Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 943. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1437 — 943. mál.
samgönguráðherra um störf rannsóknarnefndar flugslysa árið 2003.
Rannsóknarnefnd flugslysa.
Rannsóknarnefnd flugslysa tók til starfa 28. júní 1996 í samræmi við lög nr. 59/1996, um rannsókn flugslysa. Rannsóknarnefnd flugslysa tók þá við starfsemi flugslysarannsóknardeildar Flugmálastjórnar og starfsemi flugslysanefndar sem þá voru lagðar niður.
Rannsóknarnefnd flugslysa er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem heyrir stjórnsýslulega undir samgönguráðherra en starfar sjálfstætt og óháð stjórnvöldum og öðrum rannsóknaraðilum, ákæruvaldi og dómstólum, sbr. 6. gr. laganna. Hún annast rannsókn allra flugslysa, þ.m.t. alvarlegra flugatvika og flugumferðaratvika. Flugslysarannsóknir miða að því að koma í veg fyrir að flugslys endurtaki sig og að auka öryggi í flugi. Um rannsókn á meintri refsiverðri háttsemi í tengslum við flugslys fer samkvæmt lögum nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála, og er slík rannsókn óháð rannsókn flugslysa.
Í skýrslum rannsóknarnefndar flugslysa er gerð grein fyrir orsök eða líklegri orsök flugslyssins auk þess sem þar eru, ef við á, gerðar tillögur um þær varúðarráðstafanir sem gera má til þess að afstýra frekari slysum af sömu eða líkum orsökum. Þá skal rannsóknarnefndin gera tillögur um úrbætur í flugöryggismálum eftir því sem rannsókn á orsökum flugslysa gefur tilefni til. Skýrslum rannsóknarnefndar flugslysa skal ekki beitt sem sönnunargögnum í opinberum málum, enda er markmið flugslysarannsókna samkvæmt áðurnefndum lögum að greina orsakaþætti flugslysa í því skyni einu að koma í veg fyrir frekari flugslys. Tilgangurinn er ekki að draga fram sök eða ábyrgð.
Nefndina skipa eftirtaldir fimm menn:
– Þormóður Þormóðsson, B.S. í flugrekstrar- og tæknistjórnun, rannsóknarstjóri flugslysa,
– Þorkell Ágústsson, verkfræðingur, M.Sc., aðstoðarrannsóknarstjóri flugslysa,
– Kristján Guðjónsson, lögfræðingur og framkvæmdastjóri hjá Tryggingastofnun ríkisins,
– Steinar Steinarsson, flugstjóri hjá Flugleiðum hf.,
– Páll Valdimarsson, prófessor í vélaverkfræði við Háskóla Íslands.
Þormóður og Þorkell eru ráðnir ótímabundið og eru fastir starfsmenn nefndarinnar. Hinir þrír eru skipaðir til fjögurra ára í senn og núverandi skipunartímabil þeirra nær til 1. júlí 2004.
Fjárheimildir og kostnaður.
Fjárheimildir til starfsemi rannsóknarnefndar flugslysa voru á árinu 2003 samtals 25,8 millj. kr. og greinast þannig: Framlag í fjárlögum er 24,7 millj. kr. Með fjáraukalögum var veitt 5,8 millj. kr. aukafjárheimild. Frá dregst skuld frá fyrra ári sem var 4,7 millj. kr.
Heildarkostnaður við starfsemina var 26,1 millj. kr. og því færast 0,3 millj. kr. sem skuld til næsta árs.
Yfirlit yfir skráð og rannsökuð mál árið 2003.
Á árinu 2003 lauk rannsóknarnefnd flugslysa gerð rannsóknarskýrslu í 14 málum sem ólokið var í upphafi ársins. Þá lauk nefndin 18 öðrum málum frá árinu 2002 með bókun.
Árið 2003 skráði rannsóknarnefnd flugslysa 454 frávik í flugi íslenskra loftfara hérlendis og erlendis, svo og í flugi erlendra loftfara um íslenska lögsögu og um íslenska flugstjórnarsvæðið. Rannsóknarnefndin skoðaði 76 þessara frávika nánar og af þeim tók nefndin 41 atvik, sem skilgreint var sem flugslys, flugumferðaratvik eða alvarleg flugatvik, til formlegrar meðferðar og rannsóknar. Nefndin lauk rannsókn á fimm þessara mála með útgáfu rannsóknarskýrslu á árinu og 16 málum var lokið með bókun.
