Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 963. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1481  —  963. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um ófeðruð börn.

Frá Valdimar L. Friðrikssyni.



     1.      Hversu mörg börn, þ.e. 18 ára og yngri, eru ófeðruð hér á landi?
     2.      Fjölgaði ófeðruðum börnum hlutfallslega á árunum 1983–2003?
     3.      Njóta einstæðar mæður ófeðraðra barna meiri félagslegrar aðstoðar en aðrir einstæðir foreldrar?



Skriflegt svar óskast.