Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 640. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1515 — 640. mál.
landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Gunnars Örlygssonar um laxveiðiár á Austurlandi.
1. Hefur ráðherra kynnt sér afstöðu landeigenda og veiðiréttarhafa sem hafa áhyggjur af samblöndun og jafnvel sjúkdómafaraldri í laxveiðiám á Austurlandi vegna strokulaxa frá laxeldisfyrirtæki þar eystra?
Þegar upp komu hugmyndir um aukningu á laxeldi í sjókvíum hér við land árið 2000, kynnti landbúnaðarráðherra sér hugmyndir aðila í fiskeldi og sömuleiðis áhyggjur eigenda veiðiréttar, vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Skipuð var samráðsnefnd undir forystu Sveinbjarnar Eyjólfssonar, aðstoðarmanns ráðherra, sem skyldi gera tillögur um staðsetningu kvíaeldis. Skyldi hópurinn taka tillit til þátta sem snertu sambýli kvíaeldis og villtra laxastofna við tillögugerð varðandi staðsetningu. Í nefndinni sátu, auk formanns, veiðimálastjóri, framkvæmdastjóri Veiðimálastofnunar, dýralæknir fisksjúkdóma, framkvæmdastjóri Fiskifélags Íslands, formaður Landssambands veiðifélaga og formaður Landssambands fiskeldisstöðva.
Ekki var einhugur í nefndinni varðandi nauðsynlegar aðgerðir og því skilaði formaður nefndarinnar áliti í eigin nafni í nóvember 2000, þar sem eftirfarandi var lagt til:
. Að fiskeldiskafli lax- og silungsveiðilaganna yrði styrktur með nauðsynlegum breytingum strax á yfirstandandi þingi og að stofnaður yrði starfshópur til að vinna heildarlöggjöf um fiskeldi,
. að strax yrði samin reglugerð um rekstrarleyfi í fiskeldi,
. að veiðimálastjóri veitti rekstarleyfi fyrir eldi á laxi af norskum uppruna í kvíum á völdum stöðum á Austfjörðum
. að rekstrarleyfi veiðimálastjóra yrðu til fimm ára,
. að rekstrarleyfi veiðimálastjóra yrðu bundin umfangsmiklum skilyrðum um vöktun og rannsóknir á nánasta umhverfi, sbr. rannsóknaáætlun sem veiðimálastjóri ynni í samráði við hagsmunaaðila,
. að stærð rekstrarleyfa veiðimálastjóra tæki mið af þeirri staðreynd að mjög lítið er vitað um áhrif eldis á umhverfið,
. að rekstrarleyfi veiðimálastjóra yrðu háð umsögn dýralæknis fisksjúkdóma hvað varðar stærð, stofna og eftirlit,
. að ekki yrðu veitt leyfi fyrir frekara eldi í Faxaflóa fyrr en lokið væri tilraun Silungs í Stakksfirði,
. að landinu yrði svæðaskipt hið fyrsta með tilliti til hvar stunda mætti fiskeldi og hvernig,
. að forræði yfir sjávarsvæðum yrði skilgreint hið fyrsta.
Þegar var hafist handa á vegum ráðuneytisins að framkvæma þau atriði sem lögð voru til og hefur eftirfarandi þegar verið gert:
1. Í ársbyrjun 2000 var gefin út reglugerð nr. 105/2000, um flutning og sleppingu laxfiska og varnir gegn fisksjúkdómum og blöndun laxastofna, sem tryggði enn frekar öryggi villtra laxastofna gagnvart fiskeldi. Um var að ræða endurskoðun á reglugerð nr. 401/1988, með sama nafni.
2. Í mars 2001 veitti embætti veiðimálastjóra sjókvíastöðvum í Mjóafirði og Berufirði 400 lesta bráðabirgðarekstarleyfi til þriggja ára, sem skyldu endurnýjuð í kjölfar lagabreytinga. Í leyfin voru sett viðamikil skilyrði um örmerkingar á 10% þeirra seiða sem sett yrðu í kvíar og að gerðar yrðu ýmsar rannsóknir á nærliggjandi svæðum, m.a. með tilliti til strokulaxa. Mun slík krafa um örmerkingar á hluta af eldislaxi í kvíum, vera sú eina meðal þjóða innan vébanda Atlantshafslaxverndunarstofnunarinnar, NASCO. Samkvæmt nýjum lögum voru sambærileg leyfi veitt 99 lesta kvíastöðvum í Eyjafirði, Seyðisfirði og Tálknafirði. Sjókvíastöð í Tálknafirði hefur hins vegar ekki hafið starfsemi.
3. Um mitt ár 2001 var laxeldiskafla laga um lax- og silungsveiði, nr. 76/1970, breytt með lögum nr. 83/2001, sem styrkti mjög alla stjórnsýslu og eftirlit varðandi fiskeldi og bætti við fjölmörgum reglugerðarheimildum tengdum slíku eldi.
4. Skömmu eftir staðfestingu fyrrgreindra laga setti ráðherra reglur sem takmörkuðu eldi frjórra laxa við afmörkuð svæði við Vestfirði, Eyjafjörð, Öxarfjörð og Austfirði (auglýsing nr. 226/2001, um friðunarsvæði þar sem eldi frjórra laxa í sjókvíum er óheimilt.). Sjókvíaeldi er því ekki heimilað í nágrenni helstu laxveiðisvæða landsins.
5. Í fjárlögum 2003 voru embætti veiðimálstjóra veittir fjármunir til að stórefla eftirlit með eldisstöðvum, sem unnið er í samræmi við 97. gr. laga um lax- og silungsveiði. Einnig er til staðar öflugt sjúkdómaeftirlit í eldisstöðvum á vegum dýralæknis fisksjúkdóma.
6. Í árslok 2003 gekk í gildi reglugerð nr. 1011/2003, um búnað og innra eftirlit í fiskeldisstöðvum. Er þetta fyrsta reglugerðin meðal aðildarlanda NASCO sem gerir slíkar kröfur til fiskeldisstöðva varðandi eldiskvíar og þann búnað sem notaður er og krefst auk þess innra eftirlits í eldisstöðinni, sem tekin er úr reglulega af opinberum aðilum.
7. Á alþjóðavettvangi hefur innan vébanda NASCO verið unnið að því að ná fram ýmsum ályktunum og samþykktum sem miða að því að draga úr óæskilegum áhrifum fiskeldis á villta laxastofna. Ber þar hæst svokallaða Williamsburg-ályktun, sem samþykkt var á síðasta ársfundi samtakanna í Edinborg.
Eins og hér kemur fram hefur verið unnið mikið starf til að tryggja eins og kostur er að sjókvíaeldi á kynbættum eldislaxi valdi ekki tjóni á villtum laxastofnum með erfðablöndun eða dreifingu smitsjúkdóma. Nokkur umræða mun hafa farið fram milli ráðuneyta um forræði yfir sjávarsvæðum en niðurstöður liggja enn ekki fyrir.
2. Hefur ráðherra látið kanna hversu mikill fjárhagslegur skaði landeigenda og veiðiréttarhafa getur orðið ef lax í austfirskum ám smitast?
3. Hyggst ráðherra bæta landeigendum og veiðiréttarhöfum þar eystra fjárhagslegan skaða þeirra ef allt fer á versta veg?
Ekki hefur verið talin ástæða til að óttast að laxar sem sleppt er úr sjókvíum og smiti villtan lax í veiðiám á Austfjörðum, enda er mun algengara að lax úr villtu umhverfi beri smit í eldisstofna. Því er ekki tímabært að meta slíkan skaða.
Af þessu leiðir að ekki er gert ráð fyrir að til þess komi að greiða þurfi skaðabætur.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1515 — 640. mál.
Svar