Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 915. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1520  —  915. mál.




Svar



landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Valdimars L. Friðrikssonar um laxveiði í net við strendur landsins.

     1.      Hversu margar kærur fyrir ólöglega laxveiði í net við strendur landsins voru gefnar út árin 1994–2003, sundurgreint eftir landshlutum?
    Í þessu tilfelli er rétt að benda á að brot gagnvart lax- og silungsveiðilöggjöfinni eru kærð til sýslumannsembætta eða lögreglustjóra. Embætti veiðimálastjóra hefur því ekki heildstætt yfirlit um þær kærur sem lagðar eru fram og hvernig þær skiptast eftir árum og milli landshluta. Því væri veruleg vinna í því fólgin að taka slíkt saman en líklegt er að árlegar kærur á landsvísu séu á bilinu 10–15, sem þó gefur engan veginn rétta mynd af brotum. Ekki er óalgengt að veiðieftirlitsmenn taki upp ólögleg net og geri upptæk þar sem þau eru ekki merkt eiganda eins og lög gera ráð fyrir. Í einstaka tilfellum fá aðilar áminningu frá eftirlitsmanni og kæra er því ekki lögð fram. Eftirlitsmenn telja að heldur hafi dregið úr ólöglegum veiðum á laxi eftir að eftirlit var eflt upp úr 1990. Jafnframt hefur dregið úr slíkum brotum t.d. við Vesturland eftir að dró úr hafbeitarstarfsemi í þeim landshluta um 1996.

     2.      Hvernig er eftirliti með laxveiði í net við strendur landsins háttað?

     Embætti veiðimálastjóra ræður yfir sumarið sérstaka eftirlitsmenn á landsvísu til að fylgjast með því að bann við laxveiðum í sjó sé virt. Þessir aðilar ferðast vítt og breitt um landið og fylgjast með því að ekki séu ólögleg laxanet við ströndina og að lögleg net séu í samræmi við reglur nr. 261/1996, um netaveiði göngusilungs í sjó. Einnig eru sérstakir veiðieftirlitsmenn á vegum veiðifélaga í Árnessýslu og Borgarfirði sem fylgjast með strandlengjunni á sínu svæði auk þess sem þeir fylgjast með netalögnum í fersku vatni. Þessir aðilar hafa síðan samstarf sín á milli þegar einstaka mál koma upp.
     Það hefur óneitanlega valdið veiðieftirlitsmönnum nokkrum erfiðleikum að netaveiðar á bleikju í sjó eru heimilar þrátt fyrir að laxveiðar í sjó séu alfarið bannaðar. Lax veiðist ætíð að nokkru marki í silunganet ef þau eru lögð í gönguleið laxins og eftirlitsmenn geta ekki kært viðkomandi aðila fyrir lögbrot nema laxinum hafi verið landað. Eðlilegast væri því að takmarka netaveiði á silungi í sjó á þeim tíma sem laxinn gengur.
    Samkvæmt 7. mgr. 14. gr. laga nr. 76/1970, um lax- og silungveiði, hefur veiðimálastjóri heimild til að banna silungsveiðar á vissum árstíma samkvæmt beiðni veiðiréttareigenda, sem jafnframt verða ábyrgir fyrir bótakröfum. Þetta er mjög áhrifarík leið til að draga úr áhrifum silungsveiðinnar á laxastofna og gefnar hafa verið út nokkrar slíkar reglugerðir, sem m.a. má finna á heimasíðu embættis veiðimálastjóra www.veidimalastjori.is:
     .      Auglýsing nr. 300/1998, um bann við veiði göngusilungs í Hvalfirði.
     .      Auglýsing nr. 283/1979, um bann við veiði göngusilungs á Eyjafirði.
     .      Auglýsing nr. 355/1984, um bann við veiði göngusilungs í sjó í Ólafsfirði.
     .      Reglur nr. 418/2003 um bann við netaveiði göngusilungs við Faxaflóa og Skjálfanda.
     Ljóst er að fleiri slíkar reglur verða gefnar út sem hafa það að meginmarkmiði að takmarka blóraveiði á laxi í silunganet og gilda því tímabundið yfir megingöngutíma laxins.
    Ljóst er að ólögleg laxveiði fer ekki eingöngu fram í lögleg bleikjunet við strendur landsins. Grunur hefur leikið á því að lax sé að einhverju marki veiddur í ýsunet yfir sumarið og staðfest hefur verið að lax af ýmsum stærðum sé veiddur í flotvörpu, t.d. í síld- og makrílveiðum. Slík veiði fer fram í órafjarlægð frá heimkynnum laxins í fersku vatni og getur í raun talist alþjóðlegt vandamál sem mikið hefur verið rætt á alþjóðafundum um Atlantshafslax.

     3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að stöðva með öllu „sjóræningjaveiði“ á laxi við strendur landsins?

    Landbúnaðarráðherra mun hér eftir sem hingað til styðja að öflugt eftirlit sé með því, að lax sé ekki veiddur í sjó eins og mælt er fyrir um í landslögum. Hins vegar þurfa aðrir aðilar einnig að koma að því máli, til að tryggt sé að ekki sé um blóraveiði á laxi að ræða í veiðum á sjávarfiskum í lagnet eða flotvörpur, eins og áður var vikið að.