Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 633. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1446 — 633. mál.
umhverfisráðherra við fyrirspurn Atla Gíslasonar um eftirlit með vinnubúðum og öðrum vistarverum við Kárahnjúka.
1. Hvaða byggingar- og skipulagsnefndir og byggingar- og skipulagsfulltrúar hafa farið með byggingar- og skipulagsmál og haft eftirlit með byggingu vinnubúða og annarra íverustaða starfsmanna við Kárahnjúka og hvernig hefur eftirliti verið háttað?
2. Hafa verið gefin út formleg leyfi fyrir byggingunum og hefur farið fram úttekt á þeim fullgerðum í því skyni að ganga úr skugga um hvort þær fullnægi ákvæðum byggingarreglugerðar?
Byggingar- og skipulagsnefndir og byggingar- og skipulagsfulltrúi Norður-Héraðs og Fljótsdalshrepps fara með byggingar- og skipulagsmál á svæðinu. Staðfest hefur verið deiliskipulag fyrir vinnubúðir við Kárahnjúka. Við undirbúning deiliskipulagsins kom fram að í tengslum við þau mannvirki sem ekki væru háð byggingarleyfi sveitarstjórnar, samkvæmt skipulags- og byggingarlögum, fælist hlutverk byggingarfulltrúa aðallega í eftirliti með því að staðsetning mannvirkja væri í samræmi við deiliskipulag. Var gefið út svokallað stöðuleyfi fyrir byggingum en bygging vinnubúða er ekki háð byggingarleyfi, sbr. 36. gr. skipulags- og byggingarlaga, nr. 73/1997, með síðari breytingum, þar sem ekki er um varanlegar húsbyggingar að ræða. Í greinargerð með deiliskipulaginu kemur fram að byggingarfulltrúi hafi eftirlit með að staðsetning einstakra vinnubúða sé í samræmi við deiliskipulag. Ekki fer hins vegar fram úttekt á vegum byggingarfulltrúa á fullbyggðum byggingum sem ekki eru byggingarleyfisskyldar. Skipulagsstofnun hefur hins vegar við umfjöllun um vinnubúðir vegna Kárahnjúkavirkjunar bent á að einstök mannvirki á deiliskipulagssvæðinu kunni að vera byggingarleyfisskyld og að um hlutverk og ábyrgð byggingarfulltrúa og sveitarstjórnar varðandi þau fari samkvæmt ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og reglugerða settra samkvæmt þeim.
Samkvæmt framanrituðu hefur byggingarfulltrúi aðeins komið að staðsetningu þessara bygginga samkvæmt deiliskipulagi og gefið út stöðuleyfi og litið eftir frágangi þeirra. Skipulagi hefur verið framfylgt. Leyfisútgáfa og eftirlit er að öðru leyti í höndum Heilbrigðiseftirlits Austurlands (HAUST) skv. reglugerð nr. 941/2002, um hollustuhætti.
3. Hefur ráðherra eða stofnanir sem heyra undir ráðuneytið haft afskipti af heilbrigðiseftirliti með starfsmannabústöðum, starfsmannabúðum, matstöðum og öðrum vistarverum starfsmanna við Kárahnjúka? Ef svo er, hvaða afskipti eru það?
Umhverfisstofnun er sú stofnun ráðuneytisins sem fer með þessi málefni og hefur yfirumsjón með heilbrigðiseftirliti. Stofnunin hefur ekki haft bein afskipti af veitingu starfsleyfa og eftirliti á virkjanasvæðinu með vinnubúðum og öðrum vistarverum við Kárahnjúka. Fulltrúar frá stofnuninni hafa farið í vettvangsferðir til að skoða aðbúnað í starfsmannabúðum og mötuneytum og frágang fráveitna á svæðinu í samráði við HAUST. Stofnunin hefur verið í sambandi við fulltrúa HAUST og þannig fengið upplýsingar um og fylgst með störfum heilbrigðiseftirlitsins á svæðinu. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga starfar samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. HAUST gefur út starfsleyfi fyrir starfsmannabústaði, starfsmannabúðir og matstaði starfsmanna samkvæmt reglugerð nr. 941/2002, um hollustuhætti, og hefur eftirlit með þeim.
Afskipti HAUST af vinnu við virkjanaframkvæmdir eru allmikil. Sem dæmi má nefna að frá áramótum hafa verið farnar 13 dagsferðir í eftirlit, auk þess sem fundað hefur verið með aðalverktakanum og fulltrúum verkkaupa. Öll skýrslugerð og bréfaskriftir eru utan þess.
Samskipti Umhverfisstofnunar og HAUST vegna framkvæmda á virkjanasvæðinu hafa verið tvenns konar: Annars vegar hefur Umhverfisstofnun fylgst með störfum HAUST og hins vegar hefur HAUST leitað til stofnunarinnar vegna álitamála. HAUST hefur sérstaklega leitað til Umhverfisstofnunar ef og þegar komið hefur til þess að beita hefur þurft þvingunarúrræðum.
Umhverfisráðuneytið hefur fundað með HAUST og Umhverfisstofnun, síðast á Egilsstöðum 24. mars sl. Þar var m.a. farið yfir mál er varða starfsmannabúðir, vinnubúðir og mötuneyti. Hvað varðar starfsmannabúðir kom fram að ræstingarrými vantar og þrif á húsunum ábótavant, þar sem slitfletir eru ekki í lagi. Unnið er að lausn málsins. Vinnubúðir og mötuneyti voru hins vegar fullnægjandi samkvæmt reglum.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1446 — 633. mál.
Svar