Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 661. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1505 — 661. mál.
iðnaðar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur, Helga Hjörvars og Valdimars L. Friðrikssonar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig hefur iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið hrundið í framkvæmd aðgerðum til að ná fram jafnrétti kynjanna, sbr. 7. tölul. III. kafla þingsályktunar um framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 1998? Óskað er eftir að gerð verði grein fyrir hverju verkefni fyrir sig og hve miklu fé hefur verið varið til aðgerðanna.
Verkefnum þeim sem getið er í III. kafla þingsályktunartillögunnar sem fyrirspyrjendur vísa til voru ítarlega gerð skil í skýrslu félagsmálaráðherra um stöðu framkvæmdaáætlunar ríkisstjórnarinnar til að ná fram jafnrétti kynjanna sem lögð var fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002, þskj. 1290, 732. mál. Hér á eftir munu því helstu atriði í kafla iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis í þeirri framkvæmdaáætlun tekin upp og kostnaður tilgreindur. Þess má geta að nýjum verkefnum var bætt í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar sem lögð var fyrir 127. löggjafarþing og féllu önnur niður. Þá er einnig vakin athygli á því að félagsmálaráðherra hefur lagt fram nýja framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum og með henni fylgir skýrsla um stöðu verkefna úr endurskoðaðri áætlun fyrir árin 2002–2004.
7.1.Stuðningur við atvinnurekstur kvenna.
Nefnd um atvinnurekstur kvenna lauk störfum árið 1998 og birtust niðurstöður hennar og tillögur í skýrslunni Atvinnurekstur kvenna. Í skýrslunni er yfirgripsmikill fróðleikur og upplýsingar um stöðu kvenna í atvinnurekstri, fyrirtækjaumhverfi þeirra og sérstakar stuðningsaðgerðir þeim til handa sem gripið hefur verið til hér á landi.
Megintillögur nefndarinnar voru annars vegar að komið yrði á fót miðstöð fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki þar sem hlut kvenna væri sérstakur gaumur gefinn og hins vegar að til kæmi stuðningur stjórnvalda við félag eða „tengslanet“ kvenatvinnurekenda, sem hefði það að meginmarkmiði að efla samvinnu og samstöðu þeirra.
Í mars 1999 tók Impra, þjónustumiðstöð frumkvöðla og fyrirtækja, til starfa innan Iðntæknistofnunar og er þar um að ræða þjónustu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og frumkvöðla. Þar er lögð sérstök áhersla á að veita ráðgjöf konum sem eru að vinna að ákveðinni viðskiptahugmynd og hyggjast fara út í eigin rekstur. Undanfarin ár hafa verið haldin námskeið, Brautargengi, á vegum Iðntæknistofnunar og eru þau ætluð konum sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd. Þar eru kennd grundvallaratriði við stofnun og rekstur fyrirtækja.
Ráðherra skipaði starfshóp í byrjun janúar 1999 sem hafa skyldi forgöngu um stofnun félags fyrir konur í atvinnurekstri. Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) var stofnað í apríl 1999 og er meginmarkmið félagsins að gera konur í atvinnurekstri sýnilegri og um leið að mynda tengslanet fyrir þær. Félagið nýtur aðstoðar starfsmanns hjá Impru sem sér m.a. um útgáfu fréttabréfs, uppfærslu félagatals, innheimtu félagsgjalda og aðstoð við rekstur félagsins.
Kostnaður við þetta verkefni fólst í þóknunum tveggja nefnda. Nefndarmenn í nefnd um atvinnurekstur kvenna fengu alls greiddar 1.925 einingar fyrir störf sín og nefndarmenn í starfshópi um stofnun félags fyrir konur í atvinnurekstri 143 einingar. Þóknun fyrir hverja einingu er nú 1.258 kr. Auk þessa kom til launakostnaður vegna starfsmanna ráðuneytisins og prentunarkostnaður sem rúmaðist innan fjárhagsramma ráðuneytisins án sérstakra fjárveitinga á fjárlögum.
7.2. Könnun á stöðu kvenna í iðnaði.
Verkefninu, sem laut að könnun á kyngreindum upplýsingum í iðnaði, var ekki lokið.
7.3. Hlutur kvenna í nefndum og ráðum á vegum ráðuneytisins.
Ráðuneytið tekur sérstaklega mið af jafnréttissjónarmiðum við tilnefningu í nefndir og ráð með það að markmiði að auka þar hlut kvenna. Einnig er vísað í 20. gr. laga nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, þegar óskað er eftir tilnefningum í nefndir, ráð og stjórnir.
Kostnaður við verkefnið er óverulegur.
7.4. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti og upplýsingasamfélagið.
Ráðherra var falið af ríkisstjórninni árið 1995 að skipa nefnd til að vinna að stefnumótun fyrir ríkisstjórnina um íslenska upplýsingasamfélagið næsta áratug. Nefndin skilaði áliti og níu starfshópar er með henni unnu ári síðar. Eitt af meginmarkmiðunum er að nýta möguleika upplýsingatækninnar til að vinna gegn óæskilegum félagslegum áhrifum, svo sem auknu misrétti, og sjá til þess að jafnrétti sé tryggt. Í þessu felst m.a. að auka fjarmenntun og atvinnuþátttöku fólks með fjarvinnslu og hefur ráðuneytið beitt sér fyrir því. Þá er mjög mikilvægt að bæði kynin komi að mótun og uppbyggingu upplýsingatækniiðnaðar. Ráðuneytið tekur ásamt fleirum þátt í átaksverkefni Háskóla Íslands og Jafnréttisstofu, Konur til forystu og jafnara námsval kynjanna. Með þátttöku sinni vill ráðuneytið hvetja fleiri stúlkur til náms í greinum upplýsingatækninnar. Markmið átaksins er annars vegar að undirbúa kvennemendur sem ljúka námi frá Háskóla Íslands undir forustustörf á framtíðarstarfsvettvangi þeirra og hins vegar að jafna kynjaskiptingu nemenda í deildum Háskólans. Með þessu vill Háskóli Íslands, með stuðningi samstarfsaðila að verkefninu, leggja sitt af mörkum til að jafna hlutdeild kynjanna í þekkingar- og upplýsingasamfélagi nýrrar aldar. Víða við háskóla erlendis hefur verið ráðist í áþekk verkefni til að tryggja þátttöku kvenna á þeirri upplýsingatækniöld sem framundan er og auka fjölbreytileika vísindanna með jafnara námsvali kynjanna.
Beinn kostnaður við verkefnið var 800 þús. kr. styrkur til átaksverkefnis Háskóla Íslands og Jafnréttisstofu.
7.5. Fjölgun kvenna í stjórnun og rekstri fyrirtækja.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið hefur beitt sér fyrir rannsóknum á þætti kvenna í stjórnun og rekstri fyrirtækja. Með tilkomu lektors í kynjafræðum og prófessors í frumkvöðla- og nýsköpunarfræðum við Háskóla Íslands opnast möguleikar á samstarfi um rannsóknir, svo sem um þátt kvenna í stjórnun fyrirtækja. Einnig verða meistaranámsnemendur hvattir til að velja verkefni á þessu sviði.
Kostnaður við verkefnið er óverulegur.
7.6. Stuðningur Nýsköpunarsjóðs við atvinnuuppbyggingu kvenna.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, ásamt Íslandsbanka, Morgunblaðinu og Deloitte & Touche, ýttu úr vör sérstöku átaki til stuðnings atvinnurekstri kvenna árið 2000 með verkefninu Auður í krafti kvenna. Háskólinn í Reykjavík annast framkvæmd verkefnisins og er markmiðið að það skili mælanlegum árangri sem felist í fjölgun og vexti fyrirtækja í eigu kvenna. Hlutverk verkefnisins er að nýta enn betur þann auð sem í konum býr með því að auka þátttöku þeirra í atvinnusköpun og stuðla þannig að auknum hagvexti á Íslandi. Boðið er upp á ýmis námskeið fyrir konur um rekstur og stjórnun fyrirtækja. Má þar nefna svonefnda frumkvöðlaauði, fjármálaauði, leiðtogaauði og framtíðarauði. Um 800 konur hafa nú þegar sótt námskeiðin.
Kostnaður ráðuneytisins vegna þessa verkefnis var óverulegur.
7.7. Átak til atvinnusköpunar.
Eftir að Iðnlánasjóður og Iðnþróunarsjóður hættu starfsemi tók iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti alfarið við rekstri Átaks til atvinnusköpunar. Er það stefna ráðuneytisins að sameina stuðningsaðgerðir sínar við atvinnulífið undir yfirstjórn átaksins sem styður verkefni jafnt frá konum sem körlum. Þær forsendur sem gengið er út frá við veitingu styrkja úr verkefninu eru einkum tvenns konar: Annars vegar eru veittir styrkir til verkefna sem eru á forstigi nýsköpunar og falla ekki undir aðra aðila sem veita sambærilega fyrirgreiðslu. Hins vegar er um að ræða sérstök skilgreind átaksverkefni ráðuneytisins sem ætlað er að hafa víðtæk áhrif en eru ekki bundin við afmarkað verk, einstakling eða fyrirtæki. Þá hefur Átak til atvinnusköpunar sérstaklega aðstoðað fyrirtæki sem eru að stíga sín fyrstu skref í alþjóðlegu samstarfi með því að styrkja þau til að sækja svokölluð fyrirtækjastefnumót sem haldin eru reglulega víðs vegar um Evrópu.
Ekki liggur fyrir greining á því að hve miklu leyti kostnaður við verkefnið tengist framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum.
7.8. Þátttaka iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis í samvinnuverkefnum.
a. Atvinnuuppbygging á landsbyggðinni.
Byggðastofnun hefur haft þetta verkefni með höndum og m.a. skilað skýrslu um hvernig styrkir úr opinberum sjóðum sem nýtast eiga atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni hafa skipst á milli kvenna og karla.
Kostnaður lýtur eingöngu að gerð þessarar skýrslu innan Byggðastofnunar.
b. Lánatryggingasjóður kvenna.
Lánatryggingasjóður kvenna er samvinnuverkefni iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Reykjavíkurborgar. Tilgangur með stofnun sjóðsins er að styðja konur til þátttöku og nýsköpunar í atvinnulífi með því að veita ábyrgðir á lánum sem veitt eru umsækjendum um lánatryggingu úr Lánatryggingasjóði kvenna.
Framlög til sjóðsins fram til ársins 2000, alls 30 millj. kr., skiptust á milli iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Reykjavíkurborgar. Framlag iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis var 6 millj. kr.
7.9. Jafnréttisnefnd ráðuneytisins og stofnana þess.
Ráðuneytið hefur samþykkt jafnréttisáætlun og árið 2001 tók jafnréttisnefnd til starfa. Nefndin heyrir undir ráðuneytisstjóra og er skipuð til tveggja ára í senn. Í henni eiga sæti tveir fulltrúar starfsmanna, kjörnir af starfsmönnum, og tveir fulltrúar ráðuneytanna, tilnefndir af ráðuneytisstjóra. Jafnréttisnefnd skal hafa yfirsýn yfir lög og reglur stjórnvalda um jafnrétti kynjanna og fylgjast með breytingum á þeim. Þá skal hún fylgjast með framkvæmd jafnréttisáætlunar iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis og kanna réttmæti ábendinga um að ekki sé farið að lögum eða reglum um jafnrétti í ráðuneytinu. Skal nefndin vera ráðgefandi fyrir yfirstjórn iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis í málefnum er varða jafnrétti. Ráðuneytið mun beita sér fyrir því eftir sem áður að stofnanir sem undir það heyra geri einnig slíkar jafnréttisáætlanir.
Kostnaður við verkefnið var óverulegur.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1505 — 661. mál.
Svar