Engin slys urðu á mönnum í flugi skráðra íslenskra loftfara á árinu.
Í árslok átti rannsóknarnefnd flugslysa eftir að ljúka 19 málum frá árinu 2003, en rannsókn þeirra var langt komin og mun þeim ljúka með rannsóknarskýrslu eða bókun á árinu 2004.
Rannsóknarnefnd flugslysa átti töluvert samstarf við erlenda rannsakendur vegna rannsóknarverkefna sinna. Nokkur atvik hentu erlendar flugvélar hér á landi á árinu og jafnframt aðstoðaði nefndin og tók þátt í rannsóknum erlendra rannsakenda á 12 atvikum er hentu íslensk-skráðar flugvélar erlendis. Sex þessara rannsókna var lokið á árinu en það voru rannsókn rannsóknarnefndar flugslysa í Danmörku (Havarikommissionen Civil Luftfart) á flugatviki er henti C 404 flugvél Jórvíkur hf. yfir Grænlandi hinn 1. ágúst 2002, rannsókn rannsóknarnefndar flugslysa í Svíþjóð (Statens Haverikommission) á flugumferðaratviki er B 757 flugvél Flugleiða átti hlut að við Arlanda flugvöll í Stokkhólmi hinn 25. janúar 2002, rannsókn rannsóknarnefndar flugslysa í Noregi (Havarikommisjonen for Sivil Luftfart) á alvarlegu flugatviki er henti B 757 flugvél Flugleiða við Gardermoen flugvöll í Ósló hinn 22. janúar 2002, rannsókn Slysarannsóknastofnunar samgöngumála í Bandaríkjunum (National Transportation Safety Board) á flugatviki er henti B 757 flugvél Flugleiða yfir austurströnd Bandaríkjanna hinn 19. október 2002, rannsókn rannsóknarnefndar flugslysa á Spáni (Comisión de Investigación de Accidentes) á flugatviki er henti B 747 flugvél Iberia á Madridarflugvelli hinn 14. september 2002 og rannsókn rannsóknarnefndar flugslysa í Argentínu (Junta de Investigaciones de Accidentes de Aviación) á flugatviki er henti B 747 flugvél Atlanta við flugvöllinn í Buenos Aires í Argentínu hinn 22. október 2002.
Rannsóknarnefnd flugslysa gerði samtals 20 tillögur til úrbóta í öryggisátt í kjölfar rannsókna sem hún lauk á árinu 2003. Í nokkrum málanna voru að mati nefndarinnar ekki efni til þess að gera tillögur til úrbóta. Tillögum þessum var flestum beint til Flugmálastjórnar Íslands, en skv. 7. gr. laga nr. 59/1996, um rannsókn flugslysa, er flugmálayfirvöldum skylt að sjá til þess að úrbótatillögur rannsóknarnefndar flugslysa séu teknar til formlegrar afgreiðslu.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1437 — 943. mál.
Skýrsla
samgönguráðherra um störf rannsóknarnefndar flugslysa árið 2003.
(Lögð fyrir Alþingi á 130. löggjafarþingi 2003–2004.)

Flugstundir, flugslys og alvarleg flugatvik á íslenskum loftförum 1984–2003.
| Ár | Reglu- bundið flug |
Flugslys og flug- atvik |
Leigu- flug |
Flugslys og flug- atvik |
Þjónustu- flug |
Flugslys og flug- atvik |
Verk- flug |
Flugslys og flug- atvik |
Einka- flug* |
Flugslys og flug- atvik |
Kennslu- flug |
Flugslys og flug- atvik |
Svif- flug |
Flugslys og flug- atvik |
Flug- stundir samtals |
Flugslys og flug- atvik samtals |
| 1984 | 29.500 | 4 | 7.000 | 0 | 8.700 | 2 | 1.500 | 0 | 12.200 | 4 | 5.400 | 0 | 800 | 0 | 65.100 | 10 |
| 1985 | 30.000 | 1 | 6.500 | 0 | 9.100 | 1 | 3.000 | 0 | 14.000 | 7 | 6.900 | 5 | 800 | 0 | 70.300 | 14 |
| 1986 | 33.000 | 2 | 6.000 | 0 | 9.300 | 1 | 3.500 | 0 | 14.000 | 9 | 7.800 | 0 | 800 | 1 | 74.400 | 13 |
| 1987 | 37.200 | 1 | 6.900 | 0 | 8.800 | 3 | 4.000 | 2 | 15.500 | 9 | 9.200 | 2 | 800 | 1 | 82.400 | 18 |
| 1988 | 35.000 | 4 | 6.500 | 0 | 8.500 | 1 | 4.000 | 2 | 17.100 | 11 | 8.700 | 1 | 800 | 0 | 80.600 | 17 |
| 1989 | 33.000 | 4 | 4.000 | 0 | 6.800 | 1 | 2.800 | 0 | 16.700 | 6 | 9.100 | 3 | 800 | 1 | 73.200 | 15 |
| 1990 | 37.900 | 3 | 5.400 | 2 | 9.100 | 1 | 2.200 | 1 | 15.100 | 6 | 7.800 | 4 | 800 | 2 | 78.300 | 19 |
| 1991 | 38.500 | 0 | 11.900 | 0 | 8.500 | 0 | 1.900 | 0 | 12.700 | 10 | 8.500 | 0 | 800 | 0 | 82.800 | 8 |
| 1992 | 36.082 | 1 | 5.549 | 0 | 6.641 | 2 | 2.138 | 0 | 11.234 | 4 | 6.189 | 0 | 800 | 2 | 68.633 | 9 |
| 1993 | 34.517 | 1 | 10.320 | 0 | 6.825 | 0 | 1.751 | 0 | 9.510 | 4 | 8.237 | 0 | 800 | 1 | 71.996 | 6 |
| 1994 | 39.684 | 1 | 12.272 | 0 | 7.101 | 1 | 2.119 | 1 | 10.952 | 5 | 7.766 | 1 | 800 | 3 | 80.694 | 12 |
| 1995 | 41.694 | 1 | 13.881 | 0 | 10.087 | 1 | 2.475 | 0 | 13.025 | 5 | 6.316 | 4 | 800 | 2 | 88.278 | 13 |
| 1996 | 47.682 | 2 | 21.464 | 3 | 6.159 | 2 | 2.131 | 0 | 14.106 | 11 | 10.750 | 0 | 800 | 0 | 103.092 | 18 |
| 1997 | 51.930 | 3 | 25.452 | 2 | 5.826 | 2 | 1.729 | 4 | 14.805 | 7 | 13.318 | 2 | 800 | 0 | 113.060 | 20 |
| 1998 | 60.549 | 5 | 34.434 | 6 | 6.756 | 1 | 2.004 | 2 | 10.753 | 7 | 16.052 | 2 | 930 | 0 | 131.480 | 23 |
| 1999 | 65.847 | 5 | 34.885 | 4 | 3.481 | 1 | 1.730 | 0 | 10.995 | 11 | 16.843 | 3 | 797 | 0 | 134.578 | 24 |
| 2000 | 70.833 | 9 | 39.961 | 3 | 2.614 | 2 | 1.955 | 0 | 11.042 | 11 | 12.462 | 8 | 700 | 0 | 139.567 | 33 |
| 2001 | 66.959 | 3 | 45.683 | 11 | 2611 | 1 | 1.941 | 1 | 9.103 | 2 | 10.567 | 2 | 700 | 0 | 137.562 | 20 |
| 2002 | 56.081 | 8 | 52.000 | 8 | 1.750 | 5 | 1.824 | 2 | 10.560 | 8 | 9.229 | 3 | 750 | 0 | 132.192 | 34 |
| 2003 | 9 | 14 | 0 | 3 | 6 | 2 | 1 | 32 | ||||||||
|
*Alvarleg flugatvik eru talin hér með frá 1995 og flugumferðaratvik frá 1997. Tölur um flugstundir fyrir árið 2003 lágu ekki fyrir þegar skýrslan var tekin saman. |
||||||||||||||||