Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 975. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1526  —  975. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um nýtingu mannvirkja á Keflavíkurflugvelli til iðnaðar.

Frá Gunnari Örlygssyni.



     1.      Hefur ráðherra kynnt sér hugmyndir Flugvirkjafélags Íslands um nýtingu flugskýlis varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli til nýrra verkefna sem tengjast viðhaldi flugvéla og samsetningu á flugvélahlutum?
     2.      Er ráðherra kunnugt um hvort íslensk stjórnvöld hafi leitað til varnarliðsins um nýtingu íslenskra iðnfyrirtækja á mannvirkjum á Keflavíkurflugvelli?