Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 952. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1465 — 952. mál.
til iðnaðarráðherra um Landsvirkjun.
1. Hver hafa verið framlög eigenda Landsvirkjunar til fyrirtækisins frá upphafi, sundurliðað eftir eigendum og árum?
2. Hvernig skiptast framlög hvers eiganda hverju sinni í fjárframlög og eignarhluta í framlögðum eignum og hverjar voru þær eignir, sundurliðað eftir árum?
3. Hverjar hafa verið arðgreiðslur Landsvirkjunar frá upphafi til eigenda fyrirtækisins hvers um sig og samtals, sundurliðað eftir árum, og hvernig hafa þær arðgreiðslur verið reiknaðar og greiddar?
4. Hvaða ábyrgðir hafa eigendur Landsvirkjunar gengist í og hvað hefur fyrirtækið greitt fyrir þær, sundurliðað eftir eigendum og árum?
5. Hvernig hefur Marshall-aðstoðin, sem Bandaríkjamenn veittu Íslendingum um miðja síðustu öld, nýst til þess að mynda eign einstakra eigenda í Landsvirkjun? Hver voru fjárframlög eigenda Sogsvirkjunar og Laxárvirkjunar, sundurliðað eftir eigendum, virkjunum og árum fram að því að virkjanirnar runnu inn í Landsvirkjun? Hver er fjárhæðin talin vera miðað við núverandi eigið fé Landsvirkjunar og einnig miðað við áætlað markaðsvirði fyrirtækisins?
Óskað er eftir því að allar fjárhæðir verði reiknaðar á núverandi verðlagi.
Skriflegt svar óskast.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1465 — 952. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um Landsvirkjun.
Frá Kristni H. Gunnarssyni.