Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 885. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1407 — 885. mál.
landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um nýrnaveiki í seiðaeldi.
1. Hvenær og hvernig var upplýsingum um að nýrnaveiki hefði verið uppgötvuð í íslenskri seiðaeldisstöð í ágústmánuði 2003 dreift til annarra eldisstöðva og hagsmunaaðila hérlendis?
Þegar kemur upp smitsjúkdómur á borð við nýrnaveiki, sem bakterían Renibacterium almoninarum veldur, ber fisksjúkdómayfirvöldum að fara eftir ákvæðum reglugerðar nr. 403/1986, um varnir gegn fisksjúkdómum og heilbrigðiseftirlit með fiskeldisstöðvum. Í VI. kafla reglugerðarinnar („meðferð sjúkdóma“) er skýrt kveðið á um meðferð slíkra mála. Eins og kveðið er á um í reglunum sendi dýralæknir fisksjúkdóma strax formlegar tilkynningar um greiningu sjúkdómsins og jafnframt þær kvaðir sem yfirvöld settu á viðkomandi fyrirtæki í formi dreifingarbanns. Bréf þessi fóru til þeirra sem málið varðar með lögformlegum hætti, þ.e. til framkvæmda- og stöðvarstjóra fyrirtækjanna, héraðsdýralækna viðkomandi héraða, Rannsóknadeildar fisksjúkdóma að Keldum og fisksjúkdómanefndar. Í ráðuneytinu liggja fyrir afrit af öllum tilkynningum og bréfum til aðila sem málið varðar. Það skal undirstrikað að fisksjúkdómanefnd er skipuð sérfræðingum sem skulu vera ráðherra til aðstoðar í hvers kyns málum er lúta að fisksjúkdómum, sbr. 78. gr. laga nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði. Allar formlegar tilkynningar hafa ávallt verið sendar öllum nefndarmönnum samstundis og smit hefur verið staðfest.
2. Hvenær var nýrnaveikin tilkynnt formlega til grannlanda sem íslenskar seiðastöðvar flytja afurðir til, svo sem Skotlands og Írlands, og hvernig var staðið að þeim tilkynningum?
Skýrt skal tekið fram að afurðir, þ.e. í þessu tilfelli hrogn, hafa alls ekki farið frá eldisstöðvum sem eru í dreifingarbanni út fyrir strendur landsins. Í fyrirspurninni er væntanlega skírskotað til Stofnfisks hf. sem um áraraðir hefur flutt laxfiskahrogn til fjölmargra landa. Það skal áréttað að kynbóta- og klakstöð fyrirtækisins er að Kalmanstjörn í Höfnum og er því langt frá þeim seiðastöðvum sem fengu sjúkdóminn á Suðurlandi. Þessi sjúkdómatilfelli hafa því á engan hátt skaðað útflutning á laxahrognum og hefur útflutningur verið líflegur á liðnu missiri.
Samkvæmt reglum ESB og OIE (Alþjóðadýrasjúkdómastofnunin í París) er nýrnaveiki ekki tilkynningarskyldur sjúkdómur og því liggur í raun engin kvöð á íslenskum yfirvöldum að tilkynna veikina. Þrátt fyrir þessar Evrópu- og alþjóðareglur hefði viðkomandi viðskiptalöndum að sjálfsögðu verið tilkynnt þessi uppákoma með formlegum hætti ef útflutningsstöðvar Stofnfisks hefðu verið settar í formlegt dreifingarbann. Því er einfaldlega ekki til að dreifa í þessu tilfelli. Seiðaeldisstöðin sem hér er fjallað um, þ.e. Hallkelshólar í Grímsnesi, var tekin til reksturs af Stofnfiski í byrjun júlí 2003. Þau laxaseiði sem urðu smitkveikja í þetta sinn, ættuð úr Eystri-Rangá, tilheyrðu fyrri rekstraraðila. Forráðamenn og starfsmenn Stofnfisks hafa unnið afar gott starf við að uppræta veikina og bendir allt til þess núna að tekist hafi að útrýma smiti á Hallkelshólum. Sérstaklega skal tekið fram að seiðastöðin að Hallkelshólum hefur aldrei verið inni í myndinni hvað útflutning afurða varðar.
Þess má einnig geta að nýrnaveiki er útbreiddur sjúkdómur í nágrannalöndum okkar. Engin bóluefni eru til gegn veikinni og engin lækning. Fisksjúkdómayfirvöld bregðast í flestum tilfellum við veikinni á sama hátt og hér hefur tíðkast, það er með dreifingarbanni og niðurskurði, þrifum og sótthreinsun. Nýrnaveiki er nokkuð útbreidd í villtri náttúru hér og fara miklir fjármunir og tími í að verjast því að veikin komist inn í eldisstöðvar. Þrátt fyrir stranga aðgæslu smýgur bakterían öðru hverju fram hjá smitvörnum en hún er lúmsk með eindæmum. Það sem gerir hana erfiða viðfangs er hversu langan meðgöngutíma hún hefur, þ.e. frá því að smit á sér stað og þar til fiskar sýna sjúkdómseinkenni. Þessi eiginleiki getur leitt til þess að smit kemst á flakk innan stöðvar og jafnvel á milli stöðva eins og í þessu tilfelli. Nýrnaveiki hefur af og til skotið upp kollinum í íslensku fiskeldi. Yfirleitt er um einstök og einangruð tilfelli að ræða en þó hefur borið á hálfgerðum faröldrum einstaka ár. Síðasti slíki faraldur átti sér stað fyrir réttum áratug, en 1994 kom veikin upp nánast samtímis í Skagafirði, Tálknafirði, Hvalfirði og á Reykjanesi. Í mörgum tilfellum hefur tekist að uppræta smit með niðurskurði en því er ekki að leyna að veikin hefur komið nokkrum fiskeldisstöðvum í rekstrarþrot á liðnum áratugum.
Í ársskýrslu dýralæknis fisksjúkdóma fyrir árið 2003 er greinargott yfirlit og greinargerð um helstu fisksjúkdóma hér á landi allt frá árinu 1992. Eftirfarandi er útdráttur úr ársskýrslunni:
Yfirlit yfir helstu smitsjúkdóma í fiskeldi árið 2003.
Nýrnaveiki (Renibacterium salmoninarum) kom upp sem nýsmit í einni eldisstöð á liðnu ári og átti smitkveikjan rætur að rekja til villtra laxaseiða undan riðlaxi úr Eystri-Rangá sem kreistur var haustið 2001. Öllum seiðum var þegar í stað fargað en í ljós kom í upphafi árs 2004 að smitdreifing hafði átt sér stað í fleiri stöðvar og verður gerð nánari grein fyrir þeirri þróun í næstu ársskýrslu. Eldra smit var einnig til staðar í einni bleikjueldisstöð en þeim fiski var öllum fargað og smiti útrýmt. Þá fannst dulið smit í fjórum hrygnum úr tveimur laxveiðiám og var hrognum undan þeim umsvifalaust fargað. Nýrnaveiki er grafalvarleg og afar erfið viðfangs og hefur leitt til ófárra rekstrarþrota á liðnum áratugum.
Samtals bárust 1.546 sýni úr klakfiskum til nýrnaveikirannsóknar á Keldum árið 2003 og eru niðurstöður eftirfarandi:
Lax: Alls voru rannsökuð 1.330 sýni. Smittíðni var 0,5% í villtum laxi (fjórir af samtals 827) en 0 í eldislaxi (enginn af samtals 503).
Árið 2003 greindust fjórir villtir klaklaxar með nýrnaveikismit (einn úr Ytri-Rangá og þrír úr Eystri-Rangá).
Tíðni nýrnaveikismits í villtum klaklaxi árin 1991–2003.
Ekkert smit fannst í eldislaxi frekar en mörg undanfarin ár. Sýni úr eldislaxi bárust úr tveimur stöðvum: Stofnfiski (443) og Rifósi (60).
Bleikja: Rannsökuð voru alls 150 sýni. Smittíðni var 0% í eldisbleikju. Öll sýnin voru úr eldisbleikju sem kom frá þremur stöðvum: Stofnfiski (60), Hólaskóla (30) og Haukamýrargili (60).
Sjóbirtingur: Rannsökuð voru alls sex sýni. Smittíðni var 0% í villtum sjóbirtingi. Öll sýnin voru úr villtum sjóbirtingi úr Affallinu.
Regnbogasilungur: Rannsökuð voru alls 60 sýni. Smittíðni var 0%. Allt var þetta eldisregnbogasilungur kreistur að Laugum á vegum Stofnfisks.
Villtur lax til kreistingar var veiddur úr alls 50 laxveiðiám á síðasta ári.
Fjöldi laxveiðiáa sem klaklax var veiddur úr til nýrnaveikirannsókna árin 1991–2003.
Eins og glögglega má sjá á yfirlitinu hér á undan, sem tekið er úr ársskýrslu dýralæknis fisksjúkdóma, er árlegt eftirlit með nýrnaveiki gríðarlega umfangsmikið. Reglubundið eftirlit með nýrnaveiki og öðrum sjúkdómum í fiski hefur verið stundað síðan 1985 og eru fisksjúkdómayfirvöld staðráðin í að slaka hvergi á í þeirri baráttu. Þess skal að lokum getið, til að forðast misskilning við lestur yfirlitstöflunnar um sjúkdóma, að aðeins í einni eldisstöð greindist nýrnaveiki sem nýsmit á liðnu ári. Síðan fylgdu þrjár nýjar stöðvar í kjölfarið, en þar kom ekki smit fram fyrr en í upphafi árs 2004, eins og sjá má í bréfum Gísla Jónssonar, dýralæknis fisksjúkdóma.
3. Hvaða ráðstafanir hefur ráðuneytið gert til að komast fyrir þessa sýkingu og hindra að veikin breiðist út?
Mikilli vinnu er varið í eftirlit og upprætingu smitsjúkdóma í fiskum. Sem undirstofnun landbúnaðarráðuneytisins hefur embætti yfirdýralæknis haldið úti reglubundnu heilbrigðiseftirliti með fiskeldi allar götur síðan 1985. Eftirlitið hvílir á herðum dýralæknis fisksjúkdóma, en honum til aðstoðar eru héraðsdýralæknar um allt land. Fyrstu árin gegndu Árni M. Mathiesen, núverandi sjávarútvegsráðherra, og Lars Hansen þessari stöðu, en síðan vorið 1991 hefur Gísli Jónsson gegnt stöðunni.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1407 — 885. mál.
Svar

| Smitsjúkdómar af völdum baktería í íslenskum fiskeldisstöðvum árin 1992–2003. | ||||||||||||
| Ný sjúkdómatilfelli á ári / fjöldi fiskeldisstöðva. | ||||||||||||
| 2003 | 2002 | 2001 | 2000 | 1999 | 1998 | 1997 | 1996 | 1995 | 1994 | 1993 | 1992 | |
| Sjúkdómur: | ||||||||||||
| Hitraveiki | 0 | 0 | 1* | 0 | 1* | 1* | 0 | 0 | 0 | 0 | 1* | 0 |
| Kýlaveikibróðir | 4.*# | 2*. | 2*# | 0 | 0 | 0 | 1* | 0 | 0 | 0 | 1* | 3* |
| Nýrnaveiki | 1. | 1. | 0 | 0 | 0 | 1* | 0 | 0 | 1* | 4** | 1.* | 1* |
| Rauðmunnaveiki | 4*. | 0 | 2*. | 1. | 0 | 0 | 2*. | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
| Vetrarsár | 1* | 1* | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 1* | 0 | 2* |
| Vibríuveiki | 2# | 0 | 1# | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
|
* Strandeldisstöð (selta 10–25). * Sjókvíaeldi (full selta). |
. Klak- og seiðaeldisstöð (ferskvatn). # Eldi sjávarfiska (full selta). |
|||||||||||
Nýrnaveiki (Renibacterium salmoninarum) kom upp sem nýsmit í einni eldisstöð á liðnu ári og átti smitkveikjan rætur að rekja til villtra laxaseiða undan riðlaxi úr Eystri-Rangá sem kreistur var haustið 2001. Öllum seiðum var þegar í stað fargað en í ljós kom í upphafi árs 2004 að smitdreifing hafði átt sér stað í fleiri stöðvar og verður gerð nánari grein fyrir þeirri þróun í næstu ársskýrslu. Eldra smit var einnig til staðar í einni bleikjueldisstöð en þeim fiski var öllum fargað og smiti útrýmt. Þá fannst dulið smit í fjórum hrygnum úr tveimur laxveiðiám og var hrognum undan þeim umsvifalaust fargað. Nýrnaveiki er grafalvarleg og afar erfið viðfangs og hefur leitt til ófárra rekstrarþrota á liðnum áratugum.
Samtals bárust 1.546 sýni úr klakfiskum til nýrnaveikirannsóknar á Keldum árið 2003 og eru niðurstöður eftirfarandi:
Lax: Alls voru rannsökuð 1.330 sýni. Smittíðni var 0,5% í villtum laxi (fjórir af samtals 827) en 0 í eldislaxi (enginn af samtals 503).
Árið 2003 greindust fjórir villtir klaklaxar með nýrnaveikismit (einn úr Ytri-Rangá og þrír úr Eystri-Rangá).
Tíðni nýrnaveikismits í villtum klaklaxi árin 1991–2003.
| 2003 | 2002 | 2001 | 2000 | 1999 | 1998 | 1997 | 1996 | 1995 | 1994 | 1993 | 1992 | 1991 |
| 0,50% | 0,60% | 0,20% | 0,40% | 0% | 0% | 0% | 0,40% | 1,10% | 0,60% | 1,00% | 3,00% | 1,40% |
Ekkert smit fannst í eldislaxi frekar en mörg undanfarin ár. Sýni úr eldislaxi bárust úr tveimur stöðvum: Stofnfiski (443) og Rifósi (60).
Bleikja: Rannsökuð voru alls 150 sýni. Smittíðni var 0% í eldisbleikju. Öll sýnin voru úr eldisbleikju sem kom frá þremur stöðvum: Stofnfiski (60), Hólaskóla (30) og Haukamýrargili (60).
Sjóbirtingur: Rannsökuð voru alls sex sýni. Smittíðni var 0% í villtum sjóbirtingi. Öll sýnin voru úr villtum sjóbirtingi úr Affallinu.
Regnbogasilungur: Rannsökuð voru alls 60 sýni. Smittíðni var 0%. Allt var þetta eldisregnbogasilungur kreistur að Laugum á vegum Stofnfisks.
Villtur lax til kreistingar var veiddur úr alls 50 laxveiðiám á síðasta ári.
Fjöldi laxveiðiáa sem klaklax var veiddur úr til nýrnaveikirannsókna árin 1991–2003.
| 2003 | 2002 | 2001 | 2000 | 1999 | 1998 | 1997 | 1996 | 1995 | 1994 | 1993 | 1992 | 1991 |
| 50 | 49 | 38 | 38 | 40 | 37 | 45 | 38 | 38 | 38 | 50 | 55 | 49 |