Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 893. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1512  —  893. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Guðjóns A. Kristjánssonar um réttarstöðu íslenskra skipa á svokölluðu Svalbarðasvæði.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Telur ráðherra að íslensk fiskiskip sem veiða undir íslenskum fána, eru skipuð íslenskum áhöfnum og veiða úr kvótahlutdeild sem úthlutað er af íslenskum stjórnvöldum á hinu svokallaða Svalbarðasvæði heyri undir íslenska löggjöf? Hver er rökstuðningurinn fyrir svari ráðherra?


    Um veiðar íslenskra skipa úr nytjastofnum utan lögsögu Íslands almennt gilda m.a. lög nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum. Hvað varðar veiðar utan lögsögu Íslands úr svonefndum íslenskum deilistofnum, þ.e. fiskstofnum sem veiðast bæði innan og utan lögsögunnar, gilda ákvæði laga nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, eftir því sem við getur átt, sbr. og ákvæði 5. gr. fyrrgreindra laga nr. 151/1996 og ákvæði til bráðabirgða í þeim lögum, sbr. 1. gr. laga nr. 50/2002. Jafnframt geta ýmis önnur lög og reglugerðir gilt um veiðar íslenskra skipa utan lögsögu Íslands eftir því um hvaða hafsvæði er að ræða.
    Að því er varðar hafsvæðin við Svalbarða er almennt litið svo á að gildissvið samningsins um Svalbarða frá 9. febrúar 1920 einskorðist ekki við landhelgi Svalbarða, sem norsk stjórnvöld færðu nýverið út í 12 sjómílur, heldur falli jafnframt þar undir hafsvæðin utan landhelginnar, þ.e. landgrunn Svalbarða og 200 sjómílna lögsaga hans. Noregur getur samkvæmt því farið með fullveldisréttindi á umræddum svæðum á grundvelli samningsins um Svalbarða og lúta þau þeim takmörkunum sem í ákvæðum samningsins felast, einkum jafnræðisreglu hans. Norskum stjórnvöldum er því m.a. heimilt að setja reglur um veiðar í landhelgi og 200 sjómílna lögsögu Svalbarða á grundvelli og í samræmi við ákvæði Svalbarðasamningsins, þ.m.t. jafnræðisreglu hans.