Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 939. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1429  —  939. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um framtíðaruppbyggingu Landspítalans.

Frá Jónínu Bjartmarz.



    Hvað líður undirbúningi framtíðaruppbyggingar Landspítala – háskólasjúkrahúss við Hringbraut? Hefur verið tekin afstaða til ólíkra möguleika á tilhögun framkvæmda og fjármögnunar?