Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 959. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1472 — 959. mál.
til félagsmálaráðherra um erlenda starfsmenn á Kárahnjúkasvæðinu.
1. Hversu margir erlendir starfsmenn hafa verið á Kárahnjúkasvæðinu frá því að framkvæmdir hófust?
2. Hversu margir þeirra hófu strax við komu störf á vinnuvélum eða ökutækjum þar sem krafist er meiraprófs eða annarra starfsréttinda án afskipta Vinnueftirlitsins?
3. Hversu margir þeirra höfðu tilskilin réttindi er þeir hófu störf á svæðinu og hversu margir hafa tekið próf á vegum Vinnueftirlitsins? Óskað er sundurgreiningar á vinnuvélaprófum og meiraprófum.
4. Hversu margir hinna erlendu starfsmanna hafa sinnt störfum þar sem krafist er starfsréttinda iðnaðarmanna?
5. Hversu margir hinna erlendu starfsmanna, sem hafa verið skráðir inn í landið vegna Kárahnjúkaframkvæmdanna, hafa komið hingað sem iðnaðarmenn?
6. Hversu margir hinna erlendu iðnaðarmanna höfðu tilskilda starfsmenntun?
7. Hversu margir hinna erlendu starfsmanna hafa komið frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins?
Skriflegt svar óskast.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1472 — 959. mál.
Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um erlenda starfsmenn á Kárahnjúkasvæðinu.
Frá Össuri Skarphéðinssyni.