | 2,8 |
| Hólaskóli á Hólum í Hjaltadal | 57 | 4 | 7,0 |
| Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað | 24 | 0 | 0,0 |
| Hússtjórnarskólinn í Reykjavík | 23 | 0 | 0,0 |
| Iðnnemar á samningi utan skóla | 759 | 197 | 26,0 |
| Iðnskólinn í Hafnarfirði | 519 | 147 | 28,3 |
| Iðnskólinn í Reykjavík | 1.546 | 416 | 26,9 |
| Kvennaskólinn í Reykjavík | 511 | 27 | 5,3 |
| Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri | 43 | 4 | 9,3 |
| Listdansskóli Íslands | 6 | 0 | 0,0 |
| Menntaskólinn að Laugarvatni | 168 | 22 | 13,1 |
| Menntaskólinn á Akureyri | 632 | 17 | 2,7 |
| Menntaskólinn á Egilsstöðum | 298 | 33 | 11,1 |
| Menntaskólinn á Ísafirði | 303 | 45 | 14,9 |
| Menntaskólinn í Kópavogi | 935 | 97 | 10,4 |
| Menntaskólinn í Reykjavík | 765 | 20 | 2,6 |
| Menntaskólinn við Hamrahlíð | 977 | 58 | 5,9 |
| Menntaskólinn við Sund | 731 | 36 | 4,9 |
| Myndlistarskólinn á Akureyri | 17 | 1 | 5,9 |
| Myndlistarskólinn í Reykjavík | 19 | 0 | 0,0 |
| Snyrtiskóli Reykjavíkur | 25 | 2 | 8,0 |
| Stýrimannaskólinn í Reykjavík | 66 | 13 | 19,7 |
| Tannsmiðaskóli Íslands | 8 | 3 | 37,5 |
| Tækniháskóli Íslands | 126 | 19 | 15,1 |
| Verkmenntaskóli Austurlands | 165 | 45 | 27,3 |
| Verkmenntaskólinn á Akureyri | 1.042 | 248 | 23,8 |
| Verslunarskóli Íslands | 1.045 | 23 | 2,2 |
| Vélskóli Íslands | 140 | 16 | 11,4 |
| Viðskiptaháskólinn á Bifröst | 39 | 6 | 15,4 |
| Alls | 18.250 | 2.757 | 15,1 |