Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 914. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1513 — 914. mál.
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Valdimars L. Friðrikssonar um löggæslu á íþróttamótum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Telur ráðherra eðlilegt að mótshöldurum unglingalandsmóts Ungmennafélags Íslands sé gert að greiða lögreglustjóra fyrir gæslu meðan á móti stendur?
2. Hyggst ráðherra skylda alla sem standa fyrir íþróttamótum eða íþróttahátíðum til að greiða fyrir löggæslu?
Samkvæmt 34. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996, er lögreglustjóra heimilt að binda skemmtanaleyfi því skilyrði að lögreglumenn verði á skemmtistað og jafnframt að leyfishafi greiði kostnað af þeirri löggæslu samkvæmt reglum sem dómsmálaráðherra setur. Það er háð mati lögreglustjóra hverju sinni hvort binda eigi útgáfu skemmtanaleyfis þessu skilyrði, byggt m.a. á mati á löggæsluþörf vegna umræddrar skemmtunar, samsetningu gesta, staðháttum og venjubundnum viðbúnaði lögreglu í umræddu umdæmi o.s.frv.
Íþróttamót kalla almennt ekki á útgáfu skemmtanaleyfis af hálfu lögreglustjóra og því skortir lagaheimild til þess að krefjast þess að þeir sem standa fyrir íþróttamótum greiði kostnað við löggæslu sem af slíku mótshaldi skapast. Kalli viðburður, hvort svo sem um íþróttamót eða annað er að ræða, á útgáfu skemmtanaleyfis hefur löggjafinn hins vegar, sbr. framangreint, heimilað lögreglustjóra að binda útgáfu slíks leyfis því skilyrði að löggæslukostnaður verði greiddur. Ljóst er að slíkt verður einungis gert ef umræddur viðburður kallar á aukinn viðbúnað lögreglu sem er umfram það sem venjulegt getur talist og hefur það verið sérstaklega áréttað í umburðarbréfum dómsmálaráðuneytisins til allra lögreglustjóra, síðast í umburðarbréfi dags. 30. maí 2003. Því er ljóst að ef haldin er skemmtun, t.d. dansleikur, í tengslum við íþróttamót, unglingalandsmót eða sambærilega samkomu, er lögreglustjórum rétt og eðlilegt að krefja þann sem stendur fyrir skemmtun um greiðslu þess kostnaðar sem óhjákvæmilega hlýst af skemmtuninni, að uppfylltum öðrum skilyrðum í lögum og reglum.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1513 — 914. mál.
Svar