Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 928. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1412  —  928. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um greiðsluskyldu ríkissjóðs umfram heimildir fjárlaga.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



     1.      Til hvaða fjárráðstafana hefur verið gripið á þessu ári sem ekki er gert ráð fyrir í fjárlögum ársins og leita þarf heimildar Alþingis fyrir, sbr. 44. gr. laga um fjárreiður ríkisins frá 1997? Hverjar eru fjárhæðirnar í hverju tilviki og hefur fjárlaganefnd Alþingis verið gerð grein fyrir þeim?
     2.      Hver er áætlaður kostnaður ríkissjóðs við þá kjarasamninga sem gerðir hafa verið á árinu, sundurliðað eftir kjarasamningum, og hvernig samræmist sá kostnaður fjárlögum ársins? Hvaða fleiri kjarasamninga er áformað að gera á árinu, hver er hlutur þeirra í heildarlaunakostnaði ríkisins, sundurliðað eftir kjarasamningum, og mun áætlun fjárlaga raskast ef þeir kjarasamningar verða svipaðir þeim sem þegar hafa verið gerðir og ef svo er, hve mikið?
     3.      Er ástæða til að ætla að útgjöld ríkissjóðs á árinu verði umfram fjárlög ársins vegna nýrra laga sem samþykkt hafa verið á þessu ári? Ef svo er, hvaða lög er um að ræða og hvað er áætlað að útgjöldin verði mikil á árinu í hverju tilviki og hvaða fjárlagaliðir eiga í hlut?
     4.      Hafa ákvarðanir einstakra ráðherra eða ríkisstjórnarinnar á þessu ári leitt til þess að útgjöld ársins verða fyrirsjáanlega umfram heimildir fjárlaga? Ef svo er, hverjar eru ákvarðanirnar, við hvaða lagaheimildir styðjast þær, hver eru umframútgjöldin í hverju tilviki, hverjir eru fjárlagaliðirnir og hvernig er ráðgert að mæta kostnaðinum?


Skriflegt svar óskast.












Prentað upp